Vísir - 01.08.1911, Blaðsíða 2

Vísir - 01.08.1911, Blaðsíða 2
92 V I S 1 R Húsaleigan. Einhver, sem auðsjáanlega hvergi hefir kynst mönnum, skrifar grein- arkorn í 100. Ibl. Vísis um stærsta þrifafyrirlækið, sem bæarstjórnin eigi eftir, sem sje að ákveða húsaleigu og hvernig greiða skuli; veit auð- sjáanl. ekki, að bæarstjómina brest- ur algjörlega heimild til slíkrar lög- gjafar eða reglugjörðar, og tel jegjafn- vel mjög vafasamt hvort þingið muni geta sett slík lög. Þau mundu höggva heldur nærri eignarrjettinum. sem er friðhelgur samkvænit stjórnar- skránni og ekki má skerða, nema almenningsheill sje í veði, ogverð- ur varla skoðað að svo sje, þar sem um innheimtu húsaleigu í Rkv. er að ræða; auk þess mundu þau á ískyggilegan hátt skerða samn- ingsfrelsi einstaklingsins; og loks mundu þau, að líkindum, hvergi að gagni koma. íllt ef ekki ómögu- legt fyrir bæarstjórnina að vaka yfir og sjá um framkvæmd þeirra, ef hún ætti að hafa umsjón um það, en engu breytt frá því, sem nú er, ef hver einstaklingur ætti að sjá um sig, því það getur enginn neytt húseiganda til að leigja hús sín á annan hátt eða með öðrum kjör- um, en honum sjálfum gott þykir. Af bláfátækum mönnum mundi ekk- ert vera hægt að hafa, þótt beitt væri hörðu, ef þeir á annað borð ekki reyndu eða vildu reyna að borga. En hjer bregður við sem oftar hinn afar-einkennilegi og al- íslenski hugsunarhátíur, að vilja láta lands- sýslu- eða sveitastjórnir eiga að leiðrjetta hvaðeina, sem hverj- um ræflinum þykir ábótavant, hvort sem svo er í raun og veru eða ekki, og svo hitt, að menn halda eða eru farnir að halda, að meiri hluti atkvæða sje alveg sjálfsagður að ráða lögum og lofum um hvern þremilinn sem er. Menn hafa aldrei nóg af lögum og bindandi ákvæð- um, helst sem nákvæmast orðuð- um og ítarlegast, en eru þó síkvart- andi undan ófrelsi og böndum. Jegskil ekki almennilega, í hverju harðstjórn og einveldi höfðatölunn- ar (meiri hlutans) er betri en ein- veldi og harðstjórn einstakhngsins, nema síður væri, enda mun skríl- veldi reynast lijer sem annarstaðar, eins og það hefir alstaðar reynst, óþolandi og ekki affarasælt. En svo jeg snúi mjer að Vísis- greininni aftur; ætli ekki hafi vak- að fyrir höfundi hennar. að bæar- er besía og édýrasta lífsábyrgðarfjelagið á Norðurlöndum. Tekur börn og fullorðna í lífsábyrgð sína og iðgjöldin 1 sinni fil 4 sinnum á ári, efiir því, sem hverjum er hægast að greiða þau. Tryggið líf yðar og gjörið það í lífs- ábýrgðarfjeginu KRÓNAN. Umboðsmaður í Reykjavík Siguriaug Jónsdóttir Klapparstíg 1. stjórnin þyrfti að semja reglugjörð um húsaleiguamninga og þær skyldur, sem í heilbrigðislegu tilliti skyldi hvíla á húseigendum og leig- endum, hverjum um sig, líkt og á sjer stað í ýmsum þýskum bæum, því þess væri þörf og þá væri eitt- hvert vit í greininni, þótt jeg fyrir mitt leyti heldur vildi semja mig að dæmi angio-saxnesku þjóðanna °g rýmka vald heilbrigðisnefndar eða heilbrigðisfulltrúans, svo hún eða hann, innan vissra takmarka, fengi úrskurðarvald í slíkum mál- um; en að ræða það mál ítarlega, svo sem þó full þörf væri á, eru aðrir færari til en jeg. Jón Jónsson. Hundaþúfan á Stjórnar- ráðsúlettinnm enn. Jeg sje að ekki á að slaka til með, að hafa hundaþúfuna í kringum minnisvarða Jóns Sigurðssonar, því í óða önn er haldið áfram að tyrfa hana. Við því var reyndar ekki að búast þegar jafnmikill ráðríkis og sjálfsá- litsmaður stóð fyrir verkinu og Tryggvi gamli. En við svo búið má ekki standa; hundaþúfan verður að fara í burtu hvað sem það kostar, Og hvortTryggva líkar betur eða ver. Vilja ekki nokkrir menn, 10—15 taka sig saman og offra einu dags- verki;einum sunnudegi t. d. til að rífa huKdaþúfuna niður, og bú.a svo um í kringum stöpulinn að, við sje unandi? Þeir sem væru til í þetta ættu að gefa sig fram við Vísir sem sjer um að nöfnin komist til mannsins, sem vill standa fyrir slíku verki. Kári. Landakotsskólinn. f 103. tbl. Vísiser skýrslasýning- arnefndarinnar um skólasýninguna. Er þar allnákvæmlega sagt frá sýn- ingu hinna ýmsu skóla. Rætt um kenslutíma, kensluaðferðir o. fl. Virð- ist jafnvel bregða fyrir að hjer sje verið beinlínis að auglýsa skólana í sýningar-skránni. Þó er einn skóli undanskilinn. Það er Landakotsskól- inn. Þar er aðeins framsett þur upptalning munanna, enda þótt mest ástæðan hefði verið að vekja eftir- tekt á honum. Mig langar til að Vísir bætti dá- lítið úr þessu misrjetti með því að prenta grein um sýningu þessa skóla, eftir Pál Þorkelsson, hinn dómfærasta mann sem við höfum á að skipa þar er til verklegra lista kemur. Hún stóð í Ingólfi fyrir skömmu og er á þessa leið: » — — Ein sjerstök sýningar- deild í heildarsambandi sýningar- innar virðist þó nær því bera sem gull af eiri af flestu því sem á sýningunni er, og það er Landa- *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.