Alþýðublaðið - 22.06.1955, Page 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Bfiðvikudagur 22. júní 1955
!
I
5
%
s
S
s
s
$
s
s
s
5
s
s
h
s
s
S
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
*
s
V
Útgejandi: AlþýðufloWurinn.
Ritstjóri: Helgi Sœmundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Bj'órgvin Guðmundsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emma Möller.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10.
Ásþriftarverð 15,00 á mánuði. 1 lausasolu 1,00.
Siðbótarmaðurinn Úlafur
ÓLAFUR THORS gerðl
að umtalsefni í ræðu sinni
17. júnf hörkuna í stjórn-
málabaráitu og blaða-
mennsku íslendinga. Hon-
um finnst skorta á siðmenn
ingu okkar í málflutningi
og mannhelgin ekki nóg í
helðri höfð. Þetta er hverju
orði sannara, enda þótt við-
horfin hafi breyizt til batn-
. aðar undanfarin ár. Orð for-
sætisráðherrans eru því
tímabær og athyglisverð.
Morgunblaðið hefur séð á-
stæðu til að lýsa velþóknun
sinni á þeim, en bendir rétti
lega á, að sijórnmálaforigj-
arnir verði að hafa forustu
um 'siðbótina.
Þetta er íhugunarefni fyr
ir Ólaf Thors. Hann er leið-
togi stærsta sijórnmála-
flokksins og áhrifamesti
valdamaður landsins eins
og sakir standa. Honum er
þess vegna skylt að beita
sér fyrir siðmennilegri
sijórnmálabaráttu, en sú
viðleitni myndi kannski
þoka Morgunblaðinu til
rétts vegar. og'á því er ærin
nauðsyn. Hins vegar hefur
lítið borið á því, að Ólafur
Thors léti þetta verkefni til
sín taka. Hann er harð-
skeyttur bardagamaður og
svo óvægfnn í málflutningi,
að oft einkennist fram-
ganga hans af síráksskap.
Þessi vitnisburður um for-
sætisráðherrann er ekki að-
eins almannarómur hér
heima. Sömu skoðunar verð
ur vart erlendis. Nægir í
því sambandi að minna á
grein um Ólaf Thors í þing-
málatímaritinu Nordisk
Koniakt. Þar er sagður á
honum kostur og löstur af
kurteislegri hreinskilni og
komizt svo að orð., að hann
sé „rappkjeftet som en ber-
gensk tjuagult“ eða kjaftfor
eins og götusrákur í Björg-
vin. Og þessi umsögn hefur
svo mikið til síns máls, að
Ólafur Thors verður að
temja sér nýja og betri siði
í málflutningi áður en hann
er þess um kominn að
kenna öðrum. Færi sannar-
Iega betur. ef ræða hans 17.
júní yrði upphaf slíks.
Annars er afstaða Morg-
unblaðsins í þessu efni hár-
rétt. Stjórnmálaflokkarnir
verða að hlutast íil um sið-
bót í opinberum málflutn-
ingi. Þá munu bíöðin vissu-
lega fylgja á eftir. Skylda
Sjálfstæðisflokksins er ekki
hvað minnst í þessu efni.
Hann á íil dæmis ekki að
una því, að Motgunblaðið
breyti heimsfréttunum að
vild sinni. Það er enn meira
siðleysi en persónulegar
skammir um pólitíska and-
stæðinga hér heima, þó að
slíku sé ekki bót mæland .
Vill ekki Ólafur Thors ger-
ast slíkur siðbótarmaður
jafnframt því, sem hann
lætur strákskapmn víkja
fyrir kurteisi, virðingu og
sanngirni? Þá hefði mikið á
unnizt.
