Vísir - 13.03.1911, Síða 2

Vísir - 13.03.1911, Síða 2
58 V 1 S 1 R Innsetning gæslustjóra til uniræðu í efri deild. Ráðherra: Álítur árangurslaust fyrir sig að tala í þessu máli, þar sem full sannanlegt mun vera, að dómur er fyrirfram ákveðinn. En á eftir sje ekki annað gert en að fegra verkið. Engin ransókn hefur farið fram af hálfu þingnefndar og því engin ástæða til innsetningar. Gæslustjórar hafa langsamlega brotið af sjer. Ekkert gagn gert, heldur mjög mikið ilt. Bankaþjónar hafa keypt víxla fyrir 140 þús. kr. Samkv. skýrslu ranns.nefnd. er tap- ið áætl. 400 þús. kr. Annar gæsiu- stj. hafi kannast við tap á 2 hdr. þúsund Þetta óhrekjanlega saman- lagt Glataðir víxlar 6000 kr. fyrir hirðuleysi. Höfðu verið geymdir í ólokuðum kassa í ólokuðu herbergi, og gátu verið stolnir af bankaþjóni. Gæslustj. hafði þrjóskast við gerða- bókahald. Hafa aldrei haft þekk- ingu á bankamálum. Með því að þröngva þeim þann- ig inn var sýnt banatilræði við rjettlæti og rjettvísi í landinu. Kristján Jónsson: Þessi ræða kom öll á afturfótunum að svo miklu leyti sem hún kom áður en málið var reift. Hún er áframhald af hinni látlausu ofsókn sem hann hafi orðið fyrir síðustu 14 mánuði. Um víxlana sje það að segja að engin sök sje þar hjá gæslustjórum. þeir sjeu aðeins að litlu leiti fram- kvæmdarstjórn. Hafa samkvæmt lögum aðeins eftirlit og gert alt það sem þeim var skylt samkvæmt lögum og reglugerð, og vísar til skýrslu þeirra gæslustjóranna. Að bankinn hafi tapað sje kanske rjett en alls ekki sannað að sje að kenna vísvitandi trassaskap gæslustjóra en þess þyrfti áður en það væri skil- yrðislaust fullgert. Hann fullyrti, að tap bankans hafi ekki fariðfram , úr 30 þús. kr. í árslok 1909, og sje það lítið í samanburði við tap dönsku bankanna og það þó að til- tölu sé talið. Tilgangur bankns að efla hina veiku atvinnuvegi þessa lands, sje alveg sjerslakt verkefni þessa banka. En það sjeu hreinustu ósantiindi að hann hafi nokkru sinni nefnt 200 þús. kr. tap. Hann hafði áður sagt við hina dönsku bankamenn, að bankinn kynni ksnske að tapa einhverju, ef til vill upp af 200 þús. kr., en það væri mjög komið undir árferði og stjórn hans. Það væri skylda starfsmanna bank- ans ásamt endurskoðendum aðgæta að eign bankans. Endurskoðendur eigi að sannreyna hvað sje í vörsl- um bankans tvisvar á ári. Ávísanatapið mun vera aðeins reikningsvilla og neitar að hafa sínt þrjósku við stjórnina. Komið kurt- eislega fram við hana, en uni gjörða bók hafi hann talað við ráðherra og hann hafi sagt að svo mætti vera til nýárs. Loks getur hann þess að hann muni hafa eins mikið vit á bankastörfum sem ráðherra og töluvert meiri reynslu, þarsemhanti hafi verið við þessi störf í 11 ár. Ráðherra: Kr. J. talar um látlausa ofsókn við sig, en það er öfugt, Kr. J. og hans flokkur hafa ausið sig auri og æst ntenn gegn sjer: Ofsóknin við banka- stjórnina aðeins sú að þeir voru Iátnir leggja niður starf, sem þeir voru alls ekki færir um fyrirtrassa- skap