Alþýðublaðið - 24.01.1956, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.01.1956, Blaðsíða 2
Alþýðublaðið Þriðjudagur 24. janúar 1956 <♦ 5 é * é * # í • í UTSAL Kvenkápur og selt með miklum afslætti 'í dag og næstu daga. Kápuverzlunin 12 Laugavegi 12 (uppi). IDNRÁfl EEÍKJAVIKUR. Aðalfundur Iðnráðsins verður haldinn í Baðstofu Iðnaöar- manna sunnudaginn 29. jan. M. 2 e. h. Dagskrá samkvæmt reglugerð. STJÓRNIN. vill ráða menn til starfa við hagdeild bankans. Skrifleg umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist bankanum fyrir lok þéssa mánaðar. Fi-amkvæmdabanki íslands. SAMTÍNINGUR SÁÐGERT ER I Kína að leggja niður hið gamla myndletur, sem talið er vera 3500 ára gam alt, og taka upp ritmál, sem hyggt sé á latneska stafrófinu. Fyrsta skrefið til að koma þessu í kring er að útbreiða sameiginlegt talrnál í stað hinna 600 mállýzka, sem nú <eru talaðar í landinu. Stjórn- arvöldin kváðu hafa í hyggju að gera svonefndu mandarína- kínversku, sem töluð er í Pe- 'king, að grundvelli fyrir sam- eiginlegu talmáli. Kínverska : orðabókin, sem tekin var sam- an á stjórnartíð Kang Hsi keis ara á 18. öld, telur um 47 þús. vittákn, og eru sum allt upp í 29 pennadrættir. Þeir, sem þekkja yfir helminginn af þess um merkjum, þykja hálærðir menn: Rithöfundar, sem taldir eru í betra meðállagi, nota sjaldnast fleiri en 10 þús. rit- tákn, Og flestir menntaðir menn láta sér nægja að nota að jafnaði 5 000. * * * MENN ÞEIR, sem hafast við und ir brúnum yfir Signu í París- arborg, fengu boð til jólaveizlu, og til þess að gera þeim ekki meira ónæði en þörf var á, var veizlumaturinn framreiddur undir brúnurn. * S: SUND- OG kvikmyndastjarnan Esther Williáms lofaði aíjkoma í heimsókn til Yaleháskóla og kenna sund og lífgun úr dauða- dái. Við þessar fregnir hækk- aði stórum tala þeirra stúd- enta við háskólann, sem ekki kunnu sund eða lífgun úr dauðadái. Kvikmxndir. s s s s <; TRIPOLIBÍÓ hóf nýlegas ^sýningar á myndinni „Eg ers ^ tvíkvænismaður“. Er þetta^ ýamerísk stórmynd, ein afS Sþeim allra beztu. S S Leikstjóri er Ida Lupino S $og aðallilutverkin leika: Ed-) S mond O’Brien, eiginmann- £ )inn, Joan Fontain eiginkonu) ' númer eitt og Ida I.upino; ^hina eiginkonuna. Leikur' ^þessara þriggja er með af- ^ ^ brigðum góður og sama er að ^ ^segja um Édmund Gwenn, n isem leikur eftirlitsmann V ^ barnaverndarnefndar, S N Sölumaður og kona hansS S geta ekki eignazt barn. Von- S S brigði hennar vefða það mik S S il, áð hún kastar sér út í við) ) skiptalífið við hlið manns • ) síns. Þetta verður til þess að ) ^þau fjarlægjast hvort annað^ ^og svo fer að lokum, að eitt^ Ssinn er hann er staddur S annarri borg í söluferð hittir ^ S hann aðra konu, sem einnig { S er einmana. Afleiðingin verð S )ur sú að þau giftast þó SvoS Ihann sé giftur fyrir og núS • fyrst fær hann að reyna hvað S ^ hamingjusamt heimilislíf er, S ; því að þau eignast barn.) ^Hann og hin raunverulega) {kona hans höfðu ætíað að • ý taka barn, en nú fer eftirlits- ^ S maður barnaverndarriefndar ^ Sinnar á stufana til að kynna^ S sér einkamáL þeirra. Hann ^ S kemst að öllu, en þégar hann s S sér hvernig í pottinn er búið S ) hefur hann ekki brjóst til að S S koma upp um sölumanninn. S • Endirinn verður þó sá, aðS Jhann gefur sig upp sem tví- ) ^ kværiismann. Dómur er kveð) ^ inn upp og ég hygg að flest- • S um bíógestum muni þykja^ ^fróðlegt að sjá viðbrögðý S kvennanna við þessu vanda-^ S máli og lieýra niðui'stöður S Sdómsins. s S Ég ráðlegg fólki eindregið S Sað sjá þessa mynd. S > S. Þ. S ) s Áugiýsíð í Álþýðublaðinu BENJAMIN FKANKLIN Myndasaga 8 Franklín var á heimleið árið 1775 þegar fyrstu átökin hóf- 'ast með Bretum og uppreisn- •armönnum við Lexington — íikothríðin, sem bergmálaði um he.un ailan. Það með var frelsisbarátta nýlendubúa baf- Jn Þann 4. júlí 1776 sömdu þeir Franklín, Jefferson, Adams, Sherman og Livingston sjált'- stæðisyfirlýsinguna, þar sem staðhæft var að aliir menn væru fæddir til jafnréttis til frelsis og hamingju, Prankiín héit tii Frakklands og ieitaði nýlendubúum þar aö- stoðar í frelsisbaráttunni. Var þessum mikla syni nýlendn- anna þar ákaft fagnað sem for- svarsmanni og sendiboða frels isins. ROÐZJRINN Barnasaga eftir Hallgrím Jónsson. »»»»»»»» 5 _ d a g u r . „Heldurðu það verði ekki logn?