Tíminn - 22.12.1964, Blaðsíða 1
JÓLIN 1964
JÓLIN nálgast á heimilum og í kirkjum og í mönnunum
sjálfum og börnin burfa ekki að bíða nema í tvo daga enn
eftir bví að hinu langa tímabili tilhlökkunar Ijúki. Þannig
hefur þetta gengið til ár eftir ár í kristnum heimi. Og þótt
mörgum finnist, að mammon mætti vera minna dýrkaður
vikurnar fyrir jólin, er það samt staðreynd, að hin verald-
legu umsvif áður en hátíðin gengur í garð, beinast mest að
bví að gera sér og sínum ánægjulega hátíð. Börn og full-
orðnir gleðjast yfir gjöfum, stórum og smáum og gjafirnar
hjálpa til að gera jólin að eftirminnilegustu hátíðinni.
Um helgina minntust prestarnir þess í ræðum sínum,
að jólin væru að koma, og messurnar báru keim þess, að stutt
er eftir til hátíðarinnar. Og þar sem því varð komið við,
voru börn og unglingar kvaddir til þátttöku. Myndin hér að
ofan var tekin í Neskirkju síðdegis á sunnudaginn, þar sem
bræðrafélag og starfsfólk Neskirkju bauð til jólasöngva.
Stúlkurnar í hvítu kyrtlunum eru úr 1. bekk Hagaskóla.
Þær sungu jólasöngva í kirkjunni. í kynningu segir rétti-
lega um jólasöngvana, að þeir eigi að vera til að kynna fyrir
safnaðarfólki jólasálma og jólalög. Jafnframt er haft í huga,
að vekja áhugann hjá safnaðarbörnunum. Þau eiga betra
með að læra jólasöngvana og skilyrðin aukast fyrir hinum
almenna safnaðarsöng á jólahátíðinni sjálfri, bæði í kirkj-
um og heimilum fólksins.
Og það má til sanns vegar færa, að nú er tíð til að æfa
sönginn. Jólin hófust með söng og söngnum eru þau tengd
frá upphafi vega. Herskarar sungu þegar frelsari mann-
kynsins fæddist. (Tímamynd GE)