Alþýðublaðið - 26.07.1955, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐiÐ
ÞriSjudagur 2G. júlí 1955
Útgefandi: Alþýðuflok\urinn.
Ritstjóri: Helgi Scemundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10.
Ásþriftarverð 15,00 á mánuði. I lausasölu ÍJOO.
*
S
s
s
$
s
s
s
-S
s
s
s
s
s
*
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
N
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
<
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Auðveld rannsókn
ALÞÝÐUBLAÐIÐ lét þess
getið á dögunum, að gestum
á frumsýningu Leikhúss
Heimdallar hefðu verið
bomar veitingar, þar á með
al áfengir drykkir, áður en
leikurlnn hófst. Þetta hefur
orðið tilefni nokkurra blaða
skrifa og Tíminn gerzt þung
orður í garð Heimdallar og
Sjálfsiæðishússins vegna
vínveitinganna á leikkvöld-
unum. Morgunblaðið brást
hið versta við og gekk svo
langt að birta vfirlýsingu,
undirritaða af leikstjóra og
Ieikendum, þar sem borið er
á móti því, að vínveitingar
hafi átt sér stað fyrir leik-
fýningar. Tíminn svaraði
með því að heimta opinbera
rannsókn, er leiddi í ljós,
þvort stjórnarblaðið segði
sait í þessu sambandi. Síðan
hefur Morgunb'aðið farið
sér ósköp hægt.
Af þessu tilefni vill Al-
þýðublaðið taka fram, að
það fagnar því, ef vínveit-
ingum hefur verið hætt fyr-
ir sýningar í Leikhúsi Heim
dallar eins og ástæða virðist
til að ætla. Hitt er hlægilegt
af Morgunblaðinu að halda
því fram, að vinveitingar
hafi ekki verið um hönd
hafðar áður en leikurinn
hófst frumsýningarkvöldið.
Málið er ekki síórt, en vissu
lega er ástæða til að upp-
lýsa það, fyrst stjómarblöð-
unum hefur orðið svo sund-
urorða, -að þau skiptast á
brigzlyrðum. Kannsóknin
ætti ekki að þurfa að taka
langan tíma eða verða
kostnaðarsöm. Sá, sem velst
til að framkvæma hana,
kemst sennilega af með að
kalla fyrir sig forstjóra
Sjálfsíæðishússins, báða rit
stjóra Morgunblaðins og
leikdómara þess og ráð'herra
Sjálfstæðisflokksins, Bjarna
Benediktsson og Ingólf Jóns
son. Rannsóknardómarinn
mun ekki þurfa frekari
vitna við.
Hitt er furðulegt, að
stjórn Heimdallar og for-
ráðamenn Sjálfstæðishúss-
ins skuli leyfa sér að bera á
móti því, sem frumsýningar
gestir horfðu upp á. Tilgang
ur gagnrýninnar var sá, að
ósómanum yrði hætt. Því
varð við komið án þess að
hlutaðeigandi aðilar gerðu
sig að fíflum og beitíu að-
ferðum, sem minna á til-
burðl hvatvísra atvinnurek-
enda fyrir hálfri öld. Fram-
ferði þeirra sýnir og sann-
ar, að mennirnir kunna
ekki að skammast sín, þó að
þeir neyðist til að taka mark
á fram kominni gagnrýni..
Og eftir er svo sá þáttur
málsins, að „menningar-
starf“ Heimdallar á leiksvið
inu í Sjálfstæðishúsinu fær
ist út í salinn að sýningum
loknum og tekur á sig þá
mynd, að æsku Reykjavíkur
er boðið upp á dans og vín-
veitingar. Þannig ætlar í-
haldið að bjarga unga fólk-
inu frá sollinum!
Tapaði með sœmd
LANDSKEPPNI íslend-
inga og Hollendinga í frjáls
um íþróttum tókst með mikl
um ágætum, þrátt fyrir ó-
hagstæð veðurskílyrði. ís-
lenzka sveitin beið lægri
hlut eftir harða og tvísýna
keppni, en hún tapaði með
sæmd. Hollendingar eru víð
frægir íþróitamenn, en flest
ir af okkar gömiu görpum
hættir keppni eða forfallað-
ir. Samt munaði mjóu, að
sigurinn yrði íslendinga.
Það er því að þakka, að upp
þafa risið hér ungir og efni-
Iegir frjálsíþróttamenn, sem
þegar vinna frækileg afrek
og vekja enn slærri vonir.
Æskumennirnir, sem
héldu uppi sóma íslands í
landskeppninni við Hollend
inga, þurfa að fá tækifæri
til að reyna s.g við íþrótta-
garpa annarra þjóða og
sýna betur en orðið er, hvað
í þeim býr. Þeir múnu
vissulega feta í fótspor fyr-
irrennara sinna, sem hafa
gert garðinn frægan erlend-
is. Þennan gróður þurfum
við að varðveita og veita
honum öll nauðsynleg
þroskaskilyrði, en á það
vantar mikið enn sem kom-
ið er.