Lystarleysi Moggans
MORGUNBLAÐIÐ var
einkennilega fyrir kallað í
gær. Það birti á íorsíðu svo-
hljóðandi frétt: „BONN —
Dr. Adenauer kom í dag til
Washington. Óskar hann
eftir því að Bandaríkin setji
fram afvopnunaráætlun á
væntanlegri fjórveJdaráð-
stefnu.“ Og síðan bætir
Morgunblaðið við þessari
umsögn og preniar hana
feitu letri: „Lélegar kræs-
ingar það!“
Af þessu virðist helzt
mega ráðá* að Morgunblað-
55 telji sig ekki geta haft
Iyst á því, sem dr. Adenau-
er vilji láta b^ra á borð f jór-
veldaráðstefnunnar. Samt
hefur Morgunblaðið meiri
velþóknun á dr. Adenauer
en flestum öðrum stjórn-
málamönnum hér í álfu. En
það fúlsar við því. ef dr. Ad-
enauer ætlar að hlutast til
um, að sett verði fram gf-
vopnunaráætlun. Valtýr og
Sigurður ótiast sennilega
matareitrun.
Þe'r eru orðnir vígreifir,
skriffinnarnir við Morgun-
blaðið!
Geríst áskrifendur blaðsins.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 4900 ’ ^
Iþrótlamótið 17. júni
FYRRI HLUTI __ 17. júní-
mótsins fór fram á Iþróttavell-
inum s.l. miðvikudagskvöld.
Þátttaka var mjög góð í mörg-
um greinum og keppnin mjög
skemmtileg. Það er enginn
vafi á því, að frjálsar íþróttir
eru í miklum uppgangi.
GÓÐ AFREK.
Skemmtilegustu greinar
kvöldsins voru vafalaust 800
og 5000 m. hlaupin. í 800 m.
voru skráðir 9 keppendur og
mættu allir til leiks. Árangur
var ágætur og náði meirihluti
keppenda sínum bezta tíma.
Millitíminn á 40Ó m. var 56,0
sek. og hafði Svavar þá for-
ystuna, en það hafði hann
reyndar þangað til 40—50 m.
voru eftir, en þá fór Þórir
fram úr.
Afrek Kristjáhs í 5000 m. er
mjög gott, þegar tekið er tillit
til þess, að hann hefur ekki
æft reglulega nema 2—3 mán-
uði, síðan^ hann slasaðist í
fyrravor. Árangur Stefáns er
einnig góður, en hann er ný-
liði. Sigurður Guðnason hætti
keppni þegar 1 km. var eftir,
en þá fékk hann mjög slæman
sting.
Frekar óhagstætt var að
Alþýðublaðið
Svavar Markússon.
hlaupa 200 m., þar sem golan
var á móti á beygjunni. Er
tími Sigmundar því góður og
Haukur er mjög efnilegur ný-
liði.
Ingi sigraði-Pétur örugglega
í 110 m. grindahlaupi og er
tíminn sæmilegur.
ÞÓRÐUR ANNARf
SLEGGJUKASTI.
Fáum myndi hafa dottið í
hug að Þórður myndi tapa
sleggjukastinu, því að það
hefur ekki skeð lengi. Einar
Ingimundarson frá Keflavík sá
samt um það í þetta skipti og
náði góðum árangri, sínum
langbezta.
Jóel var með daufasta móti
í spjótkastinu, en sigrac i samt
örugglega. Sama er að segja' Sveit KR ................ 46,0
um Friðleif í þrístökkinu, en Sveit Ármanns .......... 47,4
hann átti aðeins tvö stökk j __ I sveit IR voru: Vilhjálmur
gild af sex. Gísli fór yfir 1,75 Ólafsson, Daníel Halldórsson,
Haukur Böðvarsson og Guð-
mundur Vilhjálmsson.
Hástökk:
Gísli Guðmundsson, Á . . 1,75
Sigurður Lárusson, Á . . 1,70
Björgvin Hólm, ÍR....... 1,70
Ingólfur Bárðarson, Self. 1,70
Þrístökk:
’ Friðleifur Stefánss., KS 13,80
| Helgi Björnsson, ÍR .... 13,53
jDaníel Halldórsson, ÍR .. 13,35
Guðl. Einarsson, UMFK 12,99
Spjótkast:
Jóel Sigurðsson, ÍR . .. . 55,53
Jón Vídalín, KR . .......51,86
Björgvin Hólm, ÍR .... 50,25
Eiðar Gunnarsson, Á .. 43,36
Krlstján Jóhannsson.
í fýrstu tilraun, en 1,80 reynd-
ust of erfiðir í þetta skipti.
