Alþýðublaðið - 17.09.1957, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.09.1957, Blaðsíða 3
Þiiðjudagur 17. sept. 1957 AlþýSyblaðið 3' „UNDIR septembersól brosir sumarið fyrst,“ sagði Stefán frá Hvítardal. Það var eitt sumarið þegar hann var ungur og hrifirin á hverjum degi, ástfanginn og heitur. — Sunnudagurinn var dásamlega fagur og hlýr alveg eins og sumardagur. Það vaeri J)ó vanþakklæti af okkur að taka þessi ummæli upp í tilefni af því sumri, sem nú er að enda, því að sjaldan höfum við átt eiiis dásamlegt sumar. IIVAR SEM MAÐUR FÓR um úthverfi o-g nágrenni bæjarins var fóik að vinna í görðunum. Ég spurði hjón, sem ég heimsótti í garði, hvort ekki væri kalt, en þau neituðu því. Þau voru sveitt. „Það er hlýtt og gott“, sögðu þau. Tveir litlir kútar voru að veltast hjá þeim í kart- öflugrasinu. „BORGAR ÞETTA SIG?“ spurði ég. ,,Ja, borgar sig“, sagði konan. „Hvað borgar sig. Við fáum átta poka upp úr þessu. Við höfum verið í þessu úm Jhelgar og á kvöldum og okkur hefur þótt mjög gaman að þessu. Það er aðallega þess vegna, sern við setjum alltaf niður. Það er ánægjan, sem allt veltur á. Nú, og svo fáum við þó kartöflur fyrir nokkur hundruð krónur, rheira en við þurfum til vetrar- ins.“ ÞAU SÖGÐU að uppskeran væri góð. „Fyrir nokkrum árum fengum við garo í Smálöndum, en það var bara xnoldarhnullung ar og óhæfur jarðvegur svo að við hættum við þann garð, enda var hann of langt í burtu af því að við eigum ekki bíl og okkur langar til að hafa strákana með okkur í þessu. Þá fcngum við :þennan garð.“ Undir septembersól. Góð kartöfluuppskera. Á ferð og flugi hættir. Slæmt símasamband við Hafnarfjörð. ÉG SÁ að þau voru ánægð með uppskeruna. Bæjarfélagíð lætur bæjarbúum í té garðlönd, en það vill ganga misjafnlega að þeir notfæri sér þau. Margir taka garð, rækta hann eitt ár, en hætta svo, gefast upp. Það er eftirtektarvert í sumar hve mörg garðlönd í Smálöndum eru í órækt. GUNNAR SCHRAM er hætt- ur við þátt sinn: „Á ferð og flugi“. — Ég vil þakka honum fyrir hann. Þátturinn hefur ver- ið fjörlegur og lifandi, enda er Schram góður blaðamaður, frísk ur og snarborulegur. En það kemur mér á óvart að hann skuli gefast upp. Um leið og hann kvaddi sagðist hann oft hafa staðið í erfiðleikum með efni. Það stafar af því að hann — og raunar margir, sem hafa stjórnað svona þáttum, leita um of eftir einsdæmum. Það er ó- þarfi. Lífið og fólkið á nóg í fórum sínum. Allt er komið frá fólkinu. Þangað fer maður aldrei erindisleysu. En það skilja fáir á réttan hátt. MAFNFIRÐINGUR skrifai: „Mér finnst að við Hafnfirðingar séum illa leiknir af viðskiptum við símann og þá ekki síst síðan breytingin varð s. 1. vor. T. d. þegar ég vel númer í Reykjavík, þá kemur það iðulega fyrir, að ég þarf að velja oftar en einu sinni til að ná í rétta númerið. Eitt skipti hringdi ég 7 sinnum. og fékk alltaf rangt númer. ANNAÐ SKITTI var ég stadd- ur á skrifstofu í Reykjavík um kl. 14 e. m. Forstjórinn þurfti að hringja til Hafnarfjarðar, en í fullan hálftíma náðist ekki samband suður, nema þá í vit- laust númer. Ég fékk svo að síma þarna og reyndi að ná tali af ákveðnum manni í Hafnar- firði, en lenti alltaf á röngu núm eri og jafnan því sama. Kona kom jafnan í símann og var orð- | in bit á þessum látlausu vit- | lausu hringingum. Ég hringi svo á bilanatilkynningar og geta j þeir engar skýringar á þessu gefið, eða lofað að liægt sé að bæta úr. MÉR ER TJÁÐ að upphring- ing til Reykjavíkur frá Hafnar- firði kosti 6-fallt á við innan- bæjarsamtöl, en þegar þau fara nú að kostá 42svar-fallt, ja, þá fer nú að færast skörin upp bekkinn, og kvarti niaður fær maður enga skýringu, neiti mað- ur greiðslu á svona okurreikn- ingi, þá að loka. Ég spyr nú: Hversu lengi geta Hafnfirðingar látið bjóða sér slíkan dæmalaus- an yfirgang af hálfu þess opin- bera? Vill nú ekki bæjarstjórn Hafnárfjarðar reyna að rétta hér hlut okkar bæjarbúa?