Vísir - 09.05.1911, Blaðsíða 3
79
Úr ruslakistu
Plausors.
i.
Yeisluspjöllin í Dal.
Frh.
»Það var rjett sem hringjarinn
sagði, því uppi í heygarði fann
hreppstjórinn þá Gísla og Magnús;
hafði Ient þar í deilum með þeim
út af giftingunum og af því ekki
gekk saman með þeim, vildu þeir
láta höndur skifta um konurnar og
gripu því hvor annan hryggspennu
og sviptust þeir fast þar um hey-
garðinn, svo alt varð undan að
láta, er fyrir þeim varð; en fáttvar
þar annað en torfukjúklingar, nokkur
hrip og moðbingur stór, er hlaðinn
hafði verið upp þar í einu garð-
stæðinu. En með því jafnt var um
burði með þeim, veitti hvorugum
betur, en fengið höfðu sparifötin
þeirra skrámur, og voru þau bæði
orðin moldug og forug, einkum þó
föt Gísla.
»Hættið þið þessum leik, piltar,«
kallaði hreppstjórinn, þegar hann sá
til þeirra. »Þið eigið að koma inn,
því presturinn vill finna ykkur.«
»Jeg verð að jafna á þrælmenn-
inu, honum Gísla fyrir það, að hann
hefur tekið frá mjer konuna mína,«
sagði Magnús.
»Hann hefur ekki tekið frá þjer
neina konu,« sagði hreppstjórinn.
»Presturinn jafnar það alt saman.«
»Hann þarf ekki að jafna það
mín vegna,« sagði Gísli. »Margrjet
er orðin konan mín, og jeg er
ánægður með hana. En fyrir þín
orð, hreppsstjóri góður, skal jegkoma
inn og tala við hann sjera Jón.«
»Komið þið þá,« sagði hrepp-
stjórinn, »og dustið þið af ykkur
mesta rykið.« Fóru þeir síðan inn
með honum og voru þau þá komin
þar áður, Margrjet,Áslaugoghringj-
arinn.
»Þar kemur þú Gísli«, sagði
Gróa þegar hún sá hann. — »Ósköp
er að sjá hvernig þú ferð með beztu
fötin þín inaður. — Hvar í fjandan-
um hefir þú verið; það er alveg
eins og þú hafir velt þjer upp úr
-noðbás.
»Jeg var uppi á heygarði að tusk-
ast við hann Magnús. — En ann-
ars er jeg kominn hingað til að
tala við prestinn, en ekki þig«.
V í S I R
Nýkomið
Framúrskarandi falieg karlmannafataefni, karl-
manna- og kven-hálsbindi. - Einnig allskonar Brjóst,
Fiibbar, Manchettur og Manchettskyrtur.
Allar vörur óheyrilega ódýrar.
STIMPLA
kemur karlmannafatamóðurinn frá
Kostur gefst mönnum á að fá föt
saumuð eftir máli 2
með nýustu Lundúnagerð.
Leitið upplýsingaá afgreiðslu Vísis.
af öllum gerðum
stimpilblek, stimpi
púða, leturkassa
annað þvilíkt
útvegar
Einar Gunnarsson.
. Afgr. Vísis.
»Þá eruð þið komin hjer öll«,
sagði presturinn. »Jeg ætlaði að
minnast á það við ykkur, sem hann
hefir kært fyrir mjer hann Sveinn,
að jeg muni hafa gefið ykkur rangt
saman í dag. En nú er ekki gott
í efni með það, Því ekki verður
annað álitið, en að þið sjeuð öll
löglega gift.
»Já víst erum við löglega gift«,
sagði Gísli, »og jeg hef ekkert fyrir
yður að kæra,prestur minn.enda hef
jeg fengið þá konuna, sem jeg hefði
helst óskaö mjer, því hún er bæði
yngri og Iaglegri og miklu ríkari,
en sú, sem jeg hjelt að jeg ætti
að fá«.
»En konuna hefurðu Iíka tekið
frá mjer«, sagði Magnús.
»Nei, jeg hef ekki tekið hana fríá
neinum, presturinn hefir gefið mjer
hana og hún hefur engum gifst
nema mjer«.
Frh