Tíminn - 26.11.1964, Síða 7
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 1964
7
Hannibal Valtíimarsson:
Það hefur lengstum gengið illa
— það gengur enn illa — og það
mun löngum takast illa að láta
Ijúgvitnum bera saman.
Þannig hefur farið fyrir mál-
gögnum stjórnarflokkanna að af-
loknu Alþýðusambandsþingi.
Morgunblaðið segir, að Hannibal
hafi hlofið hina herfilegustu út-
reið á Alþýðusambandsþingi, Vís-
ir segir, að Hannibal hafi kúskað
Eðvarð Sigurðsson og kommún-
ísta, og í þriðja lagi syngja Ál-
þýðublaðið, Vísir og Morgunblaðið
í kór, að Framsókn hafi ráðið úr-
slitum meginmála á Alþýðusam-
bandsþingi og komið í veg fyrir
samstarf og einingu.
Svona fer þeim, sem fram ganga
undir gunnfána lyginnar, og er
þeim engum of gott.
Morgunblaðið fékk lánað hand
rit að setningarræðu minni, og er
því staðið að því að fara vísvit-
andi með ósannindi um þessi mál.
Ummæli mín í þingsetningar
ræðunni voru á þessa leið:
„Verði enn undan því vikizt að
tryggja sambandinu fjárhagslegan
starfsgrundvöll, ekkert aðhafzt til
að gera sambandsþingin að við-
ráðanlegri og starfhæfri stofnun,
og engar lagfæringar gerðar á
verstu skipulagsannmörkum Al-
þýðusambandsins, hef ég afráðið
að biðjast undan endurkjöri sem
forseti sambandsins. Mig langar
nefnilega ekkert til að Alþýðusam
bandið grotni niður í starfsleysi
undir minni stjórn og verði van-
skilastofnun, sem enginn geti átt
örugg skipti við.
Þá er hin skipulagslega ríngul-
reið, sem við nú búum við, verka-
lýðssamtökunum í senn til tjóns
og vanza.
Það liggja lagabreytingar fyrir
þinginu. Laganefnd verður því
kosin, og vil ég treysta því, að
hún taki hlutverk sitt alvarlega,
og að henni auðníst að ljúka miklu
og heilladrjúgu starfi“.
Af þessari tilvitnun i þingseth-
ingarræðu mína, má öllum ljóst
vera, að ég lagði höfuðáherzlu á,
að fjárhagsgrundvöllur Alþýðu-
sambandsins yrði gerður traustari.
Nú var hann vissulega gerður
það. Áður var skatturinn til sam-
bandsins 1/5 af daglaunum verka-
manns í Reykjavík. Á þínginu var
hanr ákveðinn 1/4. Hann hækkaði
Hannibal Valdimarsson
úr kr. 52 á mann í kr. 68, eða um
16 krónur af sambandsmeðlim.
Þetta fullyrða fylgjendur stjóru
arflokkanna að hækki árstekjur
sambandsins um 700.000 krónur.
— Að vísu er þaá ofreiknað, en
að óbreyttu kaupi gæti það gefið
hálfa milljón á ári.
Þetta gerir mögulegt að reka Al-
þýðusambandið í líku formi og nú
er gert, en þó mundi því enn
verða fjár vant til erlndreksturs
og fræðslustarfsemi á svo víðtæk-
an hátt, sem æskilegt væri.
En þótt Morgunblaðið segi í leið
ara, að ég hafi rótzt eftir vegtyll-
unum, hygg ég samt, að það sé
sæmilega vottfast, að ég baðst ein-
dregið undan endurkjöri. — Varð
mér þar enn síður undankomu
auðið, er ljóst varð, að minnihlut-
inn á þinginu bar engar óskir
fram um annan forseta og lét mig
þannig verða sjálfkjörinn.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum
að skipulagsmálunum og meðferð
þeirra á þinginu.
Rétt er, að ég lét í setningar-
ræðu minni í ljós ákveðnar hug-
myndir um, hvernig ráða mætti
bót á þeim skipulagsglundroða,
sem nú ríkir í Alþýðusambandinu.
