Alþýðublaðið - 09.10.1956, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 09.10.1956, Qupperneq 5
JÞriSjiidagur 9. okí. 1956 AlþýgublaglC „ÁSTIN VERÐUR AÐ VERA Stjórnmá]alegs eðlis og byggj- ast á gagnkvæmri starfsaðstoð, gagnkvæmri starfshvöt og gagn kvæmum starfsárangri. Aðeins slík ást getur reynzt traust.“ Þessi tilvitnun er tekin úr tíma ritinu „Kínverskar konur“, nýj ársheftinu 1956, en í þeirri grein er lýst afstöðu kínverskra kommúnista til hjónabandsins. Einhvers staðar stendur að Jijónabandið eigi að vera guði iþóknanlegt — þarna stendur að það eigi fyrst og fremst að vera ríkinu þóknanlegt. í Kína hefur hjónabandið ver ið jafnvel öllu meira verið tek íð í þágu ríkisins en í Rúss- landi. Samkvæmt hjónabands- iögum frá 1950 er stofnsett hið „nýlýðræðislega hjónaband, og hljóðar hjónabandsheitið þann- ig að þau tvö skuli „hjálpa íivort öðru að byggja upp nýtt þjóðfélag“. Og þar sem þetta þjóðfélag verður ekki byggt nema annað sé niður rifið, verð ur hjónabandið nátengt barátt- unni gegn gagnbyltingasinnum. Það mun raunar til í öllum lönd um að hjónabandið hafi í för með sér gagnkvæmar njósnir, en þá oftast um tryggð hvors aðilans við annan. í Kína njósn ar konan um tryggð mannsins við ríkið og gagnkvæmt. Fyrir ári síðan tóku að birt- ast greinar í kínverskum blöð- um og tímaritum þar sem hjón voru hvött til að herða slíka njósnastarfsemi. Einhver sú berorðasta þeirra birtist í tíma ritinu „Kínversk æska“, — nóvemberheftinu 1950 — og nefnist hún: „Hvernig fór með mér og gagnbyltingarsinnan- um, eiginmanni mínum“, grein arhöfundur er kornung kona, H]ónin þurfa að vera í sama fiokki, en ástin skiptir minna máli. Ai Nan að nafni. Saga hennar er í styttu máli á þessa leið: í háskólanum varð Ai Nan ástfangin af skólafélaga sínum og flokksfélaga og giftist hon- um. Hjónaband þeirra var í f'ysrtu mjög hamingjuríkt og brátt eignuðust þau fyrsta barn sitt. Þá var húsbóndi hennar allt í einu og fyrirvaralaust lýst ur „gagnbyltingarsinnaður af- brotamaður" er fengist við hættulega stjórnmálastarf- semi“. Vesalings Ai’Nan varð furðu lostin. Aldrei hafði henni til hugar komið að gruna hann um neitt slíkt. Hins vegar kom henni ekki til hugar að efast um það er flokksyfirvöldin hefðu rétt fyrir sér. „Það var sem hjarta mitt væri rist hvössum hnííi“, segir hún. „Ég var grip in sárri kvöl, ég grét og lá and vaka um nætur“. Ai Nan varð fyrst í stað grip in sárustu sjálfsmeðaumkun, og er slíkt skiljanlegt þegar vikomandi er alinn upp í þeirri trú að ótryggð við flokkinn sé syndsamlegt afbrot. Hvað hafði hún til þess unnið að eiginmað- hennar skyldi reynast slíkur og leiða yfir hana slíkt böl. „Sú til hugsun að ég mundi verða köll- uð kona gagnbyltingarsinnans varð til þess að ég gat ekki fram an í nokkurn mann ltið.“ Engu k HÖFUNDURÍNN, Mauri- • ce Manning, er kunnur brezk ^ ur blaðamaður. I grein þess- ^ ari lýsir hann hinu „nýlýð- { ræðislega hjónabandi“, sem \ kínverskir kommúnistar \ hafa upp tekið, og rekur í S því sambandi efni frásögn, S er birtist í tímaritinu „Kín- N versk æska“, í nóvember k 1955. i að síður unni hún eiginmanni sínum enn sem komið var, og þar sem henni var sagt að flokk urinn tæki vægt á slíkum brot- um, ef menn játuðu þau á sig af fúsum vilja, gerði hún allt sem hún gat til að fá hann til að fá hann til þess. Hinn ógæfu- sami maður hélt því lengi vel* fram að hann hefði bókstaflega ekkert að játa, lét síðan undan þrábeiðni konu sinnar og samdi einhverskonar játningu, en sagði henni strax á eftir að sú játning væri tilbúningur einn. Tók hann nú í sig kjark og harðneitaði að ræða málið nánar, og varð þessi staðfesta hans til þess að Ai Nan tók að spyrja sjálfa sig hvort verið gæti að hann væri saklaus af þessum ákærum flokksins.. En flokksyfirvöldin héldu á- KVIKMYNÐAÞATTUR Guys and Dolls, fer nú sig urför um Evrópu en eins og við höfum áður sagt, leika Marlon Brando, Frank Sinatra, Jean Simmons