Tíminn - 05.02.1965, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.02.1965, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 5. febrúar 1965 TÍMINN 17 Nýir lánaflokkar Stofnlánadeildar sjávarútvegsins Klemenz Jónsson (t.h.) stjórnar atriðinu, þegar íbúarnir { Kardimommubæ færa Tobíasi gamla afmælisgjöfina. Kardimommubærinn kemur á svið á ný S.l. sunnudag hófust sýningar á hinu vinsæla leikriti Karde- mommubærinn í Þjóðleikhúsinu. Húsið var þétt skipað og undir- tektir hinna ungu leikhúsgesta mjög góðar. Hlutverkaskipan er lítið breytt frá því, sem áður var. En þeir, sem leika nú I fyrsta skipti í Kardemommubænum eru: leikararnir Árni Tryggvason Arnar Jónsson og Valdema. Lár- usson. Um 45 leikarar og auka- leikarar koma fram í sýningunni í ýmsum gervum. Leikstjóri er Klemenz Jónsson, en Carl Billich stjómar hljómsveitinni. Næsta sýning verður miðvikudag kl. 6. Kardemommubærinn var fyrst sýndur í Þjóðleikhúsinu í janúar 1960 og eru því liðin fimm ár frá því að leikurinn var frum- sýndur hér. Leikurinn var sýnd- ur 75 sinnum og var uppselt á flestum sýningum. Ekkert bama leikrit hefur náð jafnmiklum vin sældum hér á landi. NAMSKEIÐ I GRAFIK Handíða og myndlistaskólinn gengst fyrir námskeili í grafík (Litógrafíu og tréristu) fyrir myndlistarmenn. Námskeiðið stendur yfir næstu þrjá mánuði og verður tvisvar til þrisvar í viku eftir samkomulagi. Myndlist armenn, sem áhuga hafa á nám- skeiðinu, em beðnir að mæta í skólanum, miðvikudaginn 3. febr úar klukkan 20 til viðræðna, eða snúa sér til skrifstofu skólans Skipholti 1 sími 1-98-21 milli kl. sex og sjö hið allra fyrsta. Kenn ari á námskeiðinu verður sem fyrr Bragi Ásgeirsson, listmálari. Félag blaðaljós- myndara stofnað Stofnað hefur verið fé- lag blaðaljósmyndara í Reykjavík, og var stofn- fundurinn, haldinn Iaugar- daginn 16. janúar s. 1. Á stofnfundinum vom mættir átta starfandi blaðaljós- myndarar við dagblöð og vikublöð í Reykjavík. f fyrstu stjóm vom kosnir: Ingimundur Magnússon, for maður, Guðjón Einarsson, gjaldkeri, og Jóhann VII- berg, ritari. Tilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuna- mál félagsmanna og koma áhugamálum þeirra á fram- færi. Meðlimir geta orðið allir þeir, sem starfa við blaðaljósmyndun fyrir dag- blöð og vikublöð í Reykja- vík. J Ný bók um íslenzkar mállýzkur Studia Islandica 23 flytur niður- stöður af rannsóknum Björns heit ins Guðfinnssonar á íslenzkum framburði fyrir 20 árum. Nýlega er komið út 23. hefti af ritsafninu Studia Islandica, ís- lenzk fræði, sem Heimspekideild Háskóla íslands og Bókaútgáfa Menningarsjóðs gefa út. Efni þessa heftis eru niðurstöður af rannsóknum Björns Guðfinnsson- ar prófessors á íslenzkum fram- burði, en honum entist ekki ald- ur til að vinna úr öllum þeim gögnum, sem hann safnaði. Fyrir 18 árum kom út doktorsritgerð hans, Mállýzkur I, um íslenzkan framburð almennt og niðurstöður rannsókna hans á útbreiðslu mis- munandi framburðar á p, t, k. Þá taldi höfundur að eftir væri efni í annað bindi svipaðrar stærð ar, en sökum heilsubrests gat hann ekki sinnt því verki. Hann lézt haustið 1950. Nokkru síðar tók Háskóli ís- lands við þeim gögnum um rann- sóknir Björns, sem eftir var að vinna úr. Einn nánasti samstarfs- maður hans við rannsóknimar, Ólafur M. Ólafsson menntaskóla- kennari, tókst á hendur fyrstn úr- vinnslu þessara gagna, en Óskar Halldórsson