Vísir - 05.06.1911, Blaðsíða 1
65
9
VISIR
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud. 25 blöðinfrá21.maí. kosta: Á skrifst.50au. Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 au. Afgr. á horninu á Hotel Island 11-3 og 5-7. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Mánud. 5. júní 1911.
2. I hvítasunnu.
Sól í hádegisstað kl. 1.2,26‘
Háflóð kl. 12,6‘ árd. og kl. 12,44' síðd.
Háfjara kl. 6,18‘ árd. og 6,56 síðd.
Afmæli.
Emil Schou, bankastjóri.
Póstar á morgun. ,
Póstvagn tilÆgissiðu og Eyrarbakka.
E/s Botnia fer vestur.
E/s Austri kemur úr hringferð.
Austanpóstur kemur.
fallegt hvítasunnu-program.
Þann 5., 6., 7., 8. og 9. júní.
Mesterboxeren Isedore
hlægilegt.
Moni Blanc
hrífandi náttúrumynd.
Jómfrúin frá Babylon.
Stórfenglegur sjónleikur, leikinn af
1. flokks ítölskum listamönnum.
Þegar Svendsen hjelt
saumastofu
leikið af hinum fræga leikara
Carl Alstrap.
Hlægitegt.
Sýningar 2. hvítasunnudag kl. 6,
7, 8 og 9.
Aðra áðurnefnda daga aðeins kl 9.
>
Ur bænum.
Jón Sigurðsson er skráður á
ártíðaskrána. Dagur, annarþeirra
sem skrifaði í Vísi um almenna hlut-
töku í skrásetningunni, hefur nú
runnið á vaðið og nokkrir aðrir
þegar komnir: Gaman að sjá hverjir
láta sig þetta máli skifta og hverjir
ekki.
Menn fá fyrir aura sína skraut-
ritað brjef hjá Heilsuhælinu og er
ánægjulegt að eiga þann menjagrip.
Skipafrjettir.
E/s Botnía kom frá útlöndum á
Iaugardagsmorguninn. Meðal far-
þegja var frú Margrjet Zoega vert.
t
Frú Leopaldine Friðriksson,
ekkja Halldórs Kr. Friðrikssonar yfir-
kennara andaðist á heimili sínu í
gær hálfri stundu eftir hádegi. Hún
hafði kent vanheilsu síðasta árið
seni hún lifði. Var orðin 85 ára
að aldri.
Frá Vesturíslenáingum.
Minnisvarðasamskotin voru
18. f. m. orðin tíu þúsund og tvö
hundruð krónur og voru þá tveir
dagar eftir af tímanum til samskota-
móttöku.
Guðni Eyólfsson, sem lengi
var póstafgreiðslumaður lijer, andað-
ist í Wynyard, Sask. 28. apríl eftir
mánaðarlcgu. Hann Ijet eftir sig
eitt barn og ekkju blásnauða. Sam-
skota var leitað handa henni og
kom inn nokkuð á annað hundrað
dala.
Sjera Friðrik Bergmann lagði
af stað hingað á leið 16. f. m.
Flytur hjer kveðju Vesturíslendinga
á Jóns Sigurðssonar hátíðinni. Vest-
ur fer hann aftur í ágústlok.
Innflytjendur hjeðan komu til
Winnipeg 12. f. m. 21 og þá von
á 40, næstu daga.
Saddir
almcnnings.
Forsefa-minnisvarðinn.
Um það er deilt, hvar hann
eigi að standa.
Mjer sýnist þessi deila næst-
um furðuleg.
Af öllum þeim stöðum, sem
enn hafa verið til nefndir, er að
eins einn, sem til mála getur
komið, úr því ekki er hægt að
láta forsetann standa á miðjum
Austurvelli, þar sem Thorvaldsen
nú er.
Og þessi eini staður er fram-
stojunat
fyrir börn frá 6-8 ára.
Kennari: Slgurður Vigfússon.
Kennslutími: 1 stund á dag.
Ekki fleiri en 16 böm í deild.
Kennslulaun : 2 kr. mánuuðinn fyrir
barnið. Borgun fyrir-
fram.
Umsóknum veitt móttaka að Skóla-
vörðustíg 22, fram til kl. 10 að morgni,
og á afgreiðslustofu Vísis kl. 11—3, og
5—7.
undan stjórnarráðs-byggingunni,
á »stjórnarráðs-blettinum« svo-
kallaða.
Flaggstöngina ætti að takaburtu,
og flytja hólinn,sem hún stendur
á, á miðja götuna.
Gatan ætti að klofna strax við
hliðið og liggja í boga utanum
sporöskjulagaðan grasreit, og á
honum miðjum ætti forseta-minn-
isvarðinn að standa. Þar er hann
á rjettumstað—stjórnmálamaður-
inn—framanvið stjórnarbyggingar,
og þar er hann ekki falinn, því
þá er hann mitt á milli fjölförn-
ustu stræta borgarinnar.
Að setja Jón framundan Menta-
skólanum er sama og að fela
hanni. Væri miklu betra að hafa
hann í einu horninu á Austur-
velli, eins fráleitt sem það er. Jeg
minnist þess að liafa sjeð nýverið
einhverstaðar, að á stjórnarráðs-
blettinum gæti Jón forseti ekki
fengið að vera, af því að þar
ætti Chr. IX. konungur að standa.
Og þetta væri ráðstöfun íslend-
inga. Jón Sigurðsson að
þoka fyrir Chr. XI.! »Aldrei að
víkja«, sagði Jón, þegar hann var
að verja rjettindi og sjálfstæði
íslands.
Ætla íslendingar, og þá eigi
síst Reykvíkingar, aðlátaþásmán
spyrjast um sig, að maðurinn,
sem var »sómi íslands, sverð og
skjöldur*, verði látinn víkja fyrir
dönskum konungi ?
J•