“ Hannes á horninu. MálaferSiii út af „Söngnum m rauða öbíninn" liéfusS í ðsfé í gæs vildi ekki svara hvorf hann sekur eða ekki sekur. mg enn. Saksóknari heimtar lagalegan dóm en ekki bókmenntadóm. OSLÓ, mánudag. (NTB). — Dómshúsið í Osló var fullskipað hg hin mesía ringulreið ríkti, áður en rnálið gegn ritnöfundin- uih Agnar Mykle og Harald Grieg, forstjóra Gyldendals Norsk Forlag, hófst kl. 9,30 í morgun. SkyndÍljós blaðaljósmyndara mættu sakborningnum og allur dómsalurinn var baðaður skjannabirtu frá ljóskösturum kvikmyndatökumanna. A borð- t»m lögfræðinganna voru heilir staflar af bókum. Hafa verj- endur 84 bækur, sem þeir hyggjast að vitna i. Búizt er við, að málaferlin gtandi í tvær til þrjár vikur, en í dag lauk hinn opinberi ákær- andi, Riekeles, innleggsræðu jsinni, og lokið var við að lesa 80 píðtir úr bókinni „Sangen om ’den röde rubin“, sem málið er bafði út af. Las Mykle sjálfur fvrstu fjöi-utíu síðurnar, en að- íStoðarmaður saksóknarans mun jhvíla hann. Mykle las sjálfur allar hinar erótísku lýsingar. Búizt er við, að lestur bókar- tnhar taki tvo daga í viðbót. í\ Ákæran er, eins og menn Bnuna, hafin gegn Mykle og Grieg fyrir að hafa samið og igefið út bókina „Sangen. om den röde rubin“, er ákæruvald- |ð lítur á sem klám, vegna end- Jartekinna, mjög nákvæmra eró jlískrá lýsinga. Krafizt er banns S bókinni og endurgreiðslu á Íekjurn af henni, en talið er að 3MykIe hafi haft 241 000 norskra Stróna tekjur af bókinni og for- lágið 152 000 kronur. Hún hefur verið gefin út í 55 000 eintökum í Noregi. Mykle var spurður hvort hann áliti sig sekan, og svaraði þá, að hann hefði mikið um það hugsað og komizt að þeirri niðurstöðu, að hann vildi ekki svara. Harald Grieg svaraði sömu spurningu neitandi. Sækjandi rakti málið nokkuð, benti á, að almenningsbókasöfn hefðu sum hver neitað að taka bókina og ráðgjafarnefnd ráðu- neytisins um bækur til almenn- ingsbókasafna hefði neitað að mæla með bókinni við söfnin. Lagði Lann áherzlu á, að rétt- urinn ætti ekki að kveða upp úrskurð um hókmenntagildi sögunnar, heldur hvort hún væri klám í hinum lögfræðilega skilningi þess orðs. Hann benti einng á, að spurningin um lif- andi menn, sem. hafðir væru að fyrirmyndum, mundi ekki tek- in upp, : • • ; __ i j • NEVADA, mánudag. Einhver öflúgasta atómsprengja, sem sprengd hefur verið í ár, var sprengd í Nevada-eyðimörkinni í dag. Telja áreiðanlegar heim- ildir, að sprengjan hafi jafn- gilt 40 000 lestum af TNT sprengiefni. SALA - KAUP Höfum ávp.llc fyriniggj- andi flestar tegundir bif- reiða. i Leiðir ailra, sem ætla að kaupa eða selja B I L 1| * liggja til okkar Bílasatan Hallveigarstíg 9. Sími 23311. Bílass1a n Klapparstíg 37. Sími 19032 Minnmgarspfola r D. A. S. fást hjá Happdrætti DAS, Austurstræti 1, sími 17757 — Veiðárfæraverzl. Varðanda, sími 13786 — Sjómannafé- lagi Reykjavíkur, sími 11915 — Jónasi Bergmann, Háteigs- vegi 52, sími 14784 — Bóka- verzl. Fróða, Leifsgötu 4, sími 12037 — Ólafi Jóhanns- syni, Rauðagerði 15, sími 33096 — Nesbúð, Nesvegi 39, Guðm. Andréssyni gullsmið, Laugavegi 50, sími 13769 — í Hafnarfirði í Pósthúsinu, og Kflsllán Eiríksson híestaréííar- og héraos dómslögmenc. • Málflutningur, innheimta, samningagerðir, fasteigna- og skipasála. Laugaveg 27, Sími 1-14-53. sími 50267. SamúHarkort Husnæli- Slysavarnafélags Islands kaupa flestir. Fást hjá slysa- varnadeildum um íand allt. í Reykjavík í Hannyrðaverzl- uninni í Bankastr. 6, Verzl. Gunnþórunnar Halldórsdótt- ar og í skrifstofu félagsins, Grófin í. Afgreidd f EÍma 14897. Heitið á Slysavarnafé- lagíð. — Það bregst ekki. — miðlunm, Vitastíg 8 A. Sími 1B205. Sparið auglýsingar og hlaup. Leitið til okkar, ef: þér hafíð húsnæSi * til leigu eða ef yður vantar húsnæðL er nú orðið eitt vinsælasta vikublað landsins, enda birt- ast í hverju blaði fræðandi og skemmtilegar greinar um ýmis efni, bæði innlendar og erlendar; sögur og margt fleira efni við hæfi eldri og yngri lesenda. Ritstjóri Sunnudagsblaðsins er Ingólfur Kristjánsson, rithöfundur. Enn eru örfá eintök fáanleg af fvrsta árgangi blaðsins, og sitia þeir fyrir þeim — meðan upplagið endist —, sem gerast áskrifendur að ALÞÝÐUBLAÐINU. — Ennfrem- ur fá fastir kaupendur Alþýðublaðsins sent SUNNU- DAGSBLAÐIÐ ókeypis urti hverja helgi. Gerist áskrifendur að ALÞÝÐUBLAÐINU og tryggið yður einnig með því SUNNUDAGSBLAÐIÐ. Áskrifíarsíminn er 149 00 önmiEwt aBskoEer x og Mtftlagair. HilaMgnir $*f* Símar: 23712' og i 2S99. prjónatms.kur og vað- málstuskur hæsta verði. Alafoss, Þingboltsstræti 2. / NNHEtMTÁ LÖOFRÆQ/STÖKF

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.