Alþýðublaðið - 12.04.1957, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.04.1957, Blaðsíða 3
Föstudagur 12. apríl 1957 A I þýgufolagjg » Þreftán hjúkrisnarkonur útskrifuðusf frá Hjúkriiíiarkvsnnaskóla Ísíarrds í marzmán. 347 ncmentiur hafa lokið námi frá skólanum frá ]>ví árið 1931, þegar hann fók til starfa. I LOK marzmánaSar braut- skráðust þessar bjúkrunarkon- Ujr frá Hjúkrunarkvennaskóla Islands: Anna Guðríður Hallsdóttir frá Reykjavík, Emilía Osk Guð jónsdóttir frá Rvík, Guðbjörg Hallvarðsdóttir frá Vestmanna eyjum, Guðrún Guðnadóttir frá Krossi í A-Landeyjum, Hildur Júlíusdóttir frá Rvík, Hjördís Guðbjartsdóttir frá Rvík, Matt Mldur Ólafsdóttir frá Suður- Vík í Mýrdal, Ragnhildur Jór- unn Þórðard. frá Rvík, Sigríð- ur Benjamínsdóttir frá Bíldu- dal, Sigríður Guðný Pálsdóttir frá Ólafsfirði, Sigurlaug Elísa Björ-gvinsdóttir frá Rvík, Sig- urlaug Helgadóttir frá Akur- eyri, Vígdög-g Björgvinsd. frá Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð, N-Múl. Alls hafa nú 347 nemendur lokið námi frá 'skólanum, en hann tók til starfa árið 1931. Skólinn útskrifar nemendur tvisvar á ári, vor og haust. Á síðustu fimm árum hafa að með altali útskrifazt árlega 25 nem- endur, en 30 hafið nám. Við stækkun skólans hefur nýnem- sndum strax fjölgað, og má nú að minnsta kosti gera ráð fyrir 40 á ári. Á síðasta ári voru nem endur orðnir um 90 talsins, en eru nú rúmlega 100. MIKIL AÐSÓKN ■ Þrátt fyrir þessa aukningu er enn langt í land til að hægt sé að fullnægja eftirspurn eftir hjúkrunarkonum, og heimavist siýju skólabyggingarinnar má teljast næstum fullskipuð nú þegar. Núverandi kennslustofur eru aðeins bráðabirgðaúrlausn og útilokað að kenna þar stærri Ihópum en nú eru teknir inn. Ennþá er óbyggð álma, þar sem setlað er rúm fyrir kennslustof- •ur,'borðstofu, eldhús og heima- vist fyrir 30 nemendur. Þegar htún er fullgerð, má fyrst von- ast.eftir að fjölgun útskrifaðra nemenda fari verulega að gæta. BÓKLEGT OG VERKLEGT NÁM Af þessum 100 nemendum er að jafnaði rúmlega helming- :ur við verklegt nám á deildum Landsspítalans, 25—30 á öðrum sjúkrahúsum og stofnunum og einn hópur, 15-—18, við bóklegt nám. Bóklega námið fer fram í námskeiðum, sem eru sex á ári. Fyrsta námskeið skólaársins hefst 1. september með for- skóla. sem stendur í. 8—9 vikur, en hið síðasta endar í júní— júlí. KENNT NÆRRI ALLT ÁRIÐ Á þennan hátt kemur hver hópur inn í námskeið um það bil einu sinni á ári, enda má segja, að kennsla fari fram næst um allt árið. Það er líka auð- skilið, þar sem hjúkrunarnám- ið er fast tengt sjúkrahúsun- um, þau eru alltaf starfandi og sjúklíngar þarfnast sömu að- hlynningar alla tíma. Skólinn verður þess vegna frábrugðinn Styrkur tíi háskéla ö'ðrum skólum. Honum er aldr-' ei slitið, heldur útskrifaðir ÍIÍÉITIS É haust og vor þeir nemendur, sem lokið hafa sínum þriggja ára námsferii. Hiért í New Yctrk a sig' uiösiiir fyrir Rússa NEW YORK, miðvikudag. 