Tíminn - 20.12.1964, Qupperneq 11

Tíminn - 20.12.1964, Qupperneq 11
SUNNUDAGUR 20. desember 1964 TIMINN 11 3 BÆKUR FRÁ LEIFTRI Todda frá Blágarði, eftir Margréti Jónsdóttur. Útgefandi Prentsmiðj an Leiftur. Skáldkonan Margrét Jónsdóttir er eigi aðeins einhver afkastamesti barnabókahöfundur þjóðarinnar heldur jafnframt einn sá allra vinsælasti og hefur lengi verið það. Hún hefur nú gefið út 16 frumsamdar bækur og 6 þýddar, auk alls sem hún hefur ritað í blöð og tímarit, og alltaf eru bæk- ur hennar jafn eftirsótt lestrar- efni, spennandi og hollur lestur í senn. Todda frá Blágarði, kom fyrst út 1951, en nú í haust kom þessi bók út í annað sinn, og fæst nú í bókaverzlunum. Alls urðu þær fjórar Toddubæk- urnar eftir Margréti Jónsdóttur, sem komu út á árunum 1951 til 1955. Prentsmiðjan Leiftur gefur út Toddu frá Blágarði. Svona rétt aðeins til upprifjun- ar fyrir gamla vini Toddu litlu og fyrir börn og unglinga, sem nú munu lesa þessa bók í fyrsta sinn, skal fram tekið að Todda var fædd í Kaupmannahöfn faðir hennar var danskur en móðirin íslenzk, og er í Toddu frá Blágarði sagt frá uppvexti hennar í Kaup- mannahöfn og öllum þeim ævin- týrum sem hún og leiksystkin hennar lentu í þar í stórborginni. Rósalín eftir Jóhönnu Spyri, 63 blaðsíður, útgefandi Prentsmiðjan Leiftur. Þessi saga mun fremur ætluð börnum en fullorðnum. En þó á hún fyrst og fremst að efni til erindi til allra, sem bera mann- legar tilfinningar í brjósti. Auk þess hefur Freysteinn Gunnars- son, fyrrum skólastjóri, þýtt hana á snilldargott mál eins og vænta mátti. Eftir Jóhönnu Spyri hefur áður komið út á íslenzku bækurn- ar Heiða litla og Smaladrengur- inn. Rósalin er óvenju hugnæm saga af einmana, elskulegu barni og gamalli, einstæðri móður, sem beð ið hefur í mörg ár eftir týndum syni sínum og aldrei látið af að biðja fyrir honum. Verða þær bænheyrðar, og þá með hvaða hætti? Við því fást svör í bókarlok. Sagan af Rósalín er prýdd mörg um ágætum teikningum. Heillar mig Spánn eítir Frederik Wislöff, þýðandi Benedikt Arn- kelsson cand. theol. Útgefandi Prentsmiðjan Leiftur h.f. Það er ekki aðeins að Spánn hafi heillað hinn sænska höfund þessarar bókar heldur tekst hon- Skrifað og skrafað Framhald af 6. síðu. tölum, að Framsóknarflokkn- um hefur á seinni árum aukist langmest fylgi. Sjálfstæðisflokk urinn hefur unnið örlítið á. En smáflokkarnir hafa allir minnkað. Kjósendur í landinu eru því að marka stefnuna, þótt forvígismenn vinstri manna ut an Framsóknarflokksins stritist á móti. Þessi þróun verður ekki stöðvuð. Spurningin er aðeins um það hvort vinstri menn ut- an Framsóknarflokksins vilja halda áfram að tefja þessa þró- un, eða taka höndum saman við Framsóknarflokkinn um að efla hana og hraða henhi. Flest- um mun virðast svo sem þetta val ætti ekki að vera vanda- samt. — Og er ekki mál til kom ið að hef jast handa? — um að heilla aðra svo með frá- sögn sinni eða ferðasögu frá Spáni, að bók þessi, sem er afar fróðleg, er jafnframt hreinn skemmtilest- ur, mögnuð frásögn af nútímalífi og fomri frægð einnar stoltustu og prúðustu þjóðar í heimi fyrr og síðar, Spánverja. Fljótt á litið skyldi maður ætla að ferðasaga Svía frá Spáni ætti ekkert sér- stakt erindi til íslands, en reynd- in verður allt önnur við lestur- inn. Það er mikill fengur að því að fá þessa bók þýdda, enda er þýðingin sérlega vönduð og efni bókarinnar fyrir allan almenn- ing jafnframt.og þá sem hafa sér- stakan áhuga á sögu og menningu Spánverja, eða á ferðabókum al- mennt. í rauninni er erfitt að segja um það hvort þessi bók er fremur ferðasaga eða saga mikilla viðburða og gamallar heimsmenn- ingar Spánverja, svo vel tekst höf- undi að tvinna saman nútímalíf og forna frægð. Mikill fjöldi ljós- mynda er í bókinni af Spánverj- um í dag og fomum byggingum og sögulegum