Vísir - 01.03.1911, Síða 3
V I S I R
31
‘Jvi úttoft&vim.
íslenskur uppfundninga-
maður.
í Heimskringlu frá 12. jan. er
getið um að landi vor Jón Ouðm.
Björgvin Johnson í Taconia, Wash-
ington, hafi fundið upp einkar hag-
anlega eldgrind í gufuvjelar, álítur
hann, að hjer sje að ræða um hina
merkustuumbæturágufukötlunum frá
því þeir voru uppfundnir. Hann
hefur fengið einkaleifi fyrir upp-
götvun tinni i Bandaríkjunum.
Jón G. B. Joþnson er fæddur 22.
júni 1881 í Hrisdal í Miklaholtshr.,
Fór hann vestur árið 1888 með
móður sinni.
Til Vesturheinis. Spán
verjar fara nú hópum saman til
Vesturheims og er það stjórn lands-
ins hið mesta áhyggjuefni. Nýlega
hafa allir íbúar í þorpi nokkru er
Calcena heitir sótt utn fararleyfi.
Þeir eru 800 saman og fyrir för-
inni borgarstjórinn, læknirinn og
lyfsölumaðurinn. Hyggja þeir að
fara til Argetínu. Landstjðrnin hef-
ur sent erindreka sinn til þorpsins,
og á hann að telja þá af förinni.
Blóð Játvarðar VII. I
blaðinu La Gasette medicale de Paris
er þess geti að enskur vísinda-
maður hafi rakið ætt Játvarðar í því
skyni að reikna út ætterni hans, og
hafði hann komist að þessari nið-
urstöðu:
Af hverjuni 4056 blóðdropumer
1 enskur og komin frá Margrjetu
Tudor drotningu Jakobs IV skota-
konungs, 2 dropar af frönsku blóði !
frá Mariu Stuart, 5 skoskir frá
Jakobi IV og Darnley greifa sem
átti Mariu Stuart, 8 danskir og 4040
þýskir.
Stærsta neðansjáfar-
skip hljóp af stokkunum 2. f. m.
í Cherbourg. Það er 1100 smá-
lestir að stærð og heitir »Mariette*.
Landmandsbankinn greið
ir hluthöfum í ár 8°/0, hefur svo
verið 4 síðustu árin. Tapað fje á
árinu 1910 talið í reikn. 771000 kr.
Bankadisconto var 15. þ. m.
Amsterdam 3x/2 Lundúnum 4
Berlín 41/, Madrid '3l/2
Kbh. 5 París 3
Krístjaníu 41/, Stokkholm 4*/2
Lækkaði 6 febr. í Berlín úr 5%.
Heimssýningin íBryssel
varð í 1446000 franka tapi (»undir-
ballans«). Ríkið borgar 1 miljón
af því, en sýningarnefndin verður að
sjá fyrir því sem þá er eftir.
Á Prússlandi eru nú eftir
manntalinu 1. des. síðastliðinn
40157573 tnanns, hefur þar fjölgað
um nærri þrjár miljónir á síðustu
5 árum.
Umbætur á almanakinu.
Það nýmæli var borið fram í
þingi Breta 18. f. m. að gerðar
væru verulegar breytingar á al-
manakinu. Eiga að vera í ár-
inu 364 dagar eða í hverjurn árs-
fjórðungiQl dagur.Tveirfyrri mán-
uðir ársfjórðungsins hafa 30 daga
en hinn þriðji 31 dag. Auka-
dagur er árlega einn, er hann
fyrir 1. janúar og heitir Nýárs-
dagur, en þegar hlaupár er, er
annar aukadagur milli síðasta(31.)
júní og l.júlí.og heitir sá hlaupárs-
dagur. Við þetta bera vikudag-
arnir ætíð upp á sömu mánaðar-
dagana og er það hið mesta hag-
ræði.
Páska dagur sje 14. apríl og
jóladagur mánudaginn 1. ágúst.
Kaupmenn og iðnrekendurtaka
þessum breitingum mjög vel.
aj tatxd\.
Stúlka hvarf. Gaðrún Helga-
dóttir búandi ájörfa í Húnavatns-
syslu fór fyrir nokkru á stað til
næsta bæjar, en kom aldrei þang-
að og hefur ekki til hennar spurst
síðan. Menn ætla að hún hafi
dottið um ár ís (á Dalsá) og
drukknað.
Snjór afar mikiil á Holtavörðu-
heiði, segja menn nýkomnir að
norðan.
Námarf Rauðukömbum. Frakk-
neskt fjelag ætlar að reyna námu-
gröft í Rauðukömbum. Hefur
verið falað afrjettarland þar all-
mikið.
Alberti til Horsens.
----- Frh.
Klukkan 6 morguninn eftir reis
Alberti úr rekkju og þvoði sjer
og bjó sig vendilega. Um kl. 7
kom britinn með morgunmatinn,
en það var nautasteik og steikt
egg, pilsner og brennivín.
Aiberti borðaði steikina með
góðri lyst og drakk ölið en brenn-
ivínið vildi hann ekki. Hann er
orðinn mjög hófsamur í drykk
og gætir þess vandlega að óregla
konist ekki í magann, eða að sjer
verði kalt, og gætir heilsunnar í
hvívetna.
Undir borðum tók hann glas
sitt og hjelt ræðu þessa:
Herrar mínir! Par sem þessi
máltíð er ef til vill hin síðasta,
sem við neitum saman, þá nota
jeg tækifærið til þess að færa
ykkur margfaldarþakkir fyrirgóða
viðkynningu og vinsemd þá, sem
þið hafið auðsýnt mjer í öllu á
ferðinni. Mjer hefur verið sönn
ánænja að ferðast með ykkur.
Síðan var glösum klingt. —
Lögregluþjónarnir urðu altaf
meira og meira hissa. Pessi fang-
aflutningur var allur annar en
þein höfðu áður þekt. Aldrei
fyrri hefur nokkur sýnt slíka still-
ingu rjett fyrir utan fangelsirdyrnar.
Síðast var drukkið kaffi.
—Gefið mjer bolla af sterku
svörtu kaffi, sagði Albertí, það
er síðasta ósk mín. Síðustu 30
árin áður en eg fór í fangelsið
drakk jeg svart kaffi, það er sagt
að maður ljettist við það.
Eftir máltíð gekk Albertí um
gólf í borðsalnum en leit smám
saman út um gluggann.
Nú erum við að sigla inn fjörð-
inn, þarna fyrir handan er Pals,
þar hefi jeg verið oft áður, það
er fallegt þarna á sumrin, finst
ykkur það ekki.
Hann fór sýnilega að verða
órólegur eftir því sem nær dróg.
Pegar svo nálægt var komið að
höfnin sást vel, sagði hann við
gæslumenn sína. — Haldið þið
að það sjeu margir við skipa-
bryggjuna?
Hann var stöðugt að gá út um
gluggann og snögglega varð hann
bleikur sem lík og sagði með
titrandi röddu:
Þarna er alveg svart af fólki.
Ætli þeir hrópi skammaryrði eftir
mjer, þegar eg stíg í land?
Nei, það gera þeir vissulega
ekki, sögðu lögregluþjónarnir
hughreystandi, við skulum sjá
um, að þjer komist fijótt og lag-
lega í land.
Alberti tifaði fram og aftur um
gólfið, meðan verið var að festa
Iandfestarnar. NI. næsL