Alþýðublaðið - 23.12.1955, Síða 6

Alþýðublaðið - 23.12.1955, Síða 6
6 AlþýgubfaSlg Föstudagur 23. des. 1055 HAFNAR- FJARÐAREÍÓ ENGIN SÝNING fyrren airnan í iólum AUSTUR- BÆJAR BtÚ ENGIN SÝNING í KVÖLD NÝJA BfiO — 1544- — 9249 — ENGIN SÝNING í KVÖLD TRlPOLIBfiO — 1182 — ENGIN SÝNING í KVÖLD I — 6444 — ENGIN SÝNING fyrr en annan í jólum ENGIN SÝNING í KVÖLD ENGIN SÝNING fyrr en annan í jólum l í KVÖLD I ENGJN SÝNiNG i ÞJÓDLEIKHÚSID tm s s s s s s s s s s s s s s V Önnur sýning ^ þriðjudag 27. des. kl. 20.^ Þriðja sýning • i J Jónsmessudraumuv eftir William Shakespeare. Þýðandi: Helgi Hálfdánarson. Leikstjóri: Walter Iludd H1 jómsveitarst j ór i: Dr. Victor Urbancic. Frumsýning annan jóladag kl. 20. UPPSELT fimmtudag 29. des. kl. 20 ' S S s H æ k k a ð v e r ð . S ^ Pantanir frumsýningu ^ Fjórða sýning föstudag 30. des. kl. 20. Ssækist fyrir kvöldið. S Góði dátinn Svæk sýning miðvikudag 28. des. kl. 20. ^ Aðgöngumiðasalan opin frá S Vkl. 13.15—16.00 í dag, airn-$ ^an jóladag frá kl. 13.15-—20.^ S Tekið móti pöntunum, ( Ssími: 8-2354, tvær línur. S ^ Pantanir sækist daginn ■ Sfyrir sýningardag, annars j ^seldar öðrum. S S S HAFNAK FlRDf ___9 * Islíl "rtr s ENGIN SÝNING fyrr annan i en jólum ................................................................................................................................................................................................I......................................................... HANS LYNGBY JEPSEN: JTT, ! SH:iíH]!!í!lífíHÍIÍ!Il!fII!íIIlB 68. DAGUR miæmií s j Dr. jur. Hafþór i i Guðmundsson i > ■ ■ Málflutningur og lög-j j fræðileg aðstcö. Austur- ■ ! stræíi 5 (5. hæð). — SímJ • : 7238. : önssÓn ,»trTACL; Ó6"'■ I/*0U» a 55« þjóðum, og sér í lagi um allt, sem í Rómaborg gerist. Það heíur komið fyrir að drottningin hefur dregist inn í hina hörðu bar- áttu, sem þar fer fram um völdin eftir dauða Cæsars. Fyrst.í stað er það Marcus Antonius, sem er voldugastur Rómverja. En ekki líður á löngu, þar til hinn ungi Oktavían fer að láta til sín taka. Oktavían er vellauðugur maður og óspar á gjafir. Örlæti hans veldur því, að hann aflar sér á skömmum. tíma voldugra vina, jafnvel úr hópi þeirra, sem ekki voru á- hangendur Cæsars. í Þrakíu og Litlu-Asíu vígbúast þeir Cass- íus og Brutus, meðan Marcus Antoníus og Oktavían heyja blóð- uga baráttu um völdin yfir heimalandinu. Þar kemur, að herir þeirra standa gróir fyrir járnum andspænis hvor öðrum sinn hvorum megin við Laviníusfljót. Þá skeður það, að riddara- liðsforinginn Lepidus verður til þess að bera sáttarorð á milli þeirra. Hinir þrír foringjar setjast í kringum kringlótt borð á eyju í fljótinu og semja frið. Jafnframt skrifa þeir langan lista yfir sameiginlega óvini, og skuldbinda sig til að hjálpast að við að útrýha þeim, Á listanum eru þúsundir raanna, þar á meðat nánir áettingjar beggja, fjöldi háttsettra embættismanna, auk þess þrjú hundruð senatorar, — þeirra á meðal Cicero — og á annað þúsund menn af göfugustu ættum Rómaborgar. Þeir fylkja liði saman og halda