Vísir - 16.09.1913, Blaðsíða 1

Vísir - 16.09.1913, Blaðsíða 1
734 24 1 Ostar bestir ug ódýrastir í verslun Einars Árnasonar. Stimpla og Innsiglismerki Otvegar afgr. S Vísis. i Sýnishorn Sj liggja frammi. J| Kemur út alla daga. — Sími 400. Afgr.í Hafnarstræti 20, kl. 11-3 og 4-6. 25 blöð (frá 24. ág.) kosta á afgr, 50 aura. Send út um land 60 au.—Einst. blöð 3 au. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi), opin kl. 12-3. Sími 400. Langbesti augl.staður í bænum. Augl, sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu. Þriðjud. 16. sept. 1913. Háflóðkl.5,37‘árd. og kl. 5,52‘ síðd. Afmœli. Frú Helga Ólafsdóttir. Frú Krislín Sigurðardóttir. Frú Þórhildur Sandliolt. Johan Georg Halberg fv. gestgj'afi. Jörgen Hansen verslunarm. Kjartan Konráðsson skrifari Magnús Vigfússon dyravörður. Sigurjón P. Jónsson skipstjóri. Veðrátta í dag: Loftvog 1 1 -< Vindhraði| Veðurlag Vestme. 767,2' 0,8 0 Heiðsk. Rvík. 767,7' 1,0 A 1 Ljettsk. ísaf. 765,5i 4,7 V 3 Heiðsk. Akureyri 765,6; 1,0 0 Ljettsk. Grímsst. 721,7 1,5 S 1 Ljettsk. Seyðisf. 765,11 2,9 0. Ljettsk. Þórshöfn 763,7 7,9 ANA 4i Alsk. I N—norð- eða norð:n,A—-aust-eða austan.S—suð- eðasunnan, V—vest- eða vestan Vindhæð er talin ístigumþann- ig: 0—!ogn,l—andvari,2—kul, 3 — gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6— stinningskaldi,7—snarpur vindur,8 — hvassviðri,9 stormur, 10—rok, 11 — ofsaveður, 12—fárviðri. Skáleturstölur í hita merkja frost. Biografteater píJL Reykjavíkur OlO 16 , 17.og 18. sept.: (Den sorte Varieté.) Fádæma hugtakandi sjónleikur í 2 þáttum, leikinn af 1. flokks leikendum við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. £os J^xv^elos. Fögur náttúrumynd. I fkklstur fást venjulega tilbúnar ■ á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og I gæði undir dómi almennings. — l—» Sími 93. — Helgi Helgason. Fallegustu likkisturnar fást hjá mjer—altaf nægar birgð- ir fyrirliggjandi — ennfr. lik- klæði (einnig úr silki) og lik- kistuskraut. Eyvindur Árnason. ÚR BÆNUH. Drekkið Egilsmjöð og Malt- extrakt frá innlendu ölgerðinni »Agli Skallagrímssyni«. Ölið mælir með sjer sjálft. Sími 390. Stúdentafjelagshátíðin norska. Stúdentafjelagið hjer hafði nýlega kjörið Benedikt alþm. Sveinsson til þess að vera fyrir sína liönd við hátíðahöldin í Kristjaníu í byrjun næsta mánaðar. En nú hefur hann beðið sig undan förinni og hefur því fjelagsstjórnin kjörið Mattías Hjálpræðisherinn. Stór fagnaðarsamkoma í kvöld kl. 8V2 fyrir stabskaptein Edelbo ens. Solveigu Bjarnason o. fl. Inng. 10 au. — Allir velkomnir. fornmenjavörð Pórðarson til farar- innar. Alþingismenn eru nú óöum að fara úr borginni. Með Ingólfi fóru til Borgarness á laugardaginn þeir Stefán í Fagraskógi, Þórarinn cg Tryggvi úr Húngvatnssýslu og Guð- jón frá Ljúfustöðum. í gær fóru með Hólum sjera Eiuar, Jóhannes sýslumaður, Ðr. Valtýr. í dag- fór Eir. Briem prófessor í kynnisför aust- ur að Stóra Núpi. Sterling kom í gærkveldi. Flóra kom í gærdag. Viðsjár í Búlgaríu. Eftir fregnum í