Vísir - 07.06.1911, Page 1
67
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud.
þrjöjud., miðvd., fimtud. og föstud.
25 blöðinfrá21 .maí. kosta: Á skrifst.50 au.
Send út um land 60 au. —t Einst. blöð 3 au.
Afgr. á horninu á Hotel Island 11-3 og 5-7
Oskað að fá augl. sem tímanlegast.
Miðvikud. 7. júní 1911.
Sól i hádegisstað kl. 12,27'
Háflóð kl. 7,19' árd. og kl. 2,42' síðd.
Háfjara kl. 8,31' árd. og 8,54 siðd.
Afmæll.
Jakob Havsteen fulltrúi.
Mattías Einarsson læknir.
Þorst. Guðmundsson fiskimatsmaöur.
Póstar á morgun.
E/s Ingólfur til Borgarness.
Veðrálía í dag.
Loftvog I *-£ X 32 Vindhraði j ’ Veöurlag
Revkiavík 769,3 + 8,5 0 Ljettsk.
Isafjörður 799,1 + 8,0 A 2 Alsk.
Blönduós 770,0 4- 7,5 S 1 Skýað
Akureyri 769,4 -f 9,0 0 Hálfsk.
Grímsst. 733,7 4- 7,6 N 1 Skýað
Seyðisfj. 768,6 -t- 8,1 0 Ljettsk.
Þorshöfn 768,5 + 9,7 V 2 Regn
Skýrmgar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S == suö- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæö er talin í stigum þannig
0 = logn, 1 = andvarii 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8=
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveöur, 12 = fárviðri.
Úr bænum,
Skipafrjetíir.
Botnvörpuskipin:
Nelson kom nýlega til Seyðis-
fjarðar með 65 þusund.
Leiguskip (Kolb.) kom í gær hing-
að með 65 þúsúnd.
Jón Forseti kom í morgun með
70 þúsund.
E/s Austri fór af Sauðárkrók í
gærmorgun. Væntanlegur hingað á
morgun.
Kirkju veglega ætlar Nisbet trú-
boði á ísafirði að byggja þar. Hefur.
enskur auðmaður lagt fje til hennar.
Nisbet þessi hefur dvalið'fall Iengi
á ísafirði og kynt sig þar mjög vel.
Hefur þegar fengiö söfnuð nokk-
urn og konungsstaðfestingu. Hann
dvelur sem stendur hjer í bæ og
hefur haldið nokkrar samkomur í
Bárunni.
Hrafninn í Gaulverjabæ. Nú
er krummi búinn að unga út. Það
gekk altprýöilega. Fimm nýirkrumm-
ar. Og heldur fjölskyldan til á
kirkjuturninum.
Einhverjir safnaðarmenn vildu láta
reka krumma burtu eða skjóta þá,
en meiri hlutinn var því andvígur
og fær fjölskyldan að búa þarna að
minsta kosti til næstu fardaga.
^xí úU'öndum.
í Marokko hefur verið styrj-
öld nú síðustu mánuðina. íbúar
þar í landi hófu uppreist gegn
höfðingja sínum Mulai Hafid sóld-
áni sökum grimdar hans og eru
stöðugir bardagar um alt ríkið nærri
daglega.
Það er sagt um soldán þennan
að hann refsi þegnum sínum fyrir
litlar yfirsjónir með því áð láta
höggva af þéim hendur, stinga úr
þeim augun eða slíta úr þeihi tung-
una. 1 •’
Frakkar og Spánverjar hafa sént
herflokka inn í landið til verndar
Norðurálfumönnum cr þar búa. Eru
Frakkar ú komnir til höfuðborgar-
innar Fez.
Spánverjar í Marokko.
Daily Mail segir frá því að sigur-
fregn sú sein spanska stjórnin breið-
ir út um viðureign manna sinna við
þjóðflokk einn í Marokko sje mjög
til athlægis þar í iandi. Marokko-
búar þeir sem spanska fótgöngu-
liðið rak á flótta voru 500 svín.
Svo vildi til að svínahópur þessi
var í kví í grend viö herbúðir
Spánverja og sluppu þau úr kvínni
eína nótt og hlupu til herbúðanna.
Spánverjar gripu í myrkrinu til riffla
sinna og skutu alt hvað af tók en
svínin lögðu á fíótta. Hershöföingi
Spánverja sendi sfðan stjórn sinni
símskeyti um hinri mikla sigur, þar
sem 6 Márar höfðu fallið og margir
særst.
í Kína eru stúlkur daglega seld-
ar mannsali, mest þó á barnsaldr-.
inum. Ef foreldrum þykir meybarn
sjerj byrðarauki, þá er þaö látið í körfu
og farið með á sölutorgið, líkt og
hænsni, og selt þar. Vana verð á
meybörnum er einn dollar fyrir
hvert ár, sem þaö hefur lifað; en á
harðæristímum fást þau fyrir örfá
cent, þó stálpuð sjeu. Kaupmenn
: þeir, sem meybörnin kaupa, ala þau
' síðan upp, uns þroskuð eru, þá .eru
stúlkurnar seldar að nýju sem amb-
áttir, bæði til þrælkunar og í kvenna-
búr. Áður fyr :var það almennt í.
Kína, að stitta meybörnum aldur,
en mannúðartilfinningin er nú kom-
in þetta lengra á veg, að selja þau
í þrældóm í þess stað. Heimskr.
| 'MlI niiláh'lli I i. i Flí
Trúlofun. Talið er að prins
Albert af Wales (ríkiserfingi Bret-
Iands) sje trúlofaður dóttur Vilhjálms
• Þyskalandskeisará'. Ké1sáiTrifi'‘'h'éfrir
fboöið þrinsinum hejm til sín í Potsr
i dam.
■ . . ^
Dönsku
: stúdentasöngvararnir
í Vesturheimi.
Flokkur danskra stúdenta, þeirra
er best syngja, hefur nýlega Iágt
upp í ferð um Bandaríkin.
Af því að einn Reykvíkingur er
í förinni, munu menn hjer hafa
gaman af að heyra nánar frá þessu
ferðalagi.
Þessi Reykvíkingur og um leið
eini íslendingur fararinnar er Pjetur
cand. phil. Jónsson, sönur Jóns
kaupm. Árnasonar. Hann hefur
hlotið hið mestað hrós fyrir söng-
hæfileika sína og á eflaust fyrir-
sjer að verða frægur í sinni grein.
v