Alþýðublaðið - 05.10.1955, Blaðsíða 8
Starfrækir tósilistarskóia á Selfossi,
TÓNLISTAKFELAG var stofnað í Árnessýslu hinn 29.
sept. sl. Verður fyrirkomulag' þess og starfshættir svipað og ann-
arra tónlistarféiaga í landinu. Aðalverkefni félagsins verður
starfræksla tónlistarskóla að Selfossi. Hefur verið ráðinn til
jhans sérmenntaður tónlistarmaður, Guðmundur Gilsson, sem
fflýlega hefur lokið nómi í Hamborg með ágætum vitnisburði.
Um síðustu aldamót var tón-
mennt í Árnessýslu með mikl-
um blóma, svo að naumast átti
sinn líka annars staðar á land-
inu, enda eru margir kunnir tón
listarmenn upprunnir á Stoklcs-
eyri og Eyrarbakka. Nú er hins
vegar talið að almenn kunnátta
í hljóðfæraleik fari þverrandi.
SÖFNUN STYKKTAK-
FÉLAGA HAFIN
Upphafsmaður að stofnun
íónlistarfélagsins var séra Sig-
urður Pálsson í Hraungerði, en
auk hans voru í undirbúnings-
nefnd Ingólfur Þorsteinsson,
Jón Gunnlaugsson og Hjörtur
Þórarinsson. Aðalfélagar eru 15
og eru eins konar framkvæmda
stjórn félagsins, en fjöldi styrkt
arfélaga er ekki takmarkaður.
FÁ TÓNLISTARMENN,
HLJÓMSVEITIR OG KÓBA
Markmið félagsins er að efla
tónlistarstarfsemi í Árnessýslu
og markmiði sínu hyggstfélagið
að ná með því a) Að hafa sam-
vinnu við starfandi tónlistar-
menn og söngkóra í Árnessýslu.
b) Að starfrækja tónlistarskóla
á Selfossi, þar sem jafnan sé
völ á sem fullkomnastri og fjöl
breyttastri tónlistarkennslu. c)
Að halda uppi tónlistarstarf-
semi, svo sem með því að fá tón
listarmenn, innlenda og er-
lenda, hljómsveitir og kóra til
að halda tónleika fyrir félaga
og almenning og d) Að vinna
að öðru leyti að almennri tón-
listarfræðslu.
STJÖRN
Stjórn félagsins skipa: Ing-
ólfur Þorsteinsson formaður,
Sigurður I. Sigurðsson gjald-
keri og Hjörtur Þórarinsson rit
ari.
Makarios sendi AlfJee
þakkarskeyti.
MAKARIOS erkibiskup, leið
togi þjóðernissinna á Kýpur,
sendi- Attíee í gær skevti þar
sem hann þakkar honum sam-
þykkt Verkamannaflokksins
um Kýpurmálið. Þar er lagt til
að Kýpurbúar fái að ráða mál-
um sínum sjálfir, en sérstakur
samningar verði gerðir um rétt
arstöðu tyrkneska þjóðarbrots-
Miðvikudagur 5. október 195”
ms a eynni.
Norðlendingur fandar
Ólafsfirði í gær.
NORÐLENDINGUR landaði
hér í dag 300 tonnum af karfa
sem hann fékk á hinum nýju
miðum. Var hann 10 daga í
veiðiförinni. Karfinn fór í
frystihúsið til flökunar. RM.
Tvö ný mænuveikiíilfelli
í GÆR varð vart tveggja
veikindatilfella, þar sem
grunur leikur á, að um
mænuveiki sé að ræða. Engr-
ar lömunar hefur orðið vart í
þeim tilfcllum. Alls hafa þá
11 veikzt af mænuveikinni og
8 þeirra hafa lamazt.
ENGAR MEIRIHÁTTAR
RÁÐSTAFANIR
Engar róttækar ráðstafanir
munu verða gerðar vegna
veikinnar, enda er enn ókunn
ugt hvernig hún berst. Þeir,
sem veikzt hafa, eru dreifðir
um bæinn og ekkert samband
sjáanlegt þar á írúlli. Fólki er
aðcins bent á að gæta hrein-
lætis og forðast vosbúð, vök-
ur og óþarfa samveru.
BARNAHEIMILUM LOKAÐ
Barnavinafélagið Sumar-
gjöf samþykkti í gær að loka
Fjöldi flóHamanna frá Ausfur-
Þýzkal. fer sfööugf vaxandi
. Yfir 100 þús. hafa flúið á þessu ári,
BERLÍN, 3. október. — Talsmenn borgarstjórnarinnar í
'Vestur-Berlín hafa tilkynnt að fjöldi þelrra manna, sem flúðu
frá hernámssvæði Rússa í Austur-Berlín og Austur-Þýzka-
landi í septembermánuði sl. hafi verið óvenju mikill.
