Alþýðublaðið - 31.03.1928, Síða 4

Alþýðublaðið - 31.03.1928, Síða 4
4 ALPÝÐUBKAÐIÐ ] Nýkomið: j j Fermingarkjólar j I og 1 Fermmyaréjélaetni, 1 I BB I margar tegundir. 1 Laugavegi 23, I I m I s IMatthildur Bjomsdóttir. - I lýsi (í öðru blaði) eitthvað nýti- legt, pá segi ég bara: Ef sá góði maður vill fá mína verzlun, þá verð ég fyrst að fá að lesa um kostaboð hans í minu bldði — AlþýöubJaðinu, pví ég læt sem ég viti ekki af öðrum kaupmönn- um en þeim, sem senda mér aug- lýsingu í Alþýðublaðinu. Og ef satt skal segja, þá hefi óg aldrei rtapað á því, en oft grætt vel, eftir því sem við eyrarkarlar eig- um að venjast. Ég bið ykkur að taka þetta rétt eins og það er sagt og reyna þetta; það verður fleirum en mér til góðs, spái óg, ef vel er athugað alt, sem Al- þýðublaðið flytur. Athugull eyrarjálkur. „Spörtu“-fundur er á morgun kl. 9 e. h. að Kirkjutorgi 4. Stubbur verður leikinn annað kvöld. Al- þýðusýning. Taska stúlkunnar, sem rænd var í vet- ur á Tjarnargötunni, hefir nú fundist og í henni alt, sem í henni var, nema peningarnir. Messur á morgun: í frikirkjunni kl. 2 séra Ámi Sigurðsson, í dómkirkjunni kl. 11 séra Bjarni Jónsson, (kl. 2 barna- guðsþjónusta séra Fr. H.), kl. 5 séra Friðrik Hallgrímsson, í Landakotskirkju kl. 9 f. h. pálma- vi'gsla og hámessa og kl. 6 e. h. guðsþjónusta með pradikun, (eins í spítalakirkjunni í Hafnarfirði), í AðVentkirkjunni kl. 8 s. d. tal- að um. eftirvænting og vonbrigði, O. J. Olsen. „Sjá hermenn drottins hníga“ ræða sú, er séra Árni Sigurðs- son hélt við jarðarför þeirra, er fórust af „Jóni forseta", fæst enn í afgreiðslu Alþbl. Magnús Guðmundsson fyrr v. ráðherra, ritar langa grein, en nafnlausa, í „Morgun- blaðið" í dag. Réynir hann þar að bera af sér leppmenskuna með því að vitna í fyrri ummæli sín og „Mogga“ um „orðbragð" og „lundarfar“ dómsmálaráðherfans; og með því að segja, að her- málaráðuneytið brezka eigi Anglo Persian féla|gið, sem er álíka og að segja, að löggíldingarstofan eigi Landsbankann eða að land- helgissjóður hafi átt Thoroillii- sjóðinn, sem Magnús afhenti Odd- fellówum. Leppmenska Magnúsar er á- kveðin með þessum stáðreyndum: Magnús Guðmundsson og fé- lagar hans hafa ef til vill lagt 8 þús. krónur í hlutafélag, sem hef- ir 500 þús. kr. hlutafé. Pessar 8 þúsundir (sem þó er óvíst að þeir hafi lagt fram) er „meiri hlutinn“ af 500 þús. krónum, meiri hlutinn sem þarf til þess að fullnægja lögunum, sem Magn- ús var sjálfur með að koma á, áður en, hann lagði fyrir sig að stunda leppmensku. 500 þús. kr. hlutafélagið (Shell á íslandi) „kaupir" olíustöðina við Skerjafjörð og olíubirgðarnaT af félaginu, sem reist hefir stöðina, En stöðin og birgðirnar eru sam- tals á þriðju millj. kr. virði. Niðurstaða: Átta þúsundimar, sem Magnús og félagar hans segjast hafa lagt fram, ,kaupa,“ olíustöðina við Skerjafjörð! Dettur Magnúsi i hug, að nokk- ur sé svo grænn, að hann sjái hér ekki hina augljósu lepp- mensku hans? Grein um þetta birtist bráðum hér í blaðinu. Fordson dráttavélar verða keyptar nokkrar á kom- andi vori. Grimsnesingar kaupa eina, Búnaðarsamband Suður- lands — eða menn innan þess — kaupa aðra. Mun eiga að vinna með henni í Holtunum. ísfirðing- aT kaupa þá þriðju, Borgfirðingar þá fjórðu og Reykdælir í Ping- eyjarsýslu þá fimtu. Með öllum vélunum verða keypt herfi, en plógur ekki nema með sumum. (FB.) Útvarpið í kvöld. Kl. 7,30 sd. Veðurskeyti. — Kl. 7,40 Barnasögur. — Kl. 8 Fiðlu- leikur (P. O. Bernburg). — Kl. 8,30 Ferðasaga (Helgi Hjörvar, kennari). — Kl. 9 Leikið á stofu- organ (Loftur Guðmundsson). — Kl. 9,30 Fyrirlestur um „Sonötur Beethovens" II, með sýnishorn- um leiknum á slaghörpu (Emil Thoroddsen). Sjómannastofan Guðsþjónusta á morgun kl. 6. Allir velkomnir. 