Vísir - 02.08.1913, Blaðsíða 4

Vísir - 02.08.1913, Blaðsíða 4
V í Í3 l R að uppvíst varð um ýmsar villur í bókunum hjá honum, var honum sagt upp. — Fara lieim aftur? Nei, aldrei! »Drengurinn er kanskeheld- ur, ekki sonur minn«, hugsaði hann. Það gekk ver og ver fyrir honum; af því að hann gat ekki hætt að drekka, varð hann nautrekstrarmað- ur, en það leið ekki á löngu áður enginn einusinni vildi hafa hann til þess. Því ömurlegra sem ástand hans varð, því meira ásakaði hann konu sína og því meira óx reiði hans til hennar. Seinasta staðan, sem Kornei hafði, var fjósastörf; en fjeð sýktist, og þá rak eigandinn hann burtu. Kornei rjeði nú af að hverfa heim. Þegar hann fór frá Kiew, hafði hann einar 8 rúblur í vasan- um. En á leiðinni varð hann veik- ur, og þegar hann var orðinn ferða- fær aftur, átti hann ekki nema 90 kopeka efíir. Hann lagði nú aftur af stað, en varð veikari og veikari, svo hann loks komst ekki nema 10—12 versta á dag. Þegar hann átti eftir 200 versta til Gai, voru peningar hans alveg þrotnir, og fór hann þá að lifa á bónbjörgum til að komast áfram. Vegna veikinda hans var hann 2 vikur að komast þessa 200 versta, og nú var hann kominn til Andrievka, þar sem hann mætti Agafíu, sem hann ekki vissi að var dóttir hans, og sem hann hafði brotið handlegginn á fyrir 17 árum. Þegar hann kom til húss Zino- vievs, bað hann um að lofa sjer að vera þar um nóttina, og var honum Ieyft það. Var honum boö- ið inní sfórstofuna og hneygði hann sig þar fyrir framan dýrlingsmynd- ina og gerði krossmark. Frh. Sendið auglýsingar tímanlega I 1 8 ísafirði, 1. ág. Borgarafundur á ísa- firði, framhald fyrra fundarins, er getið var í »Vísi« í gær, sam- þykti mótmæli gegn veðskoðun- arfrumvarpi Bj. Kristjánssonarmeð 27 atkv. gegn 10. — 'Aðallega var fundurinn stofnaður til þess að mótmæla því, að endurvirð- ingin færi fram ■>«' kostnað lántak- enda«, en úrslitin urðu þau, að mótmælt var frumvarpinu í heild sinni. Á fyrri borgarafundinum var samþykt og send þingmanni kaupstaðarins, sjera Sig. Stefáns- syni áskorun þess efnis, að skora á hann að beita atkvæði sínu og áhrifum gegn öllum bann- lagabreytingum. Kalsi og rigning í dag á ísa- firði. ------ Hjeraðshátíð halda Önfirðing- ar 3. ágúst. — Söngflokkur af ísafirði syngur þar undir stjórn Jónasar Tómassonar söngkenn- ara. verksntiðjur alls, hefur nú nýlega ] hokasöfnum, sem geyma þau til Akureyri, föstudag'. Guðl. Guðmundsson bæ- arfógeti liggur alt af, jafnþungt haldinn. Höfðingjaháfíur. AageBer- lemé stórkaupmaður, eigandi Carl Höepfners verslana, hefur að sögn boðið að lána Akureyrar- bæ 70 þús. kr. með lágum vöxt- um og mjöggóðum afborgunar- skilmálum, til þess að koma á raflýsing í Akureyrarbæ og til þess að fullkomna vatnsveltuna í bænum. Ennfremnr býðst hann til að lána bænum 10 þús. kr., til þess að gera bátakví norðan við hafnarbryggjuna. Hr. Berlemé er ungur maður og erfði Höepfners-verslanir eftir móður- afa sinn. Væri óskandi að fleiri bæarfjelög á íslandi ættu slíkan hauk í horni, sem Akureyri á í