Alþýðublaðið - 12.11.1955, Page 4
4
Alþýgublagjg
Laugardagur 12. nóv. 10,15
Útgefandi: Alþýðuflokjiufinm.
Ritstjóri: Helgi Scetnundsscm.
Tréttastjórí: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilia Samáelsdóttir.
Ritstjórnarsímar: 49Q1 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfísgötu 8—10.
Ás\rtftarverð 15,00 í mánuðl. í lausasölu 1/)Q.
l
i
>
\
i
i
i
i
„Einn dimmur skuggi^
EFTIRFARANDI orð gat
að lesa í forustugrein eins af
stjórnmálablöðum bæjarins
í gær, þegar greinarhöfund-
ur kemst loksins að kjarna
málsins eftir miklar og að
ýmsu leyti spaugilegar
vangaveltur:
„En eins er hér þó að
gæta. Einn dimman skugga
ber á íslenzkt þjóðlíf í dag.
Islenzkt fólk er í dag tor-
tryggnara hvert gagnvart
öðru en nokkru sinni fyrr.
Þessi tortryggni mótar alla
þjóðfélagsstarfsemina í
stöðugt ríkari mæli. Hún
birtist í síauknum átökum
milli stétta og starfshópa,
þungum ásökunum, kald-
yrðum, rógi og illmælum
hinna ýmsu hagsmunahópa
í Iandinu.“
Hver mælir á.þessa leið:
Svo mun margur spyrja, Er
Þjóðviljinn að reyna að etja
saman þjóðfélagsstéttunum?
Hefur Tíminn misst stiórn á
sér vegna sambúðar Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæð
isflokksins? Kom Frjáls
þjóð kannski út degi á und-
an áætlun til að flytja þenn-
an boðskap? Nei, allar slíkar
ágizkanir eru út í loftið.
Þessi ömurlega raunatala
stóð í forustugrein Morgun-
blaðsins í gær. „Flokkur
allra stétta“ er að krókna í
kulda almenningsálitsins.
Og Morgunblaðið heldur
áfram þulunni svofelldum
orðum:
„Við skulum gera okkur
það ljóst, að í þessu felst
djúptæk vantrú á fólkið,
einstaklinginn og heildina.
Og við getum ekki gengið
framhjá þeirri staðreynd,
að þessi vantrú á fólkið',
góðvild þess, heilbtigða
skynsemi og þroska, er
hættulegasta meinsemd
hins íslcnzka þjóðfélags í
dag. Það lýsir ómælanlegri
vantrú á manngildi ís-
lenzks fólks, að sú skoðun
skuli eiga sér djúpar ræt-
ur, að til sé fólk, heilir
hópar manna, jafnvel heil
ar stéttir, sem vilja eyði-
lcggja lífshamingju og
bjargræðismöguleika ann-
arra stétta og starfshópa,
sem vinna þjóðnýt og nauð
synleg störf.“
Þetta er um sumt satt og
rétt, en Morgunblaðið víkur
ekki einu orði að því, hver
muni skýringin á fyrirbær-
inu. Hún liggur eigi að síð-
ur í augum uppi. Hér er um
að ræða afleiðingar stjórn-
arstefnunnar, sem íhaldið
ber ábyrgð á. Þjóð, sem býr
við hrynjandi atvinnuvegi,
verðlausán gjaldmiðil og yf-
irvofandi ríkisgjaldþrot, en
horfir samtímis upp á það, að
spilling, spákaupmennska og
ófyrirleitni færir bröskurum
og ævintýramönnum óheyri-
legan okurgróða — hún verð
ur tortryggin og hörð í skapi.
En þetta er ekki fjandskapur
milli stéttanna í landinu eins
og Morgunblaðið gefur í
skyn. Þessi andúð bitnar á
ríkisstjórninni og skjólstæð-
ingum hennar, enda er sök-
in þeirra. Morgunblaðið í-
myndar sér hins vegar, að
þessir aðilar séu fólkið í
landinu. Það virðist vera
farið að trúa því, að íhaldið
sé flokkur allra stétta. Öðr-
um dettur auðvitað ekki ann
að í hug en skilgreina fyrir-
bærið, og þá reynist skýring
in fljótfundin. íhaldinu líð-
ur illa. Þjóðin er ekkert hýr
í bragði yfir gengislækkun-
inni, sem ákveðin var á
’undi tíu útvegsmanna fyrir
nokkrum dögúm. Hún bros-
ir ekki við þeim aðilum, sem
sprengja upp verðlagið dag
frá degi. Hún breiðir ekki
faðminn móti dýrtíðaröld-
unni, sem skellur yfir land-
i ðeins og brotsjór. Þjóðin er
köld í fasi og framkomu, og
Morgunblaðið verður vart
við þetta. Þó þarf enn að
kólna kringum ríkisstjórnina
og skjólstæðinga hennar, og
kuldinn ætti að vera mátu-
lega undir frostmarki í
næstu alþingiskosningum.
Skugginn dimmi þarf að
víkja fyrir kaldri íslenzkri
heiðríkju. Og íhaldinu er
ekki of gott að skjálfa í því
veðri.
Danska tóbakið BB
í lausri vikt.