og Vivian Bíaine í myndinni. Er þetta ein bezta rnyndin sem lengi hefur verið sýnd hvað aðsókn snertir. M-G-M félagið hefur fram Ieitt hana í Cinemascope og hefur Mankiewicz stjórnað töku hennar. Má því segja að ekkert sé til sparað að hún megi verða sem bezt, enda hefur hún hlotið einróma lof og fjórar stjörnur. Þá hafa einstaka gagnrýn endur látið svo um mælt að þeir hafi orðið fyrir von- brigðum, eins og t. d. gagn- rýnandi Picturegoer-nýlega. Ítalía er í óða önn að fram leiða nýjar stjörnur og virð- ist þar vera af nógu að taka. Sem dæmi má nefna: Georgia Moll er sextán ára og hefur aldrei verið kysst segja þeir og það var í sjálfu sér dýrt spaug fyrir kvik- myndafélagið sem tók mynd ina „The Sea Cocks“, því að það þurfti tuttugu æfingar og fimmtán upptökur á at- riði, sem hún er kysst í, sökum þess að hún þekkti ekkert til tækninnar. Georgia var ungfrú Kvik- mynd 1955 og.hefur einnig leikið í rnyndinni „Neros lost Weekend“. Önnur er Marisa Allasio, sem er dóttir eins frægasta fótboltaleikara ítalíu. Hún er nítján ára gömul og þrátt fyrir að pabbi hennar bann- aði henni algerlega að leika tók hún sig til og gerði það samt. Leikur hún í mynd er nefnist „Girls of today“, sem fjallar um vandamál æskunnar á Ítalíu í dag. Mara Berni heitir ein ljós hærð og úhn hefur nóg að gera, því um þá suðrænu má segja að „Gentlemen prefer Blondes“ enda berast henni ótal hjónabandstilboð viku- Georgia Moll “Sweet sixteen". lega. Hún hefur m. a. leikið í myndinni „In Love in the City“. Sandra Milo heitir enn ein, sem var uppgötvuð á gangi á götu úti. Ergas nokk ur, sem er ítalskur kvik- myndaframleiðandi sá hana á gangi elti hana inn á veit ingastofu og lét þjóninn færa henni ósk um viðtal. Hún tók honum vel og þar með sat hún í því. Hún er frægust fyrir leik sinn í „The Bachelor“ og „Arsene Lupin“. Nadia Marlowa er sögð ein af hinum stóru vonum ítalskrar kvikmyndafram- leiðslu. Hún er víst ekki neitt blávatn, talar 6 tungu- mál og er að bæta ensku þar við. Hún er sögð feimin átján ára gömul og hefur leikið m. a. „The Daughter of the Regiment“ og „Night of Love“. Lucia Banti er svo sú sein asta er við tökum fyrir að þessu sinni. Hún er í sama móti og La‘Lollo svó að ekki er gott að segja nema hún eigi eftir að lenda í ýmsu svo sem næstum því slag. Hún er ákaflega sterkur per- sónuleiki og lætur sé ekki allt fyrir brjósti brenna. Hún varð ein af þeim stóru aðeins með því að segja: „Ég er orð in þreytt á því að vera að þessu aukahlutverkabaksi, ég vil fá aðalhlutverk." Hún fékk það og hefur nú leikið aðalhlutverk í fjórum mynd- um. fram að sannfæra hana um sekt eiginmannsins, ekki hvað sízt þegar þau urðu þess vör að húri var farin að efast um óskeikul- leik þeirra. Hún hlaut ströng- ustu áminningu og ströng fyr- irmæli um að hún yrði að draga lýðræðislega takmarkalínu á milli sin og eiginmannsins". í nokkra daga stóð hörð barátta milli ástar og flokkshollustu í hug hennar, en svo fór að hið kommúnistí(ska uppeldi hennar veitti flokkshollustunni sigur og hún varð „gripin sárri skömm yfir því að hafa auðsýnt gagnbyltingasinna viðkvæmni og linkind. Tilfinningar mínar gagnvart honum gerbreyttust á einu vetfangi. Ég las hann eins eins og opna bók og hataði hann“. Og þegar hér var komið breyttist sjálfsmeðaumkun hennar í sjálfsásökun. Hún komst að raun um að hjóna- bandið var hvorki sök örlag- anna, heldur var hana eina urn að saka fyrir „kæruleysi og villuráfandi hugsun, sljóa stjórnmálalega ábyrgðarmeðvit und og veika byltingartrú“. Hún hafði látið kylfu ráða kasti og ekkert hirt um að rannsaka stjórnmálalega fortíð varðancli eiginmanns síns. Og nú sá hún Ijóst hver afstaða hennar hefði átt að vera. „Ástin er varhuga- verð þegar hjónaband er annais vegar“. segir hún. „Sameigin leg stjórnmálasannfæring er hinn eini hamingjugrundvöllur að sambúð tveggja einstakl- inga“. Og þegar Ai Nan hafði tekist að sigrast á eðlislegum og eðli legum