honum. Sólskin, hitar ogblíðviðrihafa verið hjer allan júní- ogjúlí-mán. Grasvöxtur og heynýting í besta lagi hjer nærlendis. Sfldarafli hefurverið fremur lítill undanfarið, en þó er sagt að gríðarmiklar síldartorfur sjeu úti fyrir firðinum. Vesturfarar hafafarið hjeðan í ár milli 20 og 30. Það er ávöxturinn af heimsókn Vestur- íslendinga er hjer dvöldu í vet- ur og grunar menn nú, að þeir hafi verið grímuklæddir manna- veiðarar. Áður en þeir komu var vesturfarahugur út dauður hjer um slóðir. bætt við sig þremur í hverri borg. — í verksmiðjum hans var árið 1912 soðið niður í 455 000 000 dósir. — Sem dæmi þess, hve stór- kostleg sala þessa »niðursuðukon- ungs« er, má geta þess, að hann kaupir árlega umbúðapappír fyrir 20 000 kr. Þokkalegir farþegar. Úr Saint-Martin de Ré fangels- inu í París voru nýlega sendir á skipi til Guyana í Suður-Ame- ríku 460 stórbófar. Veðurspár, Þýskur veðurfræðingur, Ru- dolf Fischer prófessor, segir að marka megi veður á meginlandi Evrópu eftir veðurlagi á íslandi. Hefur hann reiknað þetta út eftir veðurskýrslum frá Reykjavík og Seyðisfirði. Þegar sumarhitinn hjer er að morgni 14° eða meiri í nokkra daga, er mikill hiti í vændum í Mið-Evrópu. Svo er og ef hiti á íslandi er 8° til 10° samfleytt nokkrar vikur. En sjeu hjer að eins 46, er hiti að eins örfáa daga í vændum. Eins er um kuldann. Sje hitinn-?-60 eða minni á íslandijnokkra daga, er kuldakast í vændum“|jí Mið- Evrópu, — því lengra er kastið, sem kuldinn *er meiri á íslandi. Ef 4° kuldi er á íslandi að vori og hausti, er Iengri kuldatíð í vændum þar syðra. Hárlokkur Goethe’s gagns og góða komandi kynsloö- um. Perluhálsmeni stolið úr pósti. Perluhálsmeni, 1800 000 króna virði að minstakosti, var nýlega stolið úr póstflutningi milli París og London. Það var sent frá París í ábyrgðarpósti, í brjefumbúðum og og innsiglað sem lög gera ráð fyr- ir, og utan á það ritað til Mayers nokkurs í Hallon Garden í London. Þegar pakkinn kom til viðtakanda, voru innsiglin ósnert og umbúðir óskemdar, en er öskjunni, sem men- ið átti að vera í, var lokið upp, voru í henni tómir sykurmolar! Það sást að sykrið var búið til í Frakk* landi, og er því álitið, að þjófnaður- inn hafi framinn verið í Frakktandí. Lögreglan hefur enn ekki fengiö nokkurn grun um, hver valdur sje að verkinu. »Artisten* heitir nýtt danskt blað, er »Vísi« hefur verið sent. Er það gefið út í Khöfn og er ritstj. þess Jul. Peel- mann. Það er hlutverk þess, að kynna Norðurlandabúum listamenn, er um ferðast, og leiðbeina þeim, er lista vilja njóta í höfuðborgum Norðurlanda. Snoturt hálfs-mánaðar- rit með mynduni. Verð utan Dan- merkur 4,00 kr. Hinar margeftirspurðu TAURULLUR Ö R BÆNUM. Carl Kuchler. íslandsvinur- inn góðkunni, er dvelur hjer á landi um tíma í sumar ásamt dóttur sinni, hefur. ritað grein um ísland og Færeyjar í aukahefti þýska tíma- ritsins »Natur« í f. m. Grein þessi nefnist »Tveir norrænir töfraheimar,« prýdd ágætum myndum, — er hún prýðilega rituð og lýsir vel góð- vildarhug höf. til þjóðarinnar og aðdáun hans