Vísir - 29.03.1912, Blaðsíða 2
26
ttr.
V I S I R
)
Hvergi fæst betur
skorið neftóbak en hjá
Jóni Zoega.
Trjesmíða - verksmiðjan
á Laufásveg 2
selur afar ódýrf: Hurðir, Glugga allskonar, Gerekii
og Lisfa. Ýmiskonar plankar og borðviður svenskur
(þurr og geymdur í þurkhúsi),alt fura. MJÖG LÁGT
VERÐ. Ennfremur eru ávalt fyrirliggjandi tilbúnar
Líkkistur og Líkklæði, af öllum gerðum og stærðum.
Afar fjölbreytt úrval af Rammalistum og Mynd-
um. Öli vinna, er að trjesmíði lýtur, fljótt og vel af
hendi leyst.
Menn utan Reykjavíkur þurfa ekki annað en sfma
til verksmiðjunnar, ef þeir þurfa á einhverju að
halda, sem verksmiðjan getur látið í tje.
Utanáskrift: Eyv. Arnason
P. O. Box 65. Talsími 44.
Reykjavík.
Reinh. Andersson
klæöskeri
Horninu á Hótel ísland.
| l.flokks vinna. Sanngjarnt verð
' Allur karlmannabúnaðurhinn besti.J
Legsteina, Leiðisgrindur, Hurðarhúna, Ofna og
Eldavjelar útvegar best og ódýrast
r
Eyv. Arnason.
Svikari. *Námuforstjóri«, sem
Peter Christiansen heitir, var dæmdur
í fjögra ára fangelsi í Berlín 11 þ.
m. fyrir fjárdrátt og svik. Hann
hefur verið fjeglæframaður síðan
hann fór að eiga með sig. Kveðst
hann hafa tekið doktorsnafnbót í
efnafræði í Englandi og því næst
fór hann að grafa gull í Suður-
Afríku. Þegar Buastríðið hófst var
hann höndlaður af Eiiglendingum
og sendur til Norðurálfu. Hann
hafðist þá við í Noregi nokkur ár
og þar datt honurn gott ráð í hug.
Hann fann afarstórar járnnámur,
stofnaði tafarlaust hlutafjelag og varð
sjálfur formaður, Enginn veit enn
hvar þessar náinur hans hafa verið
Það eru þýskir hluthafar í þessum
dularfullu námum Cristiansens, sem
hafa kært hann og komið honum
á kaldan klakan.
Norðmenn gera sjer mikið
far um að gera Hróaldi Ámunda-
syni alla þá sæmd, er þeir mega.
í þinginu hefur komið fram tillaga
um að stofna handa honum auka-
prófessorsembætti með 6000 króna
árslaunum. Einnig hefur verið talað
um að veita honum fjárstyrk til
ferðar þeirrar, er hann hefur í hyggju
ar hefja áleiðis til Norður-heimskauts-
ins. Þá ferð ætlar hann að byrja
sem fyrst, fara norður eftir Kyrra-
hafi og út uni Behringssund áleiðis
til heimskautsins. — Ennfremur
hefur verið ger gangskör að því
að safna fje til þess að borga skuldir
þær, sem Hróaldur hefur orðið að
steypa sjer í til þess að kosta ferð
sína og nema þær nær 70 þúsund-
um króna.
Löng sóknarræða. Sækj-
andi af hálfu réttvísinnar í Camorra-
málinu ítalska; sem mjög er alræmt
glæpamál, hafði flutt framsögu sóknar
sinnar fyrir rjetti í Róm í 19 daga
samfleytt. Þó hafði hann ekki lok-
ið máli sínu og var gert ráð fyrir,
að sókninniyrði ekki lokið á skemri
tíma en 26 dögum!
Raddir
almennings.
Andrúmsloftið í
Reykjavík.
Það er nú komið svo fyrir Reykja-
víkurbúum, að andrúmsloftið, eins
og það hefur verið í bænum, þyk-
ir þeini nú orðið of gott. — Bæar-
stjórnin hefur, eins og kunnugt er
veitt nokkrum niönnum rjett til lifr-
arbræðslu austur í bænum og inn
við Laugarnes. Og tvo síðustu
dagana hafa bæarbúar í raun og
sannleika fengið þefinn af því, þvf
fýluna af bræðslunni hefur austan-
vindurinn borið vestur yfir allan
bæ frá morgni til kvelds. —
Er það virkilega svo, Reykvík-
ingar, að þið ætlið að þola þessa
böivun? Er okkur andrúmsloftið
of gott? Var það svo gott lijer í
bær.um, að það þyrfti að spilla
því með grútar-»ilmaninni«?
Þaö er nú svo, að maður má
alls ekki liafa glugga opinn, líklega
varla einu sinni að nóttu til, því
þá fyllast herbergin af Iofti þrungnu
af grútarbrælu. — Þeir sem hafa
þann »illa anda«, gasið, í herbergj-
um sínum, verða að byrgja fýluna
af því inni, nema ef þeir vilja
skifta á henni og grútarfylunni.
Reykvíkingar! Við verðum að
krefjast þess að bæarstjórnin geri
strax ráðstafanir til þess að við
losnum við þetta óþolandi loft.
Hvaða ráðum hún beitir til þess,
er okkur ásama um, en andrúms-
loftið verðum við að heimta að
hafa ekki verra en það var.
Það var sannarlega ekki of gott.
Jðn Sigurðsson.
Frímerki brúkuð kaupir hæsta
verði Inger Östlund, Laufásv. 43
Útgefandi:
Einar Gunnarsson, cand. phii.
Östlunds-prentsmiðja.