Vísir - 22.12.1911, Blaðsíða 2
?4
V í S 1 R
IVERSLUN
JÓNS ZOEGA
fæst
Vindlar Vindlingar
Póstkort
Jóiatrje
Spil
Kerti
Póstkort
Póstkorta
albúm
Myndarammar
Munið eftir
Jólavindlunum
í
Bankastræti 14
Frímerki '\ Jólatrjesskraut og
Barnaleikföng
Talsfmi 128
lankastræti 14
'ólabasar
fjelagsins,
Bestu jólagjafir eru:
íslenskar hannyrðir, íslenskir útskornir munir, silfursmíðar
íslenskar. — Alt þetta og margt fleira fæstá »Basar« Thorvaldsens-
fjelagsins.
með eða án ramma, mjög
margar tegundir og sjer-
lega fallega fallegar selj-
ast með gjafverði nú
fyrir jólin hjá
yvindi og Jóni Setberg.
Þær eru hinar langbestu
Póla gamla
(Ævintýri).
Amma mín sagði mjer þessa
sögu eftir afa sínum.
Einu sinni í fyrndinni var drotn-
ing nokkur, hún var guðhrædd og
góð kona, en aðal einkenni hennar
var hversu barngóð hún var og
hverja löngun hún hafði til að æfa
íþróttir, en í þá tíð þótti slíkt ekki
hlíta um kvenfólk. En einusinni,
um stórubrandajól, gleymdi hún
allri bænagjörð heila viku fyrir ver-
aldlegum áhugamálum sínum.
Þá birtist hetmi Qabríel engill,
sem kunngerði benni að nú ætti
hún að deya, en lifa skyldi hún
þó öll stórubrandajól þegar fyrri
helmingur áratölunnar að hinum
síðari frádregnum væri 7.
Þessi jól skyldi hún Iifa norður
á hinu afskekta landi Thule og
skyldi hún búa þar í húsi úr góð-
æti því er bömum þess tíma þætti
best og umhverfis sig skyldi hún
líta íþróttir þær, er í mestu afhaldi
væru þá í landinu.
Menn deila altaf um hvort Ul-
tima Thule sje fsland eða eitthvert
annað land og ekki hafa sögur far-
ið af að Póla drotning hafi sjest
hjer enn. Ef til vill hefur ekki svo
staðið á að hún ætti aö sjást fyr
en nú (þaö geta reikningsfróðir menn
rannsakað).
En nú á hún að sjást og hún
sjest líka. Lítið inn í Liverpools-
glugga. Þar er kerlingin og horf-
ir út um gluggana á kofa sínum,
geröum úr súkkulaði. Henni líður
vel þessa fáu daga sem hún fær
að dvelja hjer, kinkar kolli framan
f hvem sem kemur að sjá hana.
Á hægri hönd við kófann er skíða-
braut með háu loft stökki og renna
menn sjer þar ótæft en hinumegin
við kofann er sleðabrekka ogbörn-
in þjóta þar niður hvert af öðru.
Á flötinni fyrir framan er barna-
hópur á skíðum.
'Kofinn stendur í hvammi er á
aðra hönd jarðarber og hin ágæt-
asta mjólk en á hina garður úr té-
grasi, en áð baki alls konar góm-
sætt kexo. fl. o. fl.
En þessu verður ekki lýstí stuttu
máli.
Lítið því sjálfir inn í Liverpools-
gluggann.
Hann gefur yður hugmynd um
vellíöun kerlingar.
Brjefspjöld
Fegursta og stærta úrval í
bænumaf íslenskum brjefspjöld-
um. Þar á meðai margbreytt
Ijósmyndabrjefspjöld fást
á afgr. Visis.
Einnig all mikiðaf útlendum
3 au. brjefspjöldum: Fríð-
leikskonur og landslagsmyndir
með litum.
yetxsla \
ensku og dönsku fæst hjá
cand. Halldóri Jónassyni
Kirkjustræti 8B11. Hittist helst kl.
2-3 og 7—8.