Vísir - 07.03.1911, Qupperneq 1
Kemur út virka daga kl. 11 árdegis,
nema laugardaga kl. 6 síðd.
Þriðjud. 7. mars. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,39*
Háflóð kl. 9,52 árd. og kl. 10,28* síðd.
Háfjara kl. 4,4* síðd.
Afmæli.
Frú Margrjet Blöndal, 29 ára.
Heimspekisfyrirlestur Guðm. Finnboga-
sonar í kvöld. Þetta er næst síðasti
fyrirlesturinn og er um skáldskapinn.
Veðrátta í dag.
. Loftvog in Vindhraði Veðurlag
Reykjavík 740,8 -4- 4,9 A 5 Regn
ísafj. 739,5 U 5,2 S 9 Regn
BI.ós 742,7 h 3.9 ASA 6 Skýjað
Akureyri 747,1 - 4,3 SSA 2 Skýjað
Grímsst. 712,3 - - 0,8 S A 7 Skýjað.
Seyðisfj. 757,2 - 1,0 0 Skýjað
Þórshöfn 765,1 f 2,1 ssv 2 Skýjað
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A■= aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Næsta blað á morgun.
Úr bænum.
Skipafrjettir.
E/s Mjölner fór í gærkveldi til
útlanda.
E/s Súlan, lýnuveiðaskip af Akur-
eyri, kom hingað inn í gærmorgun.
Hafði hreppt sjóa mikla og mist út
tvo menn.
Utlent botnvörpuskip varð fyr-
ir stórsjó í Eyrabakkavík 3. þ. m.
Misti það 1 mann en 6 limlestust,
eru þrír þeirra komnir á sjúkrahús
hjer.
Kolaskip kom í morgum til
Timbur og koiaversl. Reykjavík.
Björgunarskipið Qeir kom í
morgun að austan.
E/s Ceres er á ísafirði í dag.
E/s Sterling væntanl. í nótt.
25 blöð (að minsta kosti) til marzloka.
Eintakið kostar 3 au.
og með honum skipbrotsmennirnir
fimm af »Brema« (7 druknuðu, svo
sem áður er sagt frá).
Brunabótavirðingarþessarvoru
samþyktar á bæiarstjórnarfundi 2.
þ. m.:
Hafnarstr. 23 B (Jes Zimsen) —
30875. Hafnarstr. 23 (Jes Zimsen)
— 8140. Laugav. 12 (Jón Sigurðs-
son o. fl.) — 1667. Laugav. 52
(Björn Stefánsson) — 8114.
Fyrirspurn kom Kn. Zimsem
ffam með á bæjarstjórnarfundinn
viðvíkjandi málum Brilloins ræðis-
mans. Svaraði Borgarstjórinn því
að rnálir. væru undir dómi.
Prentun þingtíðindanna hefur
lengi verið áhyggjuefni prentsmiðj-
anna hjer. Nú komu þær sjer
saman um að skifta systurlega á
milli sín hvalnum. Hefur Gaten-
berg tekið að sjer skjalapartinn,
ísafold neðri deildar umræður og
Fjelagsprentsmiðjan umræður efri
deildar og sameinaðs þings.
Þjófnaður í Mjölni. Þegar e/s
Mjölnir var að fara frá ísafirði komst
upp að stolið hafði verið þar úti í
Afgreiðsla í Pósthússtræti 14.
Opin allan daginn.
skipinu á fjórða hundráð krónum í
seðlum frá einum farþegjanna. Sent
var eftir sýslumanni til þess að ran-
saka málið en hann Ieit svo á að
best væri að bíða með ransókn til
næstu hafnar Patreksfjarðar og varð
svo ekki af ransókn þar. En er á
Patreksfjörð kom vildi sýslumaður
þar einnig koma sjer hjá ransókn
'i og taldi rjettast úr því ekkert var
aðhafst þegar á ísafirði að geyma
nú ransókn þar til til Reykjavíkur
kæmi. Hjer fór svo einkvér ran-
sókn fram, en árangurslaus.
Svona er Vísi sögð sagan. Hún
er ekki áreiðanleg og jafnvel ,ótrú-
leg að því er syslumennina snertir,
mun Vísir afla sjer nánari upplýs-
inga er tími vinst til.
Frumvarp um holræsagerð
o. fl. samþykti Bæjarstjórnin á síð-
asta fundi. Þess verður minstnán-
ar bráðlega.
Ráðherrann varlaugardagsmorg-
uninn fyrir efri deildar rannsóknar-
nefndinni.
Er sagt að hann hafi gengið út
frá henni í fússi áður en búið var
að rekja úr honum garnirnar.
j as i J Tölusetninga-vjelar |
I!
í
i:
nauðsynlegar fyrir
Tombólur — — —
Lotterí
i:
I
I
I
|| Höfuðbækur —«— — — |
— — — — Aðgöngumiða
li
Afgreiðsla Yísis útvegar þær i ggggg i
Hingað komnar burðargj.fritt með verksm.verði.
Austanpóstur kom í fyrrakvöld