Vísir - 27.09.1912, Síða 2
V i S I R
klettur og hamarsskúti geymi sögur
um einhverja forna viöhurði, þótt
þeir nú sjeu gleymdir mönnum að
miklu leyti; þó gnæfir hjer hátt
snarbrattur móbergsklettur, er heitir
Jórutindur. Það örnefni er eftir
þjóðsögu, sem gengið hefur mann
fram af manni í Árnessýslu og
víðar um land.
II.
»Jóra í Jórukleyf« heitir ein trölla-
sagar. í Þjóðsögum Jóns Árnasonar,
I., bls. 182. Eru þar nefnd nokkur
örnefni, er við Jóru eru kend, þótt
eigi beri sögum að öllu saman Um
þau.
Þegar kemur fram á Dyrafjalla-
brúnina að austanverðu, er þaðan
fagurt útsýni yfir Þingvallavatr. og
sveitirnar í kring. Þaðan sjest og
langt austur til Heklu og jöklanna,
er ganga þar fram af hálendinu og
enda á Eyjafjallajökli viö sjó fram.
Hjer, þar sem er svo fagurt út-
sýni og gott að vera, ájó a aðhafa
haft aðsetur sitt. Hjer eru mörg
örnefni við hana kend: Jórutindur,
þar á hún að hafa setið uppi, til að
sjá fcl mannaferða og njóta yndis af
útsýninu; Jórukleyf,þar á hún að hafa
dvalið löngum, er hún gekk útárla
dags, og tekið þar fje bænda, er
gekk í skóginum; Jóruhóll, undir
honum á að hafa verið bústaður
hennar, Jóruhellir; Jórugil, eftir því
á hún að hafa velt sjer ofan í Þing-
hallavatn, þá hún var drepin.
Er jeg var 7 -9 ára gamall, var
hjá foreldrum mínum niðursetriings
karl, er hjet Þorleifur. Hann hafði
lengi verið í Nesjum á yngri árum
og sagði hann mjer fyrstur söguna
af Jóru, og bar því að flestu sam-
an og sagt er frá í þjóðsögum J. Á.
Þó var saga hans dálítið fjölskrúð-
ugri; t. d. sagði hann, að áður en
Jóra lagðist út, hafi verið míkil bygð
í kring um Nesju, sem ernæsti bær
og á land það, sem hún á að hafa
haldið sjer. En fyrir manndráp
hennar lagðist bygð sú niður, aö
frátekinni heimajörðinni, því þá hafi
verið kirkja í Nesjuin, og hafi Jóra
verið fæld þaðan með því að
kirkjuklukkum var hringt, er sásttil
ferða hennar, og hvarf hún þá jafn-
an frá. Einnig sagði hann að Jóra
hafí greitt hár sitf með gullkambi,
þá er hún sat á Jórutindi ogsung-
ið svo mikið og fagurt, að hún
töftaði eða tryllti ntenn til sín.
Hann hafði komið í Jóruhellir, þá
hann var smaii í Nesjum,en þá var
skriða fallin ntjög fyrir munna hans.
Að bygð hefur verið undir Jóru-
kleyf og víðar í Nesjalandi, má en
sjá, sbr. Árbók hins íslenska forn-
leifafjelags, 1899. Eru þar get-
ur leiddar að því, að Steinrauður
landnántsmaður hafi búið þar sem
nefnist Vatnsbrekka. Þar er mjög
fagurt bæarstæði. Áður fyrri var
afarmikill skógur um þetta svæði
og það alit fram á vora daga, og er
talsverður ennþá. í manna minn-
um hefur ekkert eyðilagt hann meir
en maðkur, er kom í skóginn 2 sum-
ur hvort eftir annað, 1888—89?
Þá eyðilögðust svo stórar brekkur,
er áður voru alþaktar skógi, að ekki
sást annað eftir en kolstönglar af
viðnum.
ev
að taka eftir
því, hversu
þau
fyrirtækí
blómgast,
sem fá Visi
í lið með
sier.
-sassa—kbm
aifl—sssh-:rtftSE-ksess-
auglýsa
í
Yísi.
m
Vandaðar vörur. V : Verslunin Björn Kristjánsson, Reykjavík.
SJÖLIN aikunnu um tíma með 20 § afslætti. > . L 1 tiQotia. oa sfolww.