kennaraskólakennari tók að sér að ganga frá hand- ritinu til prentunar, en báðir Iþróttahús á Seltjarnarnesi EJ-Reykjavík, miðvikudag. Undirbúningur er nú hafinn að byggingu íþróttahúss á Seltjarnar nesi, og verður það staðsett rétt við Mýrarhúsaskólann. Á síðustu fjárhagsáætlun hreppsins var einni milljón varið til þessara framkvæmda. Hér er eingöngu um undirbún ingsvinnu að ræða, og hefur verk- fræðingur Seltjarnarneshrepps, Hallgrímur Sandholt, málið með höndum. Ekkert íþróttahús er á Sel- tjarnarnesi, og skapar það að sjálfsögðu mikil vandræði í sam bandi við alla leikfimi og íþrótta kennslu. Verður nú að senda öll böm til Reykjavíkur í leikfimi. lögðu þeir saman síðustu hönd á verkið. Á rannsóknarferðum sínum um landið, könnnðu Bjöm og sam- starfsmenn hans framburð nær tuttugasta hvers íslenzkumælandi manns, og mun það einsdæmi í sögu málvísindanna að kannaður sé framburður svo mikils hluta heillar þjóðar. Framburður hvers einstaklings var skráður á sér- stakt spjald, og úr því safni hef- ur nú verið unnið. Þrem áram áður en Björn andaðist hafði hann birt nokkrar niðurstöður um helztu mállýzkuflokkana í riti sínu, Breytingum á framburði og stafsetningu. í þessu nýkomna hefti af Studia Islandica em kaflar um rödduð hljóð og órödduð á undan p, t, k (framburðarmismun eins og norð- lenzku og sunnlenzku stúlka), hv og kv, framburðarmismun á orðum eins og hringla, stjarna, varla, vestfirzka framburðinn á langur o. fl., mismunandi fram- burð á hafði, og margt annað. Þetta hefti er 214 bls., gefið út í tvenns konar útgáfu, annars vegar með aðaltitilinn „Um ís- lenzkan framburð. Mállýzkur II“, Framhald á 16. síSu. | EJ-Reykjavík, fimmtudag. Bankamálaráðherra hefur und- í irritað reglugerð um nýja lána- ) flokka Stofnlánadeildar sjávarút- ! vegsins .og byggist húh á samn- ; ingi, sem gerður hefur verið milli ' Seðlabankans, Landsbankans og ■ tvegsbankans. I samningnum er ■ gert ráð fyrir, að fjármagn það frá þessum bönkum, sem nú er bundið í útlánum Stofnlánadeild- arinnar, verði að verulegu leyti látið ganga til nýrra lána í þess- um lánaflokkum, eftir því sem það losnar. Mun verða hægt að lána um 40 millj. árlega úr þess- um nýju flokkum. Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi fréttatilkynning frá Seðla- banka íslands: „Bankamálaráðherra hefur ný- lega undirritað reglugerð um nýja lánaflokka Stofnlánadeildar sjávarútvegsins og verður hún birt næstu daga. Reglugerðin byggist á samningi, sem gerður hefur verið um starfsemi hinna nýju lánaflokka milli Seðlabanka íslands, Landsbanka íslands og Útvegsbanka fslands. í samningn um er gert ráð fyrir því, að fjármagn það frá þessum bönk- um, sem nú er bundið í útlán- um Stofnlánadeildarinnar, verði að verulegu leyti látið ganga til nýrra lána í þessum lánaflokk- um, eftir því sem það losnar. Af því heildarfjármagni, sem um er að ræða, munu þessir bank- ar leggja fram 100 millj. kr. sem framlagsfé, en 235 millj, sem lán til 25 ára. Með þessum hætti verður unnt að lána úr hinum nýju lánaflokkum Stofnlánadeild arinnar um 40 millj. kr. á ári, en sú upphæð mun eftir nokkur ár hækka í um 50 millj. kr. ár- lega. Auk þessa fasta fjármagns mun verða athugað um frekari lánsfjáröflun til starfsemi deild- arinnar bæði frá þeim bönkum, _sem aðilar eru að þessum samn- ' ingi, svo og öðrum aðilum. J Stjóm og starfsemi þessara ‘ilánaflokka