til Rómar, taka borgina herskildi mótstöðulaust. Það kemur til ægilegra blóðsúthell- inga. Þeir heita tuttugu og fimm þúsund denörum fyrir hvert höfuð hinna dauðadæmdu. Synir afhenda þeim feður sína, kon- ur menn sína, þrælar húsbændur sína, skuldunautar skuld- heimtumenn sína. Senatorar klæðast búningum þræla og fara huldu höfði, sumir þeirra leita hælis í neðanjarðarskolpræsum og samanföllnum brunnum og láta þar fyrir berast. Jafnframt taka að gerast ægilegir fyrirboðar, ekki aðeins í Róm heldur hvar vetna um landið. Úlfar leita niður úr fjöll- unum, sækja sér meira að segja bráð inn fyrir borgarmúrana, blóðsvita slær út á líkneskjum guðanna, götur borgarinnár ymja af hófadyn á dimmum nóttum, og þó sjást þar hvorki menn né hestar á ferð, þegar að er gáð; sólin er bleik og geislar hennar kaldir, jafnvel um hábjartan dag; ávextirnir falla af trjánum án þess að þroskast, kornið á ökrunum er rýrara en áður í manna minnum og blómgast ekki. Einna efstur á lista hinna dauðadæmdu er ræðusnilling- urinn Cicero. Honum heppnast að komast út úr borginni. Sveit hermanna eltir hann og nær honum. Undirliðsforingi nokkur verður fyrstur til, dregur hann á hárinu út úr burðarstólinum, í þremur höggum skilur hann höfuðið frá bolnum og fær það í hendur Marcusi Antoníusi. Antoníus launar honum verkið með tvö hundruð sjötíu og fimm þúsund denörum. Aftökurnar ná að vísu því sameiginlega marki þeirra fé- laga, að afmá af jörðunni óvini þeirra félaga, en þjóðin er sem þrumu lostin. Af þeim afstöðnum búa þeir her á hendur þeim Cassíusi og Brutus. Samkvæmt tilmælum þeirra sendir Egj'pta- landsdrottning þeim flota mikinn og nokkurn liðsafla. Óvinaherirnir mætast í Þrakíu. Þeir eru líkir að styrk, en þeir Cassíus og Brutus standa hernaðarlega betur að vígi. Auk þess hafa þeir öflugri flota að baki sér undir stjórn Tallíusar Cimber. Þeir Cassíus og Brutus eru ekki áfjáðir í að láta þegar til skarar skríða. Þeir vita sem er, að Marcus Antoníus og Okta- vían eiga við flutningaörðugleika að etja, og að hver dagur sem líður, veikir hernaðarmátt þeirra. En Antoníus leikuc á þá. Með því að brjóta sér braut gegnum mýrarfen nokkur, sem talin voru ófær, kemst hann með her sinn að baki her Cassí usar. Það kemur til snarprar orustu, og Cassíus bíður herfilegan ósigur: Hann flýr, en fremur innan skamms sjálfsmorð með þeim hinum sama knífi, sem hann beitti gegn Cæsari. Á öðrum stað eigast þeir við, Brutus og Oktavían. Hinn ungi Oktavían bíður ósigur, og staðan jafnast. Á þriðj degi kemur til loka- átakanna, og nú með þeim Marcusi Antoníusi og Brutusi. Enn verður það Antoníus, sem ber hærri hlut. Brutus kemst undan með nokkrum þúsundum manna, hann flýr til fjalla. Hann verður þess brátt vísari, að þeir eru honum ekki tryggir og hafa við orð að gefa sig á vald Antoníusi og biðjast griða. Þá bugast Brutus og hann biður einn manna sinna að leggja sig í gegn með sverði. Þar með eru fallnir í valinn þeir tveir menn, sem stóðu að morði Júlíusar Cæsars.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.