Gerist áskrifendur blaðsins.
Alþýðublaðið
Landskeppnin í frjálsum íþrótlum -
Hollendingar unnu knappan sigur
ÞESSARI fimmtu lands-
keppni íslendinga í frjálsí-
þróttum lauk með knöppum ó-
sigri, efiir geysiharða og tví-
sýna keppni. Þetta er í fyrsta
skipti, sem Hollendingar og ís-
lendingar eigast við í frjálsí-
þróttum, en vonandi ekki í það
síðasta. Nú er útkoma frjálsí-
þróttamanna sú, að þeir hafa
sigrað þrisvar og tapað tvíveg-
is.
GÓÐ BYRJUN
Fáir áhorfendur höfðu búizt
við þvi, að íslendingur yrði
annar í 400 m. grindahlaupi,
en Tómas Lárusson sýndi hví-
líkur k'/tpnismaður hann er
með því að sigra Buijs, sem
hlaupið hefur á 55,2 í sumar.
Þessi tími Tómasar. 55,9, er
þriðji bezii tími íslendings,
Örn á 54,7 og Ingi 55,6, en það
athyglisverðasta við þetta
hlaup Tómasar er, að hann hef
ur aðeins einu sinrii áður reynt
við þessa grein og fékk þá tím
ann 59,5. Parlevliet hljópmjög
vel og hafði yfirburði. Útlitið
var gott í bili, en margar tví-
sýnar greinar voru enn eftir.
GLÆSILEG MET
í þrístökkinu og kúluvarp-
inu voru unnin glæsileg afrek,
þau langbeztu í keppninni
samkvæmt nýju stigatöflunni.
Þrístökk Vilhjálms er eina af-
rekið, sem gefur yfir 1000 stig
eða nákvæmlega 1013. Þða eru
aðeins fimm þjóðir í Evrópu,
sem eiga betri þrístökkvara í
dag og með þessum árangri
hefði Vilhjálmur orðið annar
á Evrópumeistaramótinu í
Bern. Árangur Guðmundar í
kúluvarpinu ,er einnig mjög
góður eða 58 cm. lengra eJi
hann hefur náð bezt áður.
Stefán Árnason stóð sig
mjög vel í hindrunarhlaupinu
og setti glæsilegt met, 9:43,2
mín. Gamla metið átii Krist-
ján Jóhannsson, 9:47,4. Þegar
Stefán hefur öðlazt meiri
keppnisreynslu, lækkar þessi
tími allverulega.
Þó að mörg framúrskaraJidi
afrek hafi verið unJiin þarna í
senn, er enginn vafi á því, að
800 m. hlaupið var skemmtileg
asta greinin og hrein unun var
að horfa á barátuvilja og „tak-
tik“ Svavars og Þóris. Svavar
tók forustu og fór mjög greitt,
en mi'llitíminn á 400 m. var 55
sek. Þegar rúmir 200 m. eru
ef iir geysist Kroon íram úr og
nær nokkurra metra forskoti í
byrjun síðustu beygjunnar.
Svavar er þá í öðru sæli og sér
strax, að bessi ,,taktik“ gat orð-
ið hættuleg, gefur Þóri fyrstu
braut, en fer sjálfur út á aðra.
Þórir tekur nú á öllu, sem
hann á til og dregur hægt 02
bítandi á Kroon og á síðustu 30
metrunum tekst honum að
komast meter fram úr og slítur
snúruna á sama ti'ma og met
Óskars Jónssonar, 1:54,0, sett
út í Osló 1948.
ÚRSLITAGREIN ARNAR
Keppninni í 200 og 5000
m. hlaupum lauk Jneð tvöföld-
um hollenzkum sigri, svo að nú
voru aðeins efiir spjótkast og
hástökk fyrir utaíi 4X400 m.
boðhlaupið. Þessar tvær grein
ar skáru úr um það, hvort sig-
urinn yrði hollenzkur eða ís-
lenzkur. Um tíma leit mjög vel
út með spjótkastið, þar sem
Jóel var vel fyrstur þar til í
fimmtu umferð, að Fikkert
nær sínum bezta árangri 65,26
og Kamerbeek hrífst með og
fer fram fyrir Adolf, sem hafði
verið þriðji. Jóel lók nú á öllu
sínu í síðasla kasti og litlu
munaði, en ekki nógu, hann
kastaði 64,51, sem er bezti ár-
angur, sem hann hefur náð í
fjögur ár. Gísli van n hástökk-
ið, en Sigurður haínaði í fjórða
sæti, svo að keppnin var töpuð
áður en boðhlaupið hófst, sem
Hollendingar sigruðu auðveld-
lega í fjarveru Harðar, sem var
meiddur.