Beinar tillögur um gagngerar
skipulagsbreytingar bar ég engar
fram, en hét á skipulags- og laga-
nefnd að kryfja þessi vandamál til
mergjar.
Og hvað gerðist í þeirri góðu
nefnd?
Þar voru skipulagsmálin vand-
lega rædd og kom þar, að sam-
komulag virtist fáanlegt um lausn
í aðalatriðum samkvæmt hugmynd
um mínum. Voru þá tveir nefnd-
armenn til þess valdir að koma
hugmyndunum á blað í tillögu-
formi. (Óskar Hallgrímsson og
Snorri Jónsson). Þetta tókst án
ágreinings.
Taldi ég þá, að vel horfði um
skipulagsbreytingar, enda var ekki
vitað, að nein skilyrði fylgdu. En
við nánari eftirgrennslan kom í
ljós, að Óskar Hallgrímsson setti
það að ófrávíkjanlegu skilyrði fyr-
.ir þessari lausn skipulagsmálsins,
að minni lilutinn á þinginu fengi
fjóra menn í níu manna miðstjórn.
Könnun leiddi í ljós, að meiri
hluti þingsins var með öllu ófáan-
legur til að kaupa lausn skipulags-
málsins þessu verði. Enda sögðu
menn:
Sé þessi lausn skipulagsmálsins
rétt, ef Alþýðuflokksmenn og
íhaldsmenn fá sæti í miðstjórh,
þá er hún einnig rétt, þótt þeir
eigi þar ekki sæti. Og til góðra
verka á ekki að þurfa að kaupa
neinn.
Nú þótti rétt að sannprófa,
hvort minnihlutinn gengi gegn
tillögu þeirri, sem samkomulag
varð um í skipulags- og laganefnd.
Þess vegna tók meirihlutinn til-
löguna upp og gerði hana að sinni.
Og viti menn, — nú taldi minni
hlutinn þetta afleita tillögu og
felldi hana í kraftí þess, að hann
réð yfir meira ®n einum þriðja
atkvæða.
Þannig strandaði lausn skipu-
lagsmálsins ekki á kjarkleysi
Hannibals Valdimarssonar og held
ur ekki á sundrungarfýsn Fram-
sóknarmanna.
Það strandaði á því, að ofstækis
menn leiddu minnihlutann til að
ganga gegn eigin tillögum.
Vandamál NATO
Framhaldsaðalfundur Varð-
bergs, félags ungra áhugamanna
um vestræna samvinnu, verður
haldinn n. k. fimmtudagskvöld, 26.
nóv. að Hótel Sögu og hefst kl.
20,30. Auk aðalfundarstarfa mun
Benedikt Gröndal, ritstjóri, flytja
þar erindí um „Vandamál Atlants-
hafsbandalagsins“. en hann er ný-
kominn af fundi þingmannasam-
taka bandalagsins, þar sem bau
voru mjög til umræðu.
Aðalfundur Varðbergs var hald
inn mánudaginn 26. október s. 1.
Á fundinum var flutt skýrsla frá-
farandi stjórnar félagsins á s. 1.
starfsári, rætt um framtíðarstarf-
semi þess, kjörin ný stjórn félags
ins og sýnd kvikmyndin „Saga
Berlínar".
Fundarstjóri var kjörinn Björg-
vin Guðmundsson fréttastjóri og
fundarritari var Gunnar Hólm-
steinsson viðskiptafræðingur.
Formaður félagsins, Björgvin
Vilmundarson viðskiptafræðingur
fluttí skýrslu stjórnar um starf-
semi félagsins á s. 1. ári. Kom
þar fram, að starfsemi þess hafði
verið mjög mikil og m. a. fólgin í
ýmiss konar fundahöldum, kvik-
myndasýningum, útgáfustarfsemi
og kynnisferðum félagsmanna.
Við umræðurnar um skýrslu
stjórnar skýrði Ólafur Egílsson
lögfræðingur m. a. frá kynnisferð
félagsins fyrir skömmu til varnar
stöðva í Noregi og Þýzkalandi.