Samtals leituðu 19 069 manns
hselis í Vestur-Berlín sem póli-
tískir flóttamenn, þar á meðal
'550 meðlimir alþýðulögrpglunn
ar, sem er raunverulega hinn
austur-þýzki her, og er þetta
barnaheimilum sínum, enda
hefur aðsókn verið mjög lítil
nú. Þó mega mæður, sem at-
vinnu sinnar vegna verða að
koma börnum á dagheimili,
snúa sér til hlutaðeigandi for
stöðukvenna.
Snjór niður í miðjar
hlíðar nyrðra.
ÓLAFSFIRÐI í gær.
TÍÐARFAR hefur verið rysj
ótt undanfarið og hefur snjóað
niður í mið fjöll. Nokkur snjór
er kominn á Lágheiði, en hún er
þó vel fær enn og hefur ekkert
þurft að moka hana til þessa.
R.M.
- -----
Meðaiþungi dilka
16,3 kg. á Ólafsfirði
ÖLAFSFIRÐI í gær.
HAUSTSLÁTRUN dilka er
nýlega lokið hér og var slátrað
um 1100 kindum. Meðalþungi
dilka var 16,3 kíló, en hæsti
meðalþungi hjá bændum var
18,5 kíló. Höfðu 2—3 bæir þann
meðalþunga.
R.M.
30 þús. manns hafa
séð „Viljans merki”
ÍSLANDS- og samvinnukvik
inyndin „Viljans rnerki" hefur
verið sýnd víða um land, síðan
hún var frumsýnd í Reykjavík
í janúar síðastliðnum, og hafa
nú um 30 000 manns séð mynd-
ina. Hefur hún aðallega verið
sýnd á vegum kaupfélaganna,
en einnig af ýmsum öðrum fé-
lagssamtökum. Sýningum á
myndinni verður haldið áfram.
Fyrir nokkru var myndin
sýnd fyrir vistmenn og starfs-
fólk Elliheimilisins Grund í
Reykjavík og voru um 300
manns viðstaddir þá sýningu.
Sá margt af gamla fólkinu
æskustöðvar sínar á myndinni
og lét í ljós mikla ánægju með
sýninguna.
hæsta tala flóttamanna á einum
mánuði síðan hinn mikli fjöldi
manna flúði Austur-Þýzkaland
eftir að Rússar bældu niður upp
reisnartilraun austur-þýzka
verkalýðsins hinn 17. júní 1953.
FLESTIR UNGLINGAR
Embættismenn, sem fara
með mál flóttamanna, segja að
flestir þeirra, sem flúðu í sept-
ember, séu unglingar á aldrin-
um frá 16 til 24 ára. Öllum
flóttámönnum frá rússneska
hernámssvæðinu er leyft að
láta skrásetja sig til atvinnu,
þegar vestur yfir kemur, og ef
þeir hafa kunnáttu til ein-
hverra starfa, sem eru laus, eru
þeir þegar í stað sendir til
vinnu í ýmsum hlutum Vestur-
Þýzkalands.
YFIR 100 ÞÚS. Á ÞESSU ÁRI
Tala flóttamanna í september
var 1700 hærri en fjöldi þeirra,
sem flúði í mánuðinum þar á
undan, og hafa þá samtals 104-
600 manns flúið Austur-Þýzka-
land og leitað hælis hinum meg
in járntjaldsins, þá 9 mánuði,
sem liðnir eru af þessu ári.
Þetta er merki drengjakeppn-
innar um afreksmerki Knatt-
spyrnusambandsins fyrir knatt
raunir. Á myndin að hvetja
alla stráka til að æfa af kappi
leikni sína í knattmeðferð, því
að hún er undirstaða góðs ár-
angurs í knattspyrnu. Hver
verður svo fyrsti „gullstrákur-
inn“?
Ræif um að sefja á stofn i
nýja kauphöll i Reykjavík
Forstjóri kauphallarinnar í Oslo kom-
inn hingað til skrafs og ráðagerða
ÞESSA DAGANA dvelst hér Áshjörn Mjereskaug forstjóri
kauphallarinnar í Osló. Erindi hans er að ræða við forystumenm
í verzlunar- og atvinnumálum og ráðherra um möguleika á
rekstri kauphallar hér. Lét liann svo ummælt í viðtali við blaSa:
menn í gær, að ekkert nútíma þjóðfélag geti verið án kaup-
hallar og ísland væri eina landið i Evrópu, senr ckki hefði opim-
bera kauphöll.
