Tíminn - 22.12.1964, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 22. desember 1964
TflVEINN
9
eðlilegt er eftir fengna
reynslu.
4.
Af þeim rúmlega 30 útvarps-
stöðvum, sem eru í eign mót-
mælenda kirkna, verður að
nægja að tæpa aðeins á nafni
tveggja til viðbótar þeim tveim
stöðvum, sem ég hef þegar
nefnt, en þær eru Rödd fagn-
aðarerindisins og Rödd Andes-
fjaUa.
Nokkrir trúaðir sjálfboða-
liðar í Ameríku hófu 1945 und-
irbúning að stofnun kristilegr-
ar útvarpsstöðvar, er svo væri
staðsett og orkumikil, að til
hennar heyrðist um megin-
lönd Asíu og stórborgir, jafnt
í Japan sem Kína og Indlandi.
Þeir höfðu þá til þessa sem
svarar 50 þúsundum íslenzkra
króna í reiðufé — ásamt ör-
uggri trú á orð og málefni
Drottins.
Hinn 6. júlí 1946. teim dög-
um eftir að Filipseyjar urðu
sjálfstætt ríki, fengu þeir fé-
lagar leyfi til að reisa sína
fyrirhuguðu útvarpsstöð þar.
Frá henni hafur nú um árabil
verið útvarpað á 5 bylgju-
lengdum, aðallega á kínversk-
um og indverskum málum, auk
rússnesku.
Önnur útvarpsstöð með 100
þúsund vatta okru, var opnuð
á vegum sömu aðila á Okin-
avaey, ekki allfjarri ströndum
Kína, 1. maí 1961, og beint
innyfir meginlendið. Stöðin er
á allan sólarhringinn og út-
varpar aðallega á ríkismálinu
kínverska auk nokkurra mál-
lýzka. Loks skal getið einu
kristilegu útvarpsstöðvar Evr-
ópu, í eign einkafyrirtækis:
Trans World Radio í Monte
Carlo við Miðjarðarhaf. Fyrir-
tækið keypti feiknmikla út-
varpsstöð, sem reist var á
stríðsárunum að boði Hitlers.
Hún er nú í þjónustu betra
málefnis en nazisma áróðurs
og útvarpar fagnaðarboðskapn
um á yfir 20 tungumálum, en
helmingur þeirra eru töluð í
kommúnístiskum löndum Aust
ur-Evrópu, hin aðallega í Norð
ur-Afríku og löndum fyrir
botni Miðjarðarhafs.
5.
Kristinni kirkju er nú sem
oft áður hætta búin af að hún
einangrist, rofni úr tengsum
við samtímann, nái ekki með
boðskap sinn og vitnisburð til
mannanna, sjálfri sér til tjóns
og þeim til óbætanlegs skaða.
Nútímamaðurinn á margra
kosta völ og gleymir auðveld-
lega sál sinni. Auk þess eru
einmitt nú dmar voldugustu
og bezt skipulögðu andkristi-
legu hreyfinga og kristindóms-
ofsókna.sm sögur fara af. Þar
til kemur að fólksfjölgun marg
faldast í heiminum með ári
hverju. Þrátt fyrir mikla fjölg-
un kristinna manna, fer þeim
hlutfallslega fækkandi. Nú
mundi engum þykja það fánýtt
verk að reyna að bjarga, þótt
eigi væri nema einum manni
þar sem hundrað manns væru
í hættu staddir. Er, það er í
þessu sambandi léleg huggun
Síðustu áratugi hefur ýmis-
legt gerzt, sem hefur orðið
til þess að styrkja aðstöðu
kristinnar kirkju, auðvelda
henni að hlýða skipun Drott
ins um að gera allar þjóðii
að hans lærisveinum.
Samgöngur eru þúsundfait
betri en þær voru fyrir fáum
árum, svo er m.a. flugtækm
fyrir að þakka. Hinn mikli
fjöldi tungumála, hefur flestu
fremur tafið itbreiðslu krist
innar U'úar. Nú miðai vel að
ryðja þeirri miklu hindrun
úr vegi, að svo miklu leyti
sem mögulegt verður. — Til
þess að gefa hugmynd um
hverja þýðingu það hefur, skal
þess getið, að á þessu ári
bætti lútherska útvarpsstöðin
við sig nýju tungumáli, hinu
16. á dagskránni, en það var
hindí. Það þýðir fræðilega
möguleika til þess að gera
útvarpsefnið skiljanlegt 15
millj. manna á Indlandi i við
bót.
Útvarp er slíkt undratæki
að það, með 300 þús. km
hraða á sekúndu, skilar þeim
boðskap, sem hljóðnemanum
er afhentur, til viðtækja á
sömu bylgjulengd, hvar sem
hlustendur eru staddir, hvort
heldur heima lijá sér, á vinnu-
stað eða í sjúkrahúsi, og verð-
ur með tímanum þáttur í dag-
legu lífi þeirra.
