Tíminn - 22.12.1964, Síða 12

Tíminn - 22.12.1964, Síða 12
\2___________________ cBraHaœsEsæes:^mmmaaasm TVÆR NÝJAR E;ækurhafa komið úf allra síðustu dagana Furðulond frímerkjanna eftir lærðasta frímerkjasérfræð ing þjóðarinnar. Sig. Þorsteins- son, fróðleg bók og skemmtileg nxeð mörgum myndum. mUB SSGURDSSQK Vitnað í ummæli viturra manna um margvísleg efni. Þarna má finna hentugar tilvitnanir við ræðugerð eða samnínga rit- gerða. Pétur Sigurðsson hefir dregið sarnan efni í þessa bók um langan tíma, og aðeins birt úrval úr stóru safni. Dálefösla Huglækniogar Segullækningar Hér er fjallað um efni sem möigum er hugleikið. Höfund- urinn Sigurður Herlufsen, hefir viðað að sér gögnum, sem marg ir munu telja nýstárleg. Bókaverzlun ÍSAFOLDAR 75 ára í Þorkell er fæddur að Hróðnýjar stöðum 22. desember 1889. For- eldrar hans, þau hjónin Ingiríður Hansdóttir og Einar Þorkelsson, bjuggu alla sína búskapartíð á Hróðnýjarstöðum, en þau voru bæði ættuð úr Hörðudal, og af dugmiklu bændafólki þaðan kornin. Þorkell er næst elztur 9 systkina og eru þau öll á lífi. Einar faðir þeirra dó 7.2. 1958, og vantaði þá rúma 2 mánuði til að ná 100 ára aldri. Hann var beinn í baki til hinztu stundar og gekk til sláttar og hirti sauðfé sitt þar til síðasta árið, sem hann lifði. Þorkell vandist ungur vinnu og fór hann í Hjarðarholtsskóla til séra Ólafs, og síðar til búnaðar- fræðslu. Hann kvæntist árið 1917 Guðrúnu Valgerði Tómasdóttur frá Kollsá í Hrútafirði. Þau hófu búskap að Hróðnýjarstöðum árið 1917, en fluttu að Kollsá árið 1927. Þremur árum síðar dó Guðrún. Dóttir þeirra, Valdís Guðrún er gift Haraldi Guðmundssyni, nú bifreiðarstjóra hjá forsætisráð- herra. Árið 1937 flutti Þorkell aftur að Hróðnýjarstöðum, og hefur hann búið þar síðan. Seinni kona hans er Hrefna Jóhannesdóttir frá Hrafnadal í Hrútafirði. Dætur þeirra eru tvíburasysturnar Ema Inga, gift Haraldi Árnasyni, bók- ara hjá Kaupfélagi Hvammsfjarðar Búðardal, og Hugrún Björk, gift Jökli Sigurðssyni, íþróttakennara á Eiðum. Þorkell er maður bjartur yfir- litum, sviphreinn, broshýr, viðfelld inn og skemmtilegur í framkomu, félagslyndur, vinfastur og vinmarg ur, fórnfús og drengur góður. Hann ber þess engan vott, að hann hafi lagt að baki þrjá aldarfjórð- unga, en svo segja kirkjubækur að sé. Hróðnýjarstaðir eru við fjalls- rætur skammt frá Ljárskógum í Laxárdal. Norðannæðingar eru þar oft svalir, en grös heiðanna eru kjarnmikil og dilkarnir vænir. Þorkell hefur meira en nokkur annar maður stundað fjallaferðir. Fyrir utan smalamennsku frá unga aldri hefur hann verið grenja- skytta í meira en hálfa öld, en ÞRIÐJUDAGUR 22. desember 1964 RÆÐA INGVARS Framnaid aí ö siðu ber þetta frumvarp fram, að ekki sé hægt að ná endum sam an á fjárlagafruinvarpinu án skattahækkunar. Miðað við reynslu síðustu ára er þetta al gerlega rangt. Það er hægt að afgreiða halla laus fjárlög án skattahækkunar, og það er skylda Alþingis að sjá um, að svo verði. Umframtekjur ríkissjóðs hafa skipt hundruðum milljóna und- anfarin ár. Það er stefna ríkisstjórnarinn- ar að innheimta árlega sem mest af sköttum til þess að hafa um- framtekjurnar sem allra hæstar. Stefna ríkisstjórnarinnar í skattamálum hefur alltaf verið ofsköttunarstefna, og hún held- ur fast við þá stefnu sína, þrátt fyrir gefin loforð um skattalækk anir. Skattahækkunarfrumvarpið, sem hér liggur fyrir, sannar þetta