Vísir - 28.06.1912, Side 1
Kerrmr venjulega út ki. 12alla virkadaga. 23 blöð frá 30. maí kosta: Áskrifst.50
Afgr.í suðurenda á Hótel ísl. Wj^ogb-1 Send út um landóO au. — Einst. blöð 3
a.
a.
Skrifstofa í Pcsthússtræti 14A. Venju-
lega opin kl. S—10, 2—4 og 6—8.
Föstud. 28. júní 1912.
Háflóð kl. 4.33‘ árd. og kl. 4.52‘ síðd.
Háfjara 6 tím. 12‘ síðar.
Á rrtorgun:
Póstar.
Kjósarpóstur fer.
Sunnanpóstur fer.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer
Bibiíufyrirlestur
í »Betel« sunmidagskveld kl. 8
J. C. Raft frá Kaupmannahöfn talar
(meðtúlk)um Endurkomu Krists.
Hvernig verður það? Birtist Krist-
ur sjónum manna eða kemur hann
á layndardómsfullan hátt? Er það
rjett að hann komi til ákveðins
staðar ?
Allir velkomnir.
»Hershöfðinginn af Kö-
penik eða Wilhelm Voigt hinn
frægi þýski skóari var sagður dáinn
11. þ. m. á gistihúsi í Lundúnum.
En frægur var hann fyrir það
að hann í október 1Q06 kom til
þorpsins Köpenik hjá Berlín klædd-
ur sem þýskur varðliðsforingi náði
þar í litla herdeild, fór með hana
til borgarstjórans, Ijet taka hann
fastan fjölskyldu hans og gjaldkera
og gæla þeirra meðan hann náði
sjer í 4000 mörk úr bæjarkassanum
og kom sjer undan. Hann náðist
ekki fyr en eftir 8 daga og var
settur í fangelsi. En þetta atvik
vakti svo inikla athygli að fjöldi
manns varð til að gefa honum fje
og þegar hann loks var laus látinn
gat hann lifað í vellystingum á
samskotafjeinu. Meira.
Fríherra v. Erffa forseti f
þýska þinginu — sá sem Ijet Iög-
regluna færa út tvo þingmenn úr
þingsalnum um daginn eins og
getið var um í Vísi 303 tbl. —
er nú dáinn af afleiðingum af slagi.
EldgOS mikil hafa orðið fyrri
hluta þessa mánaðar á eynni Hodiak
í Alaska, og hafa 7 fiskimannaþorp
Ketilföt Dömuklæðið
nauðsynleg fyrir alla vjelamenn, að margeftirspurða komið, 3 tegundir.
eins 5,75 fást í einnig alklæði og Cheviot á 2, 35
Anstursiræti 1. i Austurstræti 1
w Sgsg. fjf. §unnlaugsson 9 Asg. G. Grunnlaiigssoii
Á §o. & Co.
þar eyðilagst og rúmlega 200 rnanns
farist. Öskufall var svo mikið að
allur jurtagróður á eynni eyddist
og Katmai allstórt sjóþorp, sem er
á Iandi gegnt eynni fór og í eyði
fyrir öskufalli.
^etwöc^Y.
Heimskautafarar og hágöngumenn
skýra oft frá því, að þeir rekist á
blóðrauðar snjóbreiður, sem bera
mjög frá öllu hvíta flæminu um-
hverfis að einkennileik. Stundum
er sagt frá því, að rignt hafi blóði;
sló það oft felmtri og óhug á menn
á fyrrí öldum, þegar hjátrúin var í
algleymingi, því það var talinn fyr-
irboði stórtíðinda, stríðs og drep-
sótta. I sögum vorum er og get-
ið um »benrögn«, og ávalt sem
forboða vígaferla og bardaga. Nú
vitum vjer, að þessu veldur örlítil,
rauð þarategund, sem aðeins sjest í
bestu smásjá; samlagast hún regn-
inu í loflinu, en þar eru margir
miljarðar slíkra smáagna á sveimi.
Af þörum þessum eða »blóð-
ögnum« eru tvær tegundir: sú er
snjóinn litar (Ha ematococcus
nvalis) og sú er ofan rignir (H.
pluvialis). Agnir þesar eru afar
lífseigar, þorna og verða að ör-
smágerðu ryki, sem vindurinn feyk-
ir hátt í loft upp. Ef þær rekast á
regnský uppi í loftinu, falla þær
aftur til jarðar með regninu, en lita
það blóðrautt um leið. í norð-
lægum löndum er þetta mjög sjald-
gæft; mikln oftar ber það við í
eldfjallalöndum í hitabeltinu, sjer-
staklega á Java, en þar eru jarð-
eldar tíðir. Ekki eru þarar þessir
altaf orsök þess, að regn er þar
blóðroðið, — oftast veldur því
rauðleitt öskuryk, sem þeytist hátt
í loft upp við eldgos. Eldfjallaaska
þessi getur haldist mjög lengi í
loftinu, þangað til einhver hitabeltis
helliskúrin dynur á, blandast ösk-
unni, tekur hana með sjer, fær lit
af henni og fellur sem benrögn til
jarðar. Oftast er mikið af þörum
í regninu, en auðvitaö eykur ask-
an injög á blóðlitinn því f henni
er örsmátt járnryð, »titanjárn« o. fl.
gulbrún efni, svo stundum er því
líkast sem rauðir blóðfossar falli úr
loftinu, þegar hellirigning er á
þessum slóðum.
Isafirði firntud.
Ágæt gróðrarskúr kom í dag en
undanfarið liafa gengið langvinnir
þurlcar.
Aflareytingur í Bolungarvík og
Hnífsdal, en aflalaust á ísafirði.
Útboð.
Undirritaður óskar eftir tilboði
um byggingu á húsi úr steinsteypu
í sumar. Teikningar til sýnis á-
samt upplýsingum á Lindarg. 14
til laugardags.
L. Dichmann.