Vísir - 28.03.1912, Page 2
22
V í S I R
(Trawler).
Nokkur botnvörpuskip frá Pýskalandi hef jeg fengið
umboð til að selja í vor og sumar, þar á meðal eitt,
sem gengur til fiskjar hjer við iand í vetur. Pað skip
á að seljast og afhendast kaupanda í júní næstk.
Þeir, sem kynni hafa af þessu skipi, segja það í besta
standi og allan útbúnað fullkominn, vjelina kraftgóða
og nýasta útbúnað um borð til að bræða meðalaiýsi úr
Iifrinni. Skipið selst með öllu tilheyrandi fyrirafarlágt verð.
Notið nú tækifærið og leitið upplýsinga hjá mjer
undirskrifuðum sem allra fyrst.
Sófvawwessoti,
Laugaveg 19.
ISvíþjóð hafa verið hafin al-
menn samskot til þess að smfða
brvndreka og var nýlega komin
rúm miljón króna í gjöfum frá
einstökum mönnum og fjelögum.
A Krít hafa verið miklar rósl-
ur að undanförnu. Eyarskeggjar,
þeir sem grískir eru vilja sameinast
Grikklandi og hafa kosið nienn til
þess að fara á þingið í Aþenu.
Stórveldin hafa ákveðið að aftra
því, að menn þessir fari á þingið
og hefur flotadeild Englendinga á
Malta farið þaðan til Krítar til þess
að halda eyarskeggjum í skefjum.
í SVIexikó heldur áfram styrj-
öld. Stjórnarherinn, 10 þúsundir
manna, hafðist við í Tehuakan og
bjóst til bardaga. Orozko, foringi
uppreistarmanna, hafði dregið sam-
an 5000 manna og var búist við,
að flokkunum lenti saman þá og
þegar. — Frakkar liafa hótað að
skerast í leikinu í Mexikó, ef land-
ið verði ekki friðað bráðlega.
Hafnsögumerm í Finnlandi
hafa gert verkfall. Þeir vilja fá hærra
kaup. Tala hafnsögumanna þar í
landi er urn 600 og hafa tveir
þriðjungar þegar sagt af sjer, og
daglega nýir og nýir bæst við.
A Spáni var ekki annað sýnna,
er síðast frjettist, en * að öll dag-
blöð yrði aö hætta að koma út
vegna pappírsleysis. Pappírsverk-
smiðjurnar voru að verða kolalaus-
ar sakir verfkallsins á Engiandi.
Högormadráp. í Frakklandi
er lagt fje til höfuðs höggormum,
borgaðir 35 centimar fyrir hvern,
sem drepinn er. Árið sem leið
voru drepnir 7845 höggormar í
tveim hjeruðum landsins og er það
meira en sögur fara at áður. Sá
heitir Pierre Cassi í Champagne
sem mestur er ornrabani; lrann sálg-
aði 1818 höggormum árið sem ieið.
Sykurverksmiðju eru Norð-
menn að setja á stofn á Jaðri. Það
er fyrsta sykurverksmiðja þar í landi.
Hlutafjeð er 1200 þúsundir króna,
og er þegar fengið.
Boxarar. Fyrir skönrmu börð-
ust boxarar tveir í París. Annar
var frakkneskur og hjet Belii; hinn
hjet Everndern og er Englendingur.
Belli fjekk hnefahögg í hjartagrófina
og tvö á kjálkanti. Fjell hann um
koll og slóð ekki upp aftur. Hann
lá 12 klukkustundir meðvitundar-
laus á sjúkrahúsi og dó síðan.
Hinn var settur í fangelsi og átti
rjettarhald fram að fara, þegar Belli
hefði verið krufinn.-
SViannfjöldi í París hefur
fimtánfaldast á síðustu 120 árum.
Eftir manntali árið sem leið voru
íbúar borgarinnar 2888110.
Svfastjórn erað gangastfyrir
því að mældar verði allar mómýrar
í landinu og reiknað verðmæti
þeirra. Mómýrarnar taka fyrir nær-
felt tíunda hlula af flatarmáli lands-
ins.—Jafnframt hefur stjórnin með
liöndum frumvarp til þess að liamla
jarðkaupum útlendingn í Svíþjóð.
Mormónar eru ekki vel liðnir
í Svíþjóð fremur en annarsstaðar.
Hefur verið skorað á stjórnina þar,
að gera landræka eina 20 mormóna,
sem hafast við þar í landi.
Síldarbræöslu verksmiöja
brann í Melbo í Noregi 13. þ m.
Skaðinn metinn uppundir 250 þús.
króna.
Banafilræði við ítalfu-
konung. Fimtudaginn 14 þ. m.
var skotið þremur skammbyssuskot-
um á Victor Emanúei ítalakonung,
þar sem hann ók í vagni með
drotningu sinni um borgarstræti í
Róm. Konung sakaði ekki, en eitt
skotið kom í herforingja er var í
fylgd konungs. Gekk kúlan á hol,
og var maðurinn fluttur í sjúkra-
hús. Daginn eftir náðist kúlan úr
sárinu, og búist við að maðurinn
sje úr hættu.
Tilræðismaðurinn heitir Antonio
Dalba og er múrari í Róm. Hann
var þegar tekinn fastur. Hann grjet
fyrir rjettinum og kvað iðrast
verksins. Hann þrætti harðlega
gegn því, að fleiri hefði verið í
þessum ráðum. Þó hefur þvíverið
lostið upp, að Ungtyrkir muni hafa
keypt manriinn til verksins. Hafi
stjórnleysingjar átt fund með sjer
í haust í París, og þar hafi nokkrir
Ungtyrkir boðið stórfje þeim, er
næði Iífi konungs. En fyrir þessu
hafi engar sannanir komið fram.—
Dalbo þessi hafði gert sig sekan í
þjófnaði áður og gerðist stjórnleys-
ingi síðastliðið ár. Lýðurinn í Róm
sýndi konungi og drotningu rr«ik-
inn samfagnað, er þau óku eftir
strætunum eftir tilræðið.
íbúar Kris'íjaníu voru um
252 þúsundir við seinustu áramót,
hafði fjölgað um 7300 árið sem
leið.