tilfinningum sínurn varpaði hún sér með feginleik i faðm flokksins. „Ég glataði eiginmanni mínum, en er eig- inmaðurinn sama og lífshlut • verk mitt? Takizt mér að fórna öllu því sera mér hefur veriil gefið bezt í þágu kommúnis- mans, er það hin æðsta ham- ingja sem mér getur hlotnast." Frámhald á 7. síðu. DAGAR LÍÐA ÖLDUNGADEILDAR-ÞING- MAÐURINN Pedró de Alba, hefur skýrt frá því, að malarí- an, hin skæða hitabeltissótt, kosti Mexikó-ríki 8 millj. kr. (ísl.) á dag. Hér er þó aðeins talið það tjón, sem orsakast af minnkuðum vinnuafköstum, af því svo margir ganga óheilir til vinnu af völdum malaríunnar. í Mexíkó deyja yfir 30 þús. manns árlega úr malariu. • :f íii * Útvarpið í Peking hefur skýrt frá þvi, að Kína og Ceyl- on-ríkið, hafi gert með sér verzl unarsamninga er ættu að geta leitt til mikilla viðskipta milli þessara tveggja ríkja. En Ceyl- on er nú sjálfstætt ríki innan Bretaveldis, og er óháð bæði Indlandi og Pakistan. Hafa mikl ar framfarir orðið á Ceylon á Síðari árum og meira en í flest um nágrannaríkjum þar eystra. Stafa framfarir þessar af því, að algei’t samkomulag hefur orð ið milli hinna ýmsu þjóða er landið byggja, um að starfa sameiginlega að íramförum þess, án tillits til þjóðernis eða trúarbragða. En hjá mörgum þessum þjóðum, sem nú eru að verða sjálfstæðar, fer mikill tími í deilur um þjóðerni eða trúrnál. Ceylon er, svo sem kunnugt er, eyja sunnan við Indlands- skaga, og er hún um rs af stærð íslands. Þar er hitabeltislofts- lag og eyjan frjósöm, en marg- ir hitabeltissjúkdómar leika þar illa bæði menn og málieysingja. Nítján herskip frá fjórum þjóðum, komu til hafnar í Singapore 28. sept. Skip þessi voru Áströlsk, ensk, frá Pakist an og frá Bandaríkjunum, og höfðu lokið fyrsta þætti af flotaæfingum, er S.E.A.T.O. læt ur halda í Suður-Kinahafinu. * * * Bandaríkj a-lögf ræðingurinn Albert Goldstein missti lög- mannsréttindi sín fyrir tólf ár- I um, en hefur nú aftur hlotið þau með dómúsrskurði. Hann var lögfræðingur Trotskís og aðalverjandi kommúnistaflokks ins við málaferlin 1932. Hann var einn af þeim stjórnendum kommúnistaflokksins, 17 að tölu, sem mál var höfðað gegn 1941 í M'inniapolis, og var þa'ð upp úr þeim málaferlum, a'ð hann missti málafærzlu-rétt- indin. Um daginn, er hann fékk aftur réttindin, hafði blaðamað ur eftir honum, að hann hefði verið í Rússlandi árið 1932, og hvorki litist á Stalín, né stjórn- arhasAti hans. Aðalfulltrúi Frakka í Alsír, Róbert Lacoste, skýrði frá því um daginn, að hann og með- nefndarmenn hans, sem franska stjórnin hefur falið að rannsaka Alsír-málið, og koma með tillögu um, hefðu senn lok ið starfinu. Hafa þeir félagar sex mismunandi tillögur, er þeir vilja að Alsír-búar velji á milli. Ekki felst í neinni þess- ara tillagna, að Alsír verði sjálf stætt ríki, en það verður eins- konar millistig, milli þess aö verða það, og að vera bara einn landshluti af Frakklandi, sem eru kjör Alsírs nú. Tilgangur nefndarinnar er að tryggja, að algerður friður geti ríkt í land inu, og að hver maður, sem þar á heima, geti óhultur notið til fulls réttar síns, sem þjóðfé lagsþegn, af hvaða þjóðerni sem er, eða litarhátt, og hverrar trú ar sem hann er. Ekki vi'Jl Lacoste að svokomnu máli skýra frá einstökum atriðum, en segir að hann og félagar hans hafi farið þarna inn á nýjar leiðir. Telur hann víst að meiri hluti Múhameðstrjúarmanna í landinu muni aðhyllast ein- hverja tillöguna. Hins vegar þykist hann vita, að einhverjir af ættbáika-höfðingjunum, sem alltaf hafa hernað að aðalat- vinnu, og nú séu í uppreist gegn Frökkum, fallist ekki á þær. Slysavanialelágs íslauds i kaupa flestir. Fást hjáí Elysavamaoeildum um | land ailt. 1 Reykjavfk i i HarmyrSayerzluninni £ Bankastr. 6, VerzL Gaias- þórunnar . Halldórsd. c j Sí skrifstofo. félagsina, Gróf-^ in 1. Afgseidd í síma 4897.] Heitiö á Slysavamaféíag- HS. — Þá® bregst eJdd. —

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.