Tíminn - 22.12.1964, Side 5

Tíminn - 22.12.1964, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 22. desember 1964 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Hitstjórar: l-órnnnn Þórarinsson (ábl Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Ir.driði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason Ritstj.skrifstofur Lddu húsinu, simar 18300—18305 Skrifstofur Bankastræti - Af greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar sknistofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 90,00 á mán innanlands — I lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f Stjórnín vill ekki draga úr bruðlinu Það er stundum sagt um nýríka menn, að þeir gæti sér ekki hófs í meðferð fjármuna. Þetta er vafalaust rétt um marga þeirra, en síður en svo um þá alla- Nógu margir þeirra hafa samt orðið til þess að fara þannig með fjár- muni, að framangreindur orðrómur hefur myndazt um þá. Fjármálastjórn núv. ríkisstjórnar mun ekki verða til þess að veikja þennan orðróm. Núverandi ríkisstjórn svipar að því leyti til nýríks manns, að hún hefur fengið mikið fé milli handa, — miklu meira fé en fyrri ríkis- stjórnir. Hún hefur nefnilega kappkostað að hafa skatt- ana svo háa, að umframtekjur yrðu jafnan miklar. Þess vegna hefur hún haft miklu meira fé til umráða en nauð- synlegt var til að mæta útgjöldum fjárlaganna- Þessar umframtekjur voru t.d. árið 1962 303 millj. kr. og 1963 323 millj. kr. Þessum umframtekjum hefur hún ráðstafað á flestan hátt eins og nýríkur maður, sem kann allt annað betur en hóflega meðferð fjármuna. Ríkisreikningar undanfarinna ára sýna, að margir þeir útgjaldaliðir, sem heyra beint undir ríkisstjórnina, hafa vaxið langt úr hófi fram og stundum margfalt meira en svarar kauphækkununum ,sem orðið hafa hjá opinberum starfsmönnum. Sumir þeir útgjaldaliðir hafa vaxið hvað mest, þar sem fjármálaráðherrann hefur verið að fram- kvæma svonefnda hagsýslu, og má þar t.d- benda á kostn- að við skattaálagningu og skattheimtu. Hann hefur aukizt um hvorki meira né minna en 250% síðan 1958, og sést þó ekki neinn árangur í bættu eftirliti og inn- heimtu, heldur játa sum stjórnarblöðin, að skattsvik hafi farið stórum vaxandi. Lítið betra verður uppi á teningnum, þegar athugaður er kostnaður við sjálfa ríkisstjórnina, stjórnarráðið og utanríkisþjónustuna. Þessi kostnaður varð samkv. ríkis- reikningi 1958 27 millj. kr., en er áætlaður í fjárlaga- frumvarpinu 1965 74 millj. Það vantar því ekki mikið á, að han hafi þrefaldazt, þar sem búast má við samkvæmt venju, að hann verði meiri 1 reynd en fjárlög gera ráð fyrir. Sá kostnaður ráðuneytanna, sem mest hefur vaxið, er utanfarar- og veizlukostnaður. Hann er færður á svo- nefndan „annan kostnað” ráðuneytanna, og hefur sá útgjaldaliður hvorki meira né minna en fimmfaldazt síðan 1958, ef miðað er við fjárlagafrumvarpið 1958. Þó er mikið af þessum kostnaði fært á aðra grein fjárlaganna (óviss útgjöld) og hefur því ferða og veizlukostnaðurinn aukist raunverulega stórum meira en þetta. Þannig mætti rekja þetta áfram. En af því, sem hér er rakið, er það ljóst, að hvers konar rekstrarkostnaður hef- ur aukizt úr hófi fram, og vafalaust hefði aukningin verið minni, ef stjórnin hefði haft þrengri fjárráð. Hinar miklu umframtekjur hafa gert hana ógætnari og aðhalds- minni en ella. Hyggilegra hefði vissulega verið nú að draga úr um- framtekjunum, og auka sparnað og aðhald í ríkisrekstr- inum Slíku er hins vegar ekki að heilsa. þvert á móti leggur stjórnin á stórfellda nýja skatta til þess að geta haldið bruðlinu áfram- Er slík stjórn ekki of dýr fyrir