minjum. SÖLLSKATTSSVIK Framhald af bls. i. strangt eftirlit (t.d. svipað og gerist í nágrannalöndum, þar sem söluskattur er innheimtur), með innheimtu hans er söluskattur með öllu óhæfur, því að hvergi er svikið meira undan skatti en í sambandi við söluskatt, og það hefur Gylfi Þ. Gíslasc/i staðfest í umræðum á Alþingi. Samt láta þingmenn Alfþýðuflokksins sig hafa það að neita um aukið eftir- lit með söluskattsskilunum. F. í. B. Framhaid af 24. síðu. ráð fyrir, að félagið hafi bolmagn til þess að leggja út í þessar fram kvæmdir, þar eð þær munu verða allfrjárfrekar. Verður því félags- mönnum að fjölga töluvert, áður en til þess kemur. Nú sem stendur eru félagar á öllu landinu um 6000 en þyrftu að verða 10.000 til þess að félagið styrktist nofckuð fjár- hagslega! BÓKMENNTIR Framhald af 7. síðu. stjúpföður og hálfsystkini. í stuttu máli: f bréfum þessum kynnumst vér skapgerð og áhugamálum mik- ilhæfs manns og örlögum hans, Ijúfum og sárum, unz saga hans var öll. Jón Guðnason. Stjörnuspáin Stjörnuspáin. Hvað boðar fæðing- arstjarnan þín? Hindurvitni, segja margir og yppta öxlum þegar minnzt er á stjömuspár og stjörnuspáfræði nú á tímum. En undir niðri eru þó flestir forvitnir og taka meira mark á stjörnuspánni sinni en þeir vilja viðurkenna opinberlega. Mér barst hér á dögunum í hendur bók, sem er nýkomin út á íslenzku og nefnist Stjörauspá- in. Hún er eftir einn mesta stjörnuspámann vorra tíma, R.N. Naylor, og eru þar 366 stjörnu spár, eða fyrir alla daga ársins. Þeir, sem fæddir eru á hlaupárs- dag, fá meira að segja sína stjörnu spá. Engum er gleymt. Ég gerði það mest að gamni mínu, en þó með leyndri forvitni, að lesa upp í heyranda hljóði það sem stendur við afmælisdaga allra á heimilinu, en í stjörnuspánni fyr ir hvern dag ársins er lýst skap- gerð og eiginleikum þeirra, sem fæddir eru þann og þann dag. Ennfremur er sagt fyrir um ásta- mál og einkalíf þeirra í ýmsum atriðum, varðað við ýmsu, getið heilsufars, heillatalna, heilladaga og þeirra lita, sem eiga við hvern einstakan. Er skemmst af því að ,Magalenti‘ á Kefla — MB—Reykjavik 18. des. | nauðlenti á Keflavíkurflugvelli Eins ihreyfils flugvél frá Flugsýn' klufckan rúmlega þrjú í dag. Lenti Ur myndabók læknis Hressilegt tungutak er fremur sjaldgæft. Mörgum er það ekki gefið, en aðrir rækta með sér loðmulluna í því skyni sigla þægi- lega fram hjá öllum skerjum, styggja engan né móðga, baka sér ekki óþægindi. Ég vil ekki segja, að það væri æskilegt, að allur skarinn, sem heldur sig á þessum lygnu sundum milli lands og skerja, hætti sér út í storm- veður úthafsins. En það er hress- andi í lognmollunni, og áreið- anlega heilsusamlegt líka, að heyra rödd, sem ekkert skefur utan af því, er inni fyrir býr — segir það tæpitungulaust, sem í brjóstinu býr, og kærir sig ekki hót um það, hvort einhver kunni að fyrtast. Þetta hvarflaði mér í hug, þeg- ar ég var að blaða í bók Páls V. G. Kolka, Úr myndabók læknis. Ég efa það ekki, að stundum j hafi blásið um hann naprir vind- ! ar fyrir þær sakir, að hann hef- i ur lítt hirt um að sykra orð sín í í ræðu og rituðu máli. Iðulega jhefði það sjálfsagt verið nota- legra fyrir hann að beita ioðn- ara orðalagi og fara meira með löndum. En það hefur ham, ekki gert, og sé honum þökk fyrir það Þá þökk á hann, hvort sem menn eru samþykkir skoðunum hans eða ekki. Það getur sem sé stundum verið þarfaverk að vera bermáll og vekja dálítinn gust. í myndabókinni hans kennir margra grasa, enda er hún eins konar sýnisbók. Þar eru minn- ingar ýmsar frá fyrri dögum og frásagnir af atvikum á læknis- ferli hans, kvæði nokkur, þrjár minningargreinar, kaflar úr út- varpserindum, greinar um menn- ingarsöguleg og trúarleg efni, minni og tækifærisræður. Allt er þetta með því djarf- mannlega tungutaki, sem honum er tamt, og ekki alls staðar tek- ið