Vísir - 09.05.1912, Page 1
202
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud* 25 blöð frá 25. apríl kosta:Áskrifst.50a. I Afgr. ísuðurend á Hótel ísland l-3og5-7
Þriðj.'1., miðvikud.Jimtud. og föslud. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Fimtud. 9. maí 1912.
Háflóð kl.l 1,4* árd. og kl.11,42* síðd.
Háfjara 6 tím. 12‘ síðar.
Pjóðmenjasafnið opið kl. 12—2.
Eyrna- nef - og hálslœkning ókeypis.
Pósthússtr. 14A kl. 2-3.
Afmæli.
Frú Anna Magnúsdóttir
Einar Finnsson, verkstjóri
Á morgun.
Póstar.
Ingólfur til Oarðs.
Sterling til Breiðafjarðar.
Botnia til útlanda.
BASAR
í HERKASTALANUM, Kirkjustræti 2,
fimtud., föstud. og laugard. 9., 10. og 11. maí kl. 81/* síðd.
Urvals munir, i d.:
Gullhringur, gott nýtt vasaúr, fiðla í kassa, íslenskt belti stór spegill.
Margir silfurmunir og skrautgiipir.
Ennfremur bækur, postulín, bróderí o. m. fl.
Inngangurinn kostar 15 aur. Númerið 25 aur
dlverkasýning
Asgríms Jónssonar
Daglega opin frá 11—6
í Vinaminni.
L[kkisturnar2S«„k“fí”'“,“
götu 6.
ávalt tilbúnar á Hverfis-
Simi 93.—HELOI og EINAR.
Miklar skemdir eystra.
9 bæir hrundirtil grunna.
Ýmsir aðrir faiinir
að mesiu.
í gær komu nánari frjettir að
austan en áður og eru skemdir meiri
en fyr haföi frjettst.
»
Ur Rangárvallasýslu.
Á Rangárvöllum fjellu 6 bæir til
grunna, sem sje
Svínhagi
Næfurholt
Haukadalur
Selsund
Kot
og Dagverðarnes
og er þar ekki einusinni skjól fyrir
kýr.
Á Landi fjellu að öllu
Galtalækur
Vatnagarður
Leirubakki.
Svo sem áður er frá skýrt rotaðist
barn í Næfurholti og hafa ekki fanst
fleiri menn f þessum jarðskjálfta svo
enn sje frjett. Konan þar lærbrotnaði
og var flutt að Kirkjubae og er
Leikið á horna- og strengjahljóðfæri á hverju kveldi
Verið velkomin, konur og menn, ungir og gamiir!
N. Edelbo, adjutant.
hjúkrað þar sfðan. í Næfurholti
drapst og ein kýr og hundur, aðrar
kýr þar á bæ beinbrotnuðu allar að
mun. Flestar rifbrotnuðu.
Upp frá Selsundi kom stór sprunga
í jörðina og seig annarbarmurhennar
svo að þar er nú sex álnum lægra
landið, sem alt var jafnhátt áður.
Sprunga þessi er löng mjög og
allbreið. Er hún 5 al. þar sem hún
er breiðust.
Annars fjell á Rangái'völlum tals-
vert af húsum á hverjum bæ.
Á Reyðarvatni fjellu 8 útihús og
á Reynifelli og Minna Hofi urðu •
mjög miklar skemdir.
Á Velli í Hvolhrepp hrundu öll
hús til grunna nema baðstofan ein
stóð uppi.
í Tungu og Kollabæ litla í Fljóts-
hlíð hrundu öll bæarhús utan bað-
stofur. Var nýbygður bæríTungu
lítill og vandaður vel.
Lengra austur hefur ekki spurst
enn. ,
Ur Árnessýslu-
Frjettir hafa komið af Skeiðum,
Grímsnesi óg Holtum og hefur
kippurinn verið þar snarpur en
verulegur skaði hefur ekki orðið þar.
Fleiri kippir.
Jarðskjálftakippir hafa fundist öðru
hverju eystra síðan aðaljarðskjálftinn
varð og var mestur kippurinn kl.
51/2 > gærmorgun.
Hekla.
Allar hreyfingarnar segja menn
eystra að hafi komið úr áttinni til
Heklu og þeir sem búa í grend við
hana óttast að hún muni gjósa.
Jarðskjálfiasvæðið.
Jarðskjálfta þessa mun hafa orðið
vart víða um land. Meðal annars
urðu menn hans varir víða um Vest-
firði.
‘Jrá uttÖYvdum.
Frá Tripolis. ítalskur hers-
höfðingi, er Garioni heitir, flaug á
flugvjel yfir stöðvar Araba 22. f. m.
í nánd við Fort Bu Kemmesh rjett
hjá landamærum Tunis. Gerði síð-
an liðsmönnum aðvart og rjeöust
tvær herdeildir á Araba. í sama
mund ginti hann annan Arabaflokk
í launsát. Fjekk hvorugur flokk-
urinn reist rönd við ítölum og
urðu Arabar að leggia á flótta við
mikið tjón.