almenning á íslandi? ____TÍMINN_________________________ Póiitískt siðgæöi krefst þess að fíkisstjórnin segi þegar af sér Ræða Ingvars Gíslasonar alþm. við 1. umr. í neðri deilri um hækkun söluskattsins Hr. forseti. Eg efast um, a3 háttvirtir al- þingismenn hafi áður orðið slegn ir slíkri undrun eins og nú, þeg ar frumvarp um söluskattshækk un var lagt fram hér fyrir nokkr- | um dögum. Þetta frumvarp kom svo á óvart, að ég veit ekki til að nokkrum þingmanni, hvort sem var í liði stjórnar- eða stjórn arandstöðu, hafi dottið annað eins í hug. Um þetta hefur aldrei ver ið rætt í fjárveitinganefnd, og er ég sannfærður um, að engum fjárveitinganefndarmanni úr hópi stjómarsinna var kunnugt um, hvað var að gerast, fyrr en hríðin var skollin á. Þaðan af síður virtust blöð ríkisstjórnarinn ar hafa leitt hugann að þessu, því að ekki minnist ég þess, að þau hafi rætt eða boðað fyrir- fram nauðsyn þess að stórhækka skattaálögur með skyndiráðstöf unum milli fjárlagaumræðna í önnum og umróti síðustu daga þingsins fyrir jól. Hér er um svo fáheyrð vinnu brögð að ræða, að þau eiga sér nálega engin dæmi. Þessi vinnubrögð eru svo víta verð, að ef hér á landí ríkti vénju legt pólitískt siðgæði, þá hefði ríkisstjórnin hlotið að ségja af sér. Hún hefði orðið að gera það vegna þess fyrst og fremst, að fylgismenn hennar í þinginu hefðu neytt hana til þess. En hér á landi ríkir ekki póli- tískt siðgæði. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru, að ríkisstjórn in hefur ekkert aðhald af flokks mönnum sínum á Alþingi. Hún virðist geta komizt upp með hvað sem henni sýnist. Sannleikurinn er sá, að nú- verandi ríkisstjórn lafir í völd um sínum af þeirri einu náð, sem þinglið hennar veitir henni, en úti á meðal þióðarinnar á ríkis stjórnin engu trausti að fagna, heldur sætir hún algerri fyrir- litningu alls þorra manna í land- inu. Sú fyrirlitning er fullkomlega réttlætanleg. Núverandi stjórnarflokkar hafa hangið í völdum síðastliðin sex ár, og þó að ekki hafi alltaf veriíí vakurt riðið í íslenzkri pólitík undanfarna áratugi, þá hefur þá fyrst keyrt um þvert bak á stiórnarferli núverandi stiórnar flokka. Ferill ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar er með þeim endemum, að þar stendur ekki steinn yfir steini. Engin ríkisstjórn hefur setzt að völdum með meira yfirlæti held ur en núverandi ríkisstjórn. Hún iézt hafa ráð við hverjum vanda. Hún ætlaði að stjórna svo, að skipti sköpum í íslenzku efna- hagslífi. Haftakerfi skyldi afnumið. Uppbóta- og styrkjastefnan var fordæmd. Kaupgjald skyldu leyst með frjálsu samkomulagi. Og umfram allt skyldi verð- gildi krónunnar verndað og verð bólgan stöðvuð. En hvað hefur gerzt þessi sex ár, sem ríkisstjórnin hefur ver- ið við völdin? Er styrkja- og uppbótakerfið úr sögunni? Nei, síður en svo. Allt, sem ríkisstjórnin hafði um það að segja í upphafi hefur reynzt blekking. enda mestanpart byggt á furðáíegiim misskilningi á ís- lenzku efnahagslífi. Það er hægt að fordæma styrkja- og uppbóta kerfið, og það er hægt að finna því flest til foráttu. En ísl. stjórn málaforingjar ættu að hætta að heimska sig á að fullyrða, að það sé auðvelt að komast út ur því. Það er nefnilega ekki auð- velt. Enda hefur hæstvirtri ríkis stjórn algerlega mistekizt það. Og hefur ríkisstiórnin staðið við það fyrirheit að láta laun- þega og vinnuveitendur friálsa í samningum um kaup og kjör? Nei, sannarlega ekki. Það er eitt þeirra stefnuskráratriða, sem hún hefur brotið hvað frekleg- ast. Og hvað um verndun gjald- miðilsins? Ekki annað en það, að ríkisstjórnin hefur tvívegis með beinum aðgerðum