Útvarp er hið nýja mál-
gagn kristinnar kirkju, með
meiri möguleika til að ná til
alls mannkyns en við enn get-
um áttað okkur á.
Raddir útvarpsins hljóma í
afskekktum og óhrjálegum
þorpum engu síður en nútíma
stórborgum, þær berast til
strjálla byggða heimskauta-
landa og dreifðra mannabú-
staða í frumskógum og brenn-
heitum auðnum hitabeltisins,
til kóraleyja Kyrrahafs og ís-
lands nyrzt í höfum.
Ósjaldan mun rödd útvarps-
tækisins vera betur tekið ein-
mitt fyrir það, að víðsfjarri
er að flutningsmaður sé sým-
lega nálægur, hvorki sjáist lit-
arháttur hans eða látbrigði.
íslendingur er búsettur var
í Arabíu skrifaði heim þaðan,
að hann hefði ferðast í stór-
um áætlunarbílum fullum af
Aröbum. Útvarpið glumdi lát-
laust unz bílstjórinn skrúfaði
fyrir og sagði: „Nú skulum við
hlusta á þína stöð“. Næsta
hálftíma hlustuðu allir á Rödd
fagnaðarerindisins, og virtust
kannast við hana. — Hefðu
nú þeir, sem suður í Addis
Abeba töluðu og sungu í út-
varpið þar, verið komnir þarna
inn í bílinn, er mjög ólík-
legt að þeir hefðu fengið orð-
ið eða á þá verið hlustað.
6-
Jafn ágætt og útvarp er
hverju góði máli til framdrátt-
ar, er það ekki ævinlega ein-
hlítt, — ekki fremur en ef
frækorni hefði verið sáð í ak-
ur og síðan ekkert um það
hirt. Þá líkingu notaði Krist-
ur í ræðu um boðun Guðs
orðs: „Sáðmaður gekk út að
sá. . . En akurinn er heim-
urinn“.
í kristilegri útvarpsstarf-
semi er beðið fyrir flutningi
hverrar dagskrár. Rík áherzla
er lögð á að komast í bréfa-
sambönd við sem allra flesta
hlustendur, og þannig reynt
að ná persónulegu sambandi
• við þá. Vel skipulögð bréfa-
námskeið eru auglýst, svo og
margsikonar kristilegt lestrar-
efni. Náin samvinna er höfð
við söfnuði og kristniboðs-
stöðvar trúboðslanda, og þeim
tilkynnt nöfn og áritanir hlust
enda, er gefið hafa sig fram
úr nágrenni þeirra. Þeir skipta
á ári hverju hundruðum þús-
unda, sem þannig næst sam
band við. Margir hinna beztu
kristnu leiðtoga Japana, kom-
ust fyrst í snertingu við krist
indóm í útvarpi. Margir nýii
söfnuðir hafa orðið til vegna
áhrifa frá því
Til dæmis um slík áhrii
skulu birt hér bréf þriggja
hlustenda, sem öllum er mein
að trúfrelsi í sínum eigin lönd-
um. Þar hvað að vísu ríkja
málfrelsi en skoðanafrelsi
ekki.
Frá Kína er skrifað: Ég hef
í útvarpi hlustað á kallandi
rödd Guðs. t>að hefur glatt
mig. Ég er nýbyrjaður að trúa
á Guð. Mig vantar bókina um
Guð. Gerið svo vel að senda
mér hana.
í bréfi frá Síberíu segir:
Ég er einmana leitandi mað-
ur. Eina ástæðan til þess að
ég skrifa, er brennandi þrá
mín eftir andlegum skilningi.
Sendið mér ef mögulegt er
Biblíu. Neitið mér ekki um
það. Ég bið Guð um að svo
megi verða. Hér er Biblía ófá-
anleg.
Loks er bréf frá Rússlandi:
Er Guð raunverulega til, eða
eruð þið að blekkja? Ég vil
vita það ákveðið. Séuð þið
eins vissir um tllveru Guðs
og prédikun ykkar og söngvar
benda til, þá vil ég hiklaust
trúa á hann, eins og þið.
7.
Á nú kristin kirkja svo mik-
ilvægt erindi við þjóðir heims,
að starfsemi eins rg þessi, —
sem er miklu umfangsmeiri en
hér hefur tekist að gefa hug-
mynd um — sé nauðsynleg?
Fer ekki bezt á því að fagn-
aðarerindið um Krist sé flutt
innan veggja þar til gerðra
húsa, söfnuðurinn prédiki svo
sem yfir sjálfum sér — eins
og raunar oft vill verða?
Innan kristinna kirkju hef-
ur glæðst skilningur á og veru-
legur einhugur um, hvert sé
raunverulegt hlutverk hennar
sem safnaðar Jesú Krists.
