Vísir - 17.04.1911, Side 2

Vísir - 17.04.1911, Side 2
38 V í S I R suður er hausta tekur næst (vorið 1912). Iðnaðarsýningin í Reykjavík. Iðnaðarsýningin stendur nú fyrir dyrum. Aðeins 2 mánuðir þar til hún hefst og hefur verið furðu hljótt um hana nú um tíma. Hjer hefur verið einu sinni áður iðnaðarsýning, það var 1883 og stóð hún yfir í 18 daga, 2.—19. ágúst og þótti furðu gegna hve myndarleg hún var. Þá voru menn að öllu leyti ver settir til sýningar- haldsins, og er nóg að nefna hús- rúm og flutning á sýningargripum. Á þá sýningu voru sendir 325 gripir og var það raunar mest úr Reykjavík og nágrenni hennar eða rúmur helmingur að tölunni til. Annars var sent úr Þingeyjarsýslu og Eyjafjarðarsýslu töluvert og úr Þingeyarsýslu kom dýrasti gripurinn, sem var stofuskrá, virt á 400 krón- ur og hafði hana gert Magnús bóndi Þórarinsson á Halldórsstöðum er hún hið merkilegasta smíði — þessi skrá verður aftur á sýningunni í ár. — Á sýningunni var einnig orgel eftir Helga snikkara Helgason og var það hið fyrsta er smíðað hefur verið hjer á landi og margir voru þar góöir gripir. Verðlaun voru veitt fyrir hið besta smíði og hlutu 31 minnispeninga úr silfri 32 minnis- peninga úr kopar og 56 heiðurs- brjef. Ekki varð þó þvf við komið að úthluta þeim verðlaunum meðan á sýningunni stóð og voru þau ekki afhent fyr en árið eftir. Aðgöngueyrir sýningarinnar var 25 aurar og sóktu hana um 1350 manns. Þegar þessari sýningu lauk var mjög talað um hve þarfar slíkar sýningar væru og hugsuðu menn sjer að þær yrðu haldnar stöðugt framvegis á fárra ára fresti. Var aðallega talað um 10 ár, en hinir bráðlátari vildu ekki bíða nema 5 ár. Þó dofnaði áhuginn þegar frá leið og fjell málið alveg niður. Það sem fyrst er vakið máls á sýningu þeirri sem nú er í undir- búningi mun vera grein í ísafold, skrifuö í janúar 1904 af Jóni snikkara Halldórssyni, sem þá var í Kaupmannahöfn. Fór hann fram á ð byrjað væri á árlegum sýningum á prófsmíði iðnnema og kom hann því í framkvæmd, er hann kom upp til landsins, og hafa þær sýn- ingar verið haldnar hjer árlegasíðan. Frh. at\>\w$\. Tolllögin. Nefndin í n. d. leggur til að allir óáfengir drykkir verði tollaðir. Límonade og samskonar drykkir 10 au. hver mælir (lítri) og aðrir óáf. drykkir50 au. hvermælir. Kaffitollur hækki um 4 au. á pundi, sykur tollur og síróps um 2 au. (verði 15 au.) og kakaotoilur hækki um 4 au. Fánamálið. Nefndin í n. d. leggur eindregið með frumvarpinu (það er prentað í Vísi 17. f. m.) Þingtíminn er framlengdur tll loka þessa mánaðar. Aðf 1 utn i ngsban n sf restu n i n. Nefndin (í efri deild) hefur komið fram með álit sitt. Vilja þrír nefnd- armenn að frumvarp sjera Sigurðar verði samþ. með þessum viðauka, til skýringar: »Að því er kemur tii aðflutnings á áfengi inn í land- ið«. L. H. Bjarnason vill að frest- unin sje aðeins eitt ár (til 1. jan- 1913) og Sig. Hjörleifsson vill fella frumvarpið. Báðar þingdeildir taka til starfa á morgun. / efri deild er til umræðu: 1. Bannlagafrestunin (2. umr.) 2. Reykja- víkurhöfn (2. umr.) 3. Kjötmerking (i. umr.) 4. Verslunarbækur (1. umr.) 5. Veðdeildarlagabreyting (1. umr.) og 6. Dánarskýrslur (1. umr.). / neðri deild er: 1. Fátækralögin (3. umr.) 2. Prentsmiðjur (3. umr.) 3. Holræsamálið (3. umr.) 4. Toll- lagabreyting (2. umr.) 5. Borgar- stióramálið (2. umr.) 6. Stýrimanna- skólinn (3. umr.) 7. Hreindýrafriðun (3. umr.) 8. Fáninn (frh. 1. umr.) 9. Farmgjaldið (2. umr.) 10. Ráð- herraeftirlaunin (1. urnr.) 11. Þings- ályktun um guðsþakkafje (1. umr.) Ur bænum. Dáinn á skírdag Sveinn kaupm. Sigfússon eftir langa legu. Gefin saman á miðvikudaginn O. P. Blöndal póstafgreiðslumaður og ym. Hedvig Bartels. íþróttasamband Reykjavíkur hefur nýlega (12. þ. m.) farið þessá leit við marga helstu borgara þessa bæar, að þeir gangi í sjálfskuldar- ábyrgð fyrir átta þúsund kr. láni, er það ætlar að fá hjer í banka til þess að koma upp leikvelli á mel- unum. Verður þetta nánar athugað síðar. Málverkalýning Einars Jóns- sonar endar í dag. Þar eru marg- ár myndir sem vert er að sjá. Jeg komst í handrit af Vísi og sá að afmæli málarans er í dag. Þó jeg hafi sjeð sýninguna tvisvar, þá fer jeg enn. — Kondu líka! Hrafn. Kóreusagan sú, sem nú birtist er uppáhaldssaga Kóreubúa. Skemti- leg saga og fróðleg, sem sýnir hinar einkennilegu venjur þar í landi og er mörguin talsháttum þarlendum haldið (þýddir orðrjett) þótt undarlegir þyki þeir hjer. Þetta mun vera fyrsta Kóreusagan sem birtist á íslenska tungu. Verður ekki sjerprentuð. Mtaw a$ lawdV. Straumferju sína sýndi Helgi Valtýsson nokkrumalþingismönnum og öðrum útvöldum á langafrjádag. Var hún látin ganga á Hraunholts- | læk syðra. Jeg kom þar að óboð- inn og stóð við litla stund. Helgi hjelt fyrirlestur á lækjarbakkanum og skýrði fyrir mönnum lögmál það, er ferjuútbúnaður þessi byggist á, en stígvjelaður hjálparmaður stóð í miðjum læknum og helti úr horn- inu, jafnóðum og það fyltist. Boðflenna. Afarvíðlent námaland og auð- ugt af kopar og silfri er fundið hjer nærlendis. Um það í næsta blaði. ‘Jta wVVöwdum. Merkilegur fornmenja- fundur. í rústum Samaríu, höf- uðborgar Ísraeisríkis eru nýfundnar þjettletraðar. Ieirtöflur frá dögum Ak- abs konungs (f 854 f. Kr.). Frá þessu verður nánar skýrt í næsta blaði. Loffskeyti. Nýasta og mikil- vægasta uppgötvun í loftskeytasend - ingum eru hljómneistarnir svoköll- uðu. Með hljómneista aðferðinni eru nú komið skeytasamband milli Effelturnsins í París og Glace Bay í Kanada. Það er ámóta vegalengd og hjeðan suður í Senegambíu í Afríku. BEST OG ÓDÝRAST PRENTAR PRENTSMIÐJA D. ÖSTLUNDS

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.