Alþýðublaðið - 04.11.1955, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.11.1955, Blaðsíða 4
AlþýðublaftlS Föstudagur 4. nóvemíw>r 1ÍJ.‘ Útgefandi: Alþýðuflok\urin*. Ritstjóri: Helgi Sœmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsíon. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsso* og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsióttir, Ritstjórnarsímar: 49Q1 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprcntsmiðjan, Hverfisgðtu 8—10. Ásþriftarverð 15,00 á mánuði. í lausasöltt IfiO. \ 1 I S s s s s s s s s s ! s $ s s s s s I Spegilmynd ílmldsins ÓLAFUR THOR8 hefur hingað til verið stórhrifinn af bátagjaldeyrinum sem bjargrœði útgerðarinnar, en nú er allt í einu komið ann- að hljóð í strokkinn. For- sætisráðherrann reyndist iaufur í dálkinn í umræð- um á alþingi í fyrradag um bátagjaldeyrinn, þrátt fyrir 3itt viðurkennda góða skap og miklu bjartsýni. Nú segir hann, að útvegsmenn hafi krafizt bátagjaldeyrisins, og gefur í skyn, að ríkisstjórn- in hafi ekki átt annarra kosta völ en láta undan! Orsök þessa er vitanlega sú, að bátagjaldeyriskerfið virðist vera að hrynja sam- an. Það rís ekki undir gefn- um skuldbindingum, og enn lítur út fyrir, að útgerðin sé í þann veginn að stöðvast. Ástandið í efnahagsmálum hefur aldrei verið ískyggi- legra. Gjaldeyrisskuldbind- ingar bankanna nema 152 milljónir króna, og gjaldeyr isaðstáðan hefur versnað um 173 milljónir á fyrstu níu mánuðum líðandi árs. Ráð- herrarnir vita raunverulega ekki sitt rjúkandi ráð. Ing- ólfur Jónsson heldux dauða- haldi í það hálmstrá, að Ál- þýðuflokkurinn hafi engin ráð kunnað til að ieysa vand ræði útgerðarinnar! Mennirn ir, sem fara með völdin og ábyrgðina og horfa upp á, að skútan sé að sökkva, saka •stjórnarandstöðuna um úr- 'ræðaleysi! En myndu þeir ekki fremur lýsa afrekum Órólegar svefnfarir MORGUNRLAÐIÐ var í Reykjavíkurbréfi sínu á sunnudaginn var með stór- yrði í garð Alþýðuflokksins fyrir að reyna að eyðileggja núverandi stjórnarsamvinnu með því að fá Framsóknar- flokkinn til samstarfs við sig. Tíminn svarar í gær þessari skapvonzku íhaldsins ög kann því að vonum illa, að Morgunblaðið skuli líta á Framsóknarflokkinn sem eins konar fasteign Sjálf- stæðisflokksins. Niðurstaða hans er svohljóðandi: „Eftir martröð draumsins rifjast upp dapurlegar end- urminningar í morgunskím- unni, endurminningar, sem e. t. v. eru undirrót hinna órólegu svefnfara. Endur- minningar um umkomuleysi Sjálfstæðisflokksins, þegar sjálfra sín, ef hægt væri frá slíku að segja? Fjármálastefna núverandi ríkisstjórnar hefur hlotið eftirminnilegan dóm. Verkin tala og vitna um öngþveiti, sem getur þá og þegar leitt til hruns. Ráðstafanir eins og bílainnflutningurinn hrökkva skammt. Nú hafa verið veitt 2760 bílleyfi til styrktar togaraútgerðinni, og gjald fyrir þau nemur 53,4 milljónum. Slíkt hefði einhvern tíma þótt mikill peningur á íslandi. En það fer ósköp lítið fyrir þeirri fjárupphæð í hít núverandi ríkisstjórnar. Hún hefur gert okkur að viðundri