Síigurður sigraði 'ljörgvin í
umstökki um annað sætið og
fór yfir 1,72' m.
IR-sveitin sigraði með all-
niiklum yfirburðum í 4X100
m. boðhlaupi og er tíminn all-
góður.
110 m. grindahlaup:
Ingi Þorsteinsson, KR . . 15,5
Pétur Rögnvaldsson, KR 15,8
Einar Frímannsson, KR 17,4
200 m. hlaup:
Sigmundur Júlíusson. KR 23,2
Haukur Böðvarsson, ÍR . . 23,8
Guðm. Guöjónsson, .. KR 24,4
Unnar Jónssc-n, IR .... 25,1
800 m. hlaup:
Þórir Þorsteinsson, Á . . 1:57,8
Svavar Markússon. KR 1:58,2
Rafn Sigurðsson, ÚÍA . 2:03,8
Dagbjartur Stígsson, Á 2:04,0
Ingimar Jónsson, IR . . 2:05,5
Halldór Pálsson, UMFK 2:06,9
5000 m. hlaup:
Kristján Jóhannss., IR 15:40,2
Stefán Árnason, UMSE 16:21,6
Hafst. Sveinsson, Self. 16:42,8
Þórh. Guðj.s., UMFK 17:31,6
4x100 m. boðhlaup:
Sveit ÍR ................ 44,8
Sleggjukast:
Einar Inginj.s., UMFK 45.49
Þórður B. Sigurðss., KR 42,94
Þorv. Arinbj., UMFK 40,62
SEINNI DAGUR:
Keppnin 17. júní var
skemmtileg og árangurinn
góður, sérstaklega í kúluvarpi
og kringlukasti. Fjórmenning-
arnir Hallgrímur, Löve, Guð-
mundur og Skúli eru allir ör-
uggir keppnismenn og má
vænta frábærs árangurs hjá
þeim í sumar.
Stökkin voru ekki góð að
þessu sinni, lengstu stökk
Einars voru ógild, og Valbjörn
(Frh. á 7. síðu.)
GuSmundur Lárusson.
Próf við Háskóla Islands
Hallgrímur Jónsson.
EFTIRTALDIR kandidatar
hafa í vor lokið prófum við
Háskóla íslands:
Embættispróf í guðfræði.
Hannes Guðmundsson, Ólaf-
ur Skúlason, Tómas Guð-
mundsson.
Embættispróf í læknisfræði.
Björn Júlíusson, Einar Jó-
hannesson, Guðmundur Jó-
hannesson, Haraldur Guðjóns-
son, Jón R. Árnason, Magnús
Ásmundsson, Magnús Bl.
Bjarnason, Magnús Þorsteins-
son, Ólafur Jónsson, Ólafur
Sveinsson, ÓIi Kr. Guðmunds-
son, Sverrir Jóhannesson, Þor-
gils Benediktsson.
Kandídatspróf í tanníæknimg-
um.
Magnús R. Gíslason, Rósar
V. Eggertsson,
Embættispróf í lögfræði.
Agnar Biering, Bjarni
Bjarnason,, Björn Hermanns-
son, Gestur Eysteinsson,
Eyjólfur K. Jónsson, Hermann
Helgason, Jón Magnússon,
Kandídatspróf í viðskiptafrteð-
um.
Arnold Bjarnason, Björn
Þórhallsson, Bogi Guðmunds-
son, Einar Sverrisson, Flemm-
ing Holm, Gunnlaugur Björns-
son, Plelgi Þ. Bachmann,
Hörður Haraldsson, Jóhann
Ingjaldsson, Ólafur Stefáns-
son, Pétur Eggerz Stefánsson,
Ragnar Borg, Sigtryggur
Helgason, Sigurður Þ. Jörgens-
son, Sverrir Hermannsson.
Kennarapróf í íslenzkum
fræðum.
Grímur M. Helgason,
Magnús Guðmundsson, Matt-
hías Johannessen.
Ute Jacobshagen lauk prófi
í íslenzku fyrir erlenda stú-
denta.
Baccalaureorum artium próf.
Guðmundur Jónasson,
Hákon Tryggvason, Jónína
(Frh. á 7. síðu.)