847 er símanúmerið í BíEsreiðíiStöd Kristins & Gunnars Hafnarstrœti (hiá Zimsen.) Hólaprentsmiðjan, Hafnarstrœíl 18, pEentar smehklegast og Mffi* se.it kcanzaborða, erfiljóð og alla smáprentwa, sími 2170. Herbergi til leigu. Sig. Magn- ússon, Grettisgötu 46. Góðir divanar ódýrastir á Freyjugötu 8. Sími 1615. Notuð reiðtijól tekin til sölu og seld. Vöpusolinn Klappar- stíg 27. Herbergi til leigu fyrir einhleypa. A. v. á. fierið svo vel og athugið vSrnrnar og verðlð. fiuðm, B. Vikar, Laugavegi 21, sími ©58. Ljósmyndayélar eru nýkomnar í stóru og miklu úrvali. Verðið af- ar lágt. Amatörverzlun Þorl. Þor- leifssonar. BerklalæknmgaríReykja- vík á opinberan kostnað. FB., 29. marz. (Tilkynning frá ríkisstjórniinni.) Ipgð er hér með tílkynt, að rik- iisstjórnin borgar ekki almenna læknishjálp, sem veitt er berklar sjúkliingum í Reykjavík eftír lok þessa mánaðar öðrum læknum en bæjarlækninum í Reykjavík og héraðslækniinum þar og ekki skurðlæknishjálp öðrum en pró- fessor Guðmundi Thoroddsen. Ritstjóri og ábyxgðarmaðtn Haraldur Guðmundsson. Alþýðuprentsmiðjan. > William le Queux: Njósnarinn mikli. alt fór á ringulreið fyrir mér, og orsökin var éinvörðungu sú, að ég hafði orðið yfir mig snortinn af Clare Stanway, stúlku, er ég hafði mætt af tilviljun. Ég var eins og orðinn að graut, sem hafði soðnað í potti tryltrar ástar og ástríðu. Fram og aftur ráfaði óg um Rómaborg næstu daga eftir heimsókn mína til Cle- mentine og madame Dumont í Villa T'iore, Einu sinni eða tvisvar ók Clementine fram hjá mér, hneigði höfuðið, veifaði hendinni til min og brosti. Hún var sú kona, sem ég girntist að þekkja leyndarmál hennar út í yztu æsar. ÞaÖ gat verið lykili að sorgar- viðburðinum í undirborg Lundúna, Syden- ham Ég tók nú eftir, að hún klæddist ávalf svörtum búningi, þegar ég mætti henni á götunum. Var hún að syrgja manninin, sem hún neitaði að væri elskhugi hénnar? Vissi hún um, hve váveiflegur og dularfullur idauði hans var? Lorenzo var alt af á hælum hemii. Við hittumst oft á ýmsum kaffihúsum eða í Casso, og hann tjáöi méf, að hann dveldist mjög oft með henni, og að kvöldin við hlið hennar liðu yndislega. Hann var án efa ást- fanginn. En ef það, sem hún sagði mér, var satt, þá var ást hans alls ekki endurgoldin á sama hátt, — þá var hún í vinfengi við hann einungis fyrir eigin hagnað, án þess að búast við að launa það nema með óhjákvæmilegum vonbrigðum einhvern tírna síðar. Hún hlaut sem sé að leika sér að tilfinningum hans, — það og ekkert amnað. Eitt sinn sagði mér herforingi nokkur, sem var vinur hans, að signor Lorenzo Castellaini hefði orðið fyrir einstakri giftu og heppni þá nýverið, þvl að hann hefði hlotið mikdvæga stöðu við hermálaráðuneytið jafnframt því, sem honum var leyft að halda herforingja- stöðu sinni. Pað var einkennilegt, hugsaði ég, að hann hefði aldrei sagt mér frá þessu. En svö gat verið ástæða til þessa. Ef til vill vildi hann ekki, að þessi upp- haíning hans til tignar og valda bærist út og yrði heyrum kunnug. Hann var hjá- rænulegur í skoðunum viðvíkjandi embætt- isveitingum og bitlingum frá þeim mönnum, er hærra stóðu í mannvirðingastiganum en hann sjálfur. Mér hafði hingað til áreiðanlega mistekist i einu atriði sérstaklega; — hann var alls ekki að draga Clementine á tálár, heldur var hún að draga hann á tálar, eins og siðar kom greiniléga í Ijós. Tíminn leið hægt og hægt. I hvert sinn, er fundum okkar Claucares lávarðar bar sam- an, var hann eðlilega meira og meira á- fjáður í að fá að vita um leyndarmáliö mikla — hinn tlivonandi varnarsamning milli Frakklands og ítalíu, — og kvíðafullur út af því að geta ekki verið viss um að klófesta vitneskju um innihald hans i tæka tíð. Bæði erkiæfintýramaðurinn Vizardelli og de Suresnes greifi forðuðust hann, og nú vissu öll stórveldin, að ástandið vlð Mið- jarðarhafið var ægilegt. Margir spáðu hrylli- legu blóðbaði. Englendingum, sem heima búa, er ókunn- ugt um þá feikna erfiðleika, sem brezkir sendiherrar eiga við að etja víðs vegar úti um heim. Bretar eiga víða og vilja eigin- lega alls staðar eiga ítök, enda er drottn- unargirnin svo rík í þeim, að þeim finst þeir eiga að hafa nefið niðri í öllu. Petta get ég nú sagt og verð að segja þráttifyrir, get ég nú sagt og verð að segja þrátt fyrir armiði reyndi að auka ágang þéirra víðs vegar. En þetta. er nú einu sinni föðurlands- ást, og þá er það — gott! . >

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.