53ja ára gamall Ameríkumaður, Jack Soble, og kona hans, kváð- ust fyrir rétti í New York í dag, sek um að hafa haft samband, við sovézka njósnara um að hafa útvegað þeim skjöl í sam- bandi við landvarnir Banda- íkjanna og annað efni. Dómur verður kveðinn upp í byrjun maí, en mesta Ieyfilega hegning er 10 ára fangelsi. Hjónin hafa einnig verið á- kærð um að hafa sent leyni- legar upplýsingar um varnar- mál til Sovétríkjanna. Dómur fyrir slíkt er líflát. Ákæruvald- ið hefur enn ekki ákveðið hvort ákæran skuli látin gilda í end- anlegum réttarhöld.um um mál- ið. sfirzkir kuatíspyrnumenn úr í. flokki fara ufan fii Noregs og Danmerkur í sumar Mörg íþróttamót voru halclin á vegum íþróttabanda- lags ísfirðinga á síðasta ári. ÞRETTÁNBA þing íþróttabandalags ísfirðinga var haldíiift á ísafirði dagana 22.—24. febrúar sl. Formaður Í.B.Í. ftatti skýrslu um starf sambandsins á árinu, og fer hér á eftir á- grip úr hennk: Knaítspyrnufélagið Vestri varð Vestfjarðar- meistari í knattspymu í öllum flokkum. Lið frá Herði og- Vestra háði 12 kappleiki við utanbæjariið, og vann 5 þeirra, gerði 3 jafntefli, en tapaði 4. Skoraði lið Í.B.Í. 29 mörk gegia 26. Edda Kvaran hlaut ékeypis dvöí i Neregi. NÝLEGA barst F.Í.L. bréf frá Norsk Skuspillerforbund, þar sem íslenzkum leikata er boðið til viku dvalar í Oslo. Forstjóri Hoteíl Viking, Grieg Mortens, býður til viku dvalar ókeypis á hóteli sínu. Fer hann þar að dæmi Kes- bys forstjóra Hótel Richmond í Kaupmananhöfn, sem undan- farin þrjú ár hefur boðið leik- urum, einum< frá hverju Norð- urlandanna, til viku dvalar. Héðan hafa farið frú Herdís Þorvaldsdóttir, Róbert Arn- finnsson, og nú í vetur frú Re- gína Þórðardóttir. Félög leikara viðkomandi landa hafa séð um ókeypis að- gang að leiksýningum. Til farainnar valdist að þessu sinni frú Edda Kvaran og fór hún utan síðastjiðinn laugar- dag. Þessi rausnarlegu boð eru á- kjósanleg leið til efling nor- rænnar samvinnu. (Frá. Félagi íslenzkra liekara). RÍKISSTJORN Spánar hef- ur heitið íslenzkum stúdent eða kandidat styrk til háskólanáms á Spáni frá 1. október 1957 til 30. júní 1958. Styrkurinn nemur 16.000 pes- etum nefnt tímabil. Ef náms- maðurinn æskir, mun honum verða útvegað húsnæði og fæði í stúdentagarði, gegn venjulegu gjaldi. Styrkþegi þarf hvorki að greiða innritunar- né skóla- gjald. •Þeir, sem kynnu að hafa hug á að hijóta styrk þennan, sæki um hann til menntamálaráðu- neytisins fyrir 1. maí n. k. Umsókn beri m.eð sé, hvers- konar nám umsækjandi hyggst stunda, og fylgi áfrit af próf- skírteini svo og meðmælum ef til eru. (Frá Menntamálaráðuneytinu). ur Afengi selt fyrir tæpar 23,8 milliónir kr. á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. . BLAÐINU hefur borizt skýrzla frá áfengisvarnarráðu- nauti, Brynjólfi Tobíassyni, yf- ir áfengissöluna fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Kcmur þar í Ijós, að sala áfengis hefur auk- ízt um tæp 10% að krónutali, miðað við sama tímabil í fyrra, en þar sem 10—15% verðhækk- un varð á áfengi hinn 1. febrú- ar s.l., er greinilegt, að selt á- íengismagn hefði heldur minnk að en vazið. Þó fer þetta að sjálfsögðu nokkuð eftir því, hvort sala á dýrum og ódýrum víntegundum hefur breyzt, svo að nokkru nemi. HEILDARSALAN í ÁR. ' A fyrsta ársfjórðungi 1957 er íheildaraslan þessi (í sviga eru itölurnar frá fyrra ári). Selt í og 3xá Reykjavík fyrir 20.439.587 ý20.444.760). Selt í og f.á Akur- jEyjri fyrir kr. 2.097.138 (engin útsala þar í fyrra). Selt í og frá Seyðisfirði fyrir kr. 427.341 (319.024). - Selt í og frá Siglu- firði fyrir 815.587 (1.019.972). Alls kr. 23.779.653 (21.783.756). SENDINGAR I POSTl. Af þessu voru sendingar í pósti frá aðalskrifstofu í Reykjavík til héraðsbannsvæða sem.hér segir: Til Ísafjarðarumdærríls: fyrir kr. 397.231 (449.650). Til Vest- mannaeyja fyl'ir kr. 627.349 (658.213). Auk þess var í fyrra sent til Akureyrar og nágrenn- is fyrir kr. 590.249 (en ekkert á þessu ári), og frá Siglufirði til Akureyrar og nágrennis fyr- ir kr. 213.232 (en ekkert á þessu ári). Áfengi til veitingahúsa frá aðalskrifstofu var selt fyrir kr. 876.974 (1.091.122). BERGEN NTB. — Síðastlið- in tvö ár hafa óvenjulega mörg snjóflóð fallið úr fjöllum í nám- unda'við býlið Apold í Suður- firði í Harðangursfylki í Nor- egi og bóndinn er á þeirri skoð- un, að flugvélar á áætlunarleið inni milli Björgvinjar og Ósló, séu valdar að snjóflóðunum. "Flugvélarnar á þessari leið fara oft beint yfir býlið og rétt á eftir kemur snjóflóðið, sem iðulega hefur upptök sín í næst- um þúsund metra hæð upp í fjallinu. Flóðin eru tíðum á 100 metra breiðu svæði, en venjulega stöðvast skriðan áð- ur en kemur að bænum, eða fer fram'hjá sunnan megin. En svo hefur það einnig borið við að skriðurnar hafa náð allt að túnfætinum og skemmt gott land. Það þykir athyglisvert, að áður en flugið hófst þarna yfir, hafi ekki orðið þar snjóflóð í 50—60 ár. Nú mælist eigandi býlisins til að SAS breyti flugleiðinni, þannig að flogið sé yfir Suður- fjörðinn nokkru sunnar. Ekki er talið ósennilegt, að flugvélagnýrinn geti valdið j titringi í snjónum og þannig j komið snjófióði af stað, og þó j fara flugvélarnar í mikiili hæð! yfir þessúm stað. i í handkanttleik varð kantt- spyrnufélagið Hörður Vest- fjarðarmeistari í karla- og kvennaflokki. Handknattleiks- stúlkur Í.B.