Vísir - 13.03.1911, Side 1
21.
15.
Kemur út virka daga kl. 11 árdegis,
nema laugardaga kl. 6 síðd.
Mánud. 13. mars 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,37'
Háflóð kl. 4,34' árd. og kl. 4,52' síðd.
Háfjara kl. 10,46' árd. og kl. 11,4 síðd.
Afm____li.
Ekkjufrú Marie Ka^fine Jónsson, 65ára.
Þorgímur Kristjánsson, cand. phil., 26 ára.
Póstar.
Hafnarfjarðarpóstur kemur kl. 12ferkl. 4.
Veðráita í dag.
Loftvog E 42 XO Cð u- JS TJ C > Veðurlag
Reykjavík 767,7 — 3,0 A 1 Alsk.
Isafj. 766,8 + 0,2 NV 1 Skýjað
BI.ós 767,1 — 8.0 S l Ljettsk.
Akureyri 763,7 - 1,2 s 3 Skýjað
Qrímsst. 727,7 — 8,0 s 3 Ljettsk.
Seyðisfj. 764,2 + 0,7 V 2 Heiðsk.
Þorshöfn 760,7 - 0,1 NNA 6 Skýjað
Skýrlngar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Á morgun.
Afmæll.
Ekkjufrú Marie Hansen 46 ára.
Sigurður Björnsson kaupmaður 43. ára.
Guðm. Loptsson bankabókari 40 ára.
Kristján A. Möller trjesm. 45 ára.
mr Síðasti heimspekisfyrirlestur mag.
Ouðm Finnbogasonar.
Næsta bfeð á miðvikud.
Frá alþingi.
Frumvarp til iaga
um
gjöld til holræsa og g ngstjetta
f Reykjavík o. fl.
[Bæjarstjórn vor er smám saman að ná
sjer í heimildir til skattaálöga og er
hjer ein. Þetta frumvarp var samþykt
á síðasta bæjarstjórnarfundi og bera
þingmenn Reykvíkinga það nú fram í
neðri deild.]
1. gr.
Þar sem bæjarstjórnin hefir Iagt
holræsi í götu, er hverjum húseig-
anda skylt að gera á sinn kostnað
25 blöð (að minsta kosti) til marzloka.
Eintakið kostar 3 au.
ræsi, er flytji alt skolp frá húsi
hans út í göturæsið. Skulu þau
ræsi ekki vera lakari að gerð en
göturæsin og gerð undir umsjón
bæjarverkfræðingsins, samkvæmt
reglugerð, er bæjarstjórnin setur um
tilhögun skolpræsa innan húss og
utan. Má í þeirri reglugerð ákveða,
að regnvatn skuli leitt í göturæsið.
Vanræki nokkur að gera þetta inn-
an hæfilegs frests, sem bæarstjórnin
setur, getur bæarstjórnin látið vinna
verkið á kostuað húseigenda.
2. gr.
Kostnaður við holræsagerð í göt-
um bæarins greiðist sumpart úr
bæarsjóði og sumpart af lóðareig-
endum.
Lóðareigendur skulu greiða:
A. 2°/0o af brunabótarvirðingarverði
húseigna, sem standa á lóð þeirra.
Sama glald skal greiða af húsum
sem síðar verða bygð við götu,
sem holræsi er þegar lagt og
sjeeldra hús rifið niður, greiðist
gjaldið af mismun virðingarverðs
húsanna.
B. 45 aura fyrir hvern meter af lengd
lóða þeirra meðfram götu, þó því
að eins, að lóðin nái fram að götu.
Gjaldið greiðist, þegár búið er að
gera holræsi í þá götu, sem lóðin
telst til.
Húseignir og lóðir, er liggja
við tvær götur, sem holræsi hafa
verið lögð í áður en lög þessi öðl-
ast gildi, skulu einnig vera gjald-
skildar eftir þessari grein, ef eigend-
urnir hafa eigi áður greitt neitt gjald
í þessu skyni.
3. gr.
Steinlímdar, hellulagðar og aðrar
jafnvandaðar gangstjettir skulu kost-
aðar að 2/« úr bæarsjóði en að 17s
af þeim, sem lóðir eiga, er teljast
til götunnar þeim mcgin, sem gang-
stjettin er.
Kostnaði þeim, sem lóðareigend-
um ber að greiða, skal jafnað nið-
ur fyrir götu hverja eða þannjjhluta
Afgreiðsla í Pósthússtræti 14.
Opin allan daginn.
götunnar, sem gangstjett hefur ver-
ið lögð í, að helmingi eftir Iengd
lóðanna meðfram götunni og að
helm. eftir brunabótavirðingarverði
húseigna þeirra, erálóðunum standa.
4. gr.
Kröfur þær, er bæarstjórnin fær
á hendur lóðaeigendum og húseig-
endum samkvæmt 1., 2. og 3. gr.
eru trygðar með veðrjetti í hús-
eignunum og hefursá veðrjettur for-
gangsrjett fyrir öllum veðskuldum
eftir samningi. Bæarstjórnin getur
veitt alt að 10 ára gjaldfrest á kröf-
um þessum, enda greiði skuldunaut-
ur þá vexti.
5. gr.
Þar sem bæarstjórnin hefur látið
gera steinlímda, hellulagða eða aðra
jafnvandaða gangstjett, skal sjerhverj-
um lóðareiganda skylt að láta hreinsa
stjettina daglegafyrirlóð sinni, samkv.
reglum, er gefnar verða í lögreglu-
samþykt bæarins. Sje þetta’.vanrækt,
getur bæarstjórnin látið vinna verkið
á kostnað lóðareiganda og sæti hann
að auki í almennu lögreglumáli
5—10 kr. sekt jfyrir vanræksluna,
er renni í bæarsjóð.
6. gr.
Bæarstjórnin getur tekið aö sjer
sorphreinsun og salernahreinsun í
öllum bænum eða nokkrum hluta
hans og má fela einstökum mönn-
um eða fjelögum að framkvæma
það í umboði sínu.
Til þess að standast straum af
kostnaði þeim, sem af hreinsuninni
leiðir, má leggja gjald á hús þau,
sem hreinsað er fyrir, eftir gjaldskrá,
sem bæarstjórnin semur ogstjómar-
ráðið staöfestir. Húseigandi greiðir
gjaldið.
7. gr.
Allar kröfur og gjöld samkvæmt
lögum þessum má takar lögtaki, sem
önnur gjöld til bæjarsjóðsins.
8. gr.
Lög þessi öðlast gildi frá stað-
festingardegi.