Alþýðublaðið - 07.03.1957, Qupperneq 5
Fínimtudagur 7. marz 1957.
AfþýSEibEaSHE
Húsmæðrakesirgarar? skálastjóri eg skólatiefnd á
á iricti því að ffytja itúsmæðrakennaraskólann til
Akureyrar
EITT HELZTA ÁGREININGSMÁLIÐ á alþingi er frum-
yarpið um að flytja Húsmæðrakennaraskóla Islands til Akur-
©yrar. Norðlendingar vilja að vonum fá þennan skóla með allar
bíómarósirnar til sín, en forráðakonur skólans hér syðra vilja
í>að með engu móti, og færa gegn þeirri ráðabreytni öll mögu-
leg rök, enda kunnugar málinu, draga jafnvel í efa, að nem-
endur fáist til skólans, ef hann á að starfa í hinu yfirgefna
kvennaskólahúsi á Akureyri. En hitt er líka athugandi. að
skólinn er húsnæðislaus syðra og starfar því ekki. En húsið
íbíður ónotað fyrir norðan.
Þær Karitas Sigurðsson,
.Soffía J. Claessen og Guðbjörg
/Birkis, sem skipa skólanefnd
■Húsmæðrakennaraskólans,
segja m. a. í áliti sínu um málið,'
■er menntamálanefnd efri deild-
ar leítaði eftir:
Helga mundi
hætta
„Aðsókn að Húsmæðrakenn-
araskóla íslands hefur fyrst og
..fremst byggzt á því, að skólinn
hefur getið sér orð fyrir að
hafa á að skipa færustu og vel-
menntuðustu kennurum, sem
völ er á hér á landi í þeim
kennslugreinum, sem kenndar
eru við skólann. Þá hefur skól-
inn enn fremur haft í Reykja-
vík fullkomnustu skilyrði, sem
kostur er á hér á landi, til verk-
legra æfinga í næringarefna-
fræði og æfingakennslu í skóla-
eldhúsum, en hvergi utan
Reykjavíkur er aðgangur að
nægilega mörgum skólaeldhús-
um, til þess að nemendur fái
þá kennsluæfingu, sem nauð-
synleg er. Þá er þess og að geta,
að skólinn hefur frá upphafi
notið skólastjórnar hinnar lands
kunnu forustukonu í húsmæðra
fræðslumálum, frk. Helgu Sig-
urðardóttur, en skólinn mundi
ekki njótayáfram starfskrafta
frk. Helgu, verði hann fluttur
út á land, þar sem frk. Helga
telur ekki unnt að reka skól-
ann utan bæjar þannig, að hann
fullnægi þeim kröfum, sem
gerðar hafa verið og gera verð-
ur til Húsmæðrakennaraskóla
íslands.“
Mundi skólinn
verða lagður
niöur?
„Yerði frumvaip það, sem
hér liggur fyrir, að lögum, mun
í ráði, að skólinn verði fluttur
til Akureyrar í skólahúsnæði
Húsmæðraskóla Akureyrar,
sem nú stendur autt, þar sem
ekki hefur á undanförnum ár-
um fengizt nægilegur fjöldi
nemenda til að stunda þar nám.
Vill skólanefndin leyfa sér að
draga í efa, að nemendur
mundu frekar fást til að stunda
húsmæðrakennaranám í hús-
næði þessu, fyrst nemendur
hafa ekki einu sinni fengizt
þangað nógu margir til að
stunda almennt húsmæðranám,
enda þótt auðveldara ætti að
vera að fá nemendur til al-
menns náms en til kennara-
náms. En fáist ekki nægilega
marg'ir nemendur til að stunda
nám í húsmæðrakennsiu á
þessum stað, yrði að leggja
skólann niður, og væri slíkt að
sjálfsögðu hinn rnesti ábyrgðar-
hluti og til óbætanlegs tjóns
fyrir húsmæðrafræðslu á ís-
landi. Hin trega aðsókn að hús-
mæðraskóla í þessari byggingu
bendir eindregið til, að þessi
hætta vofi yfir. Enn fremur má
benda á, að samkvæmt skoð-
anakönnun, er fram fór meðal
nemenda Húsmæðrakennara-
skóla íslands skólaárið 1953—
”54, mundi enginn nemendanna
hafa byrjað nám við skólann,
hefði skólinn haft aðsetur á
Akureyri. Jafnframt byggðust
allar umsóknir um skólavist á
árinu 1954—”55 á þeirri for-
sendu, að skólinn hefði aðsetur
í Reykjavík.“
Hægt aö kaypa
hús
„Húsmæðrakennaraskóla ís-
lands hefur verið úthlutað lóð
á hentugum stað í Reykjavík
undir skólabyggingu, og fjár-
festingarleyfi hefur fengizt til
að hefja bygginguna. Að sjálf-
sögðu væri heppilegast, að
byggt verði nýtt hús handa
skólanum, er sniðið væri eftir
ýtrustu og nútímalegustu kröf-
um, sem gerðar eru til slíkra
skólabygginga. En skólanefnd-
in vill benda á þann möguleika,
að fest verði kaup á húsi. svo
að skólinn geti haldið áfram
starfsemi sinni, en skólanum
stendur einmitt til boða hér í
bænum hús, sem húsameistari
ríkisins telur einkar hentugt
fyrir skólann.
