Vísir - 16.06.1911, Side 1
75
19
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud
þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud.
25blöðinfrá21.maí. kosta: Á skrifst .50a. Afgr. áhorninuáHotel Island 1-3 og5-7.
Send út um landóO au.— Einst.blöð 3 a. Óskað að fá augl.semtímanlegast.
Föstud. 16. júní 1911.
Skrauíblaðið —
sem ketnur út í fyrramálið með list-
prentaðri mynd af Jóni Sigurðssyni
og fjórum kvæðum, setn önnur blöð
hafa ekki flutt, svo og skýrslu um
hátíðahaldið — verður liin ódýrasta
og unt leið ágæt minning unt dag-
inn.
. Myndina eina má telja 25 aura
virði! Blaðið kostar þó aðeins —
5 aura.
aj tandu
Síldarbræðsluverksmiðja á
Siglufirði. Með skipinu »Castor«,
sem hingað kom nú í stað »Floru«
hafði komið efni í stóra verksmiðju-
byggingu til Siglufjarðar. Er sagt
að bygging þessi eigi að verða
30 X 50 al. að s*ærð, og á þar bæðj
að bræða síld og búatil úrhenni fóð-
urmjöl o.fl. Ásvoaðvinna »Guano«
úr síldarúrgangi, þorskhausum og
og öðrum fiskúrgangi.
Það eru Norðmenn, sem koma
þessari verksntiðju á fót og e:ga
hana. Er enginn efi á því, að þetta
verður til mikilla hagsmuna fyrir
síldveiðarnar, þar sem þarna fæst
markaður fyrir alla þá síld, sem
nokkuð er skemd og ekki er boð-
leg verzlunarvara með annari tneð-
ferð. Og þegar svo stendur á eins
og nú er, og oft kemur fyrir að
markaðsverð síldarinnar er svo lágt,
að ekki borgar sig að salta hana
til útflutnings kemur þessi aðferð
að góðu haldi.
Stórbruni. Verslunarhús Guðm.
Jónassonar í Skarðsstöð brunnu til
kaldra kola 12. þ. m. Sömuleiðis
brann bryggja verslunarinnar alt í
sjó frarn.
Tjónið metið 34 þús. krónur.
Vátrygð voru húsin í fjelaginu
Paletine;
Ur bænum.
Heimspekispróf tóku í dag við
prestaskólann:
Jón Ásbjörnsson lagask. dáv. +
Jón Jóhannesson lækn. dáv.
Halldór Hansen lækn. dáv. -(-
Sigurður Sigurðsson pr. dáv. -f-
Helgi Skúlason lækn. dáv. -f
Þorst.Þorsteinsson lagask. dáv. -J-
Nielsen skipstjóra á Sterling var
haldið samsæti í gær í Bárubúð.
Voru þar um 100 manns, aðallega
kaupmenn.
Aðalræðu hjelt Ásgeir Sigurðs-
son en Þorsteinn Erlingsson hafði
ort kvæði, Th. Thorsteinsson flutti
og tvö minni. Nielsen svaraði með
ræðu fyrir minni ísl. sjómanna og
íslands
Tilefni boðsins var að N. hafði
farið hingað til lands 100 ferðir.
Nýu frímerkin. Á morgun eru
þau seld almenningi (að eins 1
klukkutíma o: 10—11) Búast má
við að þau komist í mjög hátt verð
og eru margir spekúlantar aðhugsa
um þau. Þeir kaupa þau í hundr-
uðum arka og gæti svo farið að
ekki yrði mikið til af þeim eftir
þennan eina ldukkutíma. Upplagið
ekki nema nokkur þúsuncl arkir.
Verði póststjórnin svo hugulsöm,
sem vænta má, að taka frá eitthvað
handa póstafgreiðslustöðunum verða
eflaust þar einnig handagangur í
öskjunnni. Símað úr öllum áttum
sem til næst.
Einu sinni voru gefin út 3. au.
frímerki prentuð ofan í 5 au. þau
fengust hjer nokkra daga. Fyrir
örkina af þeim var skömmu síðar
gefið 300—500 krónur.
Mjólkurbrusar
mjög ódýrir fást hjá
GUÐM. J. BREIÐFJÖRÐ
Laufásveg 4.
almcnnings.
Líkneski Jóns Sigurðs-
sonar verður ekki á
skólablettinúm.
f fyrra kveld átti varðanefndin
fund með sjer, tók aftur fyrri ráð-
stöfun sína og ákvað að líkneskið
skuli standa á stjórnarráðsblettinuin
sunnan við götuna. Að norðan á
svo Kristján IX að standa á móts
við þjóöskörunginn.
Þetta er óneitanlega betri staður
og höfum við Ari, Halldórr og fleiri
góðir tnenn ekki unnið fyrir gýg.
— En þeir Örnólfur og Hallur
sitja nú með sártenniðsuðrátúnuni!
Heggur.
Fyrirlestur um
ísland.
Aage Meyer Benedictsen heitir
danskur unglingur, sem hingað kom
í fyrra. í vor flutti hann fyrirlest-
ur um ísland í smábæ úti á Sjá-
Iandi í Danmörk. íslendingur, sem
þar var staddur, hefur sagt frá fyrir-
lestrinum á^þessa leið:
»Hr. Benedictsen byrjaði á því,
að ekki væri sjáanlegt, að forsjón-
inni væri ant um að tengja ísland
við Danntörku, eða að Dönum gæf-
ist tækifæri til að kynnast »þar úti.«
Þetta væri nú ekki svo undarlegt,
því að líkindum hefði aldrei verið
til þess ætlast, að þessi lönd yrði
tengd, þar sem ísland lægi lengra
frá Danmörku en bæði Noregur,
Skotland og Svíþjóð, enda fyndist
vart tvær ólíkari þjóðir.
Hann skýrði frá, hversu það vildi
til að ísland lenti í klær Danakongi
og gat þess jafnframt, að Danmörk
væri ekki nefnd á nafn í Landnáma-
bók. — —
Landið væri ekki einungis eld-