“ spurði Kári. „Það er mikill vafi, þó gott sé núna.“ „Jæja, nú held ég þú getir farið að hátta,“ sagði Imbo, „ég þarf að fara að fá böslin þín.“ Kári fór þegjandi að hátta. Hann hlakkaði mikið til a5 vakna aftur. „Þú mátt til að vekja mig til að bcita,“ sagði Kári við pabba sinn, þegar hann var kominn upp í rúmið. „Ætli það verði ekki nógu snemmt fyrir þig að vakna, jieg- ar við erum búnir að beita?“ „Ég verð þó að beita stubbinn minn, ekki get ég vitað, a5 aðrir beiti hann, þegar ég ræ.“ Við förum nú að sofa og sjáum svo til, þegar við vökmuii aftur“, sagði pabbi hans. III. Klukkan hálf tvö um nóttina vaknaði Sverrir og gætti til veðurs. Loftið var orðið þykkt, vindur stóð af landi, og þa'5 hvein í gljúfrinu fyrir ofan bæinn. Það þótji vita á storm. Svcrrir gekk inn og vakti háseta sína. Meðan þeir voru að klæða sig, kveikti Sverrir ljós og fóc með það út í skemmu, þar var beitt. Kári vaknaði sjálfur og klæddi sig í snatri, Piltarnir voru nýbyrjaðir að beita, þegar hann kom úc í skcmmuna. „Ekki ætlar að standa á þér, lagsmaður,“ sagði pabbi hans. „En þú ættir að geyma þér að fara með oldíur, þangað til seinna, hann getur kaldað í þessum róðri.“ „Það gerir ekkert til, þó að liann kaldi, ég skal ekki verða hræddur,“ sagði Kári og tók lóvarstúfinn sinn ofan af nagla og færði hann að beituborðinu. „Það er bezt að lofa honum með okkur, það getur orði5 til þess, að hann biðj iekki um það næsta dagi:tin,“ sagði Þor- björn háseti. ' . i,. KÍulíkan að ganga fjögur var buiö að beita. Ur öllum étfum 1 í DAG cr þriðjudagurinn 24. janúar 1956. FLUGFERÐIR Flugfélag íslands. Millilandaflug: Millilandaflug vélin Gullfaxi fór til Glasgow og London í morgun, væntanleg aftur á morgun kl. 16.45. Inn- anlandsflug: í dag er ráðgert að fljúga til Aliureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Sauðárkróks, Vest- mannaeyja og Þingeyrar. Á morgun er ráðgert að fljúga til Akureyrar, ísafjarðar, Sands, Vestmannaeyja. Pan-Amciican flugvél er væntanleg til Kefla víkur í nótt frá New York og heldur áleiðis tii Prestvíkur og London. Til baka er flugvélin væntanleg annað kvöld og fer þá til New Jork. SKIPArKEITIB Skipadeild SÍS. Hvassafell er á Seyðisfirði. Arnarfell fór 20. þ. m. frá Þor- lákshöfn áleiðis til New York. Jökulfell er í Reykjavík. Dísar- fell er í Reykjavík. Litlafell er í ólíuílutningum. Helgafell fór frá Riga 17. þ. m. áleiðis til Akur- eyrar. Appian er væntanlegur til Reykjavíkur 24. þ. m. frá Brasi- líú. Ríkisskip. Hekla verður væntanlega á Akureyri í dag á vesturleið. Esja var á ísafirði í gærkveldi á norðurleið. Herðubreið fór frá Reykjavík í gærkveldi austur um land til Bakkafjaroar. Skjald breið er á Skagafirði á leið til Akureyrar, Þyrill er á Aust- fjörðum á norðurleið. Skaftfell- ingur fer'frá Reykjavík í dag til Vestmannaeyja. Baldur fer fró Reykjavík í dag til Hcllissands og Grundarfjarðar. Eimskip. Brúarfoss fer frá Hamborg á morgun til Antwerpen, Hull og Reykjavikur. Dettifoss kom til Ventspils 22/1. Fer þaðan tií Gdynia og Hamborgar. Fjallfosa fór frá Akureyri í gærkveldi til Patreksfjarðar, Grundarfjarðar og Reykjavíkur. Goðafoss kom til Reykjavíkur 18/1 frá Ant- werpen. Gullfoss kom til Kaup- mannahafnar í gærmorgun fi'á Leith. Lagarfoss fór frá Reykja- vík 18/1 til New York. Reykja- foss fór frá Hamborg 22/1 tii: Rotterdam og Reykjavíkur. Sel- foss er í Eeykjavík. Tröllafoss fór frá Norfolk 16/1 tll Reykja- víkur. Tungufoss kom til Siglu- fjarðar 22/1. Fer þaðan væntan lega 25/1 til Skagastrandar, Húsavíkur, Akureyrar og þaðan til Belfast, Rotterdam og Wis- mar. j Loftleiðir. Edda, millilandaflugvél Loft- leiða, er væntanleg til Keykja- víkur kl. 7 árd. x dag frá Nevvj York. Flugvélin íer áleiðis tili Osló, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 8. Útvarpið. 18.55 Tónleikar. 20.30 Erindi: Wales og Wales búar (Baldur Bjarnason mi: ister). 20.55 Tónleikar (plötur). 21.15 Þýtt og endursagt: Lækn ingaundrin í Lourdes, frásög bandarískrar blaðakonu, 13 (Ævar Kvaran leikari þýði og flytur). 21.40 Kórsöngur: Hollenzku karlakór (plötur). 22.10 Vökulestur (II. Hjörvar) 22.25 „Eiíthvað fyrir alla“; Tón leilcar aí plötum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.