Vísir - 07.05.1911, Side 3

Vísir - 07.05.1911, Side 3
V í S I R 75 }læsW toæv »\W seljum við í karlmannsfata-deildinni Al-KarlmannsfatnaðásamtRegnkápu, Húfu, Hálstaui, Peysu, Sokkum o. s frv. og 1 par Skó. Allt fyrir krénur 37,oo. Versl. EDINBORG, R.vík, »En hann gefur ykkur líklega sómasamlega með þeim, að minsta kosti fyrsta árið,« sagði prestur. »Það dettur honum víst aldrei í hug,« sagði Sveinn. »Nei, þá er óhætt að taka pálinn og rekuna að honum Oísla«, sagði Gróa, »ef hann fer að gefa með börnunum sínum til annara. Hann hefði þá átt að ganga sómasamlega við þeim.« »Það er líka satt,« sagði hrepp- stjórinn. «Jeg trúi hann hafi aldrei meðgengið nema tvö.« »Og það eru þau, sem komin eru af höndunum,« sagði Sveinn, »Þjer sjáið það nú, prestur minn að jeg get ómögulega sætt migvið að eiga hana Gróu.« »Og jeg get ekki sætt mig við að eiga hann Svein,« sagði Gróa, »eða nokkurn þann mann, semekki getur verið ánægður með mig.« »En hann Sveinn liefur lofað að breyta svo við yður í meðlæti og mótlæti, sem sjerhverjum dánumanni beraðbreytaviðeiginkonusína,«sagði prestur, »og það eru margir vottar að.« »Já, ætli það sje þó,« mælti hreppstjóri. »Hann svíkur það alt, eins og aðrir,« sagði Gróa. »Það þarf enginn að efast um það«, sagði Sveinn.— »Jeg heimta skilnað.* Jeg Iíka. Fullan lögskiln- að.« »Það getur ekki orðið fyrri en eftir þrjú ár,« sagði hreppstjórinn. »Og það ætlar hjer að rætast á yður, prestur minn og brúðhjónun um, sem þeir segja, Sírak og meist- ari Jón, að þunga mæðu hefurguð gefið mannana börnum að sýsla við.« » Það eru orð Salómons, en hvorki Síraks nje meistara Jóns,« sagði prestur, »og er yður betra, hrepp- stjóri góöur, að vitna í handbókina yðar, en Jónsbók eða ritninguna.« »Og handbókin segir, að hjónin eigi að framfærahvortannað, meðan þau eru ekki að fullu lögskilin; og fyrir því úrskurðast, að þau Sveinn og Gróa verði fyrir það fyrsta að búa saman í þrjú ár,« sagði hrepp- stjórinn. »Við verðum ekki saman þrjá daga,« sagði Sveinn. »Ekki eina nótt,« sagði Gróa. »Við skulum nú seinna tala um það«, sagði prestur, »en hvar eru hin brúðhjónin?« »Þau voru hjerna fyrir austan skemmuna áðan, þegar jeg kom inn,« sagði hreppstjórinn. »Viljið þjer þá ekki skreppa út og kalla á þá, hann Gísla og hann Magnús?« spurði prestur. »Jeg þarf að tala við þá og vita, hvernig þeim semur.« »Það skal jeg gera«, sagði hrepp- stjórinn og fór hann út síðan að leita þeirra. Á stjettinni fyrirframan skemmuna voru þau Margrjet og Áslaug að tala við hringjarann og veittu þær honum þungar átölur fyrir spjöll þau, er hann hefði gert í kirkjunni með því, að fara að samhringja, þegar þær voru komnar inn í kórinn; og fyrir því væri það honum að kenna, að presturinn hefði gefið þau öll vitlaust saman; voru þær svo óðamála, að hringjarinn kom ekki upp einu orði til varnar sjer, og var hann þó mælskumaður, þegar hann átti tal við kunningja sína á gatnamótum. »Verið ekki að þrátta um þetta, — það verður altsaman lagað,« sagði hreppsstjórinn. »En getið þið ekki sagt mjer konur, hvar mennirnirykkar eru«. »Við eigum enga menn«, sögðu þær Margrjet og Áslaug. »Jeg held þeir hafi gengið hjerna upp í húsagarð«, sagði hringjarinn háifkjökrandi. Frh. Ungnr sjómaðnr óskast á gufuskipið ,,Tryg“, er flytur kol milli Englands og íslands. Nánari upplýsingar hjá Birni kaupmanni Guðmundssyni.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.