í stjórn Varðbergs fyrir næsta
starfsár voru kjörnir þessir menn:
Frá ungum jafnaðarmönnum:
Ásgeir Jóhannesson innkaupa-
stjóri, Eyjólfur Sigurðsson prent-
smiðjustjóri og Karl Steinar
Guðnason kennari.
Frá ungum ^ramsóknarmönn-
um: Ásgeir Sigurðsson rafvirki.
Gunnar Hólmsteinsson viðskipta-
fræðingur og Jón Abraham Ólafs-
son fulltrúi yfirsakadómara.
Frá ungum Sjálfstæðismönnum:
Hilmar Björgvinsson stud. jur.,
Hörður Einarsson stud. jur., og
Hörður Sigurgestsson stud. oecon.
f varastjórn félagsins hlutu kosn
ingu:
Frá ungum jafnaðarmönnum:
Georg Tryggvason og Ólafur Stef
ánsson stud. jur.
Frá ungum Framsóknarmönn-
um: Dagur Þorleifsson blaðamað-
ur og Valur Arnþórsson.
Frá ungum Sjálfstæðismönnum:
Gunnar Gunnarsson stud. oecon.,
og Ragnar Kjartansson framkvstj.
Á fyrsta fundi sínum skipti
stjórnin þannig með sér verkum:
Formaður félagsins var kjörinn
Hörður Einarsson, 1. varaformað-
ur Jón Abraham Ólafsson og 2.
varaformaður Ásgeir Jóhannesson.
Ritari félagsins var kjörinn Gunn-
ar Hólmsteinsson og gjaldkeri
Karl Steinar Guðnason.
(Fréttatilkynning frá Varðberg)
Meirihlutinn rauð samkomu-
lagslausn um málið, en hafnaði
hrossakaupum. Framkvæmd þess
átti að vera í höndum 12 manna
nefndar, þar sem meirihluti og
minnihluti þings hefðu algert
jafnræði.
Samkvæmt tillögum meirihlut-
ans skyldi stjórnlagaþing taka við
afgreiðslu málsins af 12 manna
nefndinni og leiða það til lykta á
kjörtímabilinu, innan tveggja ára.
En þessu var hafnað, og það
ber að liarma.
Núverandi sambandsstjórn mun
ekki gefast upp í skipulagsmál-
inu. Hún mun vinna að málinu
milli þinga. Hún veit, að hún hef-
ur meirihlutavilja að baki sér. Og
ég vil segja, að einn þýðingar-
mesti árangur þessa Alþýðusam-
bandsþings er brátt fyrir allt sá,
að við umræður og nefndarstarf
hefur skipulagsmálið skýrzt til
niuna og nálgast viðunandi úr-
lausn, sé því ekki ruglað saman
við önnur óskyld mál.
Hún var ekki traustvekjandi sú
afstaða minnihlutans á Alþýðu-
sambandsþingi að segja sem svo:
Við skulum hækka skattinn í 95
M'-amHain » 14 síðu
★ Ólafur Björnsson hafði í sameinuðu þingi í gær framsögu
fyrir þingsályktunartillögu sinni um aðstoð íslands við van-
þróuð ríki. Fjallar tillagan um að ríkisstjórnin láti athuga með
livaða hætti fsland gæti helzt veitt þróunarríkjunum aðstoð til
að stuðla að efnahagslegum framförum í þessum löndum.
★ Einar Olgeirsson sagði tillöguna mjög færa og taldi. að
aðstoðin ætti einkum að vera á sviði menntunarmála og t.d. væri
athugandi að bjóða stúdentum frá þessum Iöndum til náms við
háskólann og ennfremur aðra til að kynna sér sjávarútveg okkar
og fiskiðnað.