bezt. Tilgangurinn með þessu frum varpi er ekki sá að afla nauð- synlegra tekna til þess að mæta óhjákvæmilegum útgjöldum. Tilgangurinn er einfaldlega sá að fá mörg hundruð milliónir í öruggar umframtekjur. Það þýðir ekkert fyrir hæst- hætti því starfi fyrir tveim árum. En hugurinn hvarflar til heiða, þar sem ilmur blómanna og fjalla- i loftið tæra heilluðu, er hann beið I spenntur eftir því að sigra í við- ureigninni við „lágfótu“. Þessar minningar eru sá „arineldur”, sem yljar og lýsir í skammdegi vetrar- ins. Þorkell hefur verið bóndi í nær- fellt hálfa öld. Hann hefur kynnzt þeim stórstígu framförum, sem valdið hafa byltingu í lífi og lifn- aðarháttum íslenzku þjóðarinnar. Hann hefur fundið muninn á því að standa við slátt myrkranna á milli og hins að láta vélaaflið inna af hendi margra manna starf við heyskap, ræktun m.m. Þorkell er ungur í anda. Hann getur glaðzt með glöðum og tileinkað sér nýj- ungar fordómalaust. Þau hjónin á Hróðnýjarstöðum eru mjög skemmtileg heim að sækja, gest- j risin og alúðieg. ! Á þessum merku tímamótum óska ég afmælisbarninu til ham- • ingju með daginn og framtíðina, j en jafnframt þakka ég skemmtileg ; kynni. Eiginkonu og dætrum óska ! ég til hamingju með daginn, og i að þær megi lengi njóta hins glað- ; væra öldungs. Ásgeir Bjarnason. j virta ríkisstjórn að blekkja einn ! eða neinn í sambandi við þennan ; tilgang sinn. Það liggnr alveg i lióst fyrir, að hverju stefnt er. ! Ríkisstjórnin er að svíkja sín i eigin loforð um skattalækkanir. i Hún er að ganga á orð og eiða, • sem hún hefur svarið frammi fyr ! ir alþjóð. Sú ríkisstjórn, sem nú situr við völd á íslandi, á völd sín ein- göngu undir þessum þjóðar- ósóma, sem þolir pólitískum for ingium að gera hverja óhæfuna á fætur annarri án þess að þeir þurfi að svara til saka í flokki sínum, Mín persónulega skoðun er sú, að ástæða hefði verið til þess að flytja formlegt van- traust á ríkisstiómina og ræða það í útvarpsumræðum tvö kvöld sem venja býður. En vantrauststiUaga, sem að eins nýtur stuðnings stiórnarand stöðuflokkanna, er þó ekki mik ils virði í sjálfu sér, því að rík- isstjórn, hversu aum sem hún er, stendur allt slíkt af sér. Hið eina vantraust, sem nokk urs er vert, er fólgið í því, að óbreyttir liðsmenn í stjómar- flokkunum og þá einkum í þingflokkunum, rísi upp gegn ofurvaldi forystumanna sinna og setji þeim stólinn fyrir dyrn ar. f sambandi váð það mál, sem liggur fyrir, var gullið tækifæri tU þess að láta að sér kveða að þessu leyti, en því miður sjást þess ekki merki, að svo ætli að verða. Eg harma það mjög, því að af því má glögglega sjá, hversu fátækir íslenzkir stjómmála- menn eru að siðferðisþreki og sönnum pólitískum manndómi. Ingvar Gíslason. Þess vegna er ekki einasta rétt að feUa þetta fmmvarp, heldur ætti ríkisstjómin sjálf að falla á málinu. En — því miður er hætt við, að enn einu sinni bresti það póltíska siðferoisþrek, sem vant- ar á íslandi í dag. En ef slíkt siðferðisþrek væri fyrir hendi, þá hlyti þessi rík isstjóm að kolfalla á verkum sín um, ellegar þá, að sjálfstæðis- menn skiptu um forystu í flokki sínum, sem einnig er á sinn hátt leið út úr þeirri kreppu, sem ríkir í íslenzkum stjórnmálum. En hér á landi viðgengst sá ósiður, sem þykir óhæfa í öðrum lýðræðislöndum, að pólitískir foringjar streitast við að sitja löngu eftir að þeir eru fallnir að virðingu og trausti og sökkva sífellt dýpra og dýpra, sjálfum sér til hneisu og öllum iandslýð til ömunar og óþurftar. SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS Ms. Hekla Hekla fer vestur um land til Akureyrar 1. janúar. Vörumót- talca á þriðjudag og miðviku- dag og mánud. 