á landinu, eins og alt annað, er hann hefur áður ritað um þetta land. Nýr þráðlaus firðiali, Frakkneski vísindamaðurinn, pró- fessor d’Arsonval hefur fundið upp nýtt áhald til firðtals án síma. Full- gert er það að vísu ekki, en meist- arinn kveður það fullgert í október n. k., og hefur þá frakkneskt síma- fjelag tekið að sjer að nota það. Háii verð á kynbóiahest- um. Úr Guðbrandsdölum í Noregi hafa nýlega verið seldir 2 kynbótahestar, annar tvævetra og hinn þrjevetra foli, fyrir 10 000 kr. — Hestakyn- bótum fleygir þar óðum fram; á einu kynbótabúi ríkisins þar í Dölunum eru nú 240 hryssur og 6 graðhestar, »Niðursuðukonungurinn.« Chr. Bielland, niðursuöu-vtirk- smiðjueigandi í Stavangri, á nu 14 Mál er nýlega risið í Pjetursborg út af hArlokk skáldsins Goethe. Syst- ur tvær, Böhme að ætíamafni, kynj- aðar úr grend við Weimar, settust að í Pjetursborg fyrir nokkrum ár- um. Þær höfðu erft eftir föður sinn, nafnkunnan forn- og menjagripa- kaupmann í Weimar, hárlokk af Goethe og valnslitamynd, er Goethe hafði sjálfur málað í París. Fyrir nokkru voru systur þessar í fjárkröggum og veösettu þær þá lokkinn hjá okurkarli fyrir Iítilli fjár- hæð. Nú hefur handhafi lokksins neitað þeim aö leysa hann út, og systurnar hafa sfefnt karli og krefj- ast þær að fá lokkinn aftur eða 20 000 ríkismarka að öðrutn kosti. eru aftur komnar í Versl. Jóns Þórðarsonar. ^ H Ú S N Æ D Stofa, fyrir einhleypa til Ieigu nú þegar. Upplýsingar í Verslun Jóns Þórðarsonar. 4—5 herbergja íbúð óskast til leigu. Afgr v. á. 2 herbergi og eldhús óskast 1. okt. Afgr. v. á. Herbergi óskast til leigu 1. okt., helst á Bergstaðast. eða Laufásv. Af- gr. v. á. 2 herbergi og eldhús óskast frá 1. okt. fyrir barnlaus hjón. Af- gr. v. á. Mílljónagjöf 451 háskólabókasafnsins f París. Háskólabókasafninu í París hef- ur nýlega verið »af alkunnum manni, sem ekki vill láta nafns síns getiö« gefið bókasafn, sem er margra mil- Ijónir franka virði. Þótt gefandinn hafi gert launungu nafns síns að skilyrði fyrir gjöfinni, vita menn að hann er fornfræðingurinn Doucet, sem á óviðjafnanlegt ágætissafn lista- vísinda- og fornfræðibóka. Fyrir safti þetta er í ráði að byggja sjer- stakt hús, er innangent sje í úr aðalsafnhöllinni og verði þar brjóst- líkneski Doucet reist á miðju gólfi í virðingarskyni, úr því þetta getur ekkert launungarmál orðið, — Þetta fordæmi Doucets ætti að hvetja einstaka menn til þess að láta ekki bækur sínar fara út í veður og vind á uppboðum með engu verði, en ánafna þau heldur 1 Q KAUPSKAPUR Plyssmöblur og borð til með tækifærisverði. Afgr. v. sölu á. SKEMTIVAGN fjórhjólaður, nýr og vandaðurffæst með tækífærisverði. Pakkhússtj. Edinborgar v. á. V I N N A Kona tekur að sjer sauma og aðgjörðir á fötum. Afgr. v. á. Stúlka tekur að sjer að vera hjá sængurkonum. Afgr. v. á. ITAPAÐ-FUNDIO Gullprjónn brotinn, nældur í blátt flónel, f rauðri öskju, hefur tapast í Þingholtsstræti. Afgr. v. á. Útgefandi: Einar Gunnarssoti, cand. phll. Östlundsprentsm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.