Vísir - 03.11.1911, Qupperneq 1
5
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud-
þriðjud, miðvd., fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 29. okt. kosta:Áskrifst.50a.
Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a.
Afgr. ísuðurendaáHotelfsland l-3og5-7
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Föstud.3. nóvember 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,11“
Háflóð ki. 2,52“ árd. og kl. 3,12 siðd.
Háfjara kl. 9,4 árd. og kl. 9,24 síðd.
Afmæli 1 dag.
Frú Helga Zoega.
Á morgirn:
Hafnarfjarðarpóstur kenntr og fcr.
Landskjalasafn 12—1
Bókmentasögutyrirlestur í hásk. kl.
5-6
Lögfræðisleiðbeining í háskólanum
kl. 7-8.
p •X \ • * l heldur D.
Östlund í
samkoniuhúsinu »SÍLÓAM« við
Oruudarstíg á sunnudagskveldum
kl. 6V2.______Allir velkomnir.
Unglingastúkan
»Svanhvíí« No. 55
heldur Skemtifund næsta sunnu-
dag 5. nov. kl. 12Y2. Meðlimir
fjölmenni.
J. E. Jónsson
gæslum.
í Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu er kosinn
Haildór Síes nssen læknir
með 243 alkv.
Halldór Kristjánsson lilaut 144
atkvæði.
í Strandasýslu er kosinn:
Guðjón Guðlögsson kaup-
fjelagsstjóri með 100 atkv.
Ari Jónsson hlaut 96 atkv.
Vesturskaftafellssýslu er
kosinn:
Sigurður Eggerz sýslumaður
með 131 atkv.
Gísli Sveinsson hlaut 57 atkv.
Heimastj. Sjálfst. Ulanfl. Alls
1982 1988 1183 5153
Snæfellss. 243 144 — 387
Strandas. 100 96 — 196
V. Skattafs. — 57 131 188
Athv. 2325 2285 1314 5924
Þingm. 10 3 5 18
i
Ur bænum,
Pjetur Ólafsson frá Patreksfirði
er á leið til útlanda til þess að
kaupa eitt eða tvö botnvörpuskip,
sem hann ætlar að gera út frá Patreks-
firði.
BræðurnirThorsteinsson, Pjet-
ur og Þorsteinn, kaupmcnn, eiga
í smíðum tvö botnvörpuskip í Eng-
landi. Verða þau bráðum fullgerð
og taka til að veiða í vetur.
Elías Stefánsson útgerðarmað-
ur og fjelagar hans ætla að taka á
leigu tvö botnvörpuskip til veiða
næstu vetrarvertíð oglíklega lengur.
Taugaveikin grípur um sig í
bænum. Auk þeirra 13 eða 14,
sem veikst hafa í húsi Tlior Jensens
eru nú þrír lagstir í húsi H. Haf-
steins og fimm í Andersens húsi í
Aðalstræti. Þrír taugaveikir sjúld-
ingar höfðu verið í sjúkrahúsinu í
Landakoti áður en veikin kom upp
í fyrrgreindum húsum.
Halldór Þorsteinsson skip-
stjóri fer í dag áleiðis til Englands
á Botníu til þess að taka við nýu
botnvörpuskipi, sem »Forseta«-fjel-
agið á þar í smíðuni. Það verður
fullgert um næstu mánaðamót og á
að lieita »Súli fógeti«. Mun láta
nærri, að það verði komið hingað
á 200-ára afniæli þjóðskörungsins,
11. des. næstkomandi.
Skautasvellið er aftur komið á
tjörnina.
‘Jvá uUöndum.
Lestarrán í Rússlandi.
í grend við íborgina Lodz í pólska
Rússlandi rjeðist ræningjaflokkur á
fólksflutningalest 6. f. m. og rændi
af ferðamönnum og úr pósti um
40 þúsund krónum. Þeirrákualla
úr lestinni nema vagnstjórann og
keyrðu áfram nokkurn veg. Stöns-
uðu svo, bundu vagnstjórann og
lijeldu leiðar sinnar. Viku síðar
náðust þeir suður við Svartahaf.
Ragnar
Lundborg.
Ragnar Lundborg er fæddur 29.
apríl 1877. Faðir hans var H.
Lundborg, herfylkishöfðing', sá er
hafði forystu fyrir járnbrautargerð
víða um Svíþjóð. Þá er Ragnar
Lundborg hafði lokið námi sínu í
lærðaskólanum tók hann að gefa
sig við blaðamensku, en lagði jafn-
framt stund á nám í háskólanum í
Stokkhólmi. Hann var fyrst við
»Svenska Dagbladet« í Stokkhólmi
en varð síðan ritstjóri blaðs þess,
er »UpsaIa« (Uppsalir) nefnist, og
var það í samfleytt sjö ár. í árs-
byrjun 1911 fluttist hann frá Upp-
sölum til Karlskrónu og varð yfir-
ritstjóri þess blaðs, er nefnist »Karls-
krónatidningen«. Er það elsta blað
Svíþjóðar utan höfuðstaðarins, 159
ára, og er eitt af helstu blöðum með-
alhófsmanna (moderata) þar í landi.
En í hjáverkum sínum nefur
Ragnar Lundborg unnið að ritstörf-
um um stjórnvísindi. Helstu verk
hans eru þau, er hjer segir:
1. Haudbok i Allmán Statskun-
skap. Fyrsta útgáfa 1901. Önn-
ur útgáfa 1902. Stockholm.