Með kristniboðsskipuninni
er höfuðverkefni hennar skýrt
markað af Kristi sjálfum, sem
vel vissi hvers mennirnir
þarfnast mest, hvað þeim er
„hið eina nauðsynlega“.
Spakvitran kristinn Kín-
verja heyrði ég eitt sinn segja,
á kveðjusamkomu fyrir kristni
boða eftir margra ára starf í
Kína: „Það er verkefni sendi-
boða kristinnar kirkju, að
flytja mönnum fagnaðarerind-
ið og stofna söfnuði, sem svo
haldi áfram boðun fagnaðar-
erindisins í þeim sama til-
gangi, svo að söfnuðir geti
þannig af sér æ nýja söfnuði“
Sú skoðun var ríkjandi í
frumkristni, að kristinn söfn-
uður hefði ekki sinn tilgang
í sjálfum sér, væri ekki sjálf-
um sér markmið. Söfnuðurinn
í Antíókíu á Sýrlandi, sendi
úr sínum hóp fyrstu kristni-
boðana, þá Barnabas og Pál,
eftir að hafa fastað, beðizt
fyrir og lagt hendur yfir þá.
Leiddir af Andanum fóru þeir
síðan til Evrópu.
Kristnir menn litu ekki svo
á, að fagnaðarerindið væri á (
þeirra valdi, eða þeirra einka- j
forréttindi, heldur voru þeir á
valdi þess af því að það var i
„orð Krists“. Það drottnaði I
yfir þeim og þeir voru þess \
þjónar, með því að þeir voru
lærisveinar og vottar Krists.
Þegar Páll biður um fyrir-
bæn í sínu erfiða verki, skrif-
ar hann: „Biðjið fyrir oss að
orð Drottins megi hafa fram- !
gang. Hann leit svo á að allt
væri fengið með því. „Trúin
kemur með boðuninni. en boð-
unin byggist á orði Krists"
skrifar hann öðru sinm.
Öran vöxt í starfi sínu þökk
uðu postularnir algerlega
áhrifamætti þessa einstæða
boðskapar Þegar margir sner
ust til trúar. iýsa þeir pvi
þannig: „Orð Drottix.s efldisl
og útbreiddist . Svo kröft
Framhald á 7. síðu
J0L
í gegnum myrkur drungadimm og hörð,
úr djúpum skýja tindrar náðarstjarna.
Af heimi er sungin heilög þakkargjörð,
því himins son er gestur jarðarbarna. —
Hann kemur ekki í hefðarmakt né móð,
við merlað prjál, — með tignu fylgdarliði;
en veikum hjörtum vekur sæluglóð
og vefur lífið dýrðarmildum friði. —
Nú skiptast svið, um kaldan myrkva mar,
fer morgunn skær, með fagnaðsijúfum hreimi,
því koma hans, sem lífsins ’ljómann bar,
er líknin stærsta sektarþjáðum hejmi. —
Knútur Porsteinsson
— frá Úlfsstöðum.
Bjarni Þorsteinsson, Lyngholti;
Ur vígsluljóðum
Ort við vígslu Prestbakkakirkju í Hrútafirði.
I.
Hringt er inn helgi
heilagra tíða.
Kunngjöra klukkur
komu Drottins.
Streymir Guð blessun
staðinn yfir.
Fyllist heilagt hús
heilögum anda.
II.
Við boðskap bjartra fræða
skal barnið finna það,
að hátign lífsins hæða
á heima á þessum stað.
Sjá, Ijósin björtu Ijóma
og leiftra í helgum yl.
Vér sendum sigurhljóma,
vorn sólstaf, himna til.
III.
Láttu, Drottinn, boðskap þinn birtast hér,
ber það fram til sigurs, sem fagurt er.
Streymi helgar lindir, þitt lífsins mál,
lífgi, veki sumar í hverri sál.
Blessa litlu börnin við skírnarskál,
skírnarheitið festu í líf og sál.
Blessa þá, er krjúpa á knébeð hér,
kenn þeim ungu veginn, að fylgja þér.
Blessa þá, sem knýta hér kærleiksbönd,
kom og réttu vegmóðum sterka hönd.
Kom og leggðu lífgrös við sollin sár,
sættu oss við dauðann og þerra tár.
Þú ert, Drottinn, öllum hið æðsta skjól,
auðnu vorrar gimsteinn og náðarsól.
Dýrstu strengir hjartnanna helgist þér,
heill og gleði lífsins svo finnum vér.
IV.
Lofið höfund lífsins, hans dásemd aldrei dvín,
hans dýrð oss vermir lengur en sólin rís og skín.
Sjá, englafylking heilög, svo himinbjört og fríð,
um helgidóminn skipar sér og verndar alla tíð.
J