síðustu útlend- um blöðum að dæma, eru við- sjár miklar í Búlgaríu. Mikill liluti hersins er í bruggi við upp- reistarmenn, er vilja hvorki meira nje minna en steypa konungi og æít lians allri af stóli. Ekki eru menn á eitt sáttir um, livort ríkið skuli verða þjóðveldi eða kon- ungsríki ef stjórnarbyltingin tekst, en takist hún, eru líkur taldar til þess, að enskum pritis verði boðin konungstign í Búlgaríu, — telja menn það vænlegast til þess að rjetta við aftur glatað traust og álit ríkisins og vonin þá meiri um, að Búlgaría fái að halda Adrianopel. Róstur í Dýflinni. í Dýflinni á írlandi lenti í róst- um 2. sept. milli lögreglunnar og verkíallsmanna, er að sporvögn- uni vinna, Olli það róstunum, að foringi verkfallsmanna, Larkin, hafði verið tekinn fastur. Barist var af rnóði miklum og særðust mjög 200 verkamanna og 30 lög- reglumenn. Margir þeirra dóu af sárum og meiðslum á eftir. 144 verkamenn voru síðan dæmd- ir fangelsi. Hefur það vakið svo megna gremju meðal verkamanna, að búist var við nýjum róstum, er hinir látnu væru jarðaðir, en frekari fregnir Wafa ekki borist af því enn. Kossasala í Vesturheimi. í Vesturheimi hefur verið stofn- aður söluskáli; í góðgerðaskyni er þar verslað með kossa. í Salem í Ohio-rfki átti að reisa kvensjúkrahús. Yngstu og feg- urstu meyar bæarins settu nú á stofn kossasöluskála til þess að hrinda fjársöfnun áleiðis. Hver koss kostaði 1 dollar. Afskap- leg ös og þyrping varð um- hverfis stúlkurnar, allir voru bandvitlausir í að fá sjer koss. Margir gamlir og gráhærðir pipar- sveinar buðu 5 dollara í kossinn, fengu hann og komu svo aftur að lítilli stundu til þess að fá sjer annan til. Frakknesk norðurheim- skautsför. Stjórn Frakka hefur gert út för til norðurheimskautsins. Sá heit- ir Julius de Payer, er fyrir förinni er. Skip hans heitir Fratiz josepli, gamalt danskt tollgæsluskip, er í hefur verið sett bifvjel og hef- ur loftrita. Skipið lagði af stað norður frá San Malo f byrjun þessa mánaðar. Tvö rándýr skammaryrði. Danskur maður hafði verið svo ógætinn að kalla landsþings- mann »fant« og »fjárglæframann«. Var hann dæmdur í 250 króna sekt fyrir hvort orð, og þessi rándýru orð dæmd dauð og ómerk! Ekki blásnauður. Aug. Bebel, jafnaðarmannafor- inginn þýski nafnfrægi, er dó ný- lega, og mest hafði barist móti auðnum, fyrirleit ekki »fallvölt gæði þessa heims«. Pað sjest nú best er hann er látinn. Eftir skýrslu skiftarjettarins í Ziirich hefur hann látið eftir sig nærri því heila miljón franka. Nafnkunnur bóksali látinn. Breskur bóksa'Ii Bernhard A. Quaritch, er kunnur er bóksölum og bókavinum víða um veröld ljest 26. f. m. 43 ára gamall. Faðir hans stofnaði bókaverslun og fornbóka- sölu með 180 krónur í vasanuni, en varð bráðlega einhver helsti bók- sali í heimi. Sonur hans hjelt söl- unni við eftir dauða hans og græddi of fjár. Keypti hann bækur fyrir ameríska miljónamæringa og Pierpont Morgan þar á meðal og skaðaðist ekki á. Um sjaldgæfar bækur var leitað til hans úr öllum álfum heims og var