fellt gengi krónunnar og auk þess rýrt gjaldmiðilinn í verði með fleiri aðgerðum. Og er búið að stöðva verð- bólgu og dýrtíð? f því efni hafa orð og efndir stangast hvað mest á, þannig að verðbólguvöxturinn hefur aldrei verið ægilegri en þessi 5—6 ár, sem núverandi ríkisstjórn hefur setið að völdurn. Og ríkisstjórnin kann þar eng in ráð við, þegar á hefur reynt. Má þar m. a. vitna til ræðu hæst virts forsætisráðherra fyrir nokkr um dögum hér á háttvirtu al- þingi, þegar hann var að velta vöngum yfir verðbólgunni og játaði, að hann kynni engin ráð við henni og vissi ekkert, hvað hann ætti að gera í þeim efnum. Að sjálfsögðu var þessi hrein skilni hæstvirts forsætisráðherra mjög virðingarverð út af fyrir sig, en það veit ég, að hann skil- ur sjálfur manna bezt, að þegar svo er komið, að æðsti stjórn- málaforingi landsins og sá, sem hefur forsæti í ríkisstjórninni, játar í eyru alþjóðar, að hann kunni engin ráð í stærsta efna hagsböli þjóðarinnar, þá á hann að víkia úr forsætisráðherrastóln um. Bjarni Benediktsson myndi ekki minnka við það að segia af sér ráðherradómi eins og nú er komið málum fyrir honum og stiórn hans. Það er sjálfsögð skylda hans að fara frá völd- um. Ef hann gerir sér þess ekki grein sjálfur, þá ættu flokks- menn hans að leiða honum það fyrir sjónir, svo að endir verði bundinn á það vesaldarkák, sem nú viðgengst í stjórn landsins. Því fyrr sem það gerist því betra. En eins og ég sagði í upphafi raeðu minnar, þá er venjulegt pólitískt siðgæði ekki til í þessu landi, og meðan svo er, þá geri ég mér ekki háar hugmyndir um, að ríkisstjórnin hafi þá reisn og myndarskap að segja af sér og leggja málin undir dóm kjós- enda, sem væri þó hið cina rétta. Það er að mínu viti alveg aug- ljóst, að ríkisstjórnin á sér ekk ert annað markmið en að lafa í völd'um með öllum mögulegum og ómögulegum ráðum, og þeg- ar svo er komið, þá á ríkisstjórn in einskis manns virðingu, sem varla er von. Slík ríkisstjórn er bæði þjóðarógæfa og þjóðar- smán. Eg segi fyrir mig, að ég gæli unnt hæstvirtum forsætisráð- herra og samráðherrum hans betra hlutskiptis en þess að koðna niður í valdabrölti og póli tísku siðleysi. Eg vil benda á það í fullri vinsemd, að íslenzk þjóð hefur ekki efni á því að sóa þannig mannsefnum, okkur er nauðsyn að einbeita kröftum okkar og nota þá til góðra hluta, og einkum að virða heiðarlegt framferði í pólitík sem öðru. En ég kalla það m. a. óheiðar Ieika í pólitík og pólitískt sið Ieysi að viðurkenna ekki ósigur sinn. Núverandi ríkisstjórn hefur beðið ósigur, hæstvirtur forsætis ráðherra hefur beðið persónuleg an ósigur. Trausti almennings hafa þeir glatað, og virðingu al- mennings hljóta þeir að glata, þegar þeir negla sig fasta við ráðherrastólana, eins og nú er komið. Söluskattshækkunin er einhver ósvífnasta tillaga, sem um get- ur í sögu Alþingis um langt skeið. Skattar hafa farið síhækkandi á þessu ári, og jafnvel blöð rík- isstjórnarinnair hafa kveðið fast að orði um nauðsyn skattalækk unar, og almenningur hefur trú að því, að það væri ætlun ríkis- stjórnarinnar að létta skattabyrð ar. Almenningur hefur haft fulla ástæðu til þess að álíta, að svo yrði. Sízt af öllu átti fólk von á skattahækkun eftir þær um- ræður, sem orðið liafa um skatta mál í sumar og haust. Þess vegna kemur söluskattshækkunin nú eins og hnefahögg í andlit þjóðarinnar, hvers einasta manns, hvar í flokki sem hann stendur. Forsendurnar fyrir söluskatts- hækkuninni eru ekkert annað en blekking. Því er haldið fram af hæstvirtri ríkisstjóm, sem Framhald á 12. síðu. T753

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.