Það eru vinsamleg tilmæli
skólanefndarinnaíj „að hið háa
Alþingi og hæstvirt ríkisstjórn
hlutist til um. að Húsmæðra-
kennaraskóli Islands verði á-
fram í Reykjavík. Hvergi anri--
ars staðar á landinu eru hæfi-
legar aðstæður til slíks skóla-
halds, og allar líkur benda til,
. að ekki muni fást nægilegur
[ nemendafjöldi til að sækja skól-
j ann, verði hann staðsettur utan
Reykjavíkur. Verði skóiinn
settur niður utan höfuðborgar-
innar, er sýnt, að hann mundi
1 annað hvort leggjast niður með
! öllu eða. í bezta falli
(Frh. á 7. síðu.)
AFMÆLISSUND5IÓT ÍR
fer fram í Sundhöllinni í kvöld
og hefst kl. 8.30. Meðal kepp-
encla eru allir beztu sundmenn
landsins.
Alls er keppt í 10 sundgrein-
um og verður skemmtileg
keppni í þeim öllum. í 100 m.
baksundi, sem er fyrsta grein-
in á keppendaskránni, má bú-
ast við meti, en keppnin verð-
ur mjög hörð milli ÍR-inganna
Guðm. Gíslasonar og Ólafs
Guðmundssonar. Einnig keppir
þar Sigurður Friðriksson fiá
Keflavík. 100 m. skriðsund
verður spennandi, en þar keppa
m. a. Pétur og Gylfi Guðmunds
són.
MET í 400 M. SKRIÐSUNDI?
Helgi Sigurðsson, Æ er viss
með siguiinn í 400 m. skrið-
sundi og spurningin er aðeins,
hvort honum tekst að setja met.
Pétur er einnig með þar og verð
ur gaman að sjá hvað hann get
ur. Ágústa keppir í 50 m.
bringusundi telpna og 100 m.
skriðsundi kvenna, en alltaf er
möguleiki á meti, þegar hún
keppir. Sigurður Sigurðsson
frá Akranesi keppir í 200 m.
brjngusundi ásamt Þorgeiri Ól-
afssyni, Á o. fl.
i
ROÐSUNDIÐ
Rúsínan í pylsuendanum er
Ágústa.
svo 3X100 ín. boðsund (þrí-
suncl), þar keppa sveitir frá IR
og Ármanni og er búizt við
geysiliarðri keppni og jafnvel
meti. Auk áðurnefndra greina
er keppt i 50 m. flugsundi
drengja, 50 m. bringusundi
drengja og 100 m. skriðsundi
tlrengja.
Það verður góð skemmtun í
Suiulhöllinni í kvöld.
IR SIGRAÐI VIKING
SIGRAÐI ÞRÓTT 29:
HANDKNATTLEIKSMÓT- (
IÐ hélt áfram um síðustu helgi, I
á laugardaginn voru fimm leik-
ir, en á sunnudagskvöldið þrír.
Sá leikur, sem beðið var eft-
ir með mestum spenningi á
laugardaginn, var Þróttur:Fram
í meistaraflokki kvenna. Leik- :
urinn var skemmtilegur frá
upphafi til enda. Þegar nokkr-
ar mínútur voru liðnar af sMnni
hálfleik, leit út fvrir. að Þrótt-
ur myndi sigra, en Framstúlk-
urnar jafna á síðustu mínútun-
um og endaði leikurinn með
jafntefli, 6:6.
ÍR VÍKINGUR 36:19.
Leikur ÍR og Víkings var
alltof ójafn til þess að geta ver-
ið skemmtilegur fyrir áhorf-
endur. ÍR-ingar spila mjög
hratt og tekzt oft að rugla vörn
j andstæðinganna, en þeirra vörn
15 I
M.FL,
Svavar með nemendum fyrranámskeiðsins í vetur.