ver- aldar og rambar nú á gjald- brotsbarminum. Það er sann leikur málsins, þótt sorgleg- ur sé.. Og íslendingum er vissulega hollast að horfast : augu við þessa staðreynd og miða við hana. Allt er þetta fyrst og íremst sök Sjálfstæðisflokks ins, öngþveitið, spillingin og flóttinn. Hann hefur ráðið ferðinni. Ástandið, sem við blasir og öllum ábyrgum mönnum stendur ógn af, er ipegilmynd íhaldsins. Úr- slitaráðið til að leysa vand- ann er þess vegna að þoka íhaldinu til hliðar og láta nýja menn með ný úrræði freista þess að koma þjóðar- skútunni aftur á réttan kjöl í stað þess að horfa upp á hana sökkva. Og því fyrr því betra. - ■ þeir Hermann og Haraldur sátu í ríkisstjórn landsins fyrir 20 árum, er Framsókn- arflokkurinn og Alþýðuflokk urinn höfðu saman meiri- hluta á alþingi. í þann tíð var margt öðru vísi en góð- ur Mbl. maður vill vera láta. Þá var t. d. ekki hægt að hyggja „smáíbúðahverfi“ fyrir enda Austurstrætis. Því er auðvitað ekki að leyna, að margir menn víða um land hafa verið þeirrar skoðunar, að helzta ráðið til að leysa hina pólitísku sjálf- heldu hér á landi væri að auka samvinnu milli Alþýðu flokksins og Framsóknar- flokksins. En eftir er að vita, hve berdreymnir þeir reyn- ast Morgunblaðsmenn“. Skyldi ekki Morgunblaðið fá nýtt kast um næstu helgi? Leikflokkurimi í Austurbœjarbíó: r Gamanleikurinn Aslir og á ■ 1 t*r ■ A/ ■■ Halldórsson „ÁSTIR OG ÁREKSTRAR" — skemmtilegur gamanleikur, einkum fyrri hlutinn, vel ieik- inn yfirleitt, og þar með búið. Til annars er heldur ekki ætl- ast og mega því allir vera á- nægðir. Ef einhver áhorfenda kynni að hafa hugsað sem svo að það væri leitt að jafn góð- um leikkröftum skyldi varið til að leysa jafn auðvelt viðfangs- efni, geri ég ráð fyrir að leik- éndúrhir væru honUm sam- mála. En meirihlutinn ræður og hann kýs létta, hláfurvekjandi gamanleiki, og leikendur, serh leggja á sig allt það undirDÚn- ingserfiði, sem leiksýningum fylgir og taka um leið á sig verulega fjárhagslega áhættu, verða að hlíta þeim smekk. Þeir eiga alltaf þakkir skyldar fyrir kjark sinn, áhuga og fórníýsi, — en óneitanlega væri það báð um aðilum ákjósanlegra, að smekkur almennings leyfði syo dugmiklu fólki endrum og eins að fást við þroskavænlegri við fangsefni. Nóg um það, — Þetta er gamanleikur, léttur og bros legur, og leikendurnir gera honum beztu skil. Þar með er fullnægt kröfum meirihlutans samkvæmt gildandi lýðræðis- reglum. Gísli Halldórsson annast leik stjórn að þessu sinni og ber hún vitni smekkvísi hans og vand- virkni. Staðsetningar eru vel hugsaðar, kunnátta leikenda sæmilegri en maður á stundura að venjast, leikhraðanum stillt til samræmis við efnið. Þýð- ing Sverris Thoroddsen er lip ur og tilsvörin þjál í munni. Margrét Ólafsddóttir og Gerð ur Hjörleifsdóttir leika syst- urnar, Jill og Phillys, og er þar vel í hlutverk valið, enda gera þær báðar hlutverkum sínura beztu skil. Báðar eru þessar ungu leikkonur í mikilli fram för, og væri óskandi að þeim veittist tækifæri til meiri á- Helga Valtýsd., Gísli