Vísir - 26.02.1911, Page 3
V í S 1 R
23
aj lawdu
Ársæld í Eyjafirði.
(Símskeiti)
Akureyri 25. febr.
Óvenju niikil björg er komin inn
á vorn góöa gamla Eyjafjörð, núna
á svipstundu að kalla má.
Síldin veður í lorfum um allan
fjörðinn og er mokað upp, þar sem
nokkur tæki eru til þess. Maður
fjekk í nótt 10 strokka í tvo litla
netaræfla. Hákarlinn-. stórfeldur afli
af honum í gær. Og loks selurinn.
í dag hefur einn maður skotið 18
seli og annar 12 o. s. frv.
Nú er gaman hjer að vera. Það
er líka handagangur í öskjunni.
Fiskifjelag fslands. Mánu-
daefinn var, var fjelag stofnað hjer
í bænum með því nafni og mark-
mið þess að »styðja og efla alt
það er verða má til framfara og
umbóta í fiskiveiðum í sjó ám og
vötnum.« Forseti kosinn Hannes
Hafliðason.
Lausn frá prestskap hefur sjera
Benidikt Kristjánsson á Grenjaðar-
stað fengið. Umsóknarfrestur urn
brauðið til 10 apríl.
því. Máske lögjafarnir okkar fuini
nú einhver ráð við þessu böli og
fleiru slíku. Þeir eru nú að streyma
til þingsins, þar á meðal margir
góðir drengir, sem treystandi er til
að verða nú fósturjörðinni þanir,
henni veitir ekki af, cf hún er
eins beinaber og Hjálmar gamli
sagði. Pólitiskur fundur vai hjer
nýl. haldinn, mætti þar annar þing-
maðurinn okkat (1. þ;n. Norðurms.)
getið þjer fengið upplýsingar um
fundinn hjá tjeðum þingmanni, því
hann stakk á sig fundargerðinni, en
langt er frá að jeg kunni hana utan-
að. Á morgun eigum við von á
að sjá reyk upp úr gufuskipi —
Vestu —- hafandi ekki sjeð annan
reyk en upp úr eldhússtrompum í
hálfan þriðja mánuð.
Þorrablót hjeldu konur hjer all
myndarlegt, allskonar fögnuður á |
borð borinn, jetið úr splunkurnýum |
trogum, haldnar margar ræður,
sungin tnörg kvæði — sum ný-
samin kveðnar rínmr dansað og
drulcið N15 kaffi etc. etc.
Um nýársleitið glöddu nokkrár
konur öll staðarins börn og for-
eldra þeirra með vel skreyttu jóla-
trje og góðum veitingum.
Ofurlítið er byrjað hjer sattt-
skotum til Jóns Sigurðssonar, útlit
fyrir áð hjer safnist það sem tilskilið
er í hlulfalli við fólksfjölda.
Enginn nafnkunnur maður hefur
dáið hjer í vetur og fremur gott
heisufar. Presturinn okkar sjera S.
P. Sivertsen á Hofi fjekk mjögsjæma
blóðeitrun í vinstri hönd nokkru
fyrir jól, er nú á góðum batavegi.
Engin slis hafa orðið ef veðrum
nje fjárskaðar svo teljandi sje.
Svo ekki fleira í þetta sinn.
Óska yður og blaði yðar góðs
árs. G.
BEST OG ÓDÝRAST PRENTAR
PRENTSMIÐJA D. ÖSTLUNDS
Ekkert tekurfram og ekkert jafnast við
Hafnia óskattskyldu öltegundir
Góður afli í Sandgerði. Útgerð
Mattíasar Þórðarsonar hefur þar 4
mótorbáta og áttæring einn.
Silfurbergsnámur, 5 eða 6 að
tölu sagði M. Blöndahl, í þingræðu
í gær að væru í landinu. Ein hin
stærri er í Borgarfirði.
Skipstrand. Aðfaranótt 21. þ.
m. strandaði þýskur botnvörpungur
»Brema« á Skógarfjöru undir Eyja-
fjöllum. Sjö menn af skipshöfninni
druknuðu, og voru þar allir yfir-
menn skipsins, en 5 var bjargað.
með ábyrgð langt fyrir neðan áfengistakmarkið.
Export Dobbeltöl
Export-Skibsöl
Krone- & Pilsneröl
Lys og mörk Skattefri
Malt- & Maltextraktöl
Aðeins ekta þegar nafnið Haf nisi oji' á trniðanum.
Vopnafirði 31.jan.
Hr. ritstjóri!
Þjer óskið frjetta hjeðan blaði yðar
til handa. Fátt skeður niarkvert hjer
á útkjálkum.engir bardagar nje blóðs-
úthellingar, stórslis nje drepsóttir,
engin eldgos nje undur, eftir verður
þá aðeins að tala um það hvers-
dagslega svo sem tíðarfar og afla-
brögð etc. Tíðin hefur verið um-
hleipingasöm, en þó ekkimáttslæm
kallast og ekki hafa bændur, til þessa
eytt miklu heyi; mjög lítill snjór
hjer á láglendi. Fiskiafli enginn
enda aldrei róið. Flestir eru hjer
atvinnulausir um þennati tíma eins
og víða mun í kauptúnum, og er
það skaði og skemd á mönnum —
þyrfti á einhvern hátt að bæta úr
Biðjið kaupmann yðar um öíteg vorar.
Hlutafélagið
Kjöbenhavns Bryggerier & Malterier.
í verzlun Jörgens Þórðarsonar,
Spítalastíg M 9, fást flestallar nauðsynjavörur með góðu verði,
svo sem:
Kaffi, Sykur, Exporf, brenf og malað kaffi, Hveiti,
Grjón, Haframjöl, Rúsínur, Sveskjur, Kúrenur, margs-
konar Brauð, Chocolade og Cacao, Vindlar, Rjól,
Reyktóbak og Cigarettur. Ennfremur Bakaríisbrauð.
Skorið Neftóbak s i gt a ð, Viking-mjólk og niður-
suðumatur, Sódi, Sápa góð og ódýr Steinoiía o. m. fl.
Areiðanleg viðskifti, komið og kaupið.
Virðingarfylst.
JÖRGEN ÞÓRÐARSON.