Í. léku 5 leiki við utanbæjarfélög. Unnu þær 1 leik, gerðu 2 jafntefli en töp- uðu 2. Settu 11 mörk gegn 14. ÁTTA SKÍÐAMÓT Átta skíðamót voru haldin á árinu. Vestfjarðarmeistarar urðu: í svigi karla Jón K. Sig- urðsson (Herði), í svigi kvenna J'akobína Jakobsdóttir (Herði), í göngu Árni Höskuldsson (Skíðafélagi ísafjarðar) og í stökki og norrænni tvíkeppni Gunnar Pétursson (Ármanni). Skíðamót ísafjarðar fór fram á ísafirði um páskana og sá Skíðaráð ísafjarðar um mótið. Formaður þess var Konráð Jak obsson. Aðeins eitt frjálsíþróttamót fór fram, og var keppt í fimm greinum: 100 m. hlaupi, kúlu- varpi, kringlukasti, langstökki og þrístökki. Emil Hjartarson (UMF Gretti á Flateyri) sigraði í öllum greinum, nema 100 m. hlaupinu, en þar sigraði Birgir Valdimarsson (Herði). FÉLAGSMÁL Haldið var áfram byggingu búningsklefa við íþróttavöllinn. Miðaði því verki vel áfram, og munu klefarnir verða tilbúnir til notkunar í vor. Haldið var námskeið í knattspyrnu og stóð það yfir í 2Vz mánuð. Kennt var í Öllum flokkum. Kennari var Ellert Sölvason frá Reykja vík. Unnið var að endurbótum á knattspyrnuvellinum og var það allt unnið í sjálfboðavinnu. SAMÞYKKTIR ÞINGSINS Ýmsar samþykktir voru gerð ar á þinginu. M. a. um að at- huga möguleika á að koma upp grasvelli, ráða kennara, sem kennt gæti bæði knattspyriiHt, handknattleik og frjálsar í- þróttir, en þær hafa svo að segja legið alveg niðri í nokkur ár. Fylgja skyldi strangar eftir læknisskoðun íþróttamanna. — Þingið þakkaði bæjarstjórn fyr ir ríflegt framlag til hins fyrir- hugaða íþróttasvæðis á Torfu- nesi. Vestri ákvað á aðalfundi sía- um nýle-ga að síofna félagsheim ilissjóð með 60 þús. króna fram Iagi úr félagssjóði. Forrn. Vestra er Pétur Sigurðssora. Form. Harðar er Albert K. Sanders. tJTAXFARjR ISFIRZKRA KNATTSPYRNUMANNA í ráði er að sameinað lið úr Herði og Vestra (1. flokkur) fari í keppnis- og kynnisför til Noregs og Danmerkur í súmar. Heimsæki þar vinabæi ísafjarð ar, Tönsberg í Noregi og Ros- kilde í Danmörku. Hafa sama- ingar staðið við íþróttafélög þessara staða um þetta mál 1 vetur og hefur nú samkomulag náðst við þau. Enn er ekki fuil- ráðið, hvenær flokkurinn fer.. Enn fremur er ákveðið að 3. fl. úr Herði fari til Færeyja í keppnis- og kynnisferð, og hef- ur verið ákveðið, að flokkurinn fari utan í júlí nk. Formaður var endurkjörinn Alfred Alfredsson, varaforrn. Guðmundur Ingólfsson, Hnífs- dal, og oddamaður í stjórn Jens Sumarliðason. í héraðs- dómstól voru kjörnir Einar B. Ingvarsson, Sverrir Guðmunds son og Bjarni Sigurðsson. Vara menn: Gunnlaugur Jónasson, Hafsteinn Ö. Hannesson og Bjarni Bachmann. Endurskoð- endur: Ágúst Leós og Böðvar Sveinbjarnarson, til vara GuS- bjarni Þorvaldsson og Daníel Sigmundsson. Vcgna sívaxandi aðsóknar ög fjölda áskcr- ana, hefur verið ákveðið að halda sérstaka mið- degissýningu á morgun (laugardag) kl. 14,30 í Austurbsejarbíói. • Er hér um einstætt tækifæri að ræða fyrir þá, sem ekki haía gétað sótt miðnætursýningarnar. Aðgöngumiðar hjá Eymundsson, blaðsöíunni Laugavegi 30 og í Austurbæjarbíói. Fólki er ráðlagt að tryggja sér miða áður en það er orðið um seinan, því að eftirspurn er mik- il. Félag íslenzkra einsðngvara.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.