Vísir - 07.06.1911, Blaðsíða 3

Vísir - 07.06.1911, Blaðsíða 3
V í S 1 R 43 einu sinni föðursystir mín. — Þá greip mig mikil hræsla, því jeg vissi ekki livað skeð hafði. — Jeg tók mjer staf í hönd og gekk hægt og hægt uns jeg kom á stóra torgið með brunninum. Hjarta mitt var þrungið reiði viö höfðingj- ann, því hvert spor olli mjer sárs- auka. Jeg kallaði til Jowar Singh — timburmannsins. — Nafn hans stóð efst á listanum yfir vitnin, sem áttu að bera vitni fyrir inig gegn höfð- ingjannum: »Er nú alt undirbúið og í röð og reglu* sagði jeg, »og veistu nú hvað þú átt að segja«? Jowar Singh svaraði: »Hvað á þetta að þýða — og hvaðan kemur þú Durga Dass«? »Úr rúminu mínu* sagði jeg: málshöfðunina. — Hvar er Ram Dass bróðir minn? En Jower Sing hristi höfuðið, og kona nokkur nærstödd æpti hástöf- um: »Hvaða bölvuð lýgi er þetta! Hvaða deilum hefur höfðinginn svo sem átt f við þig okurkarl? — Það þarf sannarlega blygðunarlausan mann og trúníðing til þess að nota þjáningar bróður síns sjer í hag. — Eru þá þessir okurkarlar alveg tilfinningarlausir?* En jeg æpti líka og sagði: »í nafni kýrinnar, — í nafni hinnar heilögu belju, í nafni allra heilagra. — Það var jeg — og enginn ann- ar en jeg sem laminn var — lam- inn því nær til dauða! — Berið sannleikanum vitni ó! íbúar í Isser Jang.ogjegskal borgavitnunum.* Og Stóxu smóu - vómoevs^u tetn, stit\5tett\ o$ atlstiouav ö^vu tetv\^úuum,t\ó5<Sa- tetu o.s. soo 09 e\atut\auóav- stu\Jt - S'óstum o$ tausum ótetipuða - &m$v'\ tó^uu. '31tá pauta á a5$m<Sstu*\D\s\s. I é m 9M »Jeg hefi lengi legið veikur, og það er höfðingjans sök. Hvar er Ram Dass bróöir minn, sem átti að semja við vitnin. Þú og þínir hljóta vissulega að vita þetta!* Þá sagði Jowar Singh. »Lygar- inn þinn! — hvað kemur þetta okkur við? Jeg er búinn að bera vitni og hefi fengið mína borgun, og höfðinginn hefir eftir úrskuröi rjettarins, borgað bæði fimm krónur í viðbót fyrir áverka og ofbeldi við bróður þinn. Mjer sortnaði fyrir augum svo að brunnurinn og stóra eikin hjá honum, og alt þorpið í Isser Jang hvarf mjer sjónum. En jeg studd- ist fram á stafinn og sagði: »Þetta er meiningarlaust bull — það var jeg, sem höfðinginn misþyrmdi, og jeg er nú kominn til að undirbúa jeg skalf og nötraði, því veikindin og sársaukinn eftir barsmíöina þjáði mig. Þá bar Rain Norain að, — hann sem heldur til hjá stóru eikinni og skrifar briefin fyrir alla bæarbúa — og hann sagði: »í dag er fertug- asti og fyrsti dagurinn síðan árásin var giörð, og sex dagar eru síðan að dómur fjell í málinu. — Ogdóm- fulltrúinn dæmdi bróður þínum í vilað þjófnaður hefði verið framinn, því jeg bar einnig vitni um það, eins og um alt annað, sem vitnin báru. — Það var mesti fjöldivitna, og tvisvar sinnum leið yfir Ram Dass í rjettarsalnum af meiðslunum, og Stunt Sahib færði lionum stól til að sitja á frammi fyrir ölium lögmönnunum. — Hvers vegna æpir þú Durga Dass? — Alltþetta skeði alveg eins og jeg hefi nú 0 skýrt frá. — Eða er ekki svo?« — Og Jowar Sing sagði: »Það er sannleikur. — Jeg var einnig við- staddur — og á stólnum lá rauð sessa.c Og Ram Norain sagöi ennfremur: »Þessi dómur hefur orðið höfðingj- anum mjög til smánar; og af ótta fyrir reiði hans er Ram Dass flutt- ur alfarinn aftur til Pali með öllu skuldaliði sínu. Ram Dass sagöi okkur, að óvildinni milli ykkarbræðra væri lokið, og að þú hefðir farið á undan honum, til þess aö koma á fót verslun í Pali. — Og sannar - lega væri það hyggilegast af þjer að fara hjeöan, því höföinginn hefir strengt þess heit, að nái hann tök- um á nokkrum af ykkar ætt, þá skuli hann hengja hann á fótun- um upp á brunnvinduna, og lemja hann þar hangandi með lurkum, þar til blóðið springur út úr hlustum hans. Það sem jeg hefi sagt þjer um málaferlin er satt, einsogþessir menn hjer geta borið — einnig hvað fimm hundruð krónurnar snertir.* Jegsagði: »Voru það fimm hundr- uð krónur* ? og Kirpa Ram svaraði:« »Fimm hundruð; því jeg bar líka vitni*. Og jeg andvarpaði, því jeg hafði hugsað mjer að segja aðeins tvö hundruð. En nú greip mig nýr ótti, og hjartað drap stall í brjósti mjer, og jeg hljóp sein fætur toguðu heim í hús Ram Dass, og fór aö hyggja að höfuðbókum mínum og pen- ingum, sem átti aö vera geymt í stóru kistunni undir rúminu mínu. Þar var ekkert — ekki svo mikið sem einn eyrir. Ölluvar stolið og rænt af djöfli þeiin, sem kallar sig bróður minn. — Jeg fór þvínæst heim í mitt eigiö hús ogleitaðiþar en þar var ekki annað að finna en rotturnar, sem »spássjeruðu« þar á milli kornkarfanna. Þá varð jeg hamslaus og reif klæði mín, og hljóp aftur á brunntorgið æpandi og ákallaði rjettvísi Englending- anna gegn bróöurmínum, ogí æði mínu æpti jeg svo allir heyrðu að höfuðbækur mínar vaeru horfnar. Þegar fólkl'ð sá aö jeg ætlaði að fleygja mjer í brunninn trúðí þaö sögu minni — enda styrktíst það í trúnrti, er það sá að jeg bæði á baki og brjósti bar ótvíræð merki barsmíðarinnar. Frh. Útgefandi: EINAR GUNNARSSON, Cand. phil.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.