★ Ingvar Gíslason sagði, að hér væri hreyft athyglisverðu
máli, sem ekki hefði verið rætt á Alþingi fyr, en væri alls staðar
ofarlega á baugi, þar sem um alþjóðamál væri rætt. Kannski
væri skiljanlegt að fslendingar hefðu verið seinir á sér í þessum
efnum, þar sem sannleikurinn væri sá, að fslendingar eru lítt
aflögufærir, hvað snertir tæknimenntað fólk og fjármagn. Hér
á landi er mikill skortur á tæknimenntuðu fólki og fiármagni og
allar rannsóknarstofnanir hér á landi líða fyrir skort á menntuð
um mönnum og fjármagni til starfsseminnar og geta aðeins sinnt
um helming þeirra verkefna, sem þær þurfa að leysa vegiva
þessa. Þessa hlið málanna þyrfti að atliuga vandlega áður en
stigin væru stór spor í þá átt, sem tillagan kveður á um. Orða-
Iag hennar sé hógvært og kvaðst Ingvar geta fellt sig við hana,
en frekar kosið að milliþinganefnd allra þingflokka athugaði mál-
ið gaumgæfilega áður en ákvarðanir væru teknar.
★ Reifaði Ingvar síðan ástandið í vanþrúuðu löndunum, það
væri misslæmt, en fyrst og fremst væri vandamáiið það, að efla
núverandi atvinnuvegi þar svo að þjóðirnar gætu brauðfætt sig
á afurðum eigin lands. f löndum sem undanfarin ár hafa fengið
milljónir dollara og rúblna í efnahagsaðstoð dæi fólk í hrönn-
um á götum borganna, vegna þess að með efnahagsaðstoð stór-
veldanna hefur verið farið víða aftan að hlutunum og hún hefur
ekki orðið til þess að bæta úr grundvallarþörfum lítilmagnans í
þessum löndum. Ef fsland að athuguðu máli treystir sér til að
rétta þessum ríkjum hjálparhönd þá þurfum við fyrst að kynna
okkur sem bezt þessi mál af eigin raun en lesa ekki um þau af
annarra bókum eða í gegnum annarra gler.
★ Hannibal Valdimarsson hafði framsögu fyrir þingsálykt-
unartillögu þeirri, sem hann flytur ásamt Sigurvin Einarssyni um
héraðsskóla að Reykhólum á Barðaströnd. Sagði Hannibal. að
15 ár væru nú liðin síðan reistur hefði verið héraðsskóli og
vegna þesa væri ástand víða mjög slæmt og ungmenni þyrftu
í hrönnum að leita langt frá héimkynnum sínum til náms og við
það bættist svo, að ekki væri liægt að framfylgja gildandi lög-
um um branafræðslu í sveitum landsins. Áður hefur verið birt
ítarleg greinargerð, sem fylgir þessari tillögu þeirra Hannibals
og Sigurvins.
★ Gísli Guðmundsson mælti fyrir tillögu til þingsályktunar
um endurskoðun laga um aflatryggyngasjóð sjávarútvegsins, en
tillögu þessa flytur hann ásamt fleiri þingmönnum Framsóknar-
flokksins. Kveður tillagan á um það, að milliþinganefnd skip-
uð fulltrúum allra þingflokka, endurskoði lögin með tilliti til
þeirrar reynslu, sem fengin er síðan lögin tóku gildi. Þegar
Iögin voru sett skorti reynslu, en það er vandasamt verk að bæta
upp aflabrest setja viðhlítandi ákvæði um það, hvernig hann
skuli bættur og hven^er, þannig að starfssemin nái að fullu
tilætluðum árangri. Nú er orðið tímabært að fulltrúar Alþingis
setjist niður að nýju og kanni þessi mál og hvort ekki sé rétt
að breyta einu og öðru í þessum lögum, enda eru komnar fram
ýmsar athugasemdir, sem réttmætar sýnast. Minnti Gísli á nokk-
ur atriði í því sambandi, sem nefndin þyrfti sérstaklega að at-
huga, en anuars væri ekki í tillögunni kveðið á um neina sér-
staka þætti, er störf nefndarinnar ættu að beinast að, heldur
yrði þar um heildarendurskoðun að ræða.