Tíminn - 13.03.1965, Page 5

Tíminn - 13.03.1965, Page 5
5 LAUGARDAGUR 13. marz 1965 TMMMNN Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson. Kitstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Ir.driði G. Þorsteinsson Pulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrlmur Gislason. Ritstj.skrifstofur i Eddu búsinu. simar 18300—18305. Skrifstofur. Bankastræti ' Af- greiðslusimi 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr 90,00 á mán. innanlands — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f DETTIFOSS OG BÚRFELL GÍSLI GUÐMUNDSSON, ALÞINGISMAÐUR, SVARAR NOKKRUM SPURNINGUM UM RAF- ORKU- OG STÓRIÐJUMÁLIN Gunnar og Geir Þ"ð hefur nú verið afráðið á stjórnarheimilinu að s 1 Gunnar Thoroddsen af landi burtu. Meginorsök þ::” r ákvörðunar er hin mikla og magnaða óánægja, sem reis síðastliðið sumar, þegar í ljós köm, að skatta- lækkun sú, sem Gunnar hafði boðað, reyndist blekking em. í stað lækkunarinnar ,sem boðuð var, reyndust skatt- ar og útsvör hærri en nokkru sinni fyrr. Einkum reis óánægjualdan hátt i höfuðborginni, og höfðu margir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins orð á því, að ekki myndi heppilegt að hafa Gunnar þar í framboði aftur. Hér skal síður en svo dregið úr því, að Gunnari hefur farnazt illa fjármálastjórnin. Hitt verður samt að viður- g kenna, að þegar Reykvíkingar voru að áfellast Gunnar i fyrir háu skattana á síðasta ári ,voru þeir að sumu leyti | að hengja bakara fyrir smið. Þótt tekjuskatturinn væri | hár á launafólki. voru útsvörin miklu hærri. Og þar var | ekki Gunnar að verki heldur eftirmaður hans í borgar- stjórastöðunni, Geir Hallgrímsson. Geir slapp hins vegar að mestu við ámæli, öll óánægjan vegna skattanna og út- svaranna lenti á Gunnari. Gunnar Thoroddsen var vissulega stórtækur við hækk- un álaga, meðan hann var borgarstjóri, en eftirmaður hans í því starfi hefur reynzt enn stórtækari. í ár eru tekjur bæjarsjóðs t d. áætlaðar 686 millj. kr., en 1958 | voru þær áætlaðar aðeins 255 millj. kr. Það vantar því ekki mikið á, að þær hafi þrefaldazt. Að sjálfsögðu hefur bærinn staðið í ýmsum framkvæmdum á þessum tíma, en raunar ekki meiri en oft áður. Við afgreiðslu fjárhags- áætlunar Reykjavíkurborgar í vetur reyndu andstæð- ingar borgarstjórnarmeirihlutans að koma því til vegar, að útsvarsbyrðin yrði verulega lækkuð, einkum á launa- fólki, e» það fékkst. ekki framgengt. Ákveðið var því að útsvarsupphæðin yrði 447 millj. eða nær 50 millj. kr. hærri en i fyrra Þetta var ákveðið þrátt fyrir stór- fellda hækkun ýmissa fasteignagjalda, er bitnar tilfinn- anlegast á hinum efnaminni húseigendum í bænum. § Reykvíkingar munu komast að raun um, þegar þeir fá skattseðilinn sinn í ár. að það er ekki nóg að losna við Gunnar. Sjálfstæðisflokkurinn' á fleiri mikla skattálögu- menn en hann. í sumar verðúr ekki hægt að kenna Gunnari Thoroddsen um útsvarsálögur Geirs Hallgríms- sonar. Við sama heygarðshornið í stjórnarfrumvarpi þvi, um húsnæðismálastofnunina er nýlega hefur verið lagt fram á Alþingi, er m.a. gert ráð fyrir að hafa öll 'lán hennar til húseigenda vísitölu- bundin. Ríkisstjórnm hefur hins vegar ekki flutt neinar tillögur um, að lán til ann»^ra framkvæmda skuli vera vísitölubundin. Hér sést bezt, hvernig ríkisstjórnin ætlar fjáraflamönn- um annan og meiri rétt en hinum efnaminni borgurum. Stórlaxar og gróðamenn ,sem byggja skrifstofuhallir eða verzlunarstórhýsi, ,skulu fá vísitölulaus lán. Efna- lítið fólk, sem ei að reyna að eignast þak yfir höfuðið, skal bundið á vísitöluklafann. Ríkisstjórnin er alltaf við sama heygarðshornið. Hún er alltaf að þjóna sömu hagsmununum . NÚ er, eins og kunnugt er, nefnd sjö alþingismanna starf- andi að athugun stórvirkjunar- og stóriðjumála, og er iðnaðar- málaráðherra formaður hennar. Dagur átti nýlega eftirfarandi viðtal við Gísla Guðmundsson al- þingismann, sem er annar af tveim fulltrúum Framsóknar- flokksins í nefndinni. — Hvað er að frétta af ncfnd- arstörfunum? — Nefndin hefur haldið 6 fundi. Ég vil faka fram, að þetta er ekki stjórnskipuð nefnd held ur eru nefndarmenn tilnefndir af þrem þingflokkum eftir ósk ráðherra. Ég tel ekki rétt að svo stöddu að skýra frá því, sem fram hefur komið á nefndar- fundunum. — Finnst þér, að eðlilegt hefði verið, að ráðherra hefði boðið fjórða þingflokknum að eiga fulltrúa í nefndiinni? — Já, en það var hans að meta það, hvort ástæða væri til þess frá hans sjónarmiði séð. — Hvað viltu segja um alum- iniumverksmiðiumálið? — Ég vísa til- þess, sem ég hefi áður sagt hér í blaðinu um svonefnda stóriðju. Alúminíum- framleiðsla á vegum útlends fyr irtækis getur komið til greina hér eins og i öðrum löndum, ef viðunandi samningar takast, miðað við íslenzkar aðstæður Ég minni á samþykkt þingflokks Framsóknarmanna 7. desember s.l., en þar iagði flokkurinn á það megináherzlu, að slíkri verk- smiðju beri, ef til kemur, að velja stað með það fyrir augum, að starfsemi hennar stuðli að jafnvægi í byggð landsins. Ég á- lít, að íslenzk stjórnarvöld hefðu sjálf átt að staðsetja virkjun og iðju.a.m.k. að því er varðar lands hluta, áður en farið var að ræða við erlend fyrirtæki um þetta mál. Útlend fyrirtæki eiga ekki að skipuleggja staðsetningu fram leíðslus’töðva hér eða byggð i landinu. Það getur reynzt af- drifaríkt, að hér hefur ekki ver- ið farið rétt að í öndverðu. — Sagt er, að viðræður fari nú fram erlendis við hina út- lendu aðila. Hefur þingmanna nefndin stofnað til þeirra? — Nei, þær viðræður eiga sér ekki stað á vegum nefndarinn- ar, og hún hefur ekki óskað eft- ir þeim. Þær munu vera fram hald fyrri viðræðna á vegum ríkisstjórnarinnar og stóriðju nefndar. — Er Þjórsárvirkjun við Búr- fell ódýrari en Dettifossvirkjun eins og nú er haft eftir ráðherr um og embættismönnum i blöð- um og útvarpi9 — Ég held satt að segja, að úr þessu verði ekki skorið með neinni vissu eins og nú standa sakir. Ég heid að óþarflega Gísli Guðmundsson, alþingism. mikil vinna hafi verið lögð í að gera þarna reikningslegan sam- anburð, sem ekki skipti miklu máli og byggður er á of veikum , forsendum. . Samkvæmt. skýrslu stóriðjunefndai í nóvember 1964 er áætlað svo að segja sama verð á báðum stöðum pr. afleiningu (Kw). við Búrfell kr. 10.000,00, við Dettifoss kr 10.100,00 að meðtaldri einni há spennulínu að Faxaflóa eða Eyjafirði, ef miðað er við 105 þús. kw. Búrfellsvirkjun og 133 þús. kw. Dettifossvirkjun Svo á afleiningarvsrðið að lækka við Búrfell, þegar meira verður virkjað þar, en það verðui ekki fyrr en síðar, og ég hygg, að ís- vandamálið pai verði því örð- ugra sem meira er virkjað. Það getur haft í t'öi með sér dýrari mannvirki en nú er gert ráð fyr- ir. í tölunum, sem birtar voru á dögunum, var ekki getið um byrjunarvirkjur við Búrfel) að- eins