Tíminn - 26.11.1964, Page 3
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 1964
3
TÍMINN
HEIMA OG HEIMAN
Þráði konur en náði
aldrei ástum þeirra
Nýlega er útkomin í Sviss ein
þeirra bóka, sem þar í lanúi þykja
einna bezt úr garði gerðar mál-
verkabók, og nefnist þessi , Lautr
ec par Lautrec". saga í máli og
myndum og fjallar um franska
málarann Henri de Toulouse-
Lautrec, einn hinna sérstseðu lista
Jane Avril, eins og Toulouse-Lautrec
málaSi hana á auglýsingaskiltið fram
an á Rauðu mylluna og gerðl bana
fraega á einni nóttu.
manna Parísar á síðustu áratugum
aldarinnar sem leið.
í dag eru rétt hundrað ár síð-
an hann fæddist. Foreldrar hans
voru Alphonse de Toulouse Lautr-
ec-Monfa greifi og kona hans, Adé
le, sem var náfrænka manns síns.
Greifinn var furðulegur maður í
háttum. Helzta iðja hans var að
stunda útreiðatúra. Oftast var
hann einn á ferð, reið hvítri
hryssu um hina víðáttumiklu
skemmtigarða Parisar, áði annað
veifið, sté af baki, mjólkaði mer
ina og drakk mjólkina spenvolga.
Þegar hann ferðaðist um sveit-
ina utan við borgina, lét hann tam
inn hauk sitja á hendi sér. gaf
honum að éta hrátt kjöt af dýr-
um, sem hann skaut á leiðinni.
Þessi öfgafulli maður lifði í ljóma
fortíðarinnar, hataði samtíðina og
þó sér í lagi hina frægu mynd-
list samtimans. En kona hans var
alger andstæða manns síns. hæg-
gerð, hógvær og trúhneigð. gáfuð
og vel menntuð. En þau ósköp,
sem áttu eftir að koma fram á
syni þeirra, kenndi faðirinn hin-
um nána blóðskyldleika mð kon-
una.
Sonurinn Henri iíktist m.iöe móð
ur sinni. í bernsku var hann eðli
legt fríkleiksbarn, vel gert til
líkama og sálar. En þegar hann |
var 14 ára, datt hann illa á gler-
hálu hallargólfinu heima hjá sér
og lærbrotnaði. Hann lá lengi og
leggurinn greri illa. Hann staulað
isl um á hækjum lengi á efti) og
eitt sinn er hann ''ar á gangi með I
móður sinni, skrikaði önnur hækj !
an og pilturinn féll enn, og í j
þetta sinn brotnaði hinn tVlegg
urinn. Næstu tvö árin lá Henri
rúmfastur, og var nú sýnt, að fætur
hans mundu ekki vaxa framar.
Upp frá því var hann örkumla mað
ur að þessu leyti. En að öðru
leyti hélt hann áfram að þrosk-
ast, svo að hann fullóx að ofgn,
en var dvergvaxinn að neðanverðu.
Snemma bar á myndlistarhæfi-
leikum hjá drengnum. Eitt sinn er
hann kom með móður sinni þar
sem gestir rituðu nöfn sín ’ bók
vildi Henri ekki láta sitt eftir
liggja, þá þriggja ára. En einhver
sagði við hann: „Þú kannt ekki
að skrifa“, og hann svaraði: „Eg
veit það, en ég kann að teikna
naut.“
Hann átti við mikla móðurást
að búa í æsku, og alla tíð var
hann aðdáandi kvenna og vildi
helzt vera í návist þeirra, enda
þótt vansköpun hans gerði það
að verkum, að hann næði aidrei
ástum kvenna. Af því spratt böl-
sýni hans. Við eina kunningjakonu
sína, þá skemmtisöngkonu, sem
hann átti eftir að gera fræga,
Yvette, sagði hann: „Ef þú syng
ur um gimdina, þá skilur fólkið
þig. En ást, kæra Yvette mín, ást
er ekki til.“
Um tvítugt settist hann að í
hverfinu Montmartre, sem þá var
raunar byggð utan við borgina og
síðan varð frægt fyrir gleðistaði
og listamennina, sem þar voru
löngum. Þar ól Henri allan sinn
aldur upp frá því, á veðreiðar-
•völlum, gildaskálum og gleði-
kvennahúsum, skoðaði lífið, gerði
sig seinast í hel 37 ára gamall,
rétt þegar 20. öldin var gehgin
í garð.
Konur voru ætíð mesta aðdá-
unarefni hans. Ein fjölskylduhöll
in var í Bordeaux, og þangað fór
Henri einu sinni á ári, sjóleiðis.
Árið 1896 var hann á leið þangað
á skipi, og um borð kom hann
auga á konu eina undurfagra,
sem h'ann starði á öllum stundum,
er hann sá sér færi, en hafði
aldrei kjark til að ávarpa hana.
Þegar hann kom í áfangastað, þver
neitaði hann að fara í land. Skip
ið hélt áfram, og þegar komið
var til Lissabon, tókst einhverjum
að stjaka honum í land, því skipið
var á leið Afríku. Konan, sem
heillaði Henri, var á leið til
Afríku, og Lautrec sá hana aldrei
framar. En hann tók ljósmynd af
henni og síðar gerði hann eftir
henni eina af sínum frægTi lító-
grafíum, „Ókunni farþeginn í
klefa 54.“
„Frægð mína á ég Lautrer að
þakka", sagði Jane Avril, föl-
leita rauðhærða dansmærin, sem
engan átti að og var að brjótast
áfram á eigin eyk og Lautrec varð
eitt sinn starsýnt á þar sem hann
sat yfir glasi sínu á þeim skemmti
stað, sem átti eftir að verða fræg
astur allra, Moulin Rouge (Rauða
myllan). Litteikningin, sem hann
dró upp af Jane Avril birtist fyrst
á auglýsingu, sem hékk síðan lengi
utan á Rauðu myllunni, gerði
dansmeyjuna fræga samstundis.