Stofnlánadeildarinnar ' iverður háttað sem h|er segir. Ákvarðanir um lánveitingar iverða í höndum sérstakrar stjórn larnefndar, sem skipuð verður full 'trúum bankastjórna Seðlabank- 'ans, Landsbankans og Útvegs- 'bankans. Gert er ráð fyrir því, 'að umsóknir um lán verði lagð- Qr fyrir viðskiptabanka viðkom- iandi fyrirtækis, annað hvort Landsbankann eða Útvegsbank- ann, sem munu athuga fjárhag umsækjenda og leggja umsókn- imar síðan fyrir fyrrgreinda stjómarnefnd. Að öðru leyti er umsjón og starfsemi lánafiokk- anna í höndum Stofnlánadeildar sjávarútvegsins, sem er deild í Seðlabankanum. Tilgangur hinna nýju lána- flokka Stofnlánadeildarinnar er að stuðla að aukinni framleiðslu og framleiðni í fiskiðnaði og skyldri starfsemi. Er með þess- ari nýju lánastarfsemi reynt að bæta úr brýnni þörf fyrir aukin lán til fiskiðnaðar og fiksvinnslu. Er það einnig ætlun þeirra þriggja banka, sem að lánaflokk- unum standa, að vinna að betri undirbúningi og samræmingu út- lána til fiskiðnaðarins í heild, og munu þeir um það leita sam- vinnu við aðra aðila, er stunda lánastarfsemi á sama sviði, svo sem Framkvæmdabanka fslands, Atvinnuleysistryggingasjóð og Fiskveiðasjóð íslands. Nánar mun verða sagt frá starfsemi Stofnlánadeildarinnar, þegar hin nýja stjórnarnefnd hefur tekið til starfa og mörkuð hefur ver- ið útlánastefna deildarinnar, og tilkynnt um fyrirkomulag láns- umsókna og fleira." Afengis- neyzlan EJ.-Reykjavík, miðvikudag. Áfengizneyzla landsmanna hef ur farið vaxandi með ári hverju undanfarið, og var á síðasta ári drukkið 1.97 lítrar af 100% áfengi á hvern íbúa landsins. Áfengissalan 1964 jókst um 41.6 milljónir króna frá 1963, eða um ca. 15%. Samkvæmt upplýsingum Áfeng isvamarráðs var heildarsalan á áfengi 1964 kr. 319.2 milljón- ir. Árið 1963 var heildarsalan 277.6 milljónir, — 1962 235.8 millj ónir og 1961 199.4 milljónir. Áfengissalan 1964 var ca. 15% meiri en árið áður, en það skal tekið fram, að nokkur hækkun varð á áfengi í október 1964. Áfengisneyzla íslendinga hefur aukizt með ári hverju. Árið 1961 var áfengisneyzlan 1.61 lítri á hvern íbúa miðað við 100% áfengi, 1962 1.82 lítrar, 1963 1.93 1., og 1964 1.97 lítrar. Á tímabilinu frá október til 31. desember 1964 var heildar- sala áfengis 89.635.278 krónur, en Framhald á 16. t(Su. Komdu nú að kveðast á Ríkisútgáfa námsbóka hefur gefið út hefti með 25 íslenzkum þjóðlögum, sem Jón Þórarinsson tónskáld hefur valið og útsett fyrir samkynja raddir, tví- og þríradda. Safn þetta er fyrst og fremst ætlað barnakórum, og er vonazt til, að það bæti nokkuð úr brýnni þörf þeirra á hentug- um þjóðlagaútsetningum. Flest lögin eru tekin úr þjóð- lagasafni séra Bjarna Þorsteins- sonar, en nokkur skrifaði Jón Þórarinsson upp á Akureyri sum arið 1936 eftir Konráð Vilhjálms syni kennara og rithöfundi og börnum hans, og hafa þau lög aldrei verið prentuð áður. Aftast í heftinu er gerð grein fyrir uppruna laganna, eftir því sem um hann er vitað og ætti sú greinargerð að geta orðið til skemmtunar og fróðleiks öllum, sem bókina nota. Safn þetta ber heitið „Komdu nú að kveðast á.“ f því eru alls 10 tvírödduð lög, en 15 þrírödd- uð. Káputeikningu og mynd- skreytingu hefur Halldór Péturs- son gert, Hannes Flosason teikn- aði nóturnar, en setning og prent un er unnin í Alþýðuprentsmiðj- unni h.f. og Litbrá h.f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.