miðað við þá virkjun. sem síðar á að koma, 210 þús. kw. Það er líka hægt að framkvæma stærri virkjun en 133 þús. kw við Dettifoss, en áætlanir ekki fyrir hendi. Það eru til eldri samanburð- aráætlanir. Á öndverðu ári 1963 var t.d. talið, að afleining (Kw) í 133 kw stöð við Ðettifoss. ætti að kosta 9000 kr. en í 120 þús. kw stöð við Búrfell 10.450 kr. einnig að meðtaldri einni há- spennulínu. áíðan er víst búið að breyta mannvirkjunum vi? Búrfell, en að Dettifoss-áætlun mun ekkert hafa verið unnið síðan um aramótin 1962—63 Þar kynni líka að geta verið um eitthvað ódýrari virkjunarleið að ræða Fullnaðaráætlun um Dettifossvirkjun hefur ekki ver ið gerð. En ameríska verðfræði firmað, sem venjulega er nefnl Harza, taldi líklegt, að Dettifoss virkjun yrði álitleg til fram- leiðslu á raforku til stóriðju. Þess má geta til fróðleiks. af árið 1957 var s vegum raforku málaskrifstofunnar gerð iausleg áætlun um 100 þús. kw virkjanii á 6 stöðum, þar af 3 í Þjórsá. Samkvæmt beirri áætlun var Dettifossvirkjun til muna ódýr- ust pr. afleiningu (Kw). Þetta lá fyrir, þegar við norðanþing- menn fluttum tillögu um að gera fullnaðaráætlun um virkj- un Jökulsár. — Mikið er nú rætt um ís- myndun í Þjórsá. Er ekki sams konar ísmyndun í Jökulsá á Fjöilum? — Ég þykist vita, að þið hafið tekið eftir því, sem Sigurður Thoroddsen verkfræðingur seg- ir um ísvandamálið við Búrfell. Nefndin hefur þegar rætt við S. Th. um það og fleira. Sér- fræðingar vita lítið um Jökulsá í þessu sambandi, og ekki er unnið að neinum ísmyndunar- rannsóknum þar. En ég held, að mér sé óhætt að segja, að Jök- ulsá ofan við fossa sé að mestu ísi lögð tímum saman að vetr- inum, og þegar svo er, á sér ekki stað ís- eða krapamyndun í vatninu, sem veldur mönnum á- hyggjum. En þetta með krapann í ánum er sérfræði eins og svo margt annað nú á tímum. — Hvað segirðu um saman- burð, sem nýbúið er að birta um kostnað við stórvirkjun, t.d. við Búrfell annars vegar og smærri virkjanir hins vegar? — Ég held, að ekki sé rétt að kalla fyrirhugaðar virkjanir við Laxá, Kláffoss eða Brúará „smá- virkjanir.“ Mig minnir, að sér- fræðingar hafi áður kallað 10— 20 þús. kw virkjanir „miðlungs- virkjanir.“ Þær eru hlutfallslega dýrari en stórvirkjanir. Hins vegar nýtast þær betur framan af fyrir almennan markað Af- gangsorkan, sem ekkert fæst fyrir, verður minni. Munur á reksturskostnaði því minni en stofnkostnaðarmunurinn bendir til. — Hvað um dísilstöðvar, eða gastúrbínustöðvar? — Þær eru mun ódýrari en vatnsaflsstöðvar. en endingin er miklu minni og þær eyða víst a. m. k. 50 aurum af olíu fyrir hverja kwst., sem þaer framleiða. En bæði um þetta og samanburð á miðlúngsvirkjun og stórvirkjun er betra að spyrja 'Knút Otterstedt en mig, því ég er enginn sérfræðingur í þessum málum. — í eiinu Seykjavíkurblaðinu er sagt, að útlend alúminíum- fyrirtæki krefjist þess að fá að nota íslenzkt "atnsafl í stórum stíl. En sumit skrifa um það syðra, að utlendingarnir hafi takmarkaðan áhuga, og að hætta sé á, að við verðum of seinir að beizla vatnsaflið áður en kjam- orkan kemur Hvað er hæft i þessu? — Ætli her sé ekki i báðum tilfellum aðallega um ágizkanir að ræða, sem settar eru fram af áhugamönnum tii uppbótar á þau rök, sem staðreyndirnar leggja til? svarar Gísli Guð- mundsson að lokum, og þakkar Dagur viðtalið

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.