Vísir - 23.04.1911, Blaðsíða 1
43
12
VISIR
Kemurvenjulegaút ld.l 1 árdegis sunnud. þriðjud., miðvd. fimtud. og föstud. 25 blöðin frá 1. apr. kosta: A skrifst. 50 au. Send útunr landöOau. — Einst. blöð 3au. Afgr.íPósth.str. l4A. Opin mestan hluta dags. Óskað að fá augí. sem tímanlcgast.
Sunnud. 23. aprfl 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,26‘
Háflóð kl. 12,36' árd. og 1,16‘ síðd.
Háf]ara kl. 6,48‘ árd. og kl. 7,28 síðd.
Afmæli.
J. Jqnsson alþingismaðurfrá Múla 56 ára.
Bjarni Þórðarson frá Reykhólum 74 ára.
Ðalhoff Halldórsson, gullsmiður 70 ára.
Veðrátía í dag.
Loftvog ;£ •4-' 56 cd u. x: -cj G > OD CÖ 1 >
756,7 0,0 0 Heiðsk.
761,4 - 4,9 NA 4 Heiðsk.
760,1 -.4,0 V 1 Hríð
760,1 - 4,0 A 1 Hrið
724,0 - 6,0 N 2 Skviað
757,8 — 5,2 VSV 6 Skvjað
754,3 + 2,0 NNA 1 Hálísk
Skýrmgar:
Peykjavík
Bliós
Akureyri
Qrímsst.
Seyðisfj.
Þórshöfn
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæö er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hyassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Skarðsheiðamáman.
Hún er ekkert smáræði náman
í Skarðsheiði. Nær frá Skorra-
dalsvatniogþveraheiðina. Æðin
er um 40 fet á þykkt sumstaðar
nær 50 fetum. Oft er tilvinnandi
að vinria koparnámur þar sem
2%—3% er af koparnum, en
hjer eru 30—40% af kopar og
silfur nokkurt að auk.
Fjöldi manns hefur það nú
fyrir atvinnu sína að ná í námu-
rjettindi hvar sem nokkur von er
um að málmur eða kol finnist.
Pórður gamli á Leirá hefurverið
allmjög á undan sínum tíma er
hann fór að hugsa til hagnaðar
af málmgreftri fyrir38árum, með-
an fræðimenn vorir álitu, að hjer
gætu engir málmar verið (landið
væri of ungt). Björn Kristjánsson
núverandi bankastjóri hefur um
allmörg ár verið að viða að sjer
HELGA VALTÝSSONAR verður sýnd á. Elliðaánum í dag kl. 5
síðdegis. Allir velkomnir.
Látið þetta berast!
Sumarfagnaður U. M. F. I. og U. M. F.R.
verður sunnud. 23. apríl kl. 3^2 e. h.
Lagt af stað frá húsi K. F. U. M.
námurjettindum og hefur hann
náð þeim rjettindum oft fyrir lít-
ið, enda lítið á þeim grætt til
þessa. :En Chr. B. Eyólfsson mun
vera ötulastur þeirra, er nú leita
I námurjettinda, og er talið, að
! hann líti einnig á hag jarðeigenda
í samningum sínum, en ekki er
kunnugt, hvort hann festir rjett-
indi þessi sjer til handa eða út-
lendingum.
Hann tók sier far til útlanda
með Sterling síðast og er vænt-
i anlegur aftur í næsta mánuði og
mun hann þó hafa með sjer út-
lenda námumenn, og verður þá
þegar farið að vinna þarna upp-
frá.
Vísir mun leita sjer hinna
bestu upplýsinga um alla námu-
starfsemi hjer á landi og birta.
‘5r*i alVwgv.
Lög um rjett kvenna til em-
bættisnáms, námstyrks
og embætta.
1. gr.
Konur eiga sama rjett eins og
1 karlar til að njóta kenslu og ljúka
fullnaðarprófi í öllum mentastofnun-
um landsins.
2. gr.
Konur eiga sama rjett eins og
karlar til hlutdeildar í styrktarfje því,
sem veitt er af opinberum sjóðum
námsmönnum við æðri og óæðri
mentastofnanir landsins.
3. gr.
Til allra embætta hafa konur sama
rjett og karlar, enda hafa þær og í
öllum greinum, er að embættisrekstri
lúta, sömu skyldur og karlmenn.
4. gr.
Með lögum þessum fellur úr gildi
tilskipun 4. desbr. 1886 um rjett
kvenna til að ganga undir próf hins
lærða skóla í Reykjavík, prestaskól-
ans og læknaskólans og til þess að
njóta kenslu í þessum síðasttöldu
skólum.
Lög
um breyting á 20. og 29. grein laga
nr. 22, 8. okt. 1883, um bæjar-
stjórn á Akureyri.
1. gr.
Sjö menn skulu framvegis eiga
sæti í niðurjöfnunarnefnd kaupstaðar-
ins.
2. gr.
Endurskoðunarmenn reikninga
haupstaðarins skulu vera tveir. Auk
reiknings bæjarsjóðsins skal þeim og
skylt að endurskoða alla reikninga