Vísir - 29.09.1911, Blaðsíða 1
136
5
Kemurvenjulegaútkl.llárdegis sunnud. 25 biöðinfrá24. sept.kosta:Áskrifst.50a. Afgr.ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7.
þriðjud., miðvd., fimtud. og föstud. Send út um landóO au.— Einst.blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
MUNIÐ
að
HAUST-ÚTSALAN
hjá
Árna Eiríkssyni
stendur yfir þessa daga.
Föstud. 29. sept. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,18'
Háflóö kl. 9‘24 árd. og kl. 9,54' síðd.
Háf jara kl. 3,36' síðd.
Afmæll f dag.
Frú Mathilde Jónsson.
Frú Ragnheiður Zimsen.
Jón Reykdal málari.
Pjetur M. Sigurðsson skipstjóri.
»Fæðingardagar« fást á afgr. Vísis.
Póstar á morgun:
Ingólfur til og frá Garði.
Póstvagn frá Ægissíðu.
Hafnarfjarðarpóstur kemnr og fer.
Böglakvöld
í Hjálpræðislierimin
íkvöld kl. 8!|2.
pcrðlaunavísa.
Hnoðaðu leir og Ijúgðu á þjóð,
ligðu í eyrurn Dana.
Sá er botnar best þessa vísu og
sendir botninn ásamt 25 au. á af-
gr. blaðsins fyrir kl. 3 síðd. næst-
komandi föstudag fær í verðlaun
allt fjeð, er þannig kemur inn og
auk þess brjefspjaldaalbum með
20 íslenskum brjefspjöldum í.
Úr bænum.
Páll Steingrímsson póstafgr.m.
er nýlega kominn úr 3 mánaða
dvöl í Húnavatnssýslu til heilsu-
bóta. Lá þar í tjaldi og lætur
vel yfir vistinni þó kaltværi stund-
um, og tjaldið ætlaði að sligast
undan snjó.
Síðasta ferð póstvagna austur
er 10. n. m.
Októberpóstar, »áætlunin þægi-
lega« er nýkomin út, þar eru taldir
allir póstar, sem koma o fana í
næsta mánuði. Eru það mikil
þægindi að tilgreind er klukkustund
er póstarnir fara frá pósthúsinu.
Tölur með feituletri merkir árdegis
svo sem tíðkast í enskum áætlunum.
Það er galli á áætlan þessari, að
leiðarvísinum eða töxtunum hefur
verið slept. en það mun stafa af
því, hversu eftirspurn eftir auglýs-
ingarúmi hefur verið mikil svo em,
engan þarf að undra.
*
Jxí úUöwdum.
n Loftpóstur.
Eins og getið var um í Vísi 8.
þ. m. var þann dag farin fyrsta
loftpóstferðin í heimi þessum. Þús-
undir manna voru viðstaddir þann
merka atburð er loftpósturinn lagði
upp frá Hendon, úthverfi Lundúna-
borgar og flaug af stað til Wind-
sor (borg á stærð við Reykjavík,
34 rastir fyrir vestan Lundúni) og
á allri leiðinni voru menn til að
athuga þenna sögulega viðburð.
En þegar til Windsor kom lenti
pósturinn í konungsgarði og fengu
ekki nema útvaldir að taka á móti
honum. Sjerstakur póstkassi var í
Hendon fyrir loftpóstbrjefin og var
hann mjög aðsóktur. (Mynd af
honum er í Vísisglugga í dag).
Loftpósturinn flaug oft fram og
aftur þenna dag og flutti alls 150
þúsundir brjefa og brjefspjalda um
daginn. Ný tegund frimerkja er á
loftpóstbrjefunum og eru þau nú
mjög eftirsókt, sem vænta má.
Hámarksróður yfir Ermar-
sund reri maður nokkur að nafni
Swann 12. þ. m. Hann lagði af
stað frá ytri höfninni á Dover kl.
460 árd. á 24 feta löngum kapp-
róðursbát og lenti á Sangatteströnd
austan við Calais kl. 8,.10 árd. eða
eftir þrjá tíma og 50 mínútur.
Burgess sá sem synti yfir
Ermarsund um daginn, vill nú
veðja um að hann geti synt tvisvar
yfir sundið, (fram og til baka) á
50 klukkutímum. Hann vill leggja
undir 10 pund sterlirig ef aðrir
vilja Ieggja undir á móti 10000
pund. Óvíst er enn hvort veðfjeð
fæst svo að hann fái að reynaþetta
mikla sund.
Stórt kartöflugras. Það
bar til í haust að bóndi nokkur í
grend við Bristol á Englandi fjekk
óvenjuhátt gras á kartöfluakri sín-
um, var mest af því rúmar 3 álnir
á hæð, en nokkrar jurtir voru meir
en hálf fjórða alin.
Frá 1 október 19H
Mdur st. ,BIFRÖST‘ nr.
43 funcli sína í stóra
salnum í Goodtemplara-
húsinu á hverju föstu-
dagskvöldi kl. 8.