29. þ.m. til Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyrar; Flateyr- ar, Suðureyrar, ísafjarðar, Siglufjarðar og Akureyrar. Farseðlar seldir á þriðjudag. Ms. Esla fer austur um land til Akur- eyrar 1. janúar. Vörfumóttaka á þriðjudag og miðvikudag og mánud. 28. þ.m. til Fáskrúðs- fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski- fjarðar, Norðfjarðar, Seyðyis- fjarðar, Raufarhafnar og Húsa- víkur. Farseðlar seldir á þriðjudag. Ms. Her»nbrei« fer austur um land til Kópa- skers 4. janúar. Vörumóttaka mánud. 26. þ.m. og þriðjud. 29 'p.m. til Hornafjarðar. Djúpa vogs, Breiðdalsvíkur Stöðvar fjarðar. Mjóafjarðar. Borgar fjarðar. Vopnafjarðar. Bakka fjarðar, Þórshafnar og Kópa skers. Farseðlar seldir 4. janúar. Ms. Skfaldbreið fer vestur um land til Akur- eyrar 5. janúar. Vörumóttaka á mánud. 28. þ.m. og þriðjud. 29. þ.m. til áætlunarhafna við Húnaflóa og Skagafjörð og Ólafsfjarðar. Farseðlar seldir 4. janúar. Reykjavíkurmeistaramótið í handíknattleik hélt áfram á siunnudag og fóru þá meðal ann ars fram tveir leikir í 2. deild. Valur vann Þrótt í skemmti- leguim lei'k með 20-19, en ÍR og Keflavík gerðu jafntefli 25-25. ÍR-ingar sigruðu írska liðið Collegians í síðari leik fé- laganna í Evrópukeppninni í körfuknattleik með 63—43 og heldur því áfram í keppninni og leikur í 2. umferð við franska liðið Lyon. ÍR sigraði í fyrri leiknuim með 71-17 og samanlagt því með 134-60, mik ill yfirburðasigur. Síðari leik- urinn var háður á laugardaginn í Belfast. Þórólfur Beck hlaut mjög góða dóma á laugardaginn, þeg ar félag hans, Glasigow Rangers, sigraði Third Lanark á heima- velli sínum 5-0 — fyrsti leikur- inn, sem Þórólfur leikur á Ibrox sem Rangers. Hann skor aði eitt af mörkunum og átti þátt í öðrum. Rangers er nú komið í fimimta sæti í deildinni, sjö stigum á eftir Hearts og Kilmamoek, sem eru efst með 28 stig, en Rangers hefur leik ið einum leik minna. Úrslit í öðrum leikjum á Skotlandi urðu þessi: Aberdeen—Clyde 0-3 Celtic—Dunfermline 1-2 Dundee—Airdrie 4-0 Falkirk—Morton 0-2 Hibemian—Patrick 2-1 Kilmannock—Hearts 3:1 Motherwell—Dundee U. 1-1 St. Mirren.—St. Johnst. 1-0 Á Englandi urðu úrslit þessi á laugardag: Aston Villa—Arsenal 3-1 Bumley—Sheff. Utd. 3-1 Fulham—W.B.A. 3-1 Liverpool—Blackburn ' 3-2 Manch. Utd.—Leicester frestað Nottm. For.—W Ham 3:2 Sheff. Wed.—Blackpool 4-1 Sunderland—Chelsea 3:2 Tottenham—Everton 2:2 Wolves—Leeds Utd. 0-1 Manch. Utd er efst í deild- inni með 34 stig, en Leeds hef ur sama stigafjölda en lakari markatölu. Chelsea féll niður í þriðja sæti með 33 stig eftir tapið í Sunderland. Með Tott enham lék nú í fyrsta sinn Gil- zean, sem keyptur var frá Dundee í vikunni fyrir 72.500 pund. Hann skoraði ekki í fyrsta leik sínum, en þótti eiga góðan leik. Úrslit í 2. deild. y Bury—Derby County 2-1 Cardiff—Plymouth 4-0 Charlton—Portsmouth 3-3 Coventry—Bolton 0-0 Crystal P.—Swansea 3-3 Leyton Or.—Swindon 0-3 Northamton— Manch. City 2:0 Norwich—Rotherham 3-0 Preston—Ipswich 4-1 Southampton—Newcastle 0-1 Newcastle og Northampton eru efst með 32 stig.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.