hann hin mesta hjálparhella bókasafna og bókavina í því efni. Stórkostlegur hallarbruni. Killorney höllin á írlandi, aðsetur- staður jarlsins af Kenmore, b>-ann 5. þ. m. til kaldra kola. Höll þessi var frábærlega fögur með á annað hundrað herbergja og var þar geymd- ur fjöldi mikill dýrmætra listaverka; kirkja var áföst við hana og í henni altari úr oxyx-steini austrænt, en sjálf var hún hvítum og grænum marmara; þar voru dýrmæt vegg- tjöld. Nokkuru varð bjargað úr hús- inu en skaðinn er metinn 64 000 000 króna. Krýning Grikkjakonungs. Hún á að fara fram í maí að ári með fádæma viðhöfn. Konstan- tín lætur krýna sig hinni fornu kór- ónu Miklagaroskeisara, er geymd er í klaustrinu á Aþos höfða og purp- urakápu Miklagarðskeisara ætlar hann að bera, er þar er líka geymd. Hatin tekur sjer nafnið Augustus, og verð- ur hann eftir öllu þessu að dæma keisari Grikkja eftir krýninguna. Mikil hátíðahöld verða í Aþenuborg við þetta tækifæri, er þegar er farið að undirbúa. Aldarafmæli norska siúdentafjelagsins. Hinn 2. dag októbermán. n. k eríi 100 ár liðin frá því er 18 norsk- ir síúdentar stofnuðu stúdentafjeiag sitt í Kristjaníu. Þann 1. okt. hefj- ast þar hátíðahöld mikil, ætla stúd- entar þá að gefa út sitt eigið dag- blað og selja sjálfir á götum. Þann dag á að selja allsherjar aðgöngu- miða að öllum söfnum og húsum, er merkileg eru í borginni og yfir- irleitt að öllu því, er mest og best getur sýnt menningu borgarbúa, svo sem verksmiðjur o. fl. Hafa bæði verksmiðjueigendur, iðnaðarforstjór- ar o. a. tekið þessu vel og leiðbeina þeir þeim, er miðann hafa hver á sínum stað. Stúdentafjelagið gefur út bók um Kristjaníu, leiðarvísi fróð- legan mjög með myndum, er lýsir borginni og lífi borgarbúa vel, bæði andlegum og verklegum framförum. Um miðjan dag verða hátíðleg ræðuhöld. Síðdegis verður stúdenta skrúðganga, söngur og hljóðfæra- sláttur stúdenta og gleði mikil á há- skólasvæðinu. Að kveldi verður há- tíðleg veisla gerð móti erlendum stúdentafjelagafulltrúum. Væntan- legir eru gestir víðsvegar frá Norðurlöndum, frá nokkrum þýsk- um háskólum og jafnvel sunnarað. En 2. október verður aðalhátíðis- dagurinn. Árdegis verður viðhafnar- veisla og hátíðabrigði meðal með- lima stúdentafjelagsins og að kvöldi gleði mikil í fjelaginu. Næstu daga verður reynt að skemia erlendu gest- unum sem best, svo þeim Ieiðist ekki á fyrsta fundi annarar aldar fjelagsins. Sá fundur verður hald- inn laugardag 4. okt. og konum og meyjum boðið þangað. Verður þar svo fjöhnennt, að salir fjelagsins verða of litlir og verða leigðir aðrir stærri. Allar tekjur af hátíðahöldunum skal nota til þess að efla byggingar- sjóð fjelagsins. Borgarbúar styðja fjelagið með samskotum til þess að hátíð þessi megi verða sein vegleg- ust og liafa þegar safnast 50 000 kr. K. F. U. M. Kl. 8V2 Biblíulestur. K. F. U. K. Á morgun (miðvikud.) eftir kl. 10 árd. verður tekið upp úr kartöflu- garðinum. — Fjelagssystur fjölmenni. Fr. Fr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.