Kauphöllin í Osló var stofn-
sett 1819 og er því 136 ára.
Stjórn hennar skipa 5 menn.
Kauphallarstjórinn er skipaður
af konungi eftir tilnefningu ráð
herra. Hinir eru útnefndir til 4
ára í senn og eru fulltrúar
hinna ýmsu greina atvinnulífs-
ins, fjármála, verzlunar, iðnað-
ar og siglinga. Kauphöllin
stendur í nánum tengslum við
erlendar kauphallir. Nú orðið
er gengi verðbréfa ákveðið dag
lega og það gert kunnugt um
allan Noreg 10 mínútum síðar.
Hefur kauphöllin sérstakar út-
sendingar fyrir gengisfréttir.
GERÐARDOMUR
Starfsemi kauphallarinnar
byggist á ýmsu fleiru en verzl-
un með hlutabréf og verðbréf.
T. d. starfar gei'ðardómur á veg
um hallarinnar til að greiða úr
deilum. sem kunna að rísa út
af viðskiptum. Einnig starfa.
matsmenn á vegum hennar.,
sem t. d. meta rýrnun eoa.
skemmdir á vörusendingum o.
fl.
FYRIR ALMENNTNG
Lögð er áherzla á að gera al-
menningi kleift að skipta við
kauphöllina, en ekki einungis
bröskurum. Því er verð hluta-
bréfa lágt; niður í 10 krónur.
Þá er einnig stefnt að því að
hafa fyrirtækin sem opnust.
Fjölskyldufyrirtæki fá ekki að-
gang að kauphöllinni og sett er
lágmarkstala hluthafa eftir
stærð fyrirtækjanna.
FULLKOMIÐ BOKASAFN
I kauphöllinni er og stór lestr
arsalur, þar sem frammi liggja
öll norsk rit, sem fjalla um við-
skipta- og atvinnulífið, og mörg
erlend. Einnig er þar safn bóka,
um þessi mál. Þá er þar greiður
aðgangur að öllu, er varðar við-
skipti, áætlanir skipa og jafn-
vel upplýsingar um farm ein-
stakra skipa, sem væntanleg’
|eru. Taldi Mjereskaug að hér
,væri góður grundvöllur fyrir
fullkomna kauphöll, þær væra
. í helmingi minni bæjum í Nor-
legi en Reykjavík er.
Síöðugt meiri þörf fyrir nýja
flugmenn hjá SAS flugfél.
Flugmenn hjá félaginu hafa um 60
þúsund til 125 þúsund krónur á árL
NORRÆNA flugfélagið SAS hefur stöðugt nieiiú þörf fyrir
nýja flugmenn eftir því sem félagið færir meir út kvíar. í ár
ráðgerir flugfélagið að bæta við 75 nýjum flugmönnum. Laust
flugmanna hjá SAS flugfélaginu eru frá um 60 þúsund til 125
þúsund krónur á ári.
Þegar nýjar flugvélar eru
pantaðar, líður oft langur tími
þangað til hægt er að afgreiða
slíkar pantanir, en það tekur
enn lengri tíma að ráða og
mennta nýja flugmenn. Árið
1951 bætti SAS flugfélagið við
sig 9 flugmönnum, en síðan hef
ur aukningin verið sem hér seg
ir: 1952 voru þeir 42, 1953 voru
þeir orðnir 68 og 1954 var tala
þeirra 66.
MENNTAÐIR
Á FLUGHERSKÓLUM
Flestir þeir flugmenn, sem
starfa bjá SAS flugfélaginu,
eru menntaðir í flugherskólum
í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Flestir þessara flugmanna hafa
|um 700 flugtíma að baki sér.
j Til þessa hafa Norðmenn ekki
verið í vandræðum með að út-
vega þann fjölda af flugmönn-
J um, sem þeim ber innan félags
, ins, en aftur á móti hafa Danir
j átt í erfiðleikum hvað þetta
snertir.
STRÖNG PRÓF
Þeir flugmenn, sem sækja
um stöður hjá félaginu, em
látnir ganga undir mjög ströng
hæfnispróf til að ganga úr
skugga um að þeir séu þeim.
hæfileikum gæddir að verða
góðir flugmenn á áætlunarleið-
um. Hefur félagið komizt að>
raun um að þessi próf gefa betri
raun heldur en meðmæli frá
fyrri atvinnuveitanda.
Spilakvöld í Haln-i
arfirði annað kvcldl
ANNAD spilakvöld Al- \
þýðuflokksfélaganna . í 3
Hafnarfirði verður í Alþýðu 3
húsinu annað kvöld og hefst t
kl. 8,30. Veitt verða verð-
laun. »
usl