Vísir - 03.03.1911, Side 3
V I S 1 R
35
*Jra útöötvdum.
í Honduras hafa uppreistar-
mer.n tekið tvær borgir á vald sitt
og borið sigur úr býtum í öllum
smáorustum. Búast |reir við að taka
liöfuðborgina innaii skamms.
Frá Mexikc er að frjetta
óeyrðir miklar, og veitir stjórninni
örðugt að sefa þær. Skæðar orust-
ur nær daglega og veitir ýmsum
betur.
öppreist var í Brasilíu um
nýárið, en var bæld niður í fæðingu
með mestu grimd. Þannig voru
300 uppreistarmenn skotnir 21. jan.
án þess að mál þeirra væri ran
sakað. Þessi óvanalega grimd mæl-
ist hvervetna illa fyrir.
Skauiakapphlaup. Dag-
ana 11. og 12. f. m. fór fram al-
þjóðakapphlaup á skautum í Krist-
janfu og vann Rússinn Strqnnikov.
Hann fór
500 stikur á 45,1 sek.
1500' — á 2'—23,S”
5000 — á S'—42,9”
10000 — á 18'—11,8”
Fyrir vestan landslög og rjett.
Eftir Fjallkonunni.
Með yfirskriftini »Norðmenn
með dönskum þegnrjettindum«,
flytur norska blaðið »Tidens
Tegn« grein nýlega með þeim
frjettum frá Haugasundi, að skipa-
eigendur þar og víðar í Noregi,
sem hafa skrásett skip á íslandi,
hafi gert ráðstafanir til að taka,
þau til baka til Noregs, þar sem
hlunnindi þau, sem skipin njóti
með því að fiska innan landhelgis
við strendur íslands sjeu ekki svo
stór að þau vegi í móti tapi því,
sem þeir liafa af að geta ekki
látið skipin ganga til herpinót-
veiðar við Haugasund yfir vetrar-
tímann.
Þeim sem hafa einhverja vit-
neskju um. síldveiði Norðmanna
þessi tvö surnur undanfarin, mUn
ekki koma þetta á óvart, og
reyndar er ekki hægt að kasta
þungum steini á þá, sem að
nafninu hafa skrásett skip fjjer,
þótt þeir vilji spara sjer þfenn
óþarfa, þar sem þeir sjá, að allir
Norðmenn og aðrar þjóðir fiska
umtalslaust í landhelgi.
Það er ekki svo aö skilja, að
iFBEÁCtÐS&OÐTJ
era nii aftur komnar í
YERZLUMA
v
ff
þeir ætli að hætta að koma upp
til íslands, heldur munu koma
fleiri í sumar en undanfarið.
Það þóttu tíðindi allmikil sum-
ariö 1909 þegar »Valurinn« kom
dragandi inn allan Eyjafjörð
skúturæfil sem »Substað' átti og
sem aldrei hafði fengið bein úr
sjó. »Hjer mun Guðlaugur sýslu-
maður gera holskurð«, sögðu
menn. Skútan var ekki skrásett,
það var nokkuð sem var víst,
þó að eigandinn væri íslenskur
borgari. Pað var talsverður móð-
ur í þjóðinni! En svo sletti í
dúnalogn, þegar frjettist, að sýslu-
maður hefði ekki getað »statuerað
exempeK því að »bútarnir voru
merktir« og þetta þjóðráð að
: merkja bátana ætti rót sína að
rekja til Friðriks Kristjánssonar,
átrúnaðargoðs Norðmanna og
Akureyringa, sem þá var.
Petta var nú einasta meistara-
stykki af strandgæslunnar hálfu
í þá átt að sekta það sumar og
í sumar sem leið veit jeg ekki
til að nokkur hafi verið sektaður
af »Valnum«, þótt maður viti með
vissu, að öll eða mestöll síld
hefur verið tekin í herpinætur
fyrir innan landhelgislínuna.
Pað er vonandi að íslenska
þjóðin sjái sóma sinn og verði
ekki lengur fífl í augum útlehd-
inga. Peir íslendingar, sem hafa
verið við veiðina og sjeð aðfar-
irnar, eru -vonandi samdóma mjer
um, að þetta megi ekki viðgang-
ast lengur. Og það er ekki að
búast við, að þeir íslendingar
klagi, sem fiska sjálfir, því að
þeir hafa ekki tíma til að standa
í rjettarhöldum og svardögum.
Pað væri reynandi fyrir stjórn-
ina að gera út mótorbát meðdug-
legu yfirvaldi til þess að gæta
laganna. Grunur minn er sá að
sá útvegur mundi borga sig.
Haugasundi 1911.
Snorri Snorrason.
Hugsímiim.
(Eftir Fox Russel).
Foffertstein prófessor var þýskur
vísindamaður sjerlega vitur og lærð-
ur inaður — en vanalega þjáðist
hann af þeim leiða kvilla, er hann
nefndi vasatómleik. — Hann sat nú
heima hjá sjer og renndi hýrum
ástaraugum til seinustu uppfundn-
ingarinnar sinnar, og fór svo aö
bera blek í sprungurnar á skónum
sínum.
Þessa uppfundningu sína, er hann
nefndi »hugsímann« vonaði hann
að geta selt fyrir svo mikið fje, að
hann gæti lifað það sem eftir væri
æfinnar á fleski og feitu keti heima
á sinni kæru feðragrund. Lengi
hafði hann árangurslaust gengið
milli auðmannanna, til þess að reyna
að vekja áhuga þeirra á fyrirtæki
sínu —, en nú loksins þóttist‘hann
viss uin að hafa hitt á rjetta ifiann-
inn.
Maðurinn var Halkin Bulpett, al-
þektur auðkýfingur í »City«, og
Foffenstein prófessur bygði nú allar
framtíðarvonir sínar á þessum dýr-
mæta manni. Prófessorinn þurfti
að bíða i 10 til 20 r-ínútur í for-
^stofunni hjá auðmanninuin áður hon-
um væri vísað inn. Þegar inn kom
hneigði auðmaðurinn höfuðið að-
eins lítið eitt og fremur þurléga,og
gerði prófessornum bendingu með
hendinni, að hann gæit tekið sjer
sæti.
Já — prófessor minn. — Jeg er
önnum kafinn, svo að jeg verð að
biðja yöur að ljúka erindi yðarsvo
fljótt sem unt er sagði auðmaöur-
inn í hátfðlegrlrn róm. Frh.