Sölufurninn
viS Annrh&L
Byggingarefni úr asbesf-sementi
\ Ódýrt
S Sterkt
> Öruggt gegn eldi
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
Veggplötur
Þilplötur
Báruplötur á þök
Þakhellur
Þrýstivatnspípur
Frárennslispípur og Tengistykki
CZECHOSLOVAK CERAMICS
P R A G .
U m b o ð : 'T~^■■'WHf rg|§p |
MARS TRADING C0.
Klapparstíg 20 — Sími 7373
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
■s
s
s
Sænskur verkamaður safnar fiðrildum
SÆNSKUR byggingaverka-
maður, Malte Carlson að nafni,
gegndi herþjónustu í Verma-
landi árið 1940. í herbókasafn-
inu fékk hann að láni bók eina,
sem fjallaði um fiðrildi. Við
lestur hennar vaknaði sá áhugi
með honum fyrir þeirri fræði-
grein, sem honum hefur enzt
síðan. Nú er hann mikils met-
inn meðlimur í Etnologiska fé-
laginu í Stokkhólmi, og hefur
safnað þrettán hundruð tegund
um fiðrilda, sem hann hefur
gengið frá til varðveizlu sam-
kvæmt vísindalegum aðferð-
um. Carlson býr í einu af út-
hverfum Stokkhólmsborgar, og
hefur safnað flestum þessum
tegundum í nágrenninu, meðal
þeirra er mjög sjaldgæft eintak
af einni stærstu sænsku fiðrilda ,
tegundinni, — Catocola fraxini.
Á þessum fimmtán árum hef
ur tómstundastarf Carlsonar
breytzt í vísindalegar rann-
sóknastarfsemi. í bókasafni
hans er að finna öll helztu vís-
indarit í þeirri grein, bæði á
ensku, þýzku og frönsku, og
má sjá, að hann stundar fræði-
grein sína af fyllstu alvöru.
BYRJAÐI Á ÞVÍ AÐ
SAFNA JÁRNSMIÐUM
Carlson byrjaði á því að
safna járnsmiðum og öðrum
bjöllum, þar eð auðveldast var
að ganga frá þeim til varð-
veizlu. Þegar honum hafði tek-
izt það til fullnustu, tók hann
að safna fiðrildum og hefur
gert það síðan. Meðal annars
fann hann eintak, sem ekki
hafði fundizt þá um hálfrar ald
ar skeið í Svíþjóð, Pseudophan-
tera macularia. Síðan hefur
hann fundið margar sjaldgæfar
tegundir. Á stundum getur það
tekið langan tíma að ákveða
tegundina, og verður að rann-
saka eintakið gaumgæfilega
með smásjá.
Og Carlson hefur orðið sér
úti um smásjá af fullkomnustu
gerð. Leikmenn í þessum fræð-
um fá vart séð nokkurn ytri
mun á tegundunum, á stundum
•sjá jafn þaulreyndir menn og
Carlson hann ekki heldur, og
einmitt í þessu er fólginn töfra-
máttur þessarar fræðigreinar.
Rannsóknin tekur langan tíma
varðandi hverja tegund, og allt
af er von um að gera nýjar upp
götvanir. Á stundum verður að
gera litningaákvörðun til að
skera úr um tegundina.
GLUGGATJÖLDIN
FYRSTA VEIÐITÆKIÐ
Carlson hefur nú safnað um
650 tegundum stórra fiðrilda og
um það bil jafn mörgum smá-
fiðrildum. Carlson er einkum
hrifinn og stoltur af einu hinna
stóru fiðrilda, og er það nýtt
afbrigði Depressaria emeritella,
sem ekki hefur áður fundizt í
Svíþjóð. Carlson fann það
þarna í nágrenninu.
Fiðrildaveiðarnar sjálfar eru
ekki óskemmtilegasti þátturinn
í þessum rannsóknum. Nota má
hár til veiðanna, en aðrar aðferð
ir eru líka notandi. En fiðrilda-
háfar eru dýrir, og þess vegna
kom það fyrir fyrst í stað, að
Carlson gerði sér slíkt áhald úr
gluggatöldum, — segir kona
hans, Þá er hægt að lokka fiðr-
ildin að með gerjuðu ávaxta-
mauki, þar eð þau virðast ótrú-
lega þefnæm. Carlson hefur
einnig notað þá aðferð að safna
lirfum og púpum og ala upp,
unz úr verður fullvaxta fiðrildi.
Þá hafa þau hjónin farið í
langa söfnunarleiðangra, ekki
aðeins um nágrenni Stokk-
hólmsborgar, heldur og til Ey-
lands og Gautlands, þar sem
þau hafa fundið margar sjald-
gæfar tegundir. Og enda þótt
safnið, sem Carlson hefur
heima hjá sér, sé orðið mikið að
vöxtum og dýrmætt, hefur
hann látið mikið af hendi við
ýmis söfn víðs vegar í Svíþjóð
og jafnvel erlendis,
MiimmiiiiiimiiiuiiimiMiii
m m
• • ■
■ ■
jÚllar- og grillon
■ ’ ■
■ ■
ihosur á börn
■ ■
: Verð frá kr. 14.50 :
I Háir sokkar
■ ■
Verð frá 4,75.
■ ' m
m ■
íToledo I
■ ■
• Fischersundi. • ■