mjúkum höndum á því, sem honum er í nöp við. „Smáborg- araleg kramarasjónarmið um nokkurs konar tvöfalt bókhald, debet og kredit, og einn alls- herjar kreppulánasjóð, sem allir gjaldþrotamenn eigi tilkall til, eru sett í stað hins volduga drama um framvindu lífsins", segir hann til dæmis á einum stað, þar sem hin svokölluðu ei- lífðarmál ber á góma. Heigull- inn, sem reynir að finna sér af- sökun til þess að renna af hólmi, hin blautgeðja kynslóð, sem er ístöðulaus gagnvart eigin göllum og umburðarlynd við spillinguna, fær sannarlega allharðar ádrep- ur. Vera kynni, að einhverjum, sem er á öndverðum meiði, eða þætti að sér stefnt, hitnaði í hamsi við lesturinn, þótt gætinn væri í orðum og dómum alla jafna. Og þann kost hefur þessi bók, að hún er rituð af manni, sem kann að halda á penna og beita móðurmáli sínu, en á því svelli eru allmargir þeirra, sem við rit- mennsku eru riðnir, ekki allt of sterkir. Bert sagt eru þar fleiri báglega sendibréfsfærir en kerl- ingarnar tíu, sem angra Sigurð A. Magnússon. Bók Páls V. G. Kolka má ekki einungis lesa til þess að kynnast afdráttarlausum skoð- unum og bermálum frásögnum, heldur líka til þess að sjá fyr- ir sér ófalsaða íslenzku, þrótt- mikið mál og skörulegt. J .H. segja að í flestum tilfellum áttu þessar mannlýsingar svo vel við hvern og einn af mínu fólki að úti- lokað er að um tilviljun sé að ræða. Við héldum þá áfram og leituðum uppi afmælisdaga og stjömuspár frændfólks okkar og kunningjafólks og það var ótrú- legt hversu spárnar „pössuðu" oft vel. En jafnvel þótt þessar spár og mannlýsingar væru ekki teknar alltof alvarlega þá hitta lýsingarn- ar svo oft í mark að hin bezta heimilisskemmtun verður að upp lestrinum. Og ekki nóg með það. Þegar við höfum haft gesti und- anfarið þá hefur Stjömuspáin reynzt skemmtilegasti samkvæm- isleikurinn. Og löngu eftir að leiknum er lokið hefur maður það á tilfinningunni að hér hafi mik- il og leyndardómsfull alvara verið á ferð, og sé stöðugt á ferð, að ör- lög manna séu að mörgu leyti ákveðin fyrirfram. Ég á hér ekki við neinn „hokus pokus“ heldur gömul reynsluvísindi sem nútíma- vísindin hafa ekki gefið gaum sem skyldi. Hvað ber framtíðin í skauti sér? Því svarar Stjömuspáin fyrir sitt leyti. Jón Guðmundsson. Auglýsið í Tímanum flugvélin „Magalendingu", það er með hjólin uppi. Þetta var flugvél af Navion-gerð sem var að koma frá Reyfcjavík, og voru þrír fanþagar með vélinni aulk flugimannsins. Efcki er blaðinu kunnugt um orsakir óhappsins, en málið var í rannsókn, þegar blaðið fór í prentun. Furðu litlar skemmdir urðu á vélinni, skrúfan irnun titthvað hafa bognað. Vélin var nýkomin úr klössun og var þetta fyrsta ferð hennar að klössuninni lokinni. Engin slys urðu á mönnum þeim, sem í vélinni voru, og verður það að teljast mikil mildi. Málverkasýning í Hafnarfirði KB-Reykjavík 19. des. Bjarni Jónsson listmálari opnar í dag, laugardag, málverkasýningu í Iðnskólanum í Hafnarfirði, og mun hann sýna þar 32 myndir. Þetta er þriðja sjálfstæða sýning Bjarna, síðast sýndi hann í Lista- mannaskálanum árið 1962, en auik þess hefur hann tekið þátt í mörg um samsýningum bæði heima og erlendis. Sýningin verður opin nofckuð fram yfir áramót. Æðardúnsængur nytsöm, vegleg jólagjöf Matrosföt -3—7 ára Matroskjólar Drengja jakkaföt Drengjabuxur frá 3 — 12 ára bláar, gráar Terreline. HVfTAR drengja nylon- skyrtur, allar stærSir kr- 175.00. Drengja peysur dvalon vestispeysur ASANÍ undirkjólar frá Nr. 38. — 46. Póstsendum GLEÐILEG JÓL! '/éti'Jit Vesturg. 12 — Sími 13510 Starfsstúlkur óskast Tvær starfsstúlkur vantar nú þegar að Vistheim- ili ríkisins 1 Breiðuvík, V-Barðarstrandarsýslu. Upplýsingar gefur forstöðumaður heimilisins, sími um Patreksfjörð, og Skrifstofa ríkisspítalanna sími 11765. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.