Ilalld., Gerður Hjörleifsd., Jón Sigurbjnrn- son, Einar Þ. Einarsson og Margrét Hahdórsdóttir. sem ekki er mikið hlutverk, en vel og smekklega með það íar ið. Einar Ingi Sigurðsson, leik- ur Julian Peabody, föður þeirra systra. Peabody þessi er kaup- Helga Valtýsdóttir sýslumaður, prúðmenni mesta; en hefur ratað í þau vandræði að heita einkaritaranum, sem ! fyrr er getið, meiru en hann j kýs að standa við, og veit því I ekki hvað til bragðs skal takal ; Er leikur Einars í þessu hlut- verki áferðarfallegur og snurðu laus. Jón Sigurbjörnsson leik- ur unga mannn, Stephen að nani, og er leikur hans vel hugs aður og öruggur eins og endra nær. Leikur Einars Þ. Einars- sonar í hlutverki Marks er ekki jafn öruggur, en skemmti- legur engu að síður. Eins og áður er sagt eiga hinir ungu leikendur þakkir skyldar fyrir áhuga sinn og kjark. Og áhorfendur kunnu bersýnilega vel að rnesta góð- an_og gamansaman leik, hlógu dátt og þökkuðu að síðuscu skemmtunina með þróttmiklu lófataki. Loftur Guðmundsson. Bók komin úí um landhelgismálið og auðævi landgrunnsins .í; Gerður Hjörleifsdóttir og Jón Sigurbjörnsson. taka, enda þótt þessi hlutverk þeirra séu á engan hátt auð velt viðfangs. Ilelga Valtýs- dóttir leikur Violet Watkins, miðaldra, piparmey, skritna í framkomu og málgefna mjög en engu að síður veit sú góða piparmey hvað hún vill og er ekki öll þar sem hún er séð. Þetta hlutverk veitir rnest tækifæri til skapgerðarleiks, sem leikkonan hagnýtir sér vel og gerfi hennar er prýðilegt. Gísli Ilalldórsson leikur lækni NÝLEGA er komið út merki legt rit um landhelgismálið. Heitir það Saga landhelgismáls' íslands og auðæfi íslenzka haf- svæðisins og er eftir Þorkel Sigurðsson vélstjóra. Bókinni er skipt í tvo hluta og fjallar hinn fyrri um land- helgismálið einvörðungu. Rek- ur höfundur fyrst sögu land- helginnar, hvernig hún fór stöð ugt minnkandi til ársins 1901 frá því er ísland var tekið hálft hafið milli íslands og Noregs. Fyrsta lagagrein um landhelgi íslands er frá aldamótunum 1600 og var landhelgin þá 48 sjómílur. Þótt landhelgin hafi síðan minnkað stórlega dreg- ur höfundurinn fram jarð- fræðileg rök, sem sanna, að landgrunnið er óaðskiljanleg- ur hluti landsins sjálfs. Þá er landgrunnið einn mikilvægasti uppeldisstaður fiska í N.-At- lantshafi og friðun þess því dýr mæt fyrir fiskistofnin. LANDGRUNNIÐ HLUTI AF ÍSLANDI. Síðari hluti bókarinnar eru kaflar úr jarðfræði- og hag- fræðisögu íslands og land- grunnshjallann.. Er þar bent á að Iandfræðilega er landgrunn- ið greinilega hluti af íslandi og minnstu dýpi utan þess, þax Þorkell Sigurðsson. sem það tengist landgrunni ann arra landa, sé 5000 m. Það eru því ekki aðeins lagaleg rök og hefð, sem gera rétt íslendinga til alls landgrunnsins óvéfengj anlegan, heldur að því, að ís- lendingar geti gert kröfu til 48 mílna landhelgi, bæði lagalega og af hefð. LÖNDUNARBANNIÐ HEFUR ENGIN ÁHRIF Á ÍSL. EFNAHAGSMÁL. Þá ræðir höfundur um deil- (Frh. á 7. sxðu.) r

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.