Keppninni var lokið með
5000 m. hlaup:
J. Fekkes, H 15:02,2
H. Viset, H _ 15:04,4
Sigurður GuðnasoJi, í 15:28,8
Kristján Jóhannsson, í 15:35,8
3000 m. hindr.:
H. v. d. Veerdonk, H 9:38,8
Stefán Árnason, í 9:43,2
íslenzkt met.)
T. J. Vergeer, H 9:57,0
Einar Gunnlaugsson, í 10:31,2
400 m. gr/nd.:
J. C. Parlevliet, H 54,7
Tómas Lárusson, í 4 55,9
F. F. M. Buijs, H _ 56,3
Ingimar Jónsson, í 60,3
4X400 m. boðh/aup:
Holland 3:20,4
ísland 3:26,8
AUKAKEPPNI
Á SUNNUDAG
Hollenzku frjálsíþróttamenn
irnir kepptu í aukakeppni,
sem efnt var til á íþróttavelliri
| um á sunnudagskvöld í mjög
'óhagstæðu veðri, suðauslan
hvassviðri og rigningu. Þegar
tekið er tillit til hinna óhag-
stæðu slkilyrða má segja, að ár
angur hafi verið allgóður í
mörgum greinum.
Vilhjálmur Einarsson.
sigri Hollands — 111 gegn 103
stigum.
íslendingar mega vel við
una, þó að sigur ynnist ekki í
þetta skipti. íslenzku keppend-
urnir börðust mjög vel og náðu
glæsilegum árangri í mörgum
greinum. íslenzkir frjálsí-
þróitamenn hafa vaxið mjög í
áliti bæði hér heima og erlend
Is. Nú er aðeins að veita ís-
lenzkum frjálsíþróttamönnum
landskeppni árlega, þá mun
ekld standa á harðskeyttum og
vel þjálfuðum fulltrúum ís-
lands, sem myndu sóma sér vel
í keppni við flestar Evrópu-
þjóðir. Hafi íslenzka landsliðið
þökk fyrir drengilega keppni.
ÚRSLIT SÍÐARI DAGS
Hástökk:
Gísli Guðmundsson, í 1.80
P. Nederhand, H 1.80
A. van Oosten, H 1.80
Sigurður Lárusson, í 1,75
Þrís/ökk:
Vilhjálmur Einarsson. í 15,19
(14.84 — 15.19 — 14.92 —
15,04 — 15,04 — 14,67)
A. de Jong, H 14.19
Friðleifur Stefánsson, í 14,11
Visser, H 13,45
Spjó/kast:
J. Fikkert, H 65,26
Jóel Sigurðsson, í 64.51
E. Kamerbeek, H 59,71
Adolf Óskarsson, í 58,43
KúZuvarp:
Guðm. Hermannsson. í 15,63
Skúli Thorarensen, 1 14,75
E. Kamerbeek, H 13,06
L. Rebel, H 12,63
200 m. hlaup:
A. H. van Hardeveid, H 21.9
H. Rulander, H _ 22,4
Ásmundur Bjarnason, í 22,5
Sigmundur Júlíusson, í 22,8
800 m. hlap:
Þórir Þorsteinsson, í 1:54,0
H. de Kroon, H _ 1:54,2
Svavar Markússon, í 1:56,2
B. C. Verweij, H 1:59,6
URSLIT
! -|.
100 m.:
A. H. v. Hardeveld 11,1
Guðm. Vilhjálmsson, ÍR 11,3
F. Tempelaer 11,3
400 m.:
Þórir Þorsteinsson, Á 50,9
Chr. Smildiger 51,5
F. M. Moerman 51,6
B. C. Verweij 52,4
Haukur Böðvarsson, ÍR 52,6
1000 m.:
Svavar Markússon, KR 2:36,8
H. Bohle 2:38,2
W. Roovers 2:40,0
H. de Kroon 2:42,6
3000 m.:
H. Viset 9:05,2
J. Fekkes 9:05,2
J. V. Vergeer 9:27,8
Þórhallur Guðj., UMFK 9:43,0
200 m. gr.:
J. E. Parlevliet 25,5
F. F. M. Buijs 26,3
Pétur Rögnvaldsson, KR 26,4
Guðm. Guðjónsson, KR 27,5
Kringlukast:
Hallgrímur Jónsson, Á 49,00
Þorsteinn Löve, KR __ 47,97
Þorsteinn Alfreðsson. Á 46.61
L. Rebel 46,52
Hás/ökk:
Gísli Guðmundsson, Á 1,80
A. van Oosten 1,75
Sig. Lárusson, Á 1,70
E. Kamerbeek 1,70
Langstökk:
H. Visser 7,32
Einar Frímannsson, KR 6,89
Björgvin Hólm, ÍR 6,39
A. de Jong 6,35
Teppa
filt
:"S ’>•
Verð kr. 28,00 m.
Toledo
Fischersundi.