Þau urðu vinir upp frá því, leidd
ust oft í mannfagnaði, en aldrei
tókust samt með þeim ástir
Allnáið samband var með Lautr
ec og stúlku einni að nafni Suz
skyssur af listaverkum og drakk,.,anBe, \Saldon, sem»sí8ar eignaðist
IséH (jJSijiift; rrjánni, sjL ý.sonur;
vafð síðar frægúr málari, Maurice
Utrillo, og móðir hans varð raun
ar líka kunnur málari sjálf En
lengi hafði hún atvinnu af að
sitja fyrir hjá málurum, sem nú
eru í snililnga tölu, fyrst hjá Reno
ir, þá Degast, og síðast hjá Lautrec
en að því loknu íór hún'sjált að
mála. Hún sat oft fyrir hjá Lautr
Lautrec notaði hvert tækifæri til
að draga athyglina frá hinu van-
skapaða vaxtarlagi sínu. T. d. með
því að klæðast hinum furðulegustu
flíkum og í skrítileg gervi, ekkl sízt
í návist kvenna, sem hann dáði. Hér
á myndinni hefur hann klæðzt gervi
veiðimanns, með velðihorn og hatt-
hlémm á höfði.
ec, og til að hneyklsa ráðskonu
sína lét hann Suzanne einu sinni
setjast alsbera að matborðinu hjá
sér í gesta viðurvist. Suzanne var
mjög fögur, en fegurð hennar dró
Lautrec aldrei fram á myndum
sínum af.henni.
Á hóruhúsunum í París var
Lautrec tíður gestur, hann kom
þangað ekki aðeins sem skjndígest
ur, heldur hélt hann þar stundum
til dögum saman og fékk gist-
ingu. Þar var ekki litið niður á
hann, og þar fékk hann fyrirsæt-
ur að sínu skapi. „Fyrirsætur eru
ti'ramhaid á bls 13
Stuna
f forustugrein Dags á Akur
eyri segir 18. nóv s.l.
„Á konungiim Mídans usu
asnaeyru. Hann huldi þessd
Iýti með höfuðfati. Hárskeri
hams varð þó að vita um þetta,
en af hárskeranum var tekið
fullkomið þagnarheiti. Hársker
inn var í eðli sínu trúr, en hon
um varð ofraun að steinþegja
yfiir þessu voðalega Ieyndar-
máli.
Hárskerinn fór þess vegna á
afvikinn stað, gróf holu og
hvíslaði í hana: Mídas konung
ur hefur asmaeyru. Vindurinn
heyrði leyndarmálið og hljóp
með það út um allt.
f sumar sem leið fór líkt fyr-
ir einum ritstjóra Morgunblaðs
ins, Sigurði A. Magnússyni, og
hárskera Mídasar. Hann sagði
það. sem á Morgunblaðsheim-
ilinu mátti alls ekki segja.
Hann sagði það heldur ekki
í Morgunblaðinu sjálfu, en reik
aði með það í Lesbókina. Hon
um var ofraun að steinþegja.
Hinn 9. ágúst sl. stundi hann
því upp, að íslenzku þjóðfélagi
miði nú með hverju ári „æ
meir í átt til hreinræktaðs
braskara þjóðfélags.“
Húfan, sem hylur
eyrun
Og enn segir í Degi:
„Almennir borgarar sem
stutt hafa Sjálfstæðisflokkinn,
ættu að veita þessari persónu-
legu tjáningu Morgunblaðsrit
stjórans athygli. Þeir Vilja að
sjálfsögðu ekki frekar en aðr
ir þjóðfélagsþegnar, að íslenzkt
þjóðfélag verði „braskara þjóð-
fél'ag“, en þeir hafa dyggilega
stutt að því með því að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn.
Sú húfa, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur boirið, hefur
hulið þeim eyru hans. Þeir
hafa ekki gert sér þess grein,
að innan hans eru höfuðbrask
arar þjóðfélagsins. Ekki heldur
komið auga á það, að þessi ár,
sem Sjálfstæðisflokkurinn Lef-
ur farið með stjórn landsins,
hefnr braskið — „gróðasvindl-
ið“ — aukizt og margfaldazt
einmitt í skjóli hans og af hans
völdum. Hin ofsalega verð-
bólgualda stjórnarfars þessara
ára ber braskarana á faldi sin
um. Reykjavík ber þess Ijósan
vott og Akureyri nokkurn.
Stuna Sigurðar A. Magnús-
9onar ritstjóra 9. ágúst í sum
ar var sprotttn af þjáningu ó-
bærilegrar þagnar hárskerans
um málefni húsbændanna.
Hún var greinilegt aðvörunar
merki innan úr húsinu, til
þeirra, sem úti fyrir standa, og
eru venjulega duldir þess þýð-
ingarmesta sem innan veggj-
anna gerist.“
Eitt af frægustu málverkum Lautrecs frá lóruhúsinu, þar sem hann var tíSastur gestur og gisti oft nótt
eftir nótt. Fremst situr eftirlætisfyrirsætan hans , þvísa húsi, vændiskonan Mireille, með aðra höno undir
kinn og hina á hnénu. Hún var honum góð, gaf honum blóm og ,,teygði úr sér eins og yndislegt dýr á legu-
bekknum.'*
Hverfisaotu 16
Simi 21355