Vísir - 01.08.1911, Blaðsíða 1

Vísir - 01.08.1911, Blaðsíða 1
104 23 Kemur venjulegaút kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud. 25 blöðin frá 25. j úní. kosta: Á skrifst. 50 a. Send út um landóO au.— Einst.blöð 3 a. Afgr. áhorninu á Hotel Isl and 1-3 og 5-7. Óskað að fá augl. semtímanlegast. Þriðjud. 1. ágúst 1911. Bandadagur. Sól í hádegisstað kl. 12,33‘. Háflóð kl. 9,46‘ árd. og kl. 10,12‘ síðd. Háfjara kl. 3,58‘ síðd. Afmæli í dag. Þórður Jensson, stjórnarráðsskrifari. Afmæli á morgun. Frú Marta María Einarsson. Einar J. Pálsson, snikkari. Hans Inge Hoffmann, verslunarnr. Oluf Morten Hansen, hattari. Póstar f dag. Ingólfur til og frá Borgarnesi. Póstvagn til Ægissíðu og Eyrarbakka. Waranger frá Breiöafirði. Póstar á morgun. Póstvagn til Þingvalla. Ceres til útlanda. Hafnarfjarðarpóstur kemur 12 fer 4. Álftanespóstur kemur og fer (um 12). Loftvog £ '< Vindhraðil Veðurlag Reykjavík 757,5 +12,8 A i Skýað Isafjörður 760,3 -f 9,2 0 Skýað Blönduós 759,4 4-12,8 S 1 Skýað Akureyri 760,3 4 13,8 NNV 1 Heiðsk. Grímsst. 725,6 -1-15,0 0 Ljettsk. Seyðisfj. 760,8 -r- 9,6 0 Hálfsk Þórshöfn 761,9 + 10,5 0 Þoka Skýringar: N = norð- eða norðan, A = aust- eða austan, S = suð- eða sunnan, V = vest- eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þatinig: 0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 = go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6= stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 = hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 = ofsaveður, 12 = fárviðri. Ur bænum. Söngskemtun hjelt Pjetur A. Jónsson í Bárubúð laugardagskvöld- ið, svo sem til stóð og var þar húsfyllir. Tíu lög voru á söng- skránni, eftir Sv. Sveinbjörnsson (2), Lange Múller (2), Puccini (1) og Rich. Wagner (4), en textarnir á íslensku, Dönsku, Ensku og Þýsku. Frú Ásta Einarsson aðstoðaði. Söng- urinn var hinn besti, svo sem við var að búast og rómurinn mikill. Pjetur var klappaður fram og að lokum, er klappinu ætlaði ekki að linna. söng hann aukreitis »Þu bláfjalla geimur með heiðjökla hring« og ekki ljet það hvað verst í eyr- um. Söngskemtun þessa ætlaði Pjetur að endurtaka á sunnudagskvöldið, en hún var aflýst og þreya menn nú að hún verði endurteki". Sr. Þorleifurjónsson áSkinna- stöðum í Öxarfirði Ijest 26. f. m. Hafði verið í ferð uppi á Hóls- fjöllum. ísafirði 22. júlí. Tíðarfar hefir verið hjer mjög kalt síðustu viku og snjóaði mjög á fjöll hinn 17., er nú heldur að hlýna aftur. Á sunnudagin var skírði samt Nísbet trúboði 5 manns í Tunguá. Hljómleika hafa þau Sigfús tónskáld Einarsson og frú hans efnt til í G. T. húsinu og búast við að endurtaka þá á morg- un. ^xí úttötv&um. Fortepianoleikari. í mörgu keppa menn og verða meist- arar, hjeraðs lands eða þá heimsmeist- arar. í vor ljek maður nokkur, Lewis Thorpe að nafni, búsettur í Pennsylvaniu —samfleytt 30klukku- tíma og 15 mínútur á Fortepíano og varð fyrir heimsmeistari í þeirri grein. Áður vissu menn að leikið hafði verið samfleytt í 28 klukkutíma. Þó hafa gengiðsagn- ir um það, að maður nokkur í Melborun hafi leikið stanslaustí 50 klukkutíma, en trygging er ekki fyrir því að það sje rjett. Stjellangir hanar. Áeynni Shikaku í Japan er mikið stunduð rækt stjellangra hana. í stjeli liana þessara eru 15—25 fjaðrir og verða þær 3—4 stikur að lengd. Þeir eru hafðir í mjög háum fuglabúrun svo að stjelið nemi ekki við gólf, cg er þeim gefin fæðan á priki sínu. Annan hvern dag er þeim hleypt út hálftíma, gengurþá mað- ur á eftir hverjum hana og heldur uppi stjelinu, það má ekki óhreink- ast eða ýfast neitt, því fjaðrirnar eru hinn dýrasti varningur. almennings Afmælisgjafir, l'im leið og jeg þakka Vísi fyrir að hann skráði afmælið mitt (Jeg hef dregið að votta þakklætið svo ekki vitnaðist hver jeger) ogútveg- aði mjer með því tvær afmælisgjafir, sem jeg hefði orðið af ella, þá vil jeg biðja hann að geta þessviðalla góða menn að það er ósiður mesti að »storma« á mann heima til heilla- óska án þess að vera um leið fær- andi hendi. Ef fátækir menn eiga í hlut þá getur verið að þeir vilji sýna gestrisni sína með sínum síð- asta eyri. Sje um níka menn að ræða þá getur það liaft alvarleg áhrif á þá, þó jeg taki mjer það raunar ekki svo nærri. En heillaóskir á maður, svo sem hvað annað, að frambera af heilum huga og jeg fyrir mitt leiti vil sjá þess vott svo í verki sem orði. Hrafn. Til athugunar. í einhverju dönsku blaði, útgefnu hjer eða í Höfn, sá eg nýlega frá því sagt að útgerð Dr. Mawsons til Suðurheimskautsins ætlaði að kaupa danska niðursuðu í nesti til ferðarinnar. Það er ekki alveg víst að þetta hafi verið rjett hermt. Hvað segðu menn t. d. ef það væri verksmiðja Pjeturs M. Bjarnasonar á ísafirði sem selja ætti niðursuð- una? K Raddir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.