Vísir - 01.03.1911, Síða 2

Vísir - 01.03.1911, Síða 2
30 V I S I R Stór m ?et.rar- C/ er nýbyrjuð í verzluninni DAGSBRUN Afs'á?"r 10-50 af ollu o o misfellur á framgangi þess máls í þinginu sakir ónógs undirbúnings. Ráðherra hefir dvalið langvistum erlendis, suður í Danmörk og er ekki annað sjáanlegt, en það hefði verið ráðherra skyldara starf að undirbúa þessi lagafrumvörp og önnur — held- ur en að leggja þá virðing á Skræl- ingjafjelagið að sækja þar fund og hlýða á marklaust þref um íslands- mál, því að þau eru gersamlega óvarðandi það fjélag. Það er ekkert forum fyrir þau nje tyrir ráðherra fslands til þess að ræða þau þar. — Það er og ráðherra ís- lands óskylt starf að halda fyrirlestra við lýðháskóla á Jótlandi, enda mun leika á tveim tungum hverja veg- semd landið hefir af því haft. Þetta undirbúningsleysi frumvarp- anna og annað athafnaleysi stjórnar- innarstafaraðminstakosti að nokkru leyti af heilsulasleika ráðherra. Það er kunnugt, að hann hefir verið las- burða tírnum saman síðan hann komst í þessa stöðu, enda er hann orðinn þreyttur af miklu starfi og nokkuð hniginn að aldri. Vill það oft verða þegar miklir starfskraftar takast á hendur annarlegt verksvið á gam- als aldri, að þeir njóta sín miður en ella og vafalaust er þetta undirrótin margs þess, er eg hefi talið ábótavant í fari ráðherra. Það er rjettmæt afsökun, það sem hún nær, en ekki fullnægjandi, því að þjóðinni er það nauðsynlegt.að æðsti valdsmaður hennar hafi nokkurn- veginn óskerta krafta og sje í fullu fjöri. Eg hefi þá fariðyfir helstu atrið- in, sem mjer mislíkar í framkomu ráðherra utan-lands og innan. Vona eg, að af þessu megi verða Ijóst, að eg hefi — frá mínu sjónarmiði — fulla ástæðu til að stuðla að því, að ráðherra leggi niður völd og að það eitt er skylda mín, ef eg vil vera tryggur mínum málstað og flokks þess, sem nú er í meiri hluta. Það er sjálfsögð skylda hvers manns að fylgja fremur málstaðnum en mann- inum, þar sem fylgi við hvorutveggju getur ekki farið saman. Erindi til þingsins. (s. u. = sækir um.) 47. Sjera Sigtryggur Guðlögsson s. u. 1200 kr. árl. til unglinga- skólans á Núpi í Dýrafirði. 48. 53 og 54. Erindi frá ýmsum yfirsetukonum um launabætur. 49. Vestur ísfirðingar s. u. 1500 kr. til minnisvarða Jóns Sigurðsson- ar á Rafnseyri. 50. Guðm. Hjaltason s. u. 500 kr. árl. til að halda alþýðlega fyrir- lestra hjer á landi. 51. Einar Árnason, Miðey s. u. 1500 kr. hvort árið til vjelabátsferða milli Vestmannaeyja ogRangár- sands og að ógoldnar 1000 kr. af áður veittum styrk verði borg- aðar á næsta ári. 52. Karl Sveinsson s. u. 1000 kr. hvort árið til framhaldsnáms í Mittweda. 55. Ingunn Loptsdóttir, prestsekkja s. u. 300 kr. á fjáraukal. 1911 og fjárl. síðan. 56. Þorv. Pálsson, læknir s. u. 2000 kr. árl. til þess að stunda sjer- greinar nokkrar í læknisfræði. . 57. Erindi frá Birni Þorsteinssyni í Bæ um brúargerð Hvítá. 58. Magnús Einarsson dýral. leggur til að alþingi gefi próf. dr. C. O. Jensen 2000 kr. í heiðurs og þakklætisskyni fyrir starf hans í þágu landsins. 59. Presturinn á Kvennabrekku s. u. 2000 kr. til að byggja upp bæjarhúsin á prestsetrinu. Konungur vor er í ferðarundir- búningi til Svíþjóðar. Kemur það- an aftur 11. þ. m. Fyrr en þá verður ekki skipaður hjer nýr íslands- ráðherra. í bankaransóknarnefnd hefur efri deild alþingis kosið þá. Lárus H. Bjarnason Sigurð Stefánsson, Ágúst Flygenring, Sig- urð Hjörleifsson og Stefán Stefáns- son. í neðri deild voru kosnir í gær til sarna starfs: Bened. Sveinsson, Jón Ólafsson, Jóh. Jóhannesson, sra. Hálfdán og Jón á Hvanná. Úr bænum. Skipafrjettir. E/s Ceres fer á tnorgun til Vest- fjarða. Var í gær í Hafnarfirði. E/s Ingólfur fór í morgun til Garðs. Áætlunarferð sína frá í gær. Brilloin, frakkneski ræðismaður- inn hjer, fer væntanlega alfarinn hjeðan til Mexiko innan skamms. í hans stað er væntanlegur með Botníu næst, annar frakkneskur mað- ur að nafni Blanche, sem hefur verið ræðismaður Frakka í Noregi. YerðlaunaYísan. Vildi þingið velja mig völdin skyldi jeg brúka Besti botninn: til að kúga og kvelja þig kjarki og frelsi Ijúka. Júlíus Ólafsson Frakkastíg 12.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.