og kæruleysi. En ofsóknin gegn sjer þannig verið að ef þeir kæmu fram máli sínu myndi það truflaalla stjórn. Bíræfnislegósannindi að segja að nokkurt orð hafi verið hrakið af skýrslu rannsóknarnefndar. Eftirlitaleysið með víxlasölu banka- starfsmanna sjáist glöggast á þvíað á meðan annar gæslustjóri varfram- kvæmdarstjóri, hafi verið selt fyrir 40 þús. krónur víxlar af þeim, svo hann vissi ekki af nema 1 eða tveirn. Bíræfni aðsegja tapið stafi af aðstöðu bankans gagnvart atvinnuvegunum. Umsögn Kr. J. um viðræður við dönsku bankastjórnina sje ekki að trúa. Menn trúi ekki sakborning- um, heldur hinum dönsku banka- mönnum. Víxlasalan á ábyrgð allrar bankastjórnarinnar, en aðal- sökin sje að þeir kyndu þessu og sleptu úr reikningnum. Hann hafði ekki borið sína bankaþekkingu sam- an við hans heldur hans þekkingu saman við bankafróða menn. En gæslust. vissu aldrei hvað þeiráttu að gera nje neitt í starfi sínu yfirleitt. Launin þótti þeim lítil þó sæmi- leg prestlaun væru og mjög rífleg þóknun í samanburði við vinnu þeirra. Enn töluðu L. H. B. og Sigurður Hjörleífsson. Fundi slitið kl. 3^4 og settur aftur kl. 5. KL 5 var fundur settur. Forseti gat um, að heyrst hefði, að útnefndur væri ráð- ráðherra gegn vilja meirihl. þjóðkjör- inna þingmanna. Nokkrirþingmenn höfðu beðið um fundarfrest. L. H.B. vildi tala um þingsköpin. Forseti tók afhonum orðið, en erþað virtist ekki hrífa, gerði forseti fundarhlje hálfan tíma. Konungur hefur beðið dómstjóra að taka við ráðherraem bætti n u. Dómstjórinn tekst það á hendur og tekur vænt- anlega við stjórnartaum- □ m í fyrramálið. *\Uaw aj lan&v. Iðnsýningá ísafirði. ísfirðingar leggja drjúgan skerf til sýningarinn- ar hjer bæði að munum og svo hefur sýslan veitt fje til hennar. Áður munirnir fara frá ísafirði (líkl. 11. júní) verður þar sýning haldin á þeim. Er það sú sýning, sem blöðin hafa minst á Benecjikt Blöndal umboðsmað- ur frá Hvammi andaðist að heimili sinu Brúsastööum í Vatnsdal föstu- dagsmorguninn. Hafði verið mörg ár sjónlaus, en í kör síðustu árin. Hinn mesti maður og þjóðkunnur. Skálholt keypt. Neðri deild hef- ur s mþykt að heimila landstjórn- inni að kaupa biskupssetrið forna. Námarjettindi. Um allar jarðir nærlendis er nú verið að kaupa námarjettndi i handa útlendingum. Samningarnir eru þann veg flestir að seljendur eru bundnir við nann í 2 ár en kaupendur fáusir. Það er að segja upphæð er samið um, sem kaupandinn fær námana fyrir ef hann vill, innan tveggja ára. Námarjettur að .Elliðavatni hefur þannið verið seldurfyrir 60 þúsundir króna að Gröf fyrir 50 þús. að Reykjum fyrir 150 þúsundir o. s.frv. Um allan Borgarfjörð er nú ver- ið að fala námarjett. Við undirskrift er víst sjaldan eða aldrei borgað neitt og getur þetta þá orðið aðeins tveggja ára haft á eigninni. Miðdalsnáman. Enski náma- fræðingurinn sem kom um daginn til Miðdalsnámunnar hefur unnið ! þar í tvær vikur með 8 mönnum

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.