NÝLEGA bárust mér þær
fréttir að áfengisvarnarnefnd í
Hafnaríirði hefði á sínum veg-
um föndurnámskeið fyrir
drengi og stúlkur í bæ. Snéri
ég mér til Svavars Jóhannesson
ar kennara, sem kennt hefur á
námskeiðum þessum og bað
hann segja mér nokkrar fréttir
af þeim.
Svavar hefur kennt drengj-
um á námskeiðum þessum flug-
módelsmíði og er þar um tvö
módel að ræða, Bamba og Kivva,
sem bæði eru svifmódel, en mis-
jafnlega stór. Eru drengirnir
lát-nir byrja á minna módelinu
og síðar fá þeir að smíða hið
stærra.
Allir þekkja þau vonbrigði,
sem bíða drengja þeirra, er ein-
ir og tilsagnarlaust hefja mód-
elsmíði og Svavar ekki síður en
aðrir. Sagði hann að iðulega
mistækist þetta hjjá einstakling
um, en er módelin væru smíð-
uð undir leiðsögn kennara væri
árangurinn nær tryggður. Oft
hafa byrjunarörðugleikar ráðið
því að unglingar, sem áhuga
höfðu, gáfu flugmódelsmíðina
á bátinn sem föndur.
Er ég ynnti Svavar eftir fyr-
irkomulagi námskeiðanna, gaf
hann mér eftirfarandi upplýs-
ingar:
Um 10 nemendur eru teknir
hverju sinni og nægir þeim
námskeiðstíminn til að smíða
annaðhvort módelið, er smíði
þess er lokið, er þeim kennt að
fljúga því þannig að komizt
verði hjá sem mestum skemmd-
um, en það er ekki síður áríð-
andi að módelið sé vel smíðað,
því að lítil ánægja er í því fólg-
in, að eiga brotið módel.
(Frh. á 7. síðu.)
er heldur ekki nógu vel lokuð.
Þetta lið ÍR getur orðið mjög
gott með tímanum og leikirnir
ÍR:KR og FH:ÍR verða mjög
skemmtilegir.
Víkingsliðið er í framför og
ef þetta lið heldur saman, mun
styrkur Víkinga í handknatt-
leik aukast.
FRAM ÞRÓTTUR 29:15.
Það er einkennilegt með
Þróttara , sem byrjuðu svo vel
í þessu móti, að nú lítur út fyr-
ir, að þeir ætli ekki að vinna
neinn leik. Að vísu er ekki
merkilegt, þó að þeir tapi 15:29
fyrir Frarn, því að lið Framm-
ara er mjög gott og hættulegt
fyrir hvaða félag sem er.
Á undan meistaraflokksleikj-
unum var leikur í 3, fl. milli
Víkings og Vals og endaði hann
með jafntefli 11:11.
Meistaramót í frj. íþróttum innan húss.
INN ANHÚ 53MEISTAR A-
MÓT Bandaríkjamanna í frjáls :
íþróttum fór fram nýlega í
Madison Square Garden í New
York.
Stangarstökkið er alltaf með
skemmtilegustu greinum, en
Richards sigraði nú eins og svo
oft áður. Aðalkeppinautur hans
Guttowsky, gat ekki verið með
í mótinu, og varð Bragg því
annar.
Ira litli Murchison sigraði
auðveldlega í 60 yds. hlaupi og
OL-meistarinn Calhoun í 60 yds
grindahlaupi.
OL-meistarinn Courtney hef-
ur ekki verið upp á það bezta,
síðan hann sigraði í Melbourne.
Hann varð þriðji í 600 yds.
hlaupi, en þar sigraði Sowell. :
Helztu úrslit:
60 yds. hlaup: 1. Murchison, 1
6.2, 2. I. Davis. — 60 yds. gr.hl.:
1. Calhoun, 7,2, 2. M. Campbell.
— 600 yds. hl.: 1. C. Jenkins,
1:10,4, 2. Perman. — 1000 yds.
hl.: 1. A. Sowell, 2:12,6, 2. H.
Bright. — 3 mílur: 1. J Macv,
13:57,4, 2. Breckenridge. — 1
míla: 1. Delaney, 4:07,0, 2. Ta-
bori. — Hástökk: 1. P. Reavis,
2,07 m., 2. Barksdale, 1,975. —
Stangarstökk: 1. B. Richards,
4,65 m., 2. Bragg, 4,57. — Lang-
stökk: 1. G. Shaw, 7,54 m., 2. W.
Wilson, 7,44 m. — Kúluvarp: 1.
O’Brien, 18,18, 2. Bantum, 17,94.