Ó d ý r a r vörur. V. B. K. vörur eru viðurkendar þær bestu.
Botnvörpuskip til sölu.
Folio 1109. — 139 feta. — Byggður 1906. Lloyds-þrí-gangs vjelar 67
fullk. hestaöfl 10 mílur á kl. tímanum með lítilli koiaeyðslu
Folioll03. — 130 feta. — Byggður 1911. Lloyds-þrí-gangs vjelar, 75
fuilk. hestaöfl. 10 mílur á kl. tímanum með 6 tonna kola-
brúkun á sólarhringnum. — Hvalbak.
Folio 1078. —130 feta—Byg’gður 1904. Lloyd þrí-gangs vjelar 70 fullk.
hestöfl. IOY2 nu'lu á klt. 6 tonna kolabr á sólarhr.— Hval-
bak. Lágt verð.
Folio 1063. — 120 feta — Byggður við endir ársins 1901. Lloyds þrí-
gangs vjelar. Árið 1008 voru v.jelarnar teknar úr skipinu og
fullkomlega enaurbættar — þá var einnig núverandi ketill,
sem var að rnestu leyti nýr 1905, settur í skipið. Kostuaður
um 36 þús. krónur. Éndurbótin með tillögðu i Acetylen Gas-
tækjum kostaði í heild sinni allt að 50 þús kr.
Folio 1073. — 100 feta — Byggður af járni 1891 til Lloyds, C. S. C-
vjelar, 45 fullk. hestöfl. Nýr keíill innsettur við enda
ársins 1909 er þoldi 120. c. pda. n. þrýsting. Mikið nýtt
1911. Nýr skrúfu ás 1909 Lágt verð.
Viðvíkjandi frekari upplýsingum, uppdráttum o. s. frv.
snúi lysthafendur sjer til Sharp Brothers, Baitic Chambers
Newcastle-on-Tyne, sem hafa til sölu allskonar fiskiskip.
Sítnnefni: »Speedy«, N^wcastle-on-Tyne. Scotts Code.
fæst í
j Kirkjustræti 8.
j Valgerður Þórðar-
dóitir.
Pappír og
ritföng
hjá
V. B. K.
þýðir
Peningasparnaður.
Tilsögn í frakknesku, ensku og dönsku
veitir Thóra Friðriksson, Vonarstr. 12.
Á rneðan jeg hefi verið að hugsa
um söguna um Jóru og það, sem
að nú var. skráð, hefi jeg látið liest-
inn minn ganga hægt ofan snið-
skorna götuslóðann, er liggur ofan
með Jórutindi að austan, nú taka
við skógi vaxnir smá hólar og fagr-
ar brekkur; þar ætla jeg að taka
mjer dálítla hvíld. — --
Jeg er búinn að velja góðan
grasblett fyrir hestinn minn, og Iegg
mig svo und;reinn skógarrunnann.
Þessi áning hjer, þar sem jörðin
er klábdd í sitt fegursta skart, blær-
inn andar ilmi blómanna, og kliður
fuglanna fyllir loftið unaðsómi, leiðir
hugann til sælli drauma, en veruleik-
nn skapar; fögur æfintýri rísa uppi
úr djúpi endurminninganna og
mynda dýrðlegar hallir í blómfögr
um dölum, þar sem unaður og á-
nægja ríkir.
Það er hjer sem einn af veg-
fræðingunum vill láta járnbrautina
liggja, sem einhverntima á að koma
frá Reykjavík og austur i sýslur.
Ef það yrði, væri hjer gott fyrir
SLiinarbústað, og holt að vera
um tíma fyrir þá, er inni verða að
kúra nrest alt árið í kaupstöðunum
og sjá svo sára lítið af fegurð
náttúrunnar nje geta notið hins
heilnæma lofts, sem við fjöllin er.
Það mundi styrkja menn, lífga og
kæta, bæta heilsuna og auðga and-
ann að heilbrigðum skoðunum um
veruleika og tilgang lífsins.
Ailir lesa
þao sem augiýst er i Vísi.
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettarmálaflutiiingsmaður .
Kirkjustrœti 8.
Venjulega heima kl. 10—11 árd.
kl. 5—6 síðd
Talsími 124.
Nærföt
hvergi betri en hjá
Reinh. Anderson.