Alþýðublaðið - 14.09.1957, Síða 4
JLaugardagur 14. sept. 1957
AlbýSubiaSiS
Á líðandi stund. Laugardagur 14. sept
Jarðhilinn í Krýsuvík og nýjar leiðir í aivinnumáium okkar
- Skamml stórviðburða á ntiiii í skák -- ViSieysur apaðar
eflir úllenzkum - Kýir bergarar borðnir veikomnir. - Haustar
Útgefandi: Alþýðuflokkurion.
Ritstióri: Helgi Sæmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttif,
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarssoa.
BlaSumenn: Björgvin Guðmundssoo Of
r -oítur Guðmundsson.
Bitstjórnarsímar: 14901 og 14962.
Auglýsingasími: 14906.
Áfgreiðslusími: 14900.
feeatscmiðla Alþýðublaðsimr, Hvesfisgðta i—lt.
Milljónirnar sjö
ÚTSVÖRm í REYKJAVÍK
haía mjög verið á dagskrá
undanfarið, og munu þær
umræður enn harðari, ef að
líkum lætur, við úrskurð fé-
lagsmálaráðuneytisins, en
niðurstaða hans er sú, að
bæjarstjórn Reykjavíkur
hlutist til um, að niðurjöfn-
unarnefnd jafni niður útsvör
um þessa árs að nýju. Rök
ráðuneytisins eru aðallega
tvö: I fyrsta lagi hafi verið
jafnað niður 6,9 milljónum
umfram heimild og í ööru
lagi verði að telja, að niður-
jöfnunarnefnd hafi ekkí tek
ið nógsamlega tillit til efna
og ástæðna gjaldendanna við
niðurjöfnunina.
Hér er um lagatúlkun að
ræða, en röksemdir ráðuneyt
isins virðast óneitanlega
þungar á metunum. Jafnað
hefur verið niður á Reykvík
inga útsvörum, sem eru nær
sjö milljónum hærri upphæð
en mælzt var til við ráður.eyt
ið og leyft af því. Það á að
vera gert á þeirri forsendu,
að útsvörin kunni ef til vill
að lækka í sambandi við úr-
skurðun á kærum, og liggur
raunar fyrir, að svo hafi nú
orðið. En við þetta er það að
athuga, að lögð hafði verið á
útsvörin nær 10% viðbót til
að mæta vanhöldum eins og
heimilt er samkvæmt lögum.
Þar af leiðandi hefur hér ver
ið lengra gengið en til stóð.
Gunnar Thoroddsen borg
arstjóri se-gir í viðtali við
Morgunblaðið í gær, að
hann skuli ekki á þessu
stigi málsins ræða, hvovt
fýlagsmálaráðherra hafi
lagaheimild til að ómerkja
útsvarsálagninguna. Þetta
er furðulegt. Borgarstjór-
inn er ágætur lögfræðingur
og ætti að bera manna
mesta ábyrgð á því, hversu
komið er. Hann þarf einnig
að færa rök að því, að sjö
miUjónaviðbótarálagningin
umfram fjárhæðina fyrir
vanhöldunum hafi við ein-
hver rök að styðjast. Hér
er sem sé um að ræða aðal-
atriði málsins. Og þau geta
ekki íegið í láginni, ef
Reykjavíkurbær telur sig
ofríki beittan af félagsmála
ráðherra eins og Morgun-
blaðið og Vísir fullyrða af
ærnum skapsmunum.
Og svo eru hótanirnar, sem
fram koma í Morgunblaðinu
og Vísi af þessu tilefni. Bæði
blöðin gefa í skyn, að stór-
felldar tafir verði á íbúða-
byggingum og öðrum verk-
legum framkvæmdum, ef
úrskurður félagsmálaráðu-
neytisins nái fram að ganga.
Slíkt er fáheyrður málflutn-
ingur. Bæj arstj órnaríhaldið
segist muni halda að sér
höndum einmitt um þessar
framkvæmdir, ef það megi
ekki leggja á þegnana þyngri
byrðar en ráðuneytið telur
lög standa til. Hér er íhald-
inu rétt lýst. Vissulega verða
einhver óþægindi af þeirri
leiðréttingu útsvaranna, sem
ráðuneytið krefst. En forráða
menn Reykjavíkurbæjar
með Gunnar borgarstjóra
í broddi fylkingar geta
sjálfum sér um kennt nema
þeir færi rök að því, að at-
hæfi þeirra sé lögum sam-
kvæmt. Hitt er hneyksli að
ætla að afsaka ólöglega út-
svarsálagninga. með þessu
móti. Það sýnir aðeins á
hverjum hefndin skal bitna.
Og alþýðustéttir höfuðborg-
arinnar kunna áreiðanlega
minnisstætt svar, ef beita á
þessum baráttuaðferðum.
Álögur þær, sem lagðar
eru á Reykvíkinga, eru svö
gífurlegar, að bærinn ætti að
komast af án þessara um-
deildu sjö milljóna. Hann
getur hæglega sparað þessa
fjárupphæð og meira til með
hófsamari og skynsamlegri
ráðstöfun þeirra fjármuna,
sem í hans hlut koma lög-
um samkvæmt. Nú ætti Sjálf
stæðisflokkurinn að sýna
sparnaðarviljann og ráðdeild
ina í verki. Og þá — og þá
fyrst — gætu Sjálfstæðis-
menn með góðri samvizku og
hreinum skildi krafizt slíks
hins sama af öðrum. Það
geta þeir ekki, meðan þeir
eru sekastir allra um óhóf og
gleiðgosaskap.
Áfyýðublaðið vantar uitglinga
til ad bera blaðið til áskrifenda í þe«9tun hverfujn:
MIBBÆNUM
LAUGARÁSI
RAUÐALÆK '
TaW við afgreiðsluna - Sfmi 14900
Áhortendur í skákmotinu fyigjast með skákunum. eao er auoseo a svip peura, ao ryigzt er
með af athygli. Áhorfendur voru mjög margir fyrsta kvöldið. — Ljósm. Álþbl. O. ÓI. y
EIN helzta auðlind íslands
er jarðhitinn. Hann hefur ver-
ið hagnýttur til mikils gagns
við ræktun undir gleri og upp-
hitun húsa, svo að einstætt
verður að teljast um víða ver-
öld. Þykir það í frásögur fær-
andi erlendis, að hér norður
undir heimskautsbaug þroskist
suðræn aldini undir gleri, þótt
sumur séu svöl og stutt, og
höfuðborgin sé upp hituð með
hveravatni. Annar stórmerki-
legur þáttur í nýtingu jarð-
hitans er fyrir nokkru hafin í
Krýsuvík fyrir atbeina Hafn-
arfjarðarkaupstaðar, þar sem í
ráði er að nýta jarðgufu til
orkuframleiðslu og efnaiðnað-
ar. Er þar nú að hefjast nýr
kafli þeirrar sögu, með því að
rætt er um að fenginn verði
stórvirkur jarðbor til endan-
legrar könnunar á jarðhita-
svæðum landsins.
Komið hefur til mála, að
komið verði á fót saltvinnslu
í Krýsuvík, og starfar nefnd í
því máli. Kemur víst ýmislegt
fleira til greina. En það, sem
mestu máli skiptir er það, að
slíkt mál sem þetta er komið
á rekspöl. Einhæfni atvinnu-
veganna er s'vo mikil hér á
landi, að til vandræða horfir,
og auðvitað verður íslenzka
þjóðin að byggja upp traustan
iðnað eins og aðrar þjóðir.
Jarðhitinn er auðlind, sem ó-
víða er að finna, og líkur eru
til, að hann skapi íslendingum
náttúrleg skilyrði helzt til að
vinna sér með skiótum hætti
sess meðal iðnaoarþjóða.
því sambandi að bjóða G.
Stáhlberg, frægasta stórmeist-
ara Norðurlanda og einn kunn-
asta skákrithöfund Evrópu,
velkominn til keppni hér á
landi. Hann hefur ekki teflt
hér fyrr, enda búinn að dvelj-
ast langdvölum í Suður-Ame-
ríku.
íslendingar hafa náð miklum
árangri á sviði skákíþróttar-
innar og er gróska mikil í
skáklífinu. Flestir beztu skák-
menn þjóðarinnar eru korn-
ungir menn, sem miklu eiga
eftir að bæta við sig. Og slík
mót, sem yfirstandandi ská«k-
mót getur orðið þeim mikil
lyítistöng. Það eykiýr áhuga
og veitir þjálfun.
Þ/. cr skammt á milli stór-
viðbur.,n í slcáklífi fslendinga.
Fyrsta Iieimsmeistaramót í
skák, se: ’ liér hefur verið
ha'ldið, alþjó :;nót stúde úa var
haldið hér i sumar. Þar komu
margir hinna kunnustu sk!ák-
manna heimsius. En nú er ný
hafið skákmót er Taflfélag
Reykjavíkur j mgst fyrir,
með þátttöku Ueggja stór-
meistara erlendra og tveggja
alþjóðlegra meistara. Ber í
ÝMSUM HEFUR víst þótt
nóg um, er það fréttist, að fara
ætti fram fegurðarsamkeppn i
karlmanna í Reykjavík.
Fegurðarsamkeppni kvenna
mæltist aldrei sérlega vel fyr-
ir, þó að liðin væri og áhorf-
endur margir. Mönnum hefur
víst fundizt það ekki fjarri
kveneðlinu að dýrka líkams-
fegurð. En áreiðanlega þótti
flestum skörin vera farin að
færast upp í bekkinn, er leiða
átti karlmenn líka fram til
slíkrar keppni, Það er bezt
að kannast við það hreinskiln-
islega, að fegurðarsamkeppni
er kroppasýning, andinn skipt-
ir þar engu máli. Nautheimsk-
ur hrotti getur alveg eins
komið til greina um fyrsta sæt
ið eins og gáfað valmenni, ef
hann er bara nógu ásjálegur.
Þetta vita auðvitað al'lir og
gildir um bæði fegurðarsam-
keppni karla og kvenna. Það
er líka frá siðgæðissjónairmiði
alltaf óhollt að efna til keppni
um það ,sem fólki er ekki nema
að litiu-leyti sjálfrátt. Verður
ekki komizt hjá að spyrja í
þessu sambandi: Er ekki eitt-
hvað rotið við slíka skemmt-
un, sem fegurðarsamkeppni
er? Bendir þetta ekki á úrkynj -
un og skort á heilbrigðum á-
hugamálum? Er rétt að'safna
fé á þennan hátt, jafnvel, þó
að góð málefni eigi j hlut? —
Þurfum við endilega að apa
hvaða vitleysu sem er eftir út-
lenzkum?
GAMAN er að nýju borgur-
unum, sem fluttir hafa verið
inn í bæinn, öndunum frá Ak-
meyri. Fuglalífið á Tjörninni
er til mikillar bæjarprýði. Ef
það er aukið, verður borgin
fegurri. En það verður auðvit-
að að hirða vel um nýju gestina,
sjá um að þeir hafi nóg, þurfi
ekki að svelta og geti búið um
sig eins og eðli þeirra hæfir.
Þeir eru boðnir vel komnir til
Reykjavíkur og vonandi una
þeir hag sínum vel.
NÚ LIÐUR að hausti. í þess-
ari viku snióaði í Esjuna, sund-
in hafa verið úfin og kalsa
veður. Til sveita er nú slætti
að ljúka og göngur fara í
hönd. Slátrun er byrjuð í
Reykjavík, í smáura stíl að
vísu. Sumai'ið hefur verið sól-
ríkt og gott, svo að ékki er að
undra, þó að nokkurra veðra-
brigða sé að vænta. Hefur
þjóðin oft verið verr undir
vetur búin.
SKlPAUT(i€RÐ RIKtSf'N'S
M. s. Esja
austur urn land í hringferð
hinn 20. þ. m. Tekið á móti
flutningi til
Fáskrúðsfj arðar
Reyðarfjarðar
Eskifjarðar
Norðfjarðar
Seyðisfjarðair
Þórshafnar
Raufarhafnar
Kópaskers og
Húsavíkur
á mánudag.
Farseðlar seldir á miðviku-
dag.