Vísir - 26.07.1912, Blaðsíða 3
V I S I R
ið áfram að vera það eftir að ráðh.
skifti verða, ef sá tfmi fer ekki sam-
an við endi kjörtímabilsins. Þetta
vildi til þegar nýi ráðherrann, sem
nú er, valdi síðast kg. kjörna þm.
Þá gerði hann það þvert ofan í
vilja og skoðanir þáverandi meiri
hl. og ráðh., sem við tók. Og þótt
sá ráðh., sem nú ljet af stjórn,
hegðaði sjer öðru vísi, þá er eng-
in trygging fyrir því, að svo verði
jafnan. Það er og öllurn ljóst, hve
sjálfsögð þessi breyting er, og hve
inikla áherslu allur landslýður hef-
ur á það lagt, að kg. kjörna sveit-
in hverfi. Þá er enn eftir einn
kostur þessa frv., er jeg fyrir mitt
leyti met nálega mest af öllum.
En hann er sá, aö ef samþyktir
yrðu samningar um samband ís-
lands við annað ríki, þá verði þeir
bornir undir alþjóðaratkvæði með
leynilegri atkv. greiðslu. Jeg sje
ekki, hvernig menn ættu að fara
að því, að verja það fyrir samvisku
sinni að fresta því, að þettaákvæði
komist inn í stj. skrána. Að minsta
kosti vil jeg ekki eiga framtíð lands-
ins undir trú á einstakan mann eða
flokk og orðheldni þeirra. Og fari
það nú t. d. fram, sem jeg heyrði
hæstv. ráðh., sem nú er að verða,
æskja eftir, nefnilega að tekið verði
uþp hjer á þingi uppkastið sæla frá
1908, eða annað þaðan af verra og
samþykj, undir hverju er það þá
komið hvort það ekki verður gjört að
lögum, þegar í haust, öðru en ein-
göngu orðheldni þessa manns og
flokks hans. Og þótt hann væri
allra manna orðheldnastur, þá væri
það ekki nóg trygging, því að hann
getur dáið og annar komið í stað-
inn, sem engu hefur lofað, og er
því við ekkert bundinn. Jeg skil
ekki hví menn gjörast svo djarfir,
að taka upp sambandsmálið af nýju
án þess að þetta ákvæði sje áður
komið inn í stjórnarskrána. Annars
var þetta svo lifandi í meðvitund
manna á síðasta þingi, að jeg skil
ekki í því, að nienn sjeu svo sljóvir,
að á það þurfi að minna.
Frh.
$\ál$sta3*\.
Frh.
II. Avísanir »til Danmerkr og
útlanda* gegn seðlum landssjóðs.
Þau mál, sem eigi eru talin »sér-
stakleg málefni* íslands í stöðulög-
unum, verða að heyra til þeim óskrá-
setta bálki mála, sem í þeim lögum
er nefnd »almenn málefni ríkisins.®
Eitt þeirra málefna er hin útlenda
póstþjónusta fslands; henni rástafar
stjórn ríkisins, en stjórn íslands
(landshöfðingi fyrst, síðan ráðherra)
»póstgöngunum á íslaudi«. Undir-
staðan undir því, að póstþjónustu
íslands er þannig hlutað milli Dan-
merkr og þess sjálfs, er sú að milli
Danmerkr og annara ríkja o: sjálf-
stæðra póstumdæma, eru standandi
póstsamningar uni fyrirkomulag út-
fendrar póstþjónustu hvorra tveggju.
Enn við ríkishlutann ísland eru
etigir slíkir saningar.1)
Smbr. bréf landshöfðingja 18. sept.
1886 (Stjórn. Tíðindi 1886, B. 113 bls.
130): — »Verðr póstafgreiðslumönnum
hér á|landi eftir gildandi samningum við
póstumdæmi erlendís og öðrum ákvörð-
Þetta skipulag póstmála íslands
, hófst fyrst með því, að yfirpóststjórn
I ríkisins sendi umburðarbréf um alt
ríkið 21. febr. 1870, þess efnis m.
a., »að póststjórn ríkisins tæki að
sér póstgufuskipa-samband íslands
við Danmörku frá því að fyrsta ferð
hennar (póststjórnarinnar) yrði í næsta
mánuði« (o: í marz) og hefði hún
þar af leiðandi, sett á stofn póst-
gufuskipa-afgreiðslustofrr og póst-
sendinga-stofur er reikninga haldi
(útaf fyrir sig) á Færeyum og á ís-
landi (Reykjavík og Seyðisfirði).
Póstafgreiðslumennina nefndi yfir-
póstmeistarinn »Postexpeditör«.
.Póstgufuskipa-samband’ þetta við
Danmörku eða, með öðrum orðum
hin útlenda póstþjónusta íslands, er
enn til þessa dags undir ráðstöfun
yfirpóstmeistara hins danska konung-
veldis,
í bréfi frá 26. apríl 1870 færði
dómsmálastjórnin stiptamtmanninum
yfir íslandi þá fregn, að tveir em-
bættismenn, annar úr dómsmálastjórn
hiun úr fjárstórn ríkisins hefðu verið
valdir til að búa til uppástungur
hvernig ætti að haga til um peniga,
sendingar milli Danmerkr og íslands.
Þessi stjórnaráð: dómsmálastjórnar-
ráðið og fjárstjórnarráðið, hefði síðan
skrifast á um málið, og hefði fjár-
stjórninMWsii »að póstávísanir...megi
senda milli póststöðva í konungs-
ríkinu öðrumegin og póststöðvanna
í Reykjavík og Seyðisfirði hinumegin
o. s. frv.«
Þrem dögum síðar, 29. apríl, 1870,
gaf yfirpóststjóri ríkísins, greifi S.
Danneskjold Samsöe, út og sendi
síðan póstafgreiðslumanni sínum í
Reykjavík til birtingar: — »Auglýs-
ingu til íslendinga . . , um peninga-
víxlun með póstávísunum.«
Eftir boði húsbónda síns, birti
póstafgreiðsiumaðr auglýsinguna í
Þjóðólfi 22. júní 1870 (bls. 139),
og segir þar m. a., að peningavíxlun
með póstávísunum, er eigi nema
meiru en 50 rd. geti ^framvegis átt
sér stað milli póstafgreiðslumanna í
Reykjavík, á Seyðisfirði og Þórshöfn
annarsvegar og pósthúsanna í ko!i-
ungsríkinu hinsvegar*.
»Til þessara póstávísana skal hafa
eyðublöð, er fást keypt hjá póstaf-
greiðslumönnum fyrir 2 sk, hvert.«
— Það er sjálfsagðr hlutr, að eyðu-
blöð þessi hafði yfirpóststjórnin sjálf
búið til. — Fleira enn þaö sem hér
er tekið fram þykir eigi þörf að
færa til úr auglýsingu þessari. Hún
lýsir því berlega, að póstávísanir út
fyrir ísland voru alshendis undir
ráðstöfun yfirpóststjórnar dkisins.
Undir ráðstöfun sama yfirvalds hafa
þær altaf verið, eru enn í dag, og
verða framvegis, meðan ísland er í
þeirri »stjórnarlegu stöðu í ríkinu,«
sem lögin 2. jan., 1871 marka því
og Damörk heidur áfram að vera
sjálfstætt póstdæmi, bundið póst-
samningum við önnursjálfstæð póst-
dæmi heimsins.
Engan þarf að furða það, að þess-
ar auglýsingar yfirpóststjórnar ríkis
ins koma út nokkurum mánuðum
áðr enn stöðulögin voru staðfest af
konungi, Þær eru í fullu samræmi
við 3. gr 6. staflið þeirra laga: og
8 Steinbítsriklingur
tast f @
KAUPÁNGl
Verðið óvanalega lágt
Bæarstjórn Hafnarfjarðar þarf að láta grafa fyrir ca. 820 metra
löngum vatnspípum.
Tilboðum í verkið veitir undirritaður móttöku til 1. ág. n. k.
Það er áskilið að verkamenn verði allir teknir úr Hafnarfirði
til vinnu þessarar.
Að öðru levti gefur vatnsveitunefnd Hafnarfjarðar nánari upplýsingar.
Bæarstjörirm f Hafnarfirði
22. júlí 1912.
Magnús Jónsson.
í ferðalög og útreiðartúra er best og ódýrast í
versl. Einars Árnasonar.
ví\c^x
gegn flestum hættum fyrir lægst gjald
^tds\s<Æaáfc\^l*.
The British Dominion Insurance Co., London,
gefur kost á vátryggingu húsa og lausafjár (verslunarvara og
húsgagna)*með óvanalega góðum kjörum.
unum ekki falið á hendr að gefa út
póstávísanir til Danmerkr eða útlanda.«
ó sfc&l aá^v $8 *.
Mannheim Insurance Co. Mannheim
býður ódýra vátryggingu á sjó.
The Scoítish Metropolitan Insurance Co Edinburg,
tekst á hendur lífsábyrgð með óvanaiega góðum og fjölbreyttum kjörum
Nú ættu engir lengur að draga að vátryggja
gegn flestum hættum fyrir lægst gjald
Frekari upplýsingar fást hjá utnboðsmönnum ofannefndra
váíryggingafjelaga, ' ;v
G. Gislason & Hay Líd.
Reykjavík.
STAR BESTIR OG
